Afleveringen
-
Lamine Yamal er líklega svalasti fótboltamaður sögunnar og einfalda lausn má finna við vandræðunum sem Lionel Messi veldur. Daníel Hafsteinsson er samt helsta hetja gærkvöldsins.
Undanúrslit HM og Evrópuleikur Víkings voru í aðalhlutverki en margt fleira var rætt í þætti dagsins af Besta sætinu.
Þar komu einnig við sögu trúlofun í takkaskóm, snemmbúin ævisaga Eusebio og sundferð á Blönduósi svo fáeitt sé nefnt.
Breiðablik ætlar að svara fyrir sig og endurheimta toppsætið í Bestu deild kvenna. Munu vandræði Vals halda áfram og hvað mun fyrrum markadrottning Austurlands gera fyrir liðið?
-
Besta sætið hafði mörg mörk að ræða í dag, nánar tiltekið 21 mark í 4 leikjum Bestu deildar karla í gær. Vonandi sést eitthvað svipað á nýja Kópavogsvellinum í kvöld, annað en í síðasta leik Breiðabliks og Keflavíkur.
Helstu álitamál helgarinnar á HM voru tekin fyrir; boltinn sem fór eða fór ekki í myndavél og rauða spjaldið sem Sviss fékk frá VAR.
Þetta og margt fleira var rætt í þætti dagsins af Besta sætinu.
-
Zijn er afleveringen die ontbreken?
-
Víða var komið við í Besta sætinu þennan ágæta föstudag. Stefán Árni dreif sig beint í sumarfrí eftir þátt dagsins.
Þeir Valur Páll Eiríksson, Andri Broddason og Stefán Árni Pálsson fóru yfir íþróttamál dagsins í þættinum en Stefán var allur á iði þar sem hann er á leið í sumarfrí.
Erik Sandberg var til umræðu en hann er félagi Erling Haaland, framherja norska landsliðsins, og þeir gerðu saman lag í unglingalandsliðsverkefni fyrir rúmum áratug. Það lag er í dag á toppi allra vinsældalista í Noregi þar sem er HM-fár. Rætt verður við Erik í Sportpakkanum á Sýn í kvöld.
Ótrúleg fimma Ídu Marín Hermannsdóttur fyrir FH og óvænt tap Breiðabliks í Bestu deild kvenna var til umræðu.
Þá var HM rætt í þaula og komandi 8-liða úrslit, sem og leikur gærkvöldsins. Þar kemur fyrir furðuleg pöntun Frakka á knæpu yfir leiknum.
Stefán Árni lauk þættinum svo á svoleiðis fúkyrðum um Manchester City að líklega sýður á Sigurði Helgasyni.
Þáttinn má heyra í spilaranum og á öllum helstu hlaðvarpsveitum.
-
Jólin í ár verða fullkomin fyrir íþróttaáhugafólk eins og rætt var um í Besta sætinu í dag. Stjarnan og Vestri eiga ansi ólík verk fyrir höndum í Evrópukeppnum í kvöld og Besta deild kvenna hefst að nýju eftir langt hlé. Þá eru 8-liða úrslitin að hefjast á HM.
-
Leikmenn Víkings eru látnir spila á „ónýtum og hættulegum“ gervigrasvelli en mega vera stoltir af frábærum 1-0 sigri gegn ungversku meisturunum. Átta liða úrslitin eru klár á HM og Blikar búnir að tryggja sér mikinn liðsstyrk.
-
Það var af nægu að taka í Besta sætinu eftir líflegan dag á HM í fótbolta, þar sem Cristiano Ronaldo stimplaði sig út og Belgar rúlluðu yfir Bandaríkin, og að lokinni 13. umferð Bestu deildar karla. Talið barst þó einnig að ýmsu öðru.
-
Í Besta sætinu sögðu menn sína skoðun á fordæmalausri afléttingu leikbanns Folarin Balogun sem fær að spila fyrir Bandaríkin gegn Belgíu á HM í nótt. Farið var yfir torsóttan sigur Englands við aðstæður sem ekki allir skilja hve erfiðar voru, og sigur Noregs gegn óspennandi liði Brasilíu. Golf, Besta deildin og leið Íslands á HM í körfubolta var sömuleiðis á meðal þess sem rætt var um á þessum fallega mánudegi.
-
Tveir góðir gestir settust í Besta sætið á þessum fína föstudegi. Kolbeinn Tumi Daðason, ritstjóri fréttastofu Sýnar, og Magnús Jochum Pálsson, menningarblaðamaður á Sýn, ræddu íþróttamál dagsins við Val Pál Eiríksson.
Ótrúlegur leikur Þórs og KR á Akureyri var til umræðu sem og sigur Víkings á KA. Landsleikur gærkvöldsins við Ítala bar á góma og samhliða því feimni Íslendinga við þjóðsöng okkar, Lofsönginn.
Einnig var snert á HM í fótbolta þar sem skrautlegur leikur fór fram milli Króatíu og Portúgals. VAR-dómgæsla og vatnspásur báru á góma í því samhengi.
Hlýða má á þáttinn í spilaranum sem og á öllum helstu hlaðvarpsveitum.
-
Farið var um víðan völl í Besta sætinu í dag. Birgir Olgeirsson, fréttamaður á Sýn, var sérstakur gestur þar sem rætt var um HM, England, Þýskaland, NBA, Bestu deildina og landsleik kvöldsins.
-
HM var mikið til umræðu í Besta sætinu í dag. Besta deildin kom við sögu sem og stór tíðindi úr Bónus deildinni í körfubolta.
