Afleveringen

  • Eyrún Magnúsdóttir, Aðalheiður Ámundadóttir og Erla Hlynsdóttir fara yfir kosningabaráttuna sem nú er að taka á sig mynd vegna atkvæðagreiðslunnar í ágúst. Þær ræða nýjar baráttuhreyfingar, gæði umræðunnar og þá hættu að erlend ríki reyni að hafa áhrif á niðurstöðuna með upplýsingaóreiðu.

    Af hverju er kosið um aðildarviðræður en ekki um aðild?Hvaða þýðingu hafa nýju já- og nei- hreyfingarnar fyrir þjóðfélagsumræðuna?Verður venjulegt fólk fyrir háði og spotti í baráttunni?Geta Halldór Benjamín og Sólveig Anna verið saman í liði? Erum við óvart farin að rökræða við rússnesk gervimenni á netinu?Hvað kostar að kaupa hundrað þúsund „áhrif" á samfélagsmiðlum?Mun baráttan kljúfa þjóðina?

    Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.

  • Eyrún Magnúsdóttir og Aðalheiður Ámundadóttir ræða fyrstu hagræðingaraðgerðir nýs meirihluta í Reykjavík, tíu ára afmæli Brexit og óróa í breskum stjórnmálum, nýjan liðsmann Gímaldsins, áherslu á neytendaumfjöllun og nýja stjórnsýsluúttekt um Græna gímaldið.

    Hvað kemur í staðinn fyrir alla upplýsingafulltrúa borgarinnar?Verður upplýsingamiðluninni útvistað og mega borgarbúar búast við fleiri „labba og tala“-myndböndum? Hvaða mistök kostuðu breska Evrópusinna aðild að ESB?Breskur borgarstjóri verður næsti forsætisráðherraJá-eða-nei-fylkingar farnar að þjappa sér saman. Hvor fylkingin situr uppi með hræðsluáróðurinn um ESB?Hvað stendur í nýrri úttekt um Græna gímaldið og hvernig tengist hún tiltekt á skrifstofu borgarstjóra?Dýrasti matur í Evrópu og neytendaáherslur Gímaldsins


    Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.

  • Zijn er afleveringen die ontbreken?

    Klik hier om de feed te vernieuwen.

  • Hvergi í Evrópu er dýrara að kaupa í matinn en á Íslandi og hagnaður matvöruverslana heldur áfram að vaxa. Matvörurisar kenna launahækkunum um hátt matarverð en forstjóri Samkeppniseftirlitsins telur að samfélagið allt hafi brugðist. Lega landsins, sérstakur gjaldmiðill og tollavernd spili þar inn í, en ekki síður eigi öflug hagsmunagæsla matvörumarkaðarins sinn þátt í hækkunum. Þá megi löggjafinn líta í eigin barm, en aðstæður hér á landi ýti undir fákeppni frekar en samkeppni. Frekar sé keppt í ýmiss konar þjónustu heldur en í verði á matvörum. Verðskyn neytenda brenglast í verðbólgu segir framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna. Ítarleg úttekt á matvöruverði og hækkunum undanfarinna ára.

    Viðmælendur í þættinum eru Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, Vilhjálmur Hilmarsson, hagfræðingur hjá stéttarfélaginu Visku, Bjarki Steinn Benjamínsson, verkefnastjóri Verðlagseftirlits ASÍ og Brynhildur Pétursdóttur, framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna.


    Þáttastjórnandi er Helga Arnardóttir blaðamaður og nýr liðsmaður Gímaldsins.


    Meðal þess sem fjallað er um í þættinum:

