Afleveringen
-
Haraldur Sigurðsson hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir Samfélag eftir máli: Bæjarskipulag á Íslandi og fræðin um hið byggða umhverfi. Í þessum þætti Blöndu ræðir hann við Einar Kára Jóhannsson um víðfeðmt efni bókarinnar.
Samfélag eftir máli fjallar um skipulag borgar, bæja og þorpa á Íslandi á 20. öldinni. Í aðra röndina er rakin saga skipulagsgerðar og þéttbýlis og í hina hugmyndasaga skipulagsfræðanna og módernismans. Sjónum er einkum beint að mótun borgarskipulags í höfuðstað landsins en einnig að viðleitni ríkisvaldsins til að koma skipulagi á smærri bæi og þorp landsins. Sagan snertir á mörgum helstu álitamálum nútímasamfélaga, hvort sem litið er til húsnæðismála, samgöngumála, lýðsheilsumála eða umhverfismála. Þetta er yfirgripsmikið sagnfræðirit, með gagnrýnum undirtóni, sem byggir á áralangri rannsókn og víðtækri reynslu Haraldar af skipulagsmálum.
-
Kristín Loftsdóttir, prófessor í mannfræði, segir hlustendum Blöndu frá nýrri bók sinni Andlit til sýnis. Í bókinni er lítið safn á Kanaríeyjum í brennidepli en þar má finna brjóstafsteypur af fólki frá ólíkum stöðum heimsins sem gerðar voru á nítjándu öld. Þar á meðal eru brjóstmyndir sjö Íslendinga.
-
Zijn er afleveringen die ontbreken?
-
Þriðja bindi Yfirréttarins kom út 28. september. Ragnhildur Hólmgeirsdóttir sagnfræðingur og einn af þremur ritstjórum verksins segir hlustendum Blöndu upp og ofan af útgáfunni, heimildaleit og gloppóttum skjalasöfnum. Hér má heyra af hægfara hnignun Odds Sigurðssonar og uppþoti í kirkju og þjófnaðarmáli Þorsteins Jónssonar, sem annað hvort var öreigi eða gekk um með parrukk og innsiglishring.
Katrín Lilja Jónsdóttir er nýr umsjónarmaður Blöndu.
-
Í þættinum ræðir Jón Kristinn við Kristjönu Kristinsdóttur um bókina Lénið Ísland sem kom út árið 2021. Bókin er byggð á doktorsritgerð hennar og er mikilvæg grunnrannsókn á vanræktu tímabili í Íslandssöguni.
-
Rithöfundurinn Sjón hefur skrifað margar sögulegar skáldsögur. Í þessum þætti ræðir hann við Einar Kára um hvernig hann nýtir sér frumheimildir og nýjustu rannsóknir í sagnfræði. Hann ræðir einnig viðhorf sitt til sögunnar og muninn á stöðu fræðimannsins og skáldsins.
-
Í tilefni þjóðhátíðardagsins ræðir Jón Kristinn við Pál Björnsson um framhaldslíf Jóns Sigurðssonar í sögulegu minni landsmanna. Lagt er út af bók Páls, Jón forseti allur? sem kom út árið 2011 og hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin sama ár.
-
Anna Dröfn Ágústsdóttir, sagnfræðingur og lektor við hönnunardeild LHÍ, ræðir við Jón Kristin um forsíðumynd haustheftis Sögu 2022. Myndin, sem er úr safni Ólafs K. Magnússonar ljósmyndara, sýnir landsfund Sjálfstæðisflokksins árið 1951. Sérstaka athygli innan um fjölda karlmanna vekur kona á fremsta bekk sem heldur fyrir andlitið.
-
Guðmundur Hálfdanarson ræddi við Jón Kristin um kvikmyndina Volaða land, Ísland sem nýlendu og stöðu hugvísindanna. Hann er hrifinn af Volaða land en telur að nýlenduhugtakið geti ekki átt við um Ísland og á erfitt með að sjá sömu nýlendutengingar í myndinni og margir aðrir.
-
Jafngilti vistarbandið þrælahaldi? Kúguðu Danir Íslendinga með einokunarverslun?
