Afleveringen
-
Það eru níu dagar núna í það að Besta deildin fari af stað! Í dag tökum við fyrir ÍA í Niðurtalningunni hér á Fótbolta.net.
Frændurnir Sverrir Mar Smárason og Andri Júlíusson mættu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net og greindu Skagamenn.
Arnór Smárason, bróðir Sverris og fyrirliði ÍA, er þá á línunni í seinni hluta þáttarins. -
Það eru tíu dagar núna í það að Besta deildin fari af stað! Í dag tökum við fyrir Vestra í Niðurtalningunni hér á Fótbolta.net.
Fréttamaðurinn Aron Guðmundsson og Sigurgeir Sveinn Gíslason, goðsögn hjá félaginu, mættu til að fara yfir málin.
Þá er Benedikt Warén á línunni í seinni hlutanum en hann skrifaði undir þriggja ára samning við Vestra fyrir síðasta tímabil og hjálpaði liðinu að komast upp. -
Zijn er afleveringen die ontbreken?
-
Lokaþáttur Aldrei heim, markmiðið að komast á EM náðist því miður ekki. Daginn eftir tapið gegn Úkraínu fara Elvar Geir og Sæbjörn Steinke yfir leikinn og niðurstöðuna.
Farið er yfir einkunnir íslenskra leikmanna, helstu umræðupunkta og framhaldið hjá liðinu.
Við þökkum fyrir hlustunina á hlaðvarpsþætti okkar frá Ungverjalandi og Póllandi. Áfram Ísland! -
Það eru ellefu dagar í það að Besta deildin fari af stað en í dag tökum við Fylki fyrir í Niðurtalningunni hér á Fótbolta.net.
Kristján Gylfi Guðmundsson og Þorsteinn Lár Ragnarsson, stuðningsmenn Fylkis, mættu í dag í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net og fóru um víðan völl.
Þá er Ragnar Bragi Sveinsson, fyrirliði Fylkis, á línunni í seinni hluta þáttarins. -
Það er úrslitastund, leikdagur. Úkraína og Ísland mætast í Wroclaw í kvöld og stemningin í borginni eykst.
Elvar Geir og Sæbjörn Steinke ræða við góða menn á leikdegi. Stefán Árni Pálsson íþróttafréttamaður á Stöð 2 Sport og Kjartan Henry Finnbogason sérfræðingur kíktu á hótelbarinn.
Rætt er um stemninguna og spennuna í aðraganda leiksins, líklegt byrjunarlið, kynni Kjartans af landsliðsþjálfara Úkraínu og geðþekkan og gjafmildan Úkraínumann. -
Þeir Elvar Geir Magnússon og Sæbjörn Steinke ræddu um atburði dagsins í hlaðvarpsþættinum Aldrei heim.
Á morgun fer fram úrslitaleikur milli Íslands og Úkraínu um sæti á EM. Í dag voru fréttamannafundir liðanna og lokaæfingarnar fyrir leikinn.
Farið er yfir líklegt byrjunarlið Íslands og það helsta sem kom fram á fréttamannafundunum,
Í þættinum er rætt við Þorvald Örlygsson formann KSÍ um landsliðið og fyrstu vikurnar í starfi formanns. -
Það er heldur betur farið að styttast í Bestu deildina en í dag eru aðeins tólf dagar í fyrstu leiki mótsins.
Við á Fótbolta.net byrjuðum með spá okkar fyrir mótið í dag en þar er HK á botninum. Meðfram spánni munum við birta hlaðvörp þar sem rætt er við stuðningsmenn liða og leikmann úr hverju liði.
Fyrir hönd HK mættu fjölmiðlamennirnir Ingvi Þór Sæmundsson og Andri Már Eggertsson.
Svo var hringt í Leif Andra Leifsson, fyrirliða HK, og staðan tekin fyrir tímabilið sem framundan er. -
Íslenska landsliðið flaug í dag yfir til Wroclaw í Póllandi en þar verður leikurinn gegn Úkraínu á þriðjudag, úrslitaleikurinn um sæti á Evrópumótinu í Þýskalandi.
Elvar Geir og Sæbjörn Steinke eru einnig komnir yfir til Póllands og ræddu helstu umræðumálin í aðdraganda leiksins.
Ferðalagið til Póllands, íslensku stuðningsmennirnir, styrkleikar úkraínska liðsins, tvífari Trossard, spurningamerki á miðsvæði Íslands, mögulegt byrjunarlið og fleira. -
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 er á hlaðvarpsformi þessa vikuna og var tekinn upp í dag, föstudaginn 22. mars.
Tómas Þór og Benedikt Bóas gera upp sigur Íslands á Ísrael í gær. Jóhannes Karl Guðjónsson aðstoðarþjálfari Íslands er á línunni og fer yfir leikinn með þeim.
Þá er hringt í Bjarka Má Elísson landsliðsmann Íslands í handbolta sem var á leiknum í gær ásamt heimsþekktum handboltastjörnum.
Elvar Geir Magnússon ritstjóri Fótbolta.net var á leiknum og hann var einnig á línunni í símatímanum og fór yfir sína upplifun í Búdapest. -
Aldrei heim! Ísland gerði sér lítið fyrir og vann 4-1 sigur gegn Ísrael í Búdapest. Eftir ótrúlegan rússíbanaleik er ljóst að það bíður úrslitaleikur gegn Úkraínu sem fram fer í Póllandi á þriðjudaginn. Úrslitaleikur um sæti á EM í Þýskalandi.