    Verðlag á Íslandi mælist 84% hærra en að meðaltali í 27 Evrópulöndum, samkvæmt úttekt Visku. Matvara er 55% dýrari en í ESB-ríkjunum, samkvæmt skýrslu Samkeppniseftirlitsins. Hærri laun skýri ekki allan verðmuninn. Verðmunurinn sé nær tvöfaldur á við launamuninn, og ofurtollar og fákeppni skýri stóran hluta þess sem umfram er.Engin samkeppnislög ná yfir afurðastöðvar á Íslandi, sem mega því hafa með sér verðsamráð. Páll Gunnar Pálsson segir samningsstöðu bænda veika í því ljósi og hækkun á kjöti eftir 2022 viðvarandi meiri en í öðrum vöruflokkum.Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, segir að lítil verðsamkeppni ríki á matvörumarkaði; samkeppnin snúist oft um önnur atriði á borð við útlit, stærð og fjölgun sjálfsafgreiðslukassa. Prís býður lægsta matvöruverðið, um 4% lægra, samkvæmt Verðlagseftirliti ASÍ.Hagnaður Haga, sem rekur meðal annars Bónus, var 7,4 milljarðar króna 2025 og hefur aukist um 4,7 milljarða á fimm árum. Hagnaður Festi, sem rekur Krónuna, var 6,2 milljarðar og jókst um 3,9 milljarða á sama tímabili, þar af var hagnaður Krónunnar einnar 2,9 milljarðar — tæpur helmingur af heildarhagnaði Festi.Viðar Ingason, hagfræðingur VR, segir laun venjulega hækka til að vinna upp verðbólgu sem þegar er orðin. Sambandið liggi alla jafna í báðar áttir, en algengara sé að það finnist frá verðlagi yfir í laun.Vilhjálmur Hilmarsson, hagfræðingur Visku, benti á hagnaðardrifna verðbólgu — svokallaða gróðaverðbólgu — strax árið 2023 þegar hann var hagfræðingur BHM.Samkeppniseftirlitið byggir á EES-samningnum og Páll Gunnar segir að án hans væri lítið sem ekkert samkeppniseftirlit á Íslandi.Að mati Hagfræðistofnunar myndi 25% lækkun matarverðs við ESB-aðild, eins og varð í Svíþjóð og Finnlandi, leiða strax til 3,5% lækkunar neysluverðs. Afnám tolla og annarra gjalda hefði umtalsverð áhrif til lækkunar.Brynhildur Pétursdóttir, framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna, segir verðskyn fólks brenglast í miklu verðbólguumhverfi. „Við þurfum þjóðarátak í nísku,“ segir Vilhjálmur Hilmarsson hjá Visku.


    Evrópusumar Gímaldsins: Engir smelludólgar, engar upphrópanir, engar ritdeilur. Bara vönduð umfjöllun og viðmælendur með þekkingu og innsýn. Við teljum niður í þjóðaratkvæðagreiðslu með hnitmiðaðri umfjöllun um það sem þú þarft að vita til að taka ákvörðun í ágúst. Gímaldið stendur vaktina svo þú getir verið í sumarfríi.

    Þessi umfjöllun er opin en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.

  • Lestur á fréttaskýringu af vef Gímaldsins um líklega tímalínu frá þjóðaratkvæðagreiðslu til fullgildrar aðildar Íslands að Evrópusambandinu, segi þjóðin já þann 29. ágúst næstkomandi. Í greininni er fjallað um:

    Ferlið hjá ESB eftir móttöku tilkynningar frá Íslandi um vilja til að taka upp viðræðurmikilvægi þess að umsókn Íslands frá 2009 er enn virkmótun samningsafstöðu hjá ESB og ríkjaráðstefnu aðildarríkjaeldri og nýrri viðræðurammasamninganefndir Íslands og samráð innanlandsþjóðaratkvæðagreiðslu og stjórnarskrárbreytingarFullgildingu samnings á Alþingi og gildistökukosningar til Evrópuþingsins

    Hægt er að lesa fréttaskýringuna á vef Gímaldsins, skoða skýringarmyndir sem henni fylgja og lesa tengt efni.

    Evrópusumar Gímaldsins: Engir smelludólgar, engar upphrópanir, engar ritdeilur. Bara vönduð umfjöllun og viðmælendur með þekkingu og innsýn. Við teljum niður í þjóðaratkvæðagreiðslu með hnitmiðaðri umfjöllun um það sem þú þarft að vita til að taka ákvörðun í ágúst. Gímaldið stendur vaktina svo þú getir verið í sumarfríi.

    Þessi lestur er öllum opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.

  • Íslenskan myndi líklega standa sterkari innan Evrópusambandsins en utan þess, að mati Gauta Kristmannssonar, prófessors í þýðingafræði og deildarforseta íslensku- og menningardeildar Háskóla Íslands. Gauti er meðal þeirra sem sáu um túlkun í síðustu aðildarviðæðum Íslands og ESB, og hefur hann þegar fengið fyrirspurnir frá yfirmanni fjöltyngis á Evrópuþinginu um undirbúning að menntun fleiri túlka ef af aðildarviðræðum verður.

