Afleveringen
-
LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - DOMINO'S - PRÓTÍN.IS - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD
The Rise and fall of Einar Bárðarson. Ísland á HM innistæðulaust chantað í stúkunni á sama tíma og virtustu blaðamenn DV skrifuðu greinar sem hefðu helst átt heima á folk.is svæðinu þeirra. Gísli Marteinn gjörsamlega elskaði að brjóta á hugverkaréttindum og Eyjólfur Sverris raðaði inn mörkum. Svona var Ísland. -
LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR -DOMINO'S - PRÓTÍN.IS - R3 Ráðgjöf og bókhald
Aron Einar valdi Draumalið skipað af bestu leikmönnum sem hann spilaði með frá tíma sínum í Þór, AZ Alkmaar, Coventry, Cardiff og Al-Arabi. Frá Louis van Gaal til Neil Warnock og frá Einari Sigþórssyni, bróður Kött Grá Pjé, til Rafinha Alcantara. Allt sviðið var skoðað. -
Zijn er afleveringen die ontbreken?
-
LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - PRÓTÍN.IS - DOMINO'S R3 RÁÐGJÖF
Við fengum eina leikmanninn sem spilaði í öllum undankeppnunum sem við höfum farið yfir til þessa upp í stúdíó og bárum undir hann alla þá vitleysu sem við höfum matreitt í síðustu þáttum (Byrjar þarna eftir ca 20 mínútur eftir mikilvæga umræðu um Köttinn Kela, sem þarf meiri ást (brúðan ekki punditinn).
Enduðum þáttinn á að fá fyrri viðmælendur til þess að fara yfir að þeirra mati bestu leikmennina sem þeir spiluðu með í landsliðinu á þessum tíma. Því miður fundum við ekki símtölin við Hörð Magnússon og Pétur Ormslev. Formleg kvörtun hefur verið lögð inn hjá tölvudeild ónefnds tölvufyrirtækis. -
Það styttist í aldamót og þjóðin fer að taka sénsa. Þorfinnur Ómarsson og lærisveinar hans í Kvikmyndasjóði byrja að veita Edduverðlaun og leikmenn keppast við að hætta að leika fyrir íslenska landsliðið. Fórum yfir það þegar DV hrútskýrði fyrir þjóðinni hverjir væru gáfuðustu Íslendingarnar og svo var nóg að gera hjá Ingólfi Hannessyni. Á meðan er Guðjón að smíða eitthvað skrímsli og nei þá erum við ekki að meina stúkurnar sem settar voru fyrir aftan mörkin fyrir leikinn á móti Frökkum, enda voru þær leigðar frá Svíþjóð #ÞærSænsku. Tvö stig skilin eftir í Jerevan, barningur við Barthez, rýtingur frá Rebrov, eitt stykki Ingólfur kampakátur Karpin og give it Kio Briggsy til the end of the season. "Þetta er liðið okkar". Svona var Ísland '98-'00
Viðmælendur:
Pétur Hafliði Marteinsson aka Social Pete
Steinar Dagur Adolfsson, sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs Akraness og tengiliður gerður að hafsent.
Rikki Daða og Rúnar Kristins (viðtal fengið frá www.fótbolti.net), sérfræðingar í málefnum Íslands og Frakklands
Þórður Guðjónsson, áhugamaður um ferðatilhaganir
Negliði á Thule og félaga sögum og leiðréttingum, ekki veitir af. -
LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - DOMINO'S - PRÓTÍN.IS - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD
Við tókum upp þráðinn frá Svona var Sumarið og fórum enn dýpra í Fjölnis sögu Þorgeirssonar og ævintýri hans með "Mel krydd". Hefndarklám var sent inn í stuttmyndakeppni á sama tíma og óveðursskýið hlóð upp regni og eldingum yfir Laugardalnum. Eggert Magnússon hélt þó áfram að skrifa undir hina ýmsu samninga. Changing of the guards, farewell to legends og svo gerðum við upp talsetningar á teiknimyndum á 10. áratugnum. Svona var Ísland 96-98.
Dæliði inn í Thule hornið! -
LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - DOMINO'S - PRÓTÍN.IS - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD
Benjamin, the Dove kom út og veitingamaður í miðbæ Reykjavíkur barðist í bökkum við að fullnægja kúnnum sínum á þá vegu sem þeir ætluðu. Á sama tíma hafa skin og skúrir aldrei komið og farið jafn oft hjá einum manni og Ásgeiri Elíassyni þrátt fyrir metfjölda af tengiliðum í bakvörðum og Þorgeir Ástvaldsson með myndavélina í andlitinu á honum allan leikinn fyrir hönd VISAsport. Við krufðum það hvernig POX kom til landsins og viljum fá að vita meira um skemmtistaðina Síbería og Ingólfskaffi. Ásgeir lét undan þrýstingi og setti lyfjafræðing í vörnina eftir nákvæmar skallaæfingar. Under the Solna Sun þar sem Ravelli blindaðist. Svona var Ísland 94'96.
Viðmælendur: Ólafur Adolfsson, skallamaður.
