Afleveringen
-
Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, er sérstakur gestur útvarpsþáttarins Fótbolti.net þessa vikuna. Þátturinn er frumfluttur í hlaðvarpi.
Elvar Geir og Tómas Þór ræða við Óskar um verkefnið hjá KR og ýmislegt fleira.
Í seinni hluta þáttarins er farið yfir fótboltafréttir vikunnar. -
Liverpool á siglingu og eru með 8 stiga forskot í deildinni. Versti kafli Man City í 18 ár þegar þeir töpuðu fimmta leik sínum í röð! Áhyggjuefni fyrir nýjan stjóra Man Utd Ruben Amorim. Tottenham yrðu meistarar ef þeir myndu bara spila 38 leiki gegn Man City. Brighton með jafn mörg stig og Arsenal og Chelsea eftir 12.umferðir.
-
Zijn er afleveringen die ontbreken?
-
Það var mikil eftirvænting fyrir frumraun Rúben Amorim hjá Manchester United. En honum er eflaust ljóst núna að hann á langan veg framundan.
Man Utd gerði 1-1 jafntefli við Ipswich í fyrsta leik Portúgalans en fyrr í dag jók Liverpool forskot sitt á toppnum í átta stig. Það er orðið kalt á toppnum.
Og svo er það Manchester City. Hvað er í gangi þar?
Guðmundur Aðalsteinn, Hilmar Jökull og Magnús Haukur Harðarson fóru yfir málin á sunnudagskvöldi. -
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 23. nóvember. Elvar Geir, Tómas Þór og Valur Gunnars fara yfir landsliðið og fréttaflóðið úr Bestu deildinni þar sem félögin keppast um að styrkja sig.
Gestur þáttarins er Íslandsmeistarinn Viktor Örn Margeirsson sem átti frábært tímabil með Breiðabliki og var valinn í lið ársins. -
Þetta er síðasti þátturinn í 16-liða úrslitum og eftir þennan þátt er það ljóst hverjir munu taka þátt í 8-liða úrslitunum. Í þessum þætti tekur Haraldur Örn á móti Ragnari Braga Sveinssyni sem keppir fyrir Fylki og Jóhanni Inga Hafþórssyni sem keppir fyrir MBL.
-
Ísland endaði í þriðja sæti í riðli sínum í Þjóðadeildinni eftir 1 - 4 tap gegn Wales í gær.
Sjö stig en þau hefðu átt að vera miklu fleiri miðað við frammistöðuna.
Baldvin Már Borgarsson og Haraldur Örn Haraldsson settust niður með Guðmundi Aðalsteini og fóru yfir landsleikjagluggann. Einnig rætt lengi um Age Hareide og hans framtíð sem landsliðsþjálfara.
Næst er það undankeppni HM 2026 og þó það sé ekki búið að draga, þá megum við leyfa okkur að vona. Liðið er spennandi, en þá aðallega framarlega á vellinum. -
Gestur vikunnar er Íslandsmeistari í fótbolta 2024. Nik Chamberlain kemur frá Englandi, lærði í Alabama og tengdist Íslandi þar í gegnum m.a. Sigga Sör, Kára Ársæls og Hjört Hjartar! Nik kom til Íslands og spilaði á Álftanesi og ÍH áður en hann spilaði fyrir austan hjá Hugin og KFF. Hann setti mark sitt á Íslenskan fótbolta hjá kvennaliði Þróttar og var á haustmánuðum Íslandsmeistari með Breiðabliki. Við fórum yfir margt. Meðal annars það að Breiðablik á að hafa sent Big Sexy í klippingu, hræðilegan tónlistarsmekk og tígulmiðjuna góðu ásamt því sem Nik valdi bestu leikmenn í sögu þjóðar kvennamegin! Við í Turnunum þökkum okkar traustu bakhjörlum í Nettó, Netgíró, Lengjunni, Fiskversluninni Hafið, Fitness Sport og Tékkanum Budvar ásamt Visitor ferðaskrifstofu. Njótið!
-
Það er landsleikjagluggi og þáttur vikunnar litast að sjálfsögðu af honum.
Tómas Þór og Benedikt Bóas halda um stjórnartaumana og með þeim er Máni Pétursson sérstakur gestur og fer yfir helstu mál. -
Hin ganverska Samira Suleman safnar nú fótbolta- og íþróttabúnaði sem hún fer með til Gana um jólin.
Samira gerði þetta líka um síðustu jól en hún fór þá með mikið magn af treyjum, skóm og öðrum búnaði í heimabæ sinn og gladdi þar mörg börn sem eiga ekki fyrir slíkan búnað. Fyrir börnin skiptir þetta gríðarlega miklu máli en í Gana er ekki sjálfsagt mál að eiga fótboltaskó og aðra hluti til fótboltaiðkunnar.
Samira sjálf spilaði fótbolta í skólaskónum sínum þegar hún var yngri en hún er mikil fyrirmynd fyrir unga krakka í heimalandi sínu. Hún varð atvinnukona á Íslandi og er núna að stíga sín fyrstu skref í þjálfun á Akranesi. Hún ætlar sér langt í þeim bransa og ætlar þannig að brjóta fleiri múra.
Hún vonast til þess að fá hjálp við að láta drauma rætast hjá börnum í Gana um jólin. Fólk getur haft samband við hana eða knattspyrnufélagið ÍA til að leggja sitt af mörkum með því að gefa fótboltadót eða með því að styrkja ferðalag hennar heim með allt dótið fyrir börnin í heimabæ sínum. -
16 liða úrslitin halda áfram og í þetta sinn tekur Haraldur Örn á móti Víking og Íþróttavikunni. Fyrir Víkinga keppti Davíð Örn Atlason en fyrir Íþróttavikuna keppti Hrafnkell Freyr Ágústsson.