    Erla Hlynsdóttir ræðir við Gauta Kristmannsson um stöðu íslenskrar tungu í tengslum við mögulegar aðildarviðræður við ESB. Það helsta úr viðtalinu:

    Gangi ríki í ESB verður tungumál þess sjálfkrafa eitt af opinberum málum sambandsins. Hver borgari aðildarríkis á rétt á að eiga samskipti við stofnanir sambandsins á eigin móðurmáli og fá öll lög og reglugerðir á sínu tungumáli.Hugmyndir um að fækka opinberum tungumálum sambandsins hafa ekki fengið hljómgrunn. Hvert ríki hefur neitunarvald og „það vill enginn fórna sínu tungumáli".Þegar síðustu aðildarviðræður fóru fram var túlkanám við Háskóla Íslands eflt fyrir tilstilli ESB.Að mati Gauta steðja meiri ógnir að íslenskunni innanlands og frá bandarískum tæknirisum, en nokkurn tíma frá Brussel.

    Evrópusumar Gímaldsins: Engir smelludólgar, engar upphrópanir, engar ritdeilur. Bara vönduð umfjöllun og viðmælendur með þekkingu og innsýn. Við teljum niður í þjóðaratkvæðagreiðslu með hnitmiðaðri umfjöllun um það sem þú þarft að vita til að taka ákvörðun í ágúst. Gímaldið stendur vaktina svo þú getir verið í sumarfríi.

    Þátturinn er öllum opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.

  • Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir er gestur Gímalsins og ræðir áherslur í mögulegum viðræðum Íslands um aðild að Evrópusambandinu.

    Hvaða ferill fer í gang ef þjóðin segir já í haust? Hverjir verða valdir til að skilgreina samsningsafstöðu Íslands? Hvað verður sett á oddinn í viðræðunum? Er rétti tíminn núna til að setja auðlindaákvæði í stjórnarskrá?Á Ísland að halda til streitu undanþágu til að stunda hvalveiðar? Af hverju mega útlendingar koma nálagt orkufrekum iðnaði en ekki sjávarútvegi? Er Evrópusambanið eins og Framsókn?Geta hagsmunir bænda og neytenda farið saman? Af hverju er lega Íslands mikilvæg fyrir Evrópu og Bandaríkin?Af hverju er mikilvægt fyrir efasemdafólk að segja já í haust?

    Textaútgáfa viðtalsins er aðgengileg á vef Gímaldsins.


    Evrópusumar Gímaldsins: Engir smelludólgar, engar upphrópanir, engar ritdeilur. Bara vönduð umfjöllun og viðmælendur með þekkingu og innsýn. Við teljum niður í þjóðaratkvæðagreiðslu með hnitmiðaðri umfjöllun um það sem þú þarft að vita til að taka ákvörðun í ágúst. Gímaldið stendur vaktina svo þú getir verið í sumarfríi.

    Þátturinn er öllum opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.

  • Ef Ísland gengi í Evrópusambandið þá yrði það breyting fyrir íslensk fyrirtæki, en ekki endilega umbylting á einni nóttu.

    Hugveitan Evrópustraumar vann skýrslu fyrir Félag atvinnurekenda og Íslensk-evrópska verslunarráðið þar sem greind eru áhrif aðildar á rekstrarumhverfi íslenskra fyrirtækja og dregnir fram bæði kostir og gallar. Í samtali við Gímaldið segist höfundurinn vona að skýrslan sé gagnlegt framlag inn í umræðuna.

    Eyrún Magnúsdóttir ræðir við Hallgrím Oddsson hagfræðing og framkvæmdastjóra Evrópustrauma. Það helsta úr viðtalinu:

