Afleveringen
-
Þáttinn má nálgast í fullri lengd inná https://www.patreon.com/heimsendir
Ég er faðir án fæðingarorlofs. Það er brekka en hún er líka full af lærdómi. Í þessum þætti fjalla ég um vinnu, gigghagkerfið, uppeldi barna, fjármálin og fleira. Í lok þáttar er síðan Heimsendir vikunnar sem snýr að vendingum í Úkraínu.
-
Ég er kominn heim, eins og segir í laginu góða. Í þessum þætti fjalla ég um sjokkið við að kveðja austrið og mæta vestur til Íslands. Brenglað hæðarskyn, hátt matvöruverð, sviðasulta í leikhús og orlofshús í Rússlandi. Auk þess eru Heimsfréttirnar og Íslenskuhornið á sínum stað.
Þessi þáttur er opinn í boði Heimsendafjölskyldunnar á Patreon. Vertu með!
-
Zijn er afleveringen die ontbreken?
-
Afsakið frönskuna. Ég er staddur í Finnlandi með kettinum Tító og okkur líður vel þrátt fyrir langt ferðalag að baki. Helsinki er flott borg og hér á hótelinu er sána og rækt. Í þættinum fjalla ég um ferðasöguna frá Japan og heimspekina á bakvið einveru erlendis.
Kæri hlustandi, ef þú vilt fullan aðgang að öllu efni Heimsendis, þá vitið þér hvar skal leita. Takk fyrir að hlusta!
-
Hlustið á þáttinn í heild sinni á patreon.com/heimsendir
Gott fólk, það er komið að því. Heimsendir flytur til Íslands og segir skilið við Japan, í bili