-
Man City tapaði fjórða leiknum í röð í öllum keppnum! Liverpool eru í góðum gír með 5 stiga forskot á City. Yoane Wissa drjúgur fyrir Brentford eftir meiðslin. Joao Pedro með alvöru innkomu hjá Brighton! Bruno Fernandes kom loksins með frammistöðu og Sammie Szmodics afgreiddi Tottenham í London.
-
Liverpool stuðningsmenn eru í skýjunum þessa dagana en það er óhætt að fullyrða að liðið þeirra sé það besta í Evrópu um þessar mundir.
Hvern hefði grunað það fyrir tímabilið?
Útvarpsmennirnir Bolli Már Bjarnason og Heiðar Austmann komu í heimsókn í dag og fóru yfir tímabilið hjá Liverpool til þessa en liðið er á toppi ensku úrvalsdeildarinnar með fimm stiga forskot.
Þá var einnig farið yfir aðra leiki helgarinnar; tíma Ruud van Nistelrooy hjá Manchester United, vandræði Manchester City og margt fleira. -
Gestur vikunnar er Jóhann Birnir Guðmundsson, eðalnáungi. Jói æfði eiginlega ekki fótbolta í 3 og 4 flokki því það var ekki lið í Garðinum, þaðan sem kemur. Elton John keypti hann til Watford og þar spilaði hann undir goðsögninni Graham Taylor. Jóhann spilaði svo i Englandi, Noregi og í Svíþjóð áður en hann kom heim til að spila með Keflavík. Eftir ferilinn hefur Jói verið þjálfari Keflavíkur, yfirþjálfari Keflavíkur, afreksþjálfari hjá FH og er nú þjálfari ÍR í Lengjudeildinni.Jói er næst ruglaðisti aðdáandi Man United á Íslandi, rétt á eftir mömmu sinni og er Cristiano Ronaldo kallaður Krissi bróðir í daglegu tali í Garðinum.
-
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er frumfluttur í hlaðvarpi þessa vikuna. Umsjónarmenn eru Elvar Geir og Tómas Þór.
Gestur þáttarins er Kári Árnason, yfirmaður fótboltamála hjá Víkingi.
Fjallað er um helstu fréttir úr íslenska boltanum, Evrópuvelgengni Víkings og íslenska landsliðið sem býr sig undir leiki gegn Svartfjallalandi og Wales í Þjóðadeildinni. -
Sæbjörn Steinke ræddi í vikunni við Hallgrím Jónasson, þjálfara KA, og gerði upp nýliðið tímabil með honum.
KA varð bikarmeistari í fyrsta sinn í sögu félagsins og endaði í 7. sæti Bestu deildarinnar. Stigasöfnunin var lítil í byrjun móts og hugsuðu einhverjir hvort KA þyrfti hreinlega að skipta um þjálfara.
Það var ekki gert og gengi liðsins batnaði til muna, við tók kafli þar sem KA tapaði ekki í ellefu leikjum í röð og var nálægt því að ná sæti í efri hluta deildarinnar. -
16 liða úrslitin halda áfram og í þetta sinn tekur Haraldur Örn á móti Breiðablik og Þungavigtinni. Fyrir Breiðablik keppti Höskuldur Gunnlaugsson en fyrir Þungavigtina keppti Kristján Óli Sigurðsson.
-
Liverpool aftur á toppinn eftir magnaðan leik á Anfield Road gegn Brighton. Man City og Arsenal töpuðu bæði. Dominic Solanke skein skært hjá Spurs gegn Aston Villa. Viðurinn heldur áfram að skora mörkin fyrir Forest. Dýrlingarnir með sinn fyrsta sigur í deildinni og Harry Wilson hetjan á Craven Cottage.
-
Það eru viðburðarríkir dagar að baki í enska boltanum og nóg um að ræða að venju.
Liverpool er á toppnum eftir frábæra byrjun og Manchester United var að ráða nýjan stjóra. Svo er Nottingham Forest heitasta lið deildarinnar.
Magnús Haukur Harðarson og Gylfi Tryggvason settust niður og ræddu málin í dag ásamt Guðmundi Aðalsteini Ásgeirssyni. -
Daníel Laxdal lagði skóna á hilluna á dögunum eftir stórkostlegan feril með Stjörnunni.
Daníel lék allan sinn feril í Garðabænum og skilur eftir sig mikla arfleifð hjá félaginu. Mikill stríðsmaður innan vallar en afar rólegur samt sem áður.
Þessi mikli Stjörnumaður mætti í hlaðvarp á Fótbolta.net í dag þar sem hann ræddi aðeins um ferilinn, ákvörðunina um að hætta og hvað sé næst. -
Gestur vikunnar er í einu áhugaverðasta starfi í íslenskum fótbolta. Haraldur Árni Hróðmarsson þjálfar lið frá bæjarfélagi þar sem enginn býr, því miður.Við ræddum saman um fótboltaferilinn, 48 tíma reglu Bo Hendrikssen, hvernig það var að þjálfa með Heimi Guðjóns, Tufa og Jóni Þór ásamt því sem Haraldur spáir því að trúðurinn Trump verði næsti forseti Bandaríkjanna.Kvikmyndaunnendur landsins munu líka njóta þessa þáttar enda er Halli kvikmyndafræðingur eftir að hafa gert lokaverkefni um sjálfan Jón Pál Sigmarsson !Við Turnarnir bjóðum Visitor velkomin í hópinn sem stuðningsaðilar. Þau bætast í hópinn með okkar hundtryggu aðdáendum í Nettó, Lengjunni, Netgíró, Hafinu fiskverslun, Fitness sport og Tékkanum Budvar!Turnarnir eru í útrás - fylgist með :)
- Laat meer zien