    Skýrslan skoðar þrjú meginsvið: tolla, gjaldmiðil og regluumhverfi og skoðar hvað breytist fyrir íslensk fyrirtæki við ESB-aðildÍsland er í dag með 0% tolla á flestar vörur. Við aðild tækum við upp ytri tolla ESB sem eru hærri á ýmsum vöruflokkumStærsta tollbreytingin gagnvart þriðju ríkjum varðar Kína. Þar eru tollar ESB hærri en núverandi íslenskir tollarInni í tollabandalaginu sparast umsýsla og tollskýrslugerð, jafnvel þó tollar séu 0% nú kostar umsýslan sittVextir á fyrirtækjalánum eru yfir 10% á Íslandi en 3–6% í ESBUpptaka evru tekur langan tíma, þjóðirnar hafa tekið þrjú til nítján ár frá inngöngu í ESB þar til evra var tekin uppVerðstöðugleiki til lengri tíma yrði betur tryggður með evru en það sem þarf að breytast er hjá okkur, ekki hjá BrusselNetverslun frá ESB-löndum yrði mun auðveldari fyrir neytendur og minni hætta á tvísköttunBreytingarnar yrðu mest fyrir landbúnaðinn, þar myndi samkeppnisumhverfið breytast verulega en ekki er rýnt sérstaklega í þau mál frá sjónarhóli framleiðendaHöfundur telur vanta fleiri greiningar, einkum á áhrifum á landbúnað og einnig samanburð við önnur ríki sem gengið hafa í ESB

    Evrópusumar Gímaldsins: Engir smelludólgar, engar upphrópanir, engar ritdeilur. Bara vönduð umfjöllun og viðmælendur með þekkingu og innsýn. Við teljum niður í þjóðaratkvæðagreiðslu með hnitmiðaðri umfjöllun um það sem þú þarft að vita til að taka ákvörðun í ágúst. Gímaldið stendur vaktina svo þú getir verið í sumarfríi.

    Þátturinn er öllum opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.

  • Stór samtök á vinnumarkaði – ASÍ og SA – munu ekki lýsa afstöðu til ESB-þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágústSólveig Anna Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Eflingar og einn forseta ASÍ, hefur lýst sinni skoðun en talar ekki fyrir hönd ASÍFélag atvinnurekenda birti skýrslu með kostum og göllum aðildar fyrir atvinnulífið en telur ekki hlutverk sitt að lýsa afstöðuÍslenska yrði opinbert tungumál ESB ef til aðildar kæmi og gæti styrkt stöðu sína, líkt og írskan gerðiFyrirspurnir og erindi til Brussel yrði hægt að senda á íslensku og þeim yrði svarað á íslenskuSjávarútvegurinn og ólík afstaða útgerðarmanna til ESB

    Umsjón: Eyrún Magnúsdóttir, Aðalheiður Ámundadóttir og Erla Hlynsdóttir.

    Evrópusumar Gímaldsins: Engir smelludólgar, engar upphrópanir, engar ritdeilur. Bara vönduð umfjöllun og viðmælendur með þekkingu og innsýn. Við teljum niður í þjóðaratkvæðagreiðslu með hnitmiðaðri umfjöllun um það sem þú þarft að vita til að taka ákvörðun í ágúst. Gímaldið stendur vaktina svo þú getir verið í sumarfríi.

    Þátturinn er öllum opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.

  • „Þeir sem enga hafa reynslu af ESB virðast hafa sterkustu skoðanirnar og sjá engin tækifæri,“ segir Hjálmar Vilhjálmsson, viðskiptafræðingur og framkvæmdarstjóri á uppsjávarsviði hjá Brimi hf. Hjálmar er einn fárra Íslendinga sem þekkja rekstur í sjávarútvegi innan ESB af eigin raun. Í viðtali við Gímaldið rekur hann hvernig viðhorf hans til ESB breyttust, hvað aðild að Evrópusambandinu myndi þýða fyrir íslenskan sjávarútveg og hvers vegna honum finnst full ástæða til að láta reyna á aðildarviðræður.

    Viðhorf útgerðarmanna til ESBSjávarútvegsstefna ESB og stefnuleysi ÍslandsÖnnur aðildarríki eiga auðlindirSérlausnir fínar en óþarfarTækifærin og hætturnarÁhugi erlendra fjárfesta ofmetinnÞunglamalegt Brussel eða hringlandaháttur ÍslandsReynslan af embættismönnum í Brussel Þjóðir með sérþekkingu hafa áhrif í Brussel

    Textaútgáfu viðtalsins má finna á vef Gímaldins.


    Evrópusumar Gímaldsins: Engir smelludólgar, engar upphrópanir, engar ritdeilur. Bara vönduð umfjöllun og viðmælendur með þekkingu og innsýn. Við teljum niður í þjóðaratkvæðagreiðslu með hnitmiðaðri umfjöllun um það sem þú þarft að vita til að taka ákvörðun í ágúst. Gímaldið stendur vaktina svo þú getir verið í sumarfríi.