Dæliði í Thule leiðréttingahornið, takk! -
LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - DOMINO'S - PRÓTÍN.IS - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD
Kristján Finnbogason er næst sigursælasti leikmaður íslenskrar nútímaknattspyrnu með 8 Íslandsmeistaratitla með skammstöfunarliðunum ÍA, KR og FH yfir feril sem teygði sig yfir fjóra áratugi frá 1987 til 2016. Draumalið frá manni sem spilaði með báðum risum íslenskrar knattspyrnu á 10. áratugnum. Hverjir fá sénsinn og hverjir eru settir á bekkinn? -
LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - DOMINO'S - PRÓTÍN.IS - R3 ráðgjöf og bókhald
Þjóðin eignaðist að öðrum ólöstuðum mesta Íslandsvin fyrr og síðar þegar georgískur málvísindamaður tók ástfóstri við Ísland og komst með krókaleiðum og Guðna Th. til Íslands. Á sama tíma er Ásgeir Elíasson setjandi tengiliði í bakvarðastöðurnar og prófandi allar útfærslur sem til eru í leit Eggerts Magnússonar að sæti á Heimsmeistaramótinu 1994 í Bandaríkjunum. Það voru ferskir vindar, sem þó stundum blésu á móti okkur. Það var maður sem vildi berbrjósta þjónustukonur á pizzastað. Það voru súpergrúppur og það voru nýliðar. En fyrst og síðast, það voru töfrar. Svona var Ísland 1992-1994.
Dritiði á okkur leiðréttingum.
Viðmælendur: Hörður Magnússon, kóngur úr Hafnafirði. -
LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - DOMINO'S - PRÓTÍN.IS - R3 ráðgjöf og bókhald
Úr þýskum aga í sænskan toppfótbolta(?). Eggert mætti, Davíð fær lyklana að flokknum og í Vesturbænum er alls konar vitleysisgangur í boði. Það var sárt að sakna en þjóðin flykktist á bakvið eftirmanninn þegar Spánverjar voru bakaðir. Svo fór Diddi Fiðla til London. Svona var Ísland '90-92. -
Jóhannes litli Páll kíkti til landsins og Hjammi þreif bílinn hans. Sigi Held fékk a month of friendlies í ágúst en ekkert meir eftir það. Goðsögn kvaddi og handhafar forsetavalds kíktu í ríkið. Bjórinn fékk að flæða á ný, Valgeir Guðjóns ákvað að ganga heim á öllum vígsstöðum en fyrst og síðast setti geðþekkur Akureyringur 85 þúsund sovéska áhangendur hljóða á Lenínvellinum.
Viðmælendur: Ólafur Helgi Kristjánsson, prófessor, Pétur Úlfar Ormslev, tía, og Halldór Ómar Áskelsson, Sovétbani. -
LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - DOMINO'S - PRÓTÍN.IS - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD
Patrik Andersson picks the best eleven of his former teammates and goes over his career highlights.
Patrik Andersson spilaði með m.a. með Bayern Munchen og Barcelona. Veltum steinum um hvernig er að klúðra víti í úrslitaleik Champions League en samt vinna, hvernig er að skora sigurmarkið með síðustu spyrnu í Bundesligunni sem tryggir titilinn og -
LENGJAN - THULE - DOMINO'S - SESSION CRAFT BAR - PRÓTÍN.IS - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD
Svona var Ísland kryfur tíðaranda og stemningu landans tvö ár í senn, sérstaklega í tengslum við þátttöku karlalandsliðs Íslands í fótbolta í undankeppnum stórmóta.
Viðmælendur þáttarins: Sigmundur Ó Steinarsson, geit í blaðamennsku, og Arnór Guðjohnsen, methafi yfir flestar aukaspyrnur á einu tímabili í efstu deild á Ísland. -
LENGJAN - SESSION CRAFT BAR - DOMINO'S - PRÓTIN.IS - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD
Það hlaut að koma að því að 5 klukkustunda múrinn yrði rofinn en það var einfaldlega nauðsynlegt að koma til skila að Sölvi Fannar lék í tónlistarmyndbandi hljómsveitarinnar Angel at my Table og hverjir fengu mention á kreditlistanum á Algjör Sveppi 4. Metrómenn voru út og Timburmenn komnir inn og mesti timburmaðurinn færði almúganum og öreigum flöskuborðsmenningu með ótrúlegu útspili. Ein af allra fyrstu vegferðum íslenskrar knattspyrnu var keyrð af stað með BG4 við stýrið og það er svo sannarlega eitthvað brewing í Garðabænum undir stjórn powerpoint sérfræðingsins Rúnars Páls.
