Afleveringen
-
Páska special fór nálægt línunni en ekki yfir strikið. Loksins alvöru bankarán á Íslandi, starfsmenn Íslandsbanka nálægt því að ræna sinn eigin banka með sumarbónus og Hildur Lillendahl í góðu beefi við lækni á Facebook 🤷♂️ Hvað má fróa sér oft í viku og auðvitað hræðilega fyndið brandarahorn í lokin 🤪 Góða skemmtun!
-
Baráttan um Bessastaði er hafin og virðist ætla vera 2 hesta hlaup. Við fórum í gegnum þetta ótrúlega klúður með ekki söluna á TM til Landsbankans, sögulegustu nágrannaerjur Íslandssögunar og fjölmiðlamógúll sem trúlofar sig á 15ára fresti. Hvaða typpastærð vilja konur og hvernig ætlar Annie að sofa á 600 körlum á einu ári. Góða skemmtun !
-
Zijn er afleveringen die ontbreken?
-
Alltaf nettur þéttur er þaggi bara. Fórum yfir Söngvakeppnina á RÚV og histerínuna sem greip landan um helgina. Dífðum tánni í Wok On málið, rasismi kennara á Laugarvatni og afhverju er ekki löngu komið risa parísarhjól í Reykjavík? Eins og áður þá bjargar 70min podcast kynlífi hjóna í hverri viku og ekki veitir af. Góða skemmtun !
-
Við ræddum þessi ömulegu mál sem komu upp í leigubílum og strætó. Hver í andskotanum er Kristín Jónsdóttir og Benedikt Ófeigsson á Veðurstofunni. Við fórum aðeins í kjaraviðræður og því leikriti sem er verið að setja þar á svið. Enduðum svo á að ræða helstu ástæður þess að hjónabandið þitt klikkar. Góða skemmtun!
-
Þegar 70min verða að 90min boðar það yfirleitt gott. Við tækluðum þessi endalausu frí og á hvaða séra Jón kjörum er Bláa Lónið? Vopn eða ekki vopn í World Class, ömulgur kærasti í rúminu og loksins kláruðum við síðustu 5 algengustu vandamálin í svefnherberginu. Þetta og margt fleira eins og venjulega í þætti vikunnar. Góða skemmtun !
-
Við fögnuðum 100þátta afmæli með því að rökræða eyðslufyllerí Borgarlínu 🤪 Mögnuð HIV kjaftasaga um Valla flatböku og Camilu Rut, bónuskerfi hjá Skattinum afnumið og afhverju hætta konur fyrr en karlar að vera ástfangar. Þetta og rúmlega mikið meira í þessum tímamótaþætti. Góða skemmtun !
-
Tókum smá vetrarfrí en mættum aftur með hvelli. Fórum yfir stóra fótósjoppmálið hennar Ingu Tinnu í Dineout, þorrablótafettis Íslendinga á Tene og hvað er til ráða ef makinn vill ekki sexytime?
Tjaldbúðirnar við Austurvöll fengu smá skammt og á Skattman að greiða bónus? Þetta og margt fleira í þætti vikunnar. Góða skemmtun ! -
Nýja árið fer vel af stað. Svandís fer ekki fet úr sínum stól, plastbarkaTómas farinn í leyfi og sexy trend á nýja árinu. Lögregludagbókin snéri aftur eftir langt hlé og hver eru merki þess um að hún verði ömuleg kærasta. Þetta og margt annað eins og venjulega í þætti vikunnar. Góða skemmtun !
-
Simmi á afmæli í dag þannig við fórum í gengum Skaupið í 70min extra. Lengri útgáfan í "afmælisþætti" Simma. Tókum spin á árið sem er að líða, Nökkvi ætlar ekki að stunda sjálfsfróun í 90 dag og Völvan með allt lóðrétt niður um sig! Þetta og svo rosalega mikið meira að það varðar við hegningarlög að hlusta ekki á þennan þátt ;) Góða skemmtun!