    Þátturinn er öllum opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.

  • Þær hafa verið í forystu fyrir ólíka stjórnmálaflokka og segjast stundum rífast við sjónvarpið þrátt fyrir að vera hættar í pólitík. Í viðtali við Gímaldið ræða þær Hanna Birna Kristjánsdóttir og Svandís Svavarsdóttir um konur í pólitík, um erfiða en viðburðaríka tíma í borgarstjórn skömmu eftir hrun og það hvernig samvinna þvert á flokka skilar meiri árangri en átök.

    Þáttastjórnandi er Eyrún Magnúsdóttir. Meðal þess sem kemur fram:

    Hanna Birna og Svandís kynntust í borgarstjórn fyrir 20 árum og byggðu upp traust þvert á flokkslínurÞegar efnahagshrunið skall á 2008 var Hanna Birna borgarstjóri og staða borgarinnar slæm. Meirihluti og minnihluti unnu náið saman að lausn mála og traust á borgarstjórn rauk upp í kjölfariðÞær áttu gott samstarf og sameinuðust um breiðar línur: engar skattahækkanir, enginn niðurskurður á grunnþjónustu, engar uppsagnir starfsmanna Á árunum 2006-2010 myndaðist grunnur fyrir sameiginlega sýn á skipulag borgarinnar, þvert á flokkaKonur í stjórnmálum fá harðari gagnrýni og endast að meðaltali eitt kjörtímabil á meðan karlar endast þrjúNútíminn gerir stöðu kvenna enn erfiðari: samfélagsmiðlar verðlauna hraða og gífuryrði frekar en yfirvegun og málefnaleg rökÞær hafa áhyggjur af bakslagi í jafnréttismálum „Bakslagið er að þurfa að útskýra hluti sem við héldum að við værum komin með. Það er bakslagið."Réttur kvenna yfir eigin líkama eigi að vera í stjórnarskrá: „Það er nákvæmlega þetta sem er fyrst sótt að þegar bakslag kemur"Þær kalla eftir umræðu án upphrópana í Evrópumálum í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu. Báðar telja þær þó að hagsmunum Íslands sé betur borgið í EES en ESBÞað er skortur á vinstri sjónarmiðum á Alþingi, segir Hanna Birna.Pólitíkin fer aldrei úr þeim: Svandís fylgist með óundirbúnum fyrirspurnatímum og Hanna Birna horfir stundum á borgarstjórnarfundi í beinni


    Þátturinn er öllum opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.

  • Hvað þýðir það þegar sagt er Ísland sé orðið 84 prósent dýrara en aðrar Evrópuþjóðir? Nýlega birti stéttarfélagið Viska greiningu sem sýndi fram ískyggilega þróun í verðlagi hér landi. Vörur og þjónustu umtalsvert dýrari hér landi en í nágrannaþjóðunum og verðlag hefur hækkað hraðar en í samanburðarlöndunum. Þáttastjórnendur fara ofan í saumanna á verðlagsmælingum og ályktunum sem draga má út frá alþjóðlegum samanburði.

    Georg Gylfason og Brynjólfur Gauti Guðrúnar Jónsson sjá um þáttinn
    Viðmælandi er Gylfi Magnússon prófessor

    Gímaldið gefur út Sirkabát. Þátturinn er öllum opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.

  • Gangi Ísland í ESB, kasti krónunni og taki upp evru, mun það hafa margvísleg áhrif á heimilin í landinu, fyrirtækin og ríkissjóð. En hvaða áhrif nákvæmlega? Við vitum það ekki fyrir víst. Það fer eftir því hvernig okkur semst og hvernig við höldum á spöðunum. Þingið spurði Hagfræðistofnun og í áliti stofnunarinnar má finna áhugaverðar vísbendingar um:

    Aukin viðskipti og umsvifBreytingar á verðlagiLærra matvöruverðBetri lánakjörBreytta eftirspurn eftir vinnuafliBreytt landslag í hagstjórnÝmis áhrif fyrir lífeyrissjóði.

    Umsjón með þættinum hafa Eyrún Magnúsdóttir og Aðalheiður Ámundadóttir.

    Ítarleg umfjöllun fylgir þættinum á vef Gímaldsins.