Í þrítugasta þætti Blöndu ræðir Jón Kristinn við Axel Kristinsson um bók hans Hnignun, hvaða hnignun?, sem kom út hjá Sögufélagi árið 2018. Í bókinni skorar Axel kenningar um hnignun landsins á árabilinu 1262-1800 á hólm, og sýnir fram á að ýmislegt sem talið hefur verið sérstakt við Íslandssöguna sé það ef til vill alls ekki.
-
Guðni Th. Jóhannesson, sagnfræðingur og forseti Íslands, ræðir bók sína Stund milli stríða. Saga landhelgismálsins, 1961-1971 við Markús Þórhallsson. Upptaka fór fram á bókakvöldi eftir aðalfund Sögufélags þann 21. febrúar 2023. Guðni segir meðal annars að saga landhelgismálsins sé þjóðarsaga og að forðast skal að reisa glæstar vörður þegar slík mál eru tekin fyrir. Hann segir frá breyttum áherslum sínun í sagnaritun eftir að hann tók við embætti forseta Íslands og áhrif spennusagnahöfundarins Tom Clancy á skrif sín. Þá kom honum á óvart að nýjar upplýsingar um pólitískar hleranir og njósnir hafi ekki vakið meira umtal.
-
Jón Kristinn ræðir við Hjalta Snæ Ægisson bókmenntafræðing, sem er einn aðstandenda nýrrar útgáfu á ritinu Sýnisbók þess að Ísland er ekki barbaraland, heldur land bókmennta og menningar eftir Jón Thorchillius (1697-1759). Jón ritaði verkið rétt fyrir miðbik átjándu aldar sem svar við níðskrifum erlendra manna um Ísland. Hún hefur þó aldrei komið fyrir sjónir almennings fyrr en nú.
-
Jón Kristinn ræðir við Helga Þorláksson um nýútkomna bók hans Á Sögustöðum, um Ísland sem nýlendu, söguskoðun sjálfstæðisbaráttunnar, samband Íslands við Danmörku, Guðmund góða Arason og ýmislegt fleira.
-
Kristín Svava Tómasdóttir ræðir um bókina Farsótt. Hundrað ár í Þingholtsstræti 25. Í bókin er sögð saga sjúkdóma, lækninga og tilrauna til að vernda samfélagið gegn sóttum. Þetta er saga borgar og velferðarkerfis en ekki síst saga af fólki. Aðalpersónan er þó gamla timburhúsið sem byggt var árið 1884 sem fyrsta sjúkrahús Reykvíkinga. Síðar var það gert að farsóttaspítala, geðsjúkrahúsi og seinast gistiskýli fyrir heimilislausa.
-
Einar Kári Jóhannsson ræðir við Hafdísi Erlu Hafsteinsdóttur um hinsegin sögu og Mennina með bleika þríhyrninginn: Frásögn homma af vist sinni í fangabúðum nasista á árunum 1939-1945, sem nýlega kom út hjá Sögufélagi. Hafdís Erla ritaði eftirmála að bókinni þar sem hún fjallar um ferðalag bleika þríhyrningsins frá fangabúningum samkynhneigðra manna til baráttutákns hinsegin fólks, kynjakerfi Þriðja ríkisins, minningapólitík og margt fleira sem tekið er til umfjöllunar í þættinum.
-
Einar Kári Jóhannsson ræðir við Jón Kristinn Einarsson um bók hans Jón Steingrímsson og Skaftáreldar sem nýlega kom út hjá Sögufélagi. Í bókinni er fjallað um för séra Jóns, sumarið 1784, með sex hundruð ríkisdali frá stiftamtmanni til sýslumannsins í Vík í Mýrdal. Þetta stórfé átti að nýta til að endurreisa byggð í Skaftafellssýslu eftir Skaftárelda. Á leiðinni opnaði Jón sendinguna og deildi ófáum ríkisdölum út til nauðstaddra sem og sín sjálfs. Sú ákvörðun mæltist illa fyrir og Jón var kærður til yfirvalda í Kaupmannahöfn. Þetta mál er greint á grundvelli áður ókannaðra heimilda. Fram kemur nýtt sjónarhorn á móðuharðindin, þar sem tekist var á um neyðarhjálp með gjörólíkum áherslum íslenskra og danskra embættismanna.
