Afleveringen
-
Lokaplata sveitarinnar, hin vinsældarvæna Loaded frá árinu 1970 er tekin fyrir sem og endurkomutónleikaferð sveitarinnar 1993. Reifum afdrif meðlima og skoðum hin gríðarlegu áhrif sem hljómsveitin hefur haft á tónlistarheiminn.
-
Með hinum unga nýja meðlim Doug Yule skipti hljómsveitin yfir í ljúfari gír og lagði áherslu á lagasmíðar Lou Reed. Hljómsveitin gerði þriðju hljómskífu sína, samnefnda sveitinni, oft nefnd gráa platan og lék á fjölmörgum tónleikum. Týndu plötur hljómsveitarinnar eru líka skoðaðar en þær komu ekki út fyrr en á níunda áratugnum.
-
Zijn er afleveringen die ontbreken?
-
Eftir samstarf sitt við Andy Warhol, mitt í hringiðu hippamenningar, tóku The Velvet Underground upp sína grimmu og groddalegu aðra plötu White Light / White Heat. Platan er tekin fyrir ásamt öðrum upptökum sem hljómsveitin gerði áður en Lou Reed rak tilraunakennda meðliminn, John Cale, úr sveitinni haustið 1968.
-
Hin goðsagakennda Bananaplata eða The Velvet Undergound & Nico verður í aðalhlutverki. Sérstaða laganna, vandræði með útgáfumál og sögur tengdar hljómsveitinni 1966 og 1967. Kíkjum á senuna með listahópnum í kringum Warhol og margmiðlunarsýningum þeirra The Exploding Plastic Inevitable.
-
Farið er í bakgrunn meðlima hljómsveitarinnar og sögu þeirra fram að stofnun The Velvet Underground. Ludlow upptökunum sem Velvet liðar gerðu 1965 eru gerð skil. Skoðum samstarf þeirra með Andy Warhol, innkomu söngkonunnar Nico og fyrstu skref fram að upptöku fyrstu plötu þeirra 1966.