Afleveringen
-
Í þætti dagsins heyri ég í Þóroddi Hjaltalín yfirmanni dómaramála hjá KSÍ. Við förum yfir lagabreytingar fyrir fótboltann í sumar en Besta deild karla hefst eftir 21 dag ásamt að við tölum um VAR og fleira. Haraldur Hróðmarsson þjálfari Grindavíkur í fótbolta er á línunni og við tölum um evrópuboltann í vikunni og svo ítarlega um fyrsta landsliðshóp Arnars Gunnlaugssonar ásamt fleiru. Svanhvít er svo í spjalli um Bónusdeildina, enska boltann um helgina, spænska boltann og þann ítalska og sitthvað fleira. Njótið helgarinn og takk BK-kjúklingur fyrir að vera með okkur.
-
Í þætti dagsins heyri fyrst í Þórhalli Dan og við ræðum um meistaradeildina í fótbolta, enska boltann og svo um leikmannamál á Íslandi margt í kringum það. Einar Jónsson þjálfari Fram í handbolta er svo á línunni og við tölum um Olísdeildir karla og kvenna og svo landsliðið sem mætir Grikklandi á morgun í undankeppni EM. Einar spáir í úrslit leiksins. Svanhvít er svo á línunni og við förum yfir Bónusdeildina í körfubolta og spennuna þar, meistaradeildina, evrópudeildina og svo góður slúðurpakki. Þetta og sitthvað fleira í þætti dagsins. Takk fyrir að hlusta og takk BK-kjúklingur fyrir að vera með okkur.
-
Zijn er afleveringen die ontbreken?
-
Heil og sæl. Í þætti dagsins heyri ég í Haraldi Hróðmarssyni þjálfara Grindavíkur og við tölum um enska boltann, meistaradeildina, evrópudeildina og Grindavík ásamt fleiru. Einar Jónsson er spjalli um Olísdeildina í handbolta og við tölum einnig um landsliðið sem er að fara að mæta Grikklandi í undankeppni EM og svo leikmanna-og þjálfaramál. Svanhvít er svo á línunni og við förum í Bónusdeildina í körfubolta sem og í enska boltann um helgina. Þetta og sitthvað fleira í þætti dagsins. Njótið og takk fyrir að hlusta og takk BK-kjúklingur fyrir að vera með okkur.
-
Í þætti dagsins heyri ég í Kristni Kærnested og við tölum aðeins um Bestu deildina sem hefst eftir mánuð sem og meistaradeildina. Einar Jónsson ræðir við mig um Olísdeildina og að sjálfsögðu bikarkeppni um síðustu helgi sem og landsliðið sem mætir Grikklandi síðar í mánuðinum. Ein Krummasaga fylgir svo með. Svanhvít er svo á línunni og við tölum um Bónusdeildina og þá miklu spennu sem þar er og við spáum í leikina í meistaradeildinni í vikunni og svo einhverjar slúður fréttir. Takk fyrir að hlusta og takk BK-kjúklingur fyrir að vera með okkur.
-
Í þætti dagsins heyri ég í Svanhvíti og Kristni Kærnested og við ræðum um enska boltann, ítalska boltann, Liverpool, Ac Milan, ein Krummasaga með FH og Val, og Bónusdeildina í körfubolta svo eitthvað sé nefnt. Róbert Gunnarsson þjálfari Gróttu í handbolta er á línunni um úrslitaleikina í bikarnum sem fara fram á morgun og Robbi spáir í spilin ásamt fleiru. Njótið og takk fyrir að hlusta og takk BK-kjúklingur
-
Heil og sæl. Í dag heyri ég í Kristni Kærnested og við tölum um enska boltann, Man.City-Liverpool og fleira því tengdu og við förum aðeins í íslenska boltann ásamt smá sögustund hjá okkur. Ásgeir Örn Hallgrímsson þjálfari Hauka í hadnbolta spáir svo í spilin í undanúrslitum bikarkeppni karla og kvenna og þar kemur maður ekki að tómum kofanum. Svanhvít er svo á línunni og við tölum um hið frábæra íslenska körfuboltalandslið sem við eigum í karlaflokki. Við tölum einnig um Leeds og Championship deildina og svo enska boltann. Njótið og takk fyrir að hlusta og takk BK-kjúklingur fyrir að vera með okkur.
-
Í dag er stútfullur þáttur af skemmtiefni og viðmælendurnir eru fimm. Kristinn Kærnested, Einar Jónsson, Börkur Edvardsson, Svanhvít Valtýs og Martin Hermannsson. Evrópuboltinn, enski boltinn, Víkingur, Gylfi Sig, Olísdeildirnar og meistaradeildin í handbolta, stjórn KSÍ og fótboltinn í landinu, íslenska landsliðið í körfubolta sem mætir Ungverjalandi á morgun eru umræðuefni þáttarins ásamt ýmsu fleiru. Í lokin er svo glæný Krummasaga og þar kemur Gylfi Sig við sögu. Njótið og takk fyrir að hlusta og takk BK-kjúklingur fyrir að vera með okkur.