Valur Páll Eiríksson, Stefán Árni Pálsson og Andri Broddason ræddu málin í Besta sætinu í dag.
HM-leikir gærkvöldsins voru til umræðu sem og þeir sem fram undan eru í dag. Tíðindi bárust úr Garðabæ í dag hvað þjálfaramálin í fótboltanum varðar og einnig bárust þjálfaratíðindi úr Grindavík þar sem Lárus Jónsson er tekinn við sem aðstoðarþjálfari í körfuboltanum.
Hlýða má á þátt dagsins í spilaranum sem og á öllum helstu hlaðvarpsveitum.
-
Í Besta sætinu í dag er farið yfir stórtíðindin af Hlíðarenda. Hermann Hreiðarsson hefur verið látinn fara sem þjálfari karlaliðs Vals í fótbolta og nú þegar er eftirmaður hans fundinn. Fleiri tíðindi úr Bestu deildinni, mikilvægt verkefni karlalandsliðsins í körfubolta sem og HM þar sem að útsláttarkeppnin er hafin. Allt saman í Besta sætinu.
-
Það var við hæfi að opna þáttinn á slagara með Sálinni, Stebbi Hilmars sextugur og gír í mönnum. Nóg að ræða í dag. Er rígurinn milli Blika og Víkinga dauður? Víkingar, í hægagangi völtuðu yfir Blikana í gær og liðin mætast aftur á sunnudaginn. Línur eru teknar að skýrast á HM og styttist í útsláttarkeppnina. Umferðin framundan í Bestu deildinni, Formúla 1, glæný tíðindi af landsliðsmanni Íslands og ég veit ekki hvað og hvað. Skylduhlustun
-
Besta sætið mætir alltaf funheitt aftur. Sumarfílingur í hópnum og nóg að ræða. Toppbaráttan í Bestu deild kvenna í fótbolta veldur ekki vandræðum. Það voru vendingar fyrir stutt hlé í deildinni sem farið verður yfir. Þá eru leikar teknir að æsast á HM í fótbolta.
-
Víkingar virðast óstöðvandi í Bestu deild karla og KR-ingar þurfa að vinna Skagamenn í kvöld til að halda lífi í titilbaráttunni. FH, Þór, KA og Stjarnan eru hins vegar í ansi slæmum málum. Martin Hermannsson er Þýskalandsmeistari eftir ótrúlega endurkomu og Hollendingar fljúgandi á HM.
-
Í Besta sætinu var farið yfir frumraun Íslendings á Opna bandaríska mótinu í golfi karla, HM í fótbolta og komandi umferð í Bestu deild karla. Freyr Alexandersson er orðinn nýr þjálfari Rosenborgar og strákarnir okkar í íslenska handboltalandsliðinu fá stuðning í Þýskalandi.
-
Stór dagur í íþróttasögu Íslendinga í dag. Gunnlaugur Árni Sveinsson hefur þátttöku á U.S. Open risamótinu í golfi í kvöld, fyrstur Íslendinga. Við förum yfir það sem og HM í fótbolta þar sem að England mætir af fídómskrafti til leiks. Stelpurnar okkar eru með gullið tækifæri á að tryggja sér sæti á HM í fótbolta í BRASILÍU á næsta ári og spennan er mikil í Mjólkurbikar kvenna. Átta liða úrslitunum lýkur í kvöld.
-
Það er risakvöld í Bestu deildinni þar sem KR-ingar heimsækja Víkinga í einkar veglegri útsendingu þar sem Nablinn verður á svæðinu og drónamyndavél fangar stemninguna á uppseldum toppslag. HM í fótbolta, Gunnlaugur Árni á Opna bandaríska, og gleðifréttir Garðbæinga voru einnig til umræðu í Besta sætinu.
-
„Loksins, loksins“ hrópuðu margir íþróttaáhugamenn í dag og Besta sætið þar með talið.
Teikningar fyrir nýja Þjóðarhöll hafa verið opinberaðar en athygli vekur að hvergi eru verklok áætluð. Hvenær verður þessi nýja höll eiginlega tilbúin?
Margt fleira var rætt í þætti dagsins af Besta sætinu.
HM er í fullum gangi og fyrsti þjálfarinn til að verða rekinn kemur frá Túnis. Fyrsti þjálfarinn til að verða rekinn úr Bestu deildinni er Jökull Elísabetarson en mun Sigurður Höskuldsson fylgja honum fljótt eftir?
Svo er spurning hvort það sé snilld eða alveg glatað að sjá tvö Lengjudeildarlið í undanúrslitum Mjólkurbikarsins. Menn gátu ekki sammælst um það.
-
HM hófst í gær og við ætlum bara að hafa gaman að því, allavega meira gaman en sjónvarpsmenn Suður-Afríku. Lélegasti framherji mótsins er strax fundinn og Suður-Kóreuprinsinn kom sem kallaður.
HM var ekki það eina sem rætt var í þætti dagsins af Besta sætinu.
Stærsti hnefaleikaviðburður ársins er fram undan í kvöld. Um helgina er heill haugur af viðburðum, heil umferð í Bestu deild kvenna og margt, margt fleira.
Pólitík fékk hins vegar ekkert pláss.
-
Stóri HM-dagurinn er í dag. Mótið hefst í kvöld. Stjarnan sleppti sínu eina haldreypi og New York Knicks unnu heimskasta körfuboltalið sögunnar.
- Laat meer zien