    Þátturinn er öllum opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.

  • Gímaldið rýnir í nefndarálit meirihluta utanríkismálanefndar um ESB-tillögu ríkisstjórnarinnar. Í álitinu eru sett fram helstu markmið aðildarviðræðna við ESB, ákveði þjóðin að þær skuli hefja á ný. Í þættinum ræða Aðalheiður Ámundadóttir og Eyrún Magnúsdóttir óvenjuleg einkenni nefndarálitsins og hvernig það bætir upp snubbótta tillögu utanríkisráðherra.

    Meðal umræðuefna í þættinum:

    Dramatískar lýsingar í umsögnum fyrrverandi stjórnmálamannaÁhersla á sérbókun um yfirráð yfir auðlindumSérlausn um séríslenskt fiskveiðistjórnsvæðiHeimskautalandbúnaður og landbúnaðarstyrkirMiklir fjármunir frá Brussel til landsbyggðarUndanþágur um íslenska refinn, hvalinn og flugsamgöngurÍsland áfram herlaust og fullráða í varnarmálum

    Ítarlegri umfjöllun er um efni þáttarins á vef Gímaldsins.

    Þátturinn er öllum opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.

  • Er hin svokallaða hægri sveifla á landinu jafn skýr og af er látið, eða er kannski vinstri sveifla sem öllum er að yfirsjást? Eyrún Magnúsdóttir og Aðalheiður Ámundadóttir halda áfram að rýna í kosningaúrslitin og velta upp áhugaverðum vinklum og spurningum:

    Flokkar R-listans fá meira fylgi í Reykjavík en SjálfstæðisflokkurinnVelgengni Miðflokksins er birtingarmynd klofningsins frá Framsókn fyrir átta árumVinstri græn eru að stimpla sig aftur inn í umræðuna bæði í kosningunum og landsmálunumVinstri flokkarnir hafa enn vinninginn í landsmálunum og hafa bætt meira við sig en hægri flokkarnirHefði Samfylkingunni gengið betur með Guðmund Inga Þoroddsson innanborðs?Verður Jónas Már Torfason næsti varaformaður Samfylkingarinnar?Hvað gera kosningaúrslitin fyrir Guðrúnu Hafsteinsdóttur og stöðu hennar í Sjálfstæðisflokknum?Er slakt gengi Framsóknar í kosningunum nýjum formanni flokksins að kenna?

    Tölfræðin sem stuðst er við í þættinum er frá Brynjólfi Gauta Guðrúnar Jónssyni, tölfræðingi þáttarins Sirkabát, en Brynjólfur heldur úti vefsíðunni metill.is

    Þátturinn er öllum opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.

  • Hægri sveifla fór yfir landið í sveitarstjórnarkosningum. Gímaldið rýnir í niðurstöðurnar með tölfræðingnum Brynjólfi Gauta og stjórnmálaskýrandanum Aðalheiði Ámundadóttur. Í þættinum er meðal annars rætt um þetta:

    Meirihlutar féllu víða um land og hægri sveiflan er staðreyndSamfylkingin er næst stærsti flokkurinn í sveitarstjórnum á eftir SjálfstæðisflokknumSjálfstæðismenn eru í sókn og Píratar horfnir af stjórnmálasviðinuSamfylkingin og fleiri borga fyrir mistök í kosningabaráttunniGuðlaugur Þór gæti séð sér leik á borði og nýtt niðurstöðuna til að fara í formannsslagMiðflokkurinn og Viðreisn festa sig í sessi í flokkakerfinuSilja Sóley Birgisdóttir er ný stjarna í stjórnmálumSanna Magdalena kann að hafa komið Vinstri grænum til bjargar í Reykjavík

    Umsjón með þættinum hefur Eyrún Magnúsdóttir

    Þátturinn er öllum opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.

  • Síðasti þátturinn í röðinni Börn og bílastæði, kosningaumfjöllun Gímaldsins, er kominn í loftið. Í þættinum ræða Aðalheiður Ámundadóttir og Erla Hlynsdóttir útlitið fyrir Reykjavík og málin sem þær hefðu viljað meiri umræðu um fyrir kosningar.

