Afleveringen
-
Þegar Svandís Svavarsdóttir var sjö ára horfði hún á sína fyrstu kosningavöku í sjónvarpinu og hefur sjaldan, eða aldrei, misst af þeim síðan. Hún lærði fljótt að donta og reikna út uppbótarþingmenn, skrifaði samviskusamlega upp tölur eftir kjördæmum um leið og þær bárust og færði þær inn eftir kúnstarinnar reglum - undir dyggri leiðsögn pabba síns. „Ég meina, ég brenn fyrir pólitík,“ segir Svandís, þegar hún bendir á að hún hafi nú verið orðið rúmlega fertug þegar hún loks hóf sín afskipti af stjórmálum. Á átján ára stjórnmálaferli hefur Svandís verið framkvæmdastjóri VG, borgarfulltrúi, þingflokksformaður, umhverfis- og auðlindaráðherra, heilbrigðisráðherra, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og svo matvælaráðherra og innviðaráðherra. Svandís Svavarsdóttir er gestur Ávarpsins þar sem hún ræðir meðal annars um nýjasta giggið á ferilskránni: Formaður VG. Umsjónarmenn þáttarins eru Sunna Valgerðardóttir og Bjarki Hjörleifsson.
-
Hvað eiga breytingar á ályktun, heimabruggað Hiroshima og fúlir bakaríiskallar sem hræðast konur, sameiginlegt? Allt kemur þetta við sögu í Ávarpi vikunnar, þar sem Bjarki Hjörleifsson setur á sig stjórnmálafræðiprófessorahattinn og útskýrir fyrir Sunnu Valgerðardóttur hvernig kaupin ganga fyrir sig á eyrinni. Þau fara yfir nýafstaðinn landsfund VG um síðustu helgi, skoða breytingarnar sem umtalaðasta ályktun síðari ára tók á fundinum og sögðu nokkra brandara við gífurlega góðar undirtektir hjá þeim sjálfum.
-
Zijn er afleveringen die ontbreken?
-
Það er búist við góðri stemningu, gleði og átökum á komandi landsfundi VG. Von er á hátt í 300 manns í Safamýrina um helgina, þar sem bæði verður litið um öxl en sömuleiðis horft fram á við. Svona eins og stjórnmálafólk gerir. Sunna Valgerðardóttir og Bjarki Hjörleifsson ræða við Orra Pál Jóhannsson, þingflokksformann VG og fyrrverandi dýrahirði, og Hreindísi Ylvu Garðarsdóttur Holm, skrifstofu- og viðburðarstjóra, leikara og fyrrverandi flugfreyju, um landsfundi fortíðarinnar, hvað sé svona merkilegt við þá og við hverju megi búast.
-
Ávarpið snýr aftur með seríu númer tvö eftir stutt en viðburðaríkt hlé. Fyrsti gestur þáttarins er konan sem stýrir Kvenréttindafélagi Íslands. Hún var einu sinni doktorsnemi í lífefnafræði, svo varð hún doktor og fór að vinna með prótein til að gera krem og serum hjá einu virtasta snyrtivöruframleiðanda Evrópu. Svo ákvað hún að helga sig náttúrunni og varð framkvæmdastjóri Landverndar. Hún ræðir við Bjarka Hjörleifsson og Sunnu Valgerðardóttur um eina snyrtidótið sem virkar í alvörunni, sárið sem Kárahnjúkadeilan skildi eftir sig, skógrækt, kolefnisjöfnunaræði Íslendinga, tradwives, hrútana í landbúnaðinum og skort á skilningi þeirra sem ráða. Og birkitréð sem mamma hennar felldi.
-
Karlakór alþýðunnar snýr aftur. Bjarki fær til sín nafna sinn dr. Bjarka Þór Grönfeldt og Kára Gautason en þeir ræða m.a. málfrelsi, Eurovision, ójöfnuð, vistarbönd, lýðheilsu, kjarasamninga, endurreisn millifærslukerfanna og því að það er hreint orsakasamband milli þess að VG sé í ríkisstjórn og að tekjujöfnuður aukist í landinu.
-
Bjarki Hjörleifsson ræðir við Ragnar Auðun Árnason nýjan framkvæmdastjóra Vinstri grænna. Bjarki og Ragnar ræða hin ýmsu mál í hlaðvarpsþættinum t.a.m. Norræn stjórnmál, þátttöku í félagsstarfi og uppgang hægri öfgaflokka.
-
Í Ávarpinu að þessu sinni ræðir Bjarki við þær Hólmfríði Árnadóttur og Álfhildi Leifsdóttur, kennara, um dönsku, möguleika nemenda til að hafa áhrif á eigin menntun, tækniframfarir og símanotkun, PISA, bölsýni fjölmiðla á æskuna björtu og hlutverk menntakerfisins í stóru myndinni.
-
Bjarki fær til sín nafna sinn dr. Bjarka Þór Grönfeldt og Kára Gautason. Karlakór alþýðunnar ræðir samfélagsmiðla og áhrif þeirra á daglegt líf, hamstrahjól hversdagsins og skírlífi gegn eigin vilja (incels) en Bjarki Þór hefur rannsakað það fyrirbrigði á síðustu árum. Þeir hefja umræðuna á komandi kosningaári en um 70 kosningar fara fram víða um heim á þessu ári, m.a. forsetakosningar í Bandaríkjunum, á Ísland og í Rússlandi.
-
Steinunn Þóra Árnadóttir þingkona Vinstri grænna og Bjarki Hjörleifs ræða um nútíma stríð, ástandið fyrir botni Miðjarðarhafs, mikilvægi friðarhreyfingarinnar og uggvænlegar tækniframfarir í hernaði.
-
Af hverju eru settir vondir molar í Mackintosh? Gunnar Dofri Ólafsson, samskipta og viðskiptaþróunarstjóri Sorpu, ræðir við Bjarka um svartan föstudag, gerviþörf, breytt neyslumynstur og hvernig það er ekki alltaf allt eins og það sýnist í endurvinnslunni.