Afleveringen
-
Sigursteinn Arndal þjálfari Íslandsmeistara FH kíkti til okkar í spjall um tímabilið. Hlustendaverðlaun Handkastsins voru einnig veitt. Takk fyrir tímabilið.
-
Fórum yfir úrslitaeinvígi UMFA og FH þar sem FH-ingar tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn 3-1. Dregið var í riðla fyrir HM2025 þar sem Ísland mun spila í Króatíu.
-
Zijn er afleveringen die ontbreken?
-
Fengum Aðalstein Eyjólfsson til okkar í stúdíó-ið að ræða leik FH og UMFA. Valsmenn skrifuðu söguna með því að tryggja sér Evrópumeistaratitilinn þegar þeir unnu Olympiakos í vítakastkeppni.
-
Fórum yfir leik UMFA og FH í fyrr í kvöld þar sem innkoma Arons breytti öllu. Farið var yfir félagsskipti innanlands og velt því upp hvort UMFA spili með 3 markverði innanborðs á næsta tímabili.
-
Afturelding leiðir í baráttunni við FH um Íslandsmeistaratitilinn og Valsmenn eru í góðri stöðu fyrir seinni úrslitaleikinn í Grikklandi næstu helgi.
-
Afturelding er komið í úrslitaeinvígið eftir að hafa slegið út Val í undanúrslitum og mætir þar Aroni Pálmarssyni og félögum í FH. Tímabilinu er þó ekki lokið hjá Val sem mætir Olympiacos í fyrri úrsitaleik Evrópubikarsins um helgina. Valsstelpurnar tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn eftir að hafa sópað úrslitakeppninni.
-
Ísland er komið á HM áttunda mótið í röð eftir þægilega sigra á Eistum. Fagmannleg frammistaða og loksins vinnur Ísland sannfærandi sigur á útivelli. Stefán Rafn Sigurmannsson fyrrum leikmaður Hauka og íslenska landsliðsins var gestur þáttarins ásamt Guðjóni Guðmundssyni. Hitað var upp fyrir það sem koma skal í úrslitakeppninni og farið yfir stöðuna í úrslitaeinvíginu kvennamegin.
-
25 marka sigur strákanna okkar á Eistlandi gefur góð fyrirheit fyrir seinni leikinn um helgina. Sæti á HM í janúar bíður. Úrslitaeinvígið um Íslandsmeistaratitil kvenna er farið af stað og það með miklum látum. Hrannar Guðmundsson þjálfari Stjörnunnar var gestur þáttarins.
-
Við settumst niður með Ásgeir Jónssyni og fórum yfir undanurslitaeinvígin í Olís deild karla. FH-ingar eru komnir í úrslit og Mosfellingar eru í lykilstöðu í sínu einvígi gegn Val. Kíktum á úrslitaeinvígið hjá stelpunum og skúbbuðum nýju þjálfarateymi hjá nýliðum Fjölnis í Olísdeildinni.
-
Geðveikin í Eyjum og hrun Mosfellinga var til umræðu í þættinum. Auk þess var sjónvarpsmálin rædd í 100x skipti og ótrúleg endurkoma Fjölnismanna sem eru mættir í Olís-deildina.
-
FH-ingum mistókst að tryggja sér sæti í úrslitaeinvígi Íslandsmótsins þegar þeir tóku á móti ÍBV. Valsmenn eru komnir í úrslit í Evrópubikarnum eftir auðvelt einvígi gegn Baia Mare. Hiti í umspilinu karlamegin og það verður vel fylgst með skrefunum hjá Haukastelpunum gegn Fram á Verkalýðsdaginn.
-
Undanúrslitin um Íslandsmeistaratitilinn er í fullum gangi. FH-ingar eru komnir með níu fætur í úrslitaeinvígið og það yrði þjálffræðilegt afrek hjá Gunna Magg að koma Aftureldingu ekki í úrslitaeinvígið. Umspilið, úrslitakeppni kvennamegin og meira til - allt í Handkastinu og allt í Handboltapassanum.
-
FH-ingar eru komnir í 1-0 í einvíginu gegn ÍBV eftir sigur í Kaplakrika áðan. Valsmenn unnu 8 marka sigur í Evrópudeildinni í kvöld á heimavelli og færast nær því að vera fyrsta íslenska liðið til að vinna evrópukeppni. Undanúrslit í Olís kvenna fara af stað á þriðjudaginn og Einar Jónsson þjálfari Fram kíkti í heimsókn til okkar.
-
Mosfellingar eru mættir í undanúrslitin. Fjögur bestu lið landsins munu því berjast um þann stóra. Gestur þáttarins var Sebastian Alexandersson sem fer yfir tíma sinn hjá HK í lokþáttar og skrautlegar samningaviðræður við stjórn HK á tímabilinu.
-
Fórum yfir leiki í 2.umferðar í 8 liða úrslitum úrslitakeppninar í Olísdeildinni. Þrjú lið kvöddu okkur og við fáum FH - ÍBV enn eitt árið. Við vorum bænheyrðir og fengum oddaleik í 8 liða úrslitum. Kíktum á Grill66 umspilið og 6 liða úrslit í kvennaboltanum. Strákarnir okkar gerðu það gott í Þýskalandi um helgina.
-
Úrslitakeppnin er farin af stað! Farið var yfir leikina í 8-liða úrslitunum og spáð í spilin í framhaldinu. Úrslitakeppnin kvenna megin er að fara af stað einnig.
-
Olís-deildin að baki og nú hefst úrslitakeppnin. Úrvalslið Olís-deildarinnar opinberað, bestu leikmenn hvers liðs valdir og spáð í spilið fyrir 8-liða úrslitin.
-
Farið yfir 21.umferðina í Olís-deild karla með Bjarna Fritz þjálfara ÍR sem er mættur á nýjan leik í Olís-deildina.
-
20.umferðin í Olís-deild karla gerð upp og spáð í spilin fyrir lokaumferðirnar.
- Þarf að gera þjálfarabreytingar í Krikanum?
- Loksins fengu efnilegustu leikmenn HK sénsinn
- Vængbrotnir Mosfellingar fóru illa með norðanmenn
- Lloyd Christmas getur ekki einu sinni bjargað Selfyssingum
- Fram U + Rúnar Kára óheppnir í sumarbústaðnum
- Grótta nýttu sér ekki mikið álag Valsmanna -
Farið var yfir stóru málin í Handkastinu að þessu sinni. Hitað var upp fyrir 20.umferðina í Olís-deild karla og úrslitin skoðuð í Olís-deild kvenna sem lauk um helgina. Grill66-deildin lýkur á fimmtudaginn og þá kemur það í ljós hvaða lið endar í 2.sæti og fer beint upp í Olís-deildina.
Seinni helmingurinn er síðan fyrir lengra komna þar sem djúp umræða myndaðist um Venslafélögin og U-liðin. Einnig var rætt um það hvort tími væri kominn á að fækka leikmönnum aftur á skýrslu í 14 leikmenn úr 16 leikmönnum. - Laat meer zien