-
Jólalangur þáttur after dark. Fórum í gegnum ester í Bónus málið og þá netníð. Við erum farnir að vorkenna Kleina aðalega því skvísan hans vildi ekki Porsche. Tókum svo fyrir dont give a fuck Bjarna Ben og nýjasta útspil hans í utanríkismálum, skitan á bílinn hans Rangars og hlutir sem þú átt ekki að gefa kærastanum þínum. Þetta og hvað hún mun aldrei segja þér í jólaþætti vikunnar. Góða skemmtun !
-
Við fórum yfir stóru málin með okkar nefi og tungu. Kleini kom snemma til byggða á nýjum bíl, hvað á RUV að gera við Eurovision og eru flugumferðastjórar í tómu kjaratjóni? Typpastærðir fengu eðlilega sitt pláss ásamt hvað þú átt alls ekki að gefa konunni þinni í jólagjöf. Þetta og vissulega margt fleira í þætti vikunnar. Góða skemmtun !
-
Rúmlega stórkostlega þáttur hjá okkur, hlutlaust mat. Við fórum yfir þetta furðulega mál með forræðisdeilu Íslendinga í Noregi. Tókum holur í Grindavík fyrir, par tekið með milljónir í Leifstöð og kynþokkafullir sköllóttir karlar fengu pláss. Við ræddum svo hvað pirrar konur við karlmenn. Þetta og maaaarg fleira. Góða skemmtun!
-
Við fórum svo vel yfir Kíki dauða Alþingismálið að þú þarft aldrei að Google-a það aftur. Tókum svo fyrir þá kvöl og pínu að eiga fjölskyldulíf, heimilisbókhaldið var krufið í þaula og svo var auðvitað dágóður skammtur af kynlífssögum og upplifunum. Þetta og svo margt fleira að gamla góða hálfa væri nóg. Góða skemmtun!
-
Við tókum aðeins fyrir stöðu Grindvíkinga, Kata Jak fékk á baukinn og afhverju má maður ekki bara fara í heilaskanna ef manni langar að fara í heilaskanna. Við fórum svo í gegnum þjófnað í verslunum eftir að sjálfsafgreiðslukassarnir komu til landsins sem og ákvörðun HSÍ að þyggja pening frá Arnarlax. Enduðum auðvitað að hressandi umræðu um hluti í svefnherberginu. Góða skemmtun !
-
Ferðasaga Simma frá USA sem endaði á umræðu um Gaza. Við fórum yfir erfiða stöðu í Grindavík. Varnagarðar sem við hin eigum að borga fyrir HS Orku og Bláalónið. Það er ekki í lagi að kalla Ingó eða aðra barnaníðing á netinu. Við fórum svo í swing klúbba sem íslendingar stunda og enduðum á alegnum merkjum um að makinn þinn sé að halda framhjá þér. Góða skemmtun!
-
Góða skemmtun !
-
Það var mikið....Ræddum þessa blessuðu #þriðjuvakt. Leystum ekki vandamál vesturbakkans, makaskipti og hvað má alls ekki gera eða spyrja í rúminu. Góða skemmtun !
-
OMG hvað það var gaman þessa vikuna. Tókum krakkafréttir um ástandið á Gasa. Transpabbi sem vildi eignast barn, falsfréttaflutningur um hóp ungra drengja í Salalaug og 7 hlutir sem flugfreyjur taka "alltaf" með sér í stopp. Við fórum svo í gegnum áhugaverða mögulega skattsvikara og hver eru helstu þrætuepli para. Þetta og auðvitað margt fleira. Góða skemmtun !
-
Risastórar fréttir í vikunni sem eðlilega fengu smá pláss í þætti vikunnar. Við fórum smá í gengum Samkeppniseftirlitið, hvað er eðlilegt að eiga marga bólfélaga og skrýtin date. Þetta og mjög margt annað í þætti vikunnar. Góða skemmtun !
- Laat meer zien