-
Í þætti dagsins heyri ég í Kristni Kærnested og við tölum um Víking í Sambandsdeildinni, Everton-Liverpool, Meistaradeildina, enska boltann og fleira til ásamt einni Krummasögu. Þóroddur Hjaltalín yfirmaður dómaramála hjá KSÍ er á línunni vegna áhersluatriða dómara fyrir komandi leiktíð en þar eru mörg áhugaverð atriði. Einar Jónsson spjallar við mig um Olísdeildina í handbolta, bikarinn og allt sem tengist handboltanum og komum aðeins inná þjóðarhöllina sem ekkert bólar á. Svanhvít er svo í spjalli og við förum í Bónusdeildina í körfubolta, Lengjubikarinn í fótbolta, enska boltann og einnig þýska og ítalska ásamt fleiru. Takk fyrir að hlusta og takk BK-kjúklingur fyrir að vera með okkur.
-
Í þætti dagsins er nóg um að vera. Kristinn Kærnested er í spjalli um meistaradeildina, enska bikarinn, Víking-Panathinaikos, KSÍ og laugardalsvöll og fleira. Einar Jónsson ræðir við mig um formannsskipti hjá HSÍ og Olísdeildina ásamt einni Krummasögu. Birgir Jóhannsson framkvæmdastjóri ÍTF(íslensks toppfótbolta) er í spjalli um skattamálið og einnig um breytingar á stjórn ÍTF og svo KSÍ þingið. Halli í BK er á línunni um Everton-Liverpool og Svanhvít er svo í spjalli um Bónsudeildina í körfubolta sem og meistaradeildina og sitthvað fleira. Takk fyrir að hlusta og takk BK-kjúklingur fyrir að vera með okkur.
-
Í þætti dagsins held ég áfram umræðu um skattamál íþróttahreyfingarinnar. Þórhallur Dan er á línunni sem og Kjartan Freyr Ásmundsson formaður ÍTK(íslenskur topp körfubolti). Einar Jónsson spjallar við mig um handboltann hér heima sem og formannsskipti hjá HSÍ og fleira. Þá er Svanhvít á línunni og við tölum um Bónsudeildina í körfubolta sem og enska bikarinn og eitthvað fleira. Njótið og takk BK-kjúklingur fyrir að vera með okkur.
-
Í þætti dagsins er athyglisvert samtal við Þórhildi Garðarsdóttur formann aðalstjórnar KR og umræðan er skattamál í handbolta, körfubolta og fótbolta en Ríkisskattstjóri hefur sent hótunarbréf til félaga í þessum greinum. Kristinn Kærnested er í spjalli þar sem við förum yfir enska boltann um helgina og aðeins inná þetta skattamál. Svanhvít ræðir við mig um Bónusdeildina í körfubolta, leikmannagluggann sem lokaði í gær og sitthvað fleira. Einar Jónsson ræðir við mig um Olísdeild karla í handbolta sem fer af stað í kvöld eftir HM hléið og Siggi Sveins gerir upp HM hjá íslenska liðinu. Njótið og takk fyrir BK-kjúklingur fyrir að vera með okkur.
-
Í þætti dagsins heyri ég í Þórhalli Dan og við ræðum um Ríkisskattstjóra sem ætlar að fara í rannsókn á félögum í handbolta, fótbolta og körfubolta. Þetta er heit umræða skal ég segja ykkur. Einar Jónsson og Siggi Sveins eru svo á línunni um HM í handbolta og við tölum meðal annars um þennan frábæra árangur Dags Sigurðssonar með Króatíu. Því næst er Svanhvít á línunni og við tölum um enska boltann, ítalska boltann og Mikael Egil og stórleik Milan og Inter og að sjálfsögðu förum við ítarlega í Bónusdeild karla í körfubolta. Þetta og sitthvað fleira í þætti dagsins. Njótið og takk BK-kjúklingur fyrir að vera með okkur í þessu brölti okkar.
-
Í þætti dagsins eru fjórir viðmælendur. Kristinn Kærnested, Einar Jónsson, Siggi Sveins og Svanhvít. Við tölum um Meistaradeildina í fótbolta, enska boltann og slúður og fréttir, HM í handbolta og íslenska landsliðið. Hvað fór úrskeiðis? Bónusdeildar umræða er á sínum stað ásamt spjalli um Rashford, Tottenham og margt, margt fleira. Njótið og takk fyrir að hlusta og takk BK-kjúklingur fyrir að vera með okkur.