    Töfratalan 12 sem allt snýst umSviptingar í síðustu könnun fyrir kosningarMeirihlutaþreifingar gætu orðið meira spennandi en kosningarnarHvernig munu hægri vindar fara með ReykjavíkHvað verður um BorgarlínuSorphirðan og ítalska mafíanViðkvæmustu hóparnir sem gleymdust

    Umsjón þáttar: Erla Hlynsdóttir og Aðalheiður Ámundadóttir

    Börn og bílastæði eru kosningaþættir Gímaldsins þar sem áhersla er lögð á að greina málefni frekar en að fjölga upphrópunum í umræðunni. Þættirnir eru öllum opnir en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.

  • Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir lifir og hrærist í samfélagi jaðarsettra hópa. Hún er framkvæmdastjóri Samhjálpar og stjórnarkona í samtökum gegn fátækt og félagslegri einangrun. Hún segir það tvennt ólíkt að reka fyrirtæki og að reka samfélag, og að Reykjavík spili í annarri deild en önnur sveitarfélög þegar kemur að þjónustu við jaðarsett fólk.

    Erla Hlynsdóttir ræðir við Guðrúnu Ágústu í nýjasta þætti af Börn og bílastæði þar sem fjallað er um ábyrgð samfélags, pólitíkina í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga, kaffistofu Samhjálpar og svörin sem EAPN fékk frá framboðunum um áherslur í málefnum fátæks fólks.

    Börn og bílastæði er kosningaþáttur Gímaldsins þar sem áhersla er lögð á að greina málefni frekar en að fjölga upphrópunum í umræðunni. Þættirnir eru öllum opnir en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.

  • Í þættinum fara Brynjólfur Gauti Guðrúnar Jónsson og Georg Gylfason úr hlaðvarpinu Sirkabát yfir nokkrar áhugaverðar tölur sem tengjast sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu ásamt Eyrúnu Magnúsdóttur.

    Íbúar höfuðborgarsvæðisins eyða tæpum fjórum sólarhringum á ári í umferð – en er þetta stór tala? Við hvað á að miða?Hvernig stendur Reykjavík fjárhagslega og hvaða sveitarfélag á höfuðborgarsvæðinu sker sig úr þegar kemur að fjárhagsstöðu?Aðeins eitt sveitarfélag á höfuðborgarsvæðinu nær að koma meira en helmingi eins árs barna í leikskólaHvaða forsendur gefa menn sér þegar þeir ramma inn vandamálin og hvernig eru tölur notaðar til að sannfæra frekar en upplýsa?Góð ráð til kjósenda þegar leggja á mat á tölur sem varpað er fram í kosningabaráttu

    Börn og bílastæði er kosningaþáttur Gímaldsins þar sem áhersla er lögð á að greina málefni frekar en að fjölga upphrópunum í umræðunni. Þættirnir eru öllum opnir en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.

  • Í þættinum er rætt við prófessor í stjórnmálafræði um þá leið sveitarfélaga að útvista verkefnum til einkaaðila.

    Hvaða flokk­ar vilja fela einka­að­il­um verk­efnin í Reykjavík?Hvaða flokk­ar vilja að borg­in vinni öll verk sjálf? Kostn­að­ur við út­vist­un verk­efna er oft van­met­inn og sparnaður ofmetinnEftirliti með einkaaðilum sem veita opinbera þjónustu er ábótavant Kjörnir fulltrúar missa yfirsýn og vald yfir málaflokkum sem útvistað er

    Gestur: Eva Marín Hlynsdóttir, prófessor í stjórnmálafræði.
    Umsjón: Aðalheiður Ámundadóttir

    Börn og bílastæði eru kosningaþættir Gímaldsins þar sem áhersla er lögð á að greina málefni frekar en að fjölga upphrópunum í umræðunni. Þættirnir eru öllum opnir en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.

  • Ásta Kristín Benediktsdóttir bókmenntafræðingur hefur sérhæft sig í hinsegin bókmenntum. Hún segir bókmenntir ekki hlutlausar heldur sýni þær okkur ákveðna mynd af samfélaginu.

    Hinsegin bókmenntahátíðin Queer Situations fer fram í maí og þar er Ásta með erindi sem ber yfirskriftina: Hver má skrifa (um) hinsegin bókmenntir? Vangaveltur um væntingar og tjáningarfrelsi.

    Erla Hlynsdóttir ræðir við Ástu í nýjasta þætti Bókapressunnar.

    Hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.