Þetta er síðasti skipulagði þátturinn af Svona var sumarið í bili. Bíðið spennt eftir þáttunum Svona var Ísland fyrir meiri nostalgíu og meiri fótbolta. Sama húsnæði, sama starfsemi. -
LENGJAN - THULE - SJÓVÁ - SESSION CRAFT BAR - DOMINO'S
Orri er kominn í tvöfalt barneignarleyfi og Joe er að flytja til Kaliforníu svo til að kveðju með einhverju var ákveðið að hlaða í uppgjör á síðustu 10 þáttum þar sem áherslan var á því sem gerðist after dark í miðbæ Reykjavíkur eða heimapartýjum í Hafnafirði og góðir gestir voru fengnir til að kryfja gullaldarárin. Svona var sumarið verður ekki lengra að sinni, við þökkum fyrir hlustunina og sjáusmt vonandi eftir ca ár. Til allra sem hafa hlustað, það er bara takk! Til þeirra sem eru ennþá að hlusta og vilja koma að sögum í leiðréttinga- og söguhornið, ekki hika við að heyra í okkur! -
LENGJAN - THULE - SJÓVÁ - SESSION CRAFT BAR - DOMINOS
Lárus Orri spilaði í 10 ár í Championship, League 1 og Premir League með Stoke og WBA. Þess utan er hann harðasti Þorpari landsins og fór upp í gegnum yngri flokkanna í sennilega hæfileikaríkasta hópi leikmanna sem þjóðin hefur séð, spilaði 42 A-landsleiki og var næstum því keyptur af Newcastle. -
Guðmundur Steinn Hafsteinsson og Viðar Örn Kjartansson fóru yfir stormasöm ár í neðri hluta Pepsi deildarinnar 2013 hjá Víkingi Ólafsvík og Selfossi.
-
LENGJAN - THULE - SJÓVÁ - DOMINO'S - SESSION CRAFT BAR
Hannes Halldórsson fór á toppinn sem besti markmaður Shellmótsins 94, á botninn þegar hann eyðilagði á sér öxlina 99, aftur á toppinn þegar hann vann MORFÍS þökk sé Dóra DNA sem talaði of lengi og svo aftur á botninn þegar hann kostaði Leiknisljónin hverfishátíð og skrúðgöngu árið 2004. Frá botninum spyrnti hann sér og stoppaði ekki uppflotinu fyrr en ca 16. júní 2018 eins og allir vita. Hannes valdi Draumaliðið sitt eingöngu skipað leikmönnum úr íslenskum félagsliðafótbolta af því það er fyrir löngu búið að tæma allt árangri íslenska landsliðsins í fótbolta undanfarin ár. Við ræddum allt frá Vali Gunnarssyni tölvukennara til Jens Petter Hauge leikmanns AC Milan, en þó aðallega Frá Magnúsi Einarssyni og Dr. Leður til Rúnars Kristins og Heimis Guðjóns í íslenska boltanum. -
LENGJAN - SJÓVÁ - THULE - SESSION CRAFT BAR - DOMINO'S
Eftir að hafa íhugað það í tvö ár ákváðum við að hleypa lofti út um lúgur(NB - á kolsvörtum rúðum) og gefa South Centralesque rappara sénsinn á að veita okkur fullnægingu í eyrun. Nýtt 5 ára plan er í smíðum á Hlíðarenda og það er lúður klár fyrir þá sem láta röng orð af sinni tungu. Orri fór yfir það þegar hann hægði sér í hnéháa hvönn og upp í Árbæ æfði ungur Selfyssingur tvisvar á dag til að uppfylla drauma sína sem áttu að rætast á næstu þremur árum. Leikmenn hentuðu ekki gildum Breiðabliks og leikmaður KR smalaði saman öllum helstu listamönnum landsins og tók þá með sér á sannkallaðan revenge tour yfir 22 leiki. Svona var sumarið 2013. Minnum á leiðréttingahornið, það er heldur betur að reynast nauðsynlegt!
Viðmælendur:
Viðar Örn Kjartansson - leikmaður Fylkis 2013 og fyrrum söngvari hljómsveitarinnar Casio.
Guðmundur Steinn Hafsteinsson - leikmaður Víkings Ólafsvíkur 2013 og harðasti Top Gun maður þjóðarinnar.
Kristján Óli Sigurðsson - viðmælandi í Akraborginni veturinn 2012 og sannleiksvél. -
LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - SJÓVÁ - DOMINOS
Hannes Sig á einhvern ótrúlegasta atvinnumannaferil nokkurs Íslendings sem spannar níu lönd, þám Rússland (að sjálfsögðu sá hluti sem liggur að Tsjetsjeníu) og Kazakhstan þar sem haugur af þekktum leikmönnum, þjálfurum og stjórnarmönnum spila rullu. Í dag er hann svo gerandi magnaða hluti í þýska boltanum sem þjálfari og dósent í knattspyrnufræðum. Gárungarnir jafnvel farnir að tala um hann sem Nýi Prófessorinn en fyrst og fremst er hann stórskemmtilegur sögumaður og geggjaður gaur. -
Baldur Sig gaf in depth skýringar á innkomu Gary Martin í KR, hruni liðsins eftir Verslunarmannahelgina og gæðin í Birni Jónssyni.
Alexander Scholz fór yfir tíma sinn á Íslandi eins og þegar amma hans hræddi líftóruna úr Kennie Chopart.
Jón Daði rifjaði upp erfitt ár á Selfossi sem þó var gott persónulega og hvernig Hannes Halldórs hefur ekki enn jafnað sig á screamernum sem hann setti í grillið á honum. - Laat meer zien