-
Velkomin til leiks. Siggi Sveins og Einar Jónsson ræða við mig um strákana okkar í handboltalandsliðinu og HM í handbolta. Hvernig fer leikurinn í kvöld gegn Któatíu? Kemst Ísland í 8-liða úrslit? Þeir kappar svara þessu og fleiru til. Þórhallur Dan og Svanhvít spjalla við mig um meistaradeildina, evrópudeildina, enska boltann og Bónusdeildina í körfubolta ásamt einhverju slúðri og kannski eins eða tvær Krummasögur. Njótið helgarinnar og ég minni á Mín Skoðun er á Facebook. Takk fyrir að hlusta og takk BK-kjúklingur fyrir að vera með okkur. ÁFRAM ÍSLAND.
-
Heil og sæl. Í dag er mikil handboltaumræða í fyrri hlutanum um HM og þar eru spekingarnir Siggi Sveins og Einar Jónsson með mér. Á eftir þeim heyri ég svo í Gumma Ben og við tölum um Meistaradeildina í fótbolta og Evrópudeildina en næst síðasta umferðin fer fram í þessari viku. Gummi spáir í leikina og meira til. Takk fyrir að hlusta og takk BK-kjúklingur fyrir að vera með okkur.
-
Í þætti dagsins heyri ég í Sigga Sveins og hann segir okkur allt um HM í handbolta og spáir í framhaldið. Arnar Gunnlaugsson nýráðinn landsliðsþjálfari karla í kanttspyrnu er í skemmtilegu viðtali. Svanhvít og Kristinn Kærnested fara svo yfir enska boltann, Bónsudeildina í körfubolta, fréttir og slúður, íslenska boltann og svo koma tvær Krummasögur. Njótið helgarinnar og takk fyrir að hlusta. Takk BK-kjúklingur fyrir að vera með okkur.
-
Heil og sæl. Í dag er þó nokkur handboltaumræða en HM hefst í dag. Siggi Sveins og Einar Jónsson ræða við mig um keppnina og liðið og að sjálfsögðu um íslenska liðið. Þórhallur Dan og Svanhvít ræða við mig um fótboltann og körfuboltann. Landsliðsþjálfaramál, Krummasaga, enski boltinn og leikir vikunnar og þau spá í spilin ásamt að fréttir og slúður eru á sínum stað. Njótið og takk fyrir að hlusta og takk BK-kjúklingur fyrir að vera með okkur.
-
Í þætti dagsins heyri ég í Kristni Kærnested og við tölum um ensku bikarkeppnirnar og landsliðsþjálfaramál Íslands í knattspyrnu. Einar Jónsson þjálfari Fram í handbolta er á línunni og við ræðum um íslenska landsliðið sem var að leika gegn Svíþjóð gær og svo um íslenska kvennahandboltann. Svanhvít er í spjalli um Bónusdeildina í körfubolta sem og um fréttir og slúður úr fótboltanum. Þá heyri ég í Halla í BK um stjóraskiptin hjá liðinu hans, Everton, og við tölum aðeins um handboltalandsliðið líka. Takk fyrir að hlusta og takk BK-kjúklingur fyrir að vera með okkur.
-
Í þætti dagsins er komið víða við. Friðrik Ingi Rúnarsson þjálfari Hauka í körfubolta er í spjalli. Þar förum við yfir Bónusdeildina, afhverju tók hann við Haukum og afhverju hætti hann með kvennalið Keflavíkur ásamt þessu tölum við aðeins um tónlist. Þórhallur Dan er á línunni og við ræðum um Liverpool-Man.Utd. Inter og AC Milan, kjör íþróttamanns ársins ásamt fleiru. Svanhvít er svo á línunni og við tölum enska deildarbikarinn, ítalska boltann, Bónusdeildina og förum aðeins í slúðrið. Þetta og sitthvað fleira í þætti dagsins. Takk fyrir að hlusta og takk BK-kjúklingur fyrir að vera með okkur.
-
Heil og sæl og gleðilegt nýtt ár. Í dag eru fjórir viðmælendur, Kristinn Kærnested, Þórhallur Dan Jóhannsson, Halli í BK og Svanhvít. Við komum víða við. Afrekssjóður ÍSÍ, landsliðsþjálfaramál karla í fótbolta, enski boltinn og Liverpool-Man.Utd. Ratcliffe eigandi Man.Utd., Bónusdeildin í körfuknattleik, Besta deildin og margt margt fleira. Njótið og takk fyrir að hlusta og takk BK-kjúklingur fyrir að vera með okkur.
- Laat meer zien