Eftir langan vinnudag ræddu Elvar Geir og Sæbjörn Steinke við Helga Sigurðsson fréttamann 433.is um þetta skemmtilega kvöld þar sem Albert Guðmundsson stal fyrirsögnunum en mætti ekki í viðtöl. -
Það er leikdagur í Búdapest. Ísland og Ísrael mætast í kvöld. Sigurliðið í leiknum mætir Úkraínu eða Bosníu í úrslitaleik um sæti á EM.
Elvar Geir og Sæbjörn Steinke spjalla um komandi leik við Stefán Árna Pálsson íþróttafréttamann á Stöð 2 Sport og Vísi. -
Viktor Unnar Illugason var á sínum tíma einn efnilegasti fótboltamaður Ísland en í dag er einn efnilegasti þjálfari landsins.
Viktor hefur starfað sem yngri flokka þjálfari hjá Breiðabliki undanfarin ár en var í vetur ráðinn til Vals. Þar stafar hann sem þjálfari 2. flokks og 4. flokks, en er einnig með puttana í meistaraflokknum.
Viktor Unnar settist niður með Baldvini Má Borgarssyni, fréttamanni Fótbolta.net, eftir leik Vals gegn ÍA í Lengjubikarnum í gær þar sem hann spjallaði um leikinn og sinn metnað í þjálfun. -
Aron Jóhannsson, leikmaður Vals, settist niður með Baldvini Má Borgarssyni, fréttamanni Fótbolta.net, eftir tap Valsmanna gegn ÍA í Lengjubikarnum í gær.
Í spjallinu fór Aron aðeins yfir leikinn, komu Gylfa Þórs Sigurðssonar til félagsins, nýjan samning sinn á Hlíðarenda og Cole Campbell sem ákvað nýverið að spila fyrir bandaríska landsliðið. -
Fantasy spilarar slógu öll met um helgina. Fulham unnu Lundúnaslaginn. Burnley náðu í kærkomin og gríðarlega mikilvæg 3 stig. Man Utd unnu Liverpool eftir framlengingu í FA bikarnum í rosalegum leik. Bestu 3 í umferðinni. Rauða spjaldið og kóngurinn og hirðfíflið á sínum stað.
-
Elvar Geir og Sæbjörn Steinke eru staddir í Búdapest og fá Helga Sigurðsson fréttamann 433.is í spjall þar sem komandi landsleikur er skoðaður.
Ísrael - Ísland verður í borginni á fimmtudagskvöld. Sigurliðið í leiknum mætir Úkraínu eða Bosníu í úrslitaleik um sæti á EM.
Rætt er um undirbúning íslenska liðsins, æfingarnar sem búnar eru, tignarlegt hótel liðsins, Albert Guðmundsson og ýmislegt fleira. -
Sæbjörn Steinke spjallar við Hákon Rafn Valdimarsson landsliðsmarkvörð á hóteli íslenska liðsins í Búdapest.
Ísrael - Ísland verður í borginni á fimmtudagskvöld. Sigurliðið í leiknum mætir Úkraínu eða Bosníu í úrslitaleik um sæti á EM.
Hákon ræðir um umspilið og einnig um Brentford en hann var keyptur til enska úrvalsdeildarfélagsins í janúarglugganum. -
Einn besti leikur tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni var í gær þegar erkifjendurnir Manchester United og Liverpool áttust við í FA-bikarnum.
Leikurinn var magnaður og má svo sannarlega tala um rússíbanareið.
Jóhann Páll Ástvaldsson og Orri Freyr Rúnarsson mættu í Thule-stúdíóið í dag og fóru yfir stórleikinn, sem og aðra leiki helgarinnar. -
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 16. mars.
Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir allt það helsta sem er í gangi í boltanum. Sæbjörn Steinke fréttamaður Fotbolti.net er með þeim í þættinum.
Landsliðsvalið er krufið og sigurmöguleikar okkar í umspilsleiknum gegn Ísrael eru skoðaðir.
Einnig er rætt um komu Gylfa í Bestu deildina og aðrar fréttir íslenska boltans skoðaðar. Að auki er horft út í heim, Meistaradeildin og enski boltann.
Þá er Logi Bergmann á línunni og segir frá nýrri heimildarmynd um Ásgeir Elíasson. -
Son sá um Villa á Villa park. Tvær gullsendingar bakvarðarins Ben skiluðu þremur stigum. Man Utd með sigur og jafntefli í stórleiknum á Anfield. Semenyo frábær á Vitality vellinum. Hver fær rauða spjaldið? Kóngurinn og Hirðfíflið á sínum stað.
-
Gylfi Þór Sigurðsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við Val og ætlar sér að verða Íslandsmeistari með liðinu.
Elvar Geir og Sæbjörn Steinke ræða þessar fréttir í sérstökum hlaðvarpsþætti sem tekinn var upp í ljósi þessara risatíðinda.
Þá ræðir Sæbjörn við Börk Edvardsson formann Vals um komu Gylfa. - Laat meer zien