-
Einar Kári Jóhannsson ræðir við Bergsvein Birgisson um viðhorfsgrein hans í Sögu 1 2022. Þar fer Bergsveinn yfir ásakanir sínar um ritstuld eða rannsóknastuld á hendur Ásgeiri Jónssyni og andmæli bæði Ásgeirs og Helga Þorlákssonar þegar málið var lagt fyrir Siðanefnd Háskóla Íslands. Þá er fjallað um bók hans, Leitin að svarta víkingnum, og rannsóknir á Geirmundi Heljarskinn. Einnig berst talið að akademískum vinnubrögðum og hlutverki fræðafólks í miðlun á rannsóknum sínum. Að lokum er aðeins komið að skáldverkum Bergsveins og hvað sé á döfinni hjá honum.
-
Markús Þorhallsson ræðir við Hrafnkel Lárusson um grein hans, Íslenska dyggðarsamfélagið í lok 19. aldar, sem birtist í Sögu LIX - 2 2021. Hrafnkell Lárusson skrifar um einkenni, áhrif og hnignun þess sem hann kallar íslenska dyggðasamfélagið og það hvernig viðurkenndar dyggðir, trúarhugmyndir og siðferðisviðmið tóku breytingum á Íslandi um aldamótin 1900, með sérstakri áherslu á frumheimildir frá Austurlandi. Grein Hrafnkels byggir að hluta á doktorsritgerð hans í sagnfræði sem hann varði við Háskóla Íslands í apríl 2021.
-
Í þessum þætti af Blöndu ræðir Einar Kári Jóhannsson við sjö nemendur í sagnfræði við Háskóla Íslands. Nemendurnir eru allir að vinna sjálfstæðar rannsóknir á ýmsum málefnum 18. aldra með hliðsjón af skjölum Landsnefndarinnar fyrri 1770-1771. Síðustu ár hafa þessi skjöl komið út í fimm bindum á vegum Þjóðskjalasafns Íslands og Sögufélags. Sjötta og síðasta bindið er væntanlegt síðar á árinu 2022. Viðmælendur eru Guðrún Hildur Rosenkjær, Kolbeinn Sturla G. Heiðuson, Páll Halldórsson, Kjartan Atli Ísleifsson, Gauti Páll Jónsson, Ólafur Einar Ólafarson og Steinar Logi Sigurðarson.
-
Í tilefni af 120 ára afmæli Sögufélags ræðir Markús Þoórhallsson við Önnu Agnarsdóttur, fyrrum forseta félagsins, og Hrefnu Róbertsdóttur núverandi forseta. Margt ber á góma, til að mynda stofnun og þróun félagsins í gegnum árin og margt skemmtilegt sem í vændum er. Sögufélag fagnaði 120 ára afmæli, 7. mars 2022. Félagið var stofnað árið 1902 með það að markmiði að gefa út tímarit, heimildarit og annað efni um sagnfræði og söguleg efni, einkum um sögu Íslands. Enn í dag er félagið helsti útgefandi rita af þessu tagi og vinnur ötullega að því að auka þekkingu, skilning og áhuga á sögu Íslands, og ná til almennings, fræðimanna, sagnfræðinema og annars áhugafólks um sögu.
-
Í þessum þætti af Blöndu ræðir Kristjana Vigdís Ingvadóttir sagnfræðingur um Þrautseigju og mikilvægi íslenskrar tungu. Hún ræðir um tungumálið frá ýmsum áhugaverðu sjónarhornum, hvort alltaf hafi verið öruggt að íslenskan héldi velli og ástæður þess að svo fór. Eins setur hún stöðu íslenskunnar í fortíð í samhengi við stöðu hennar í samtímanum og jafnvel í framtíðinni. Kristjana Vigdís hefur verið tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna fyrir bók sína Þrautseigja og mikilvægi íslenskrar tungu sem Sögufélag gefur út.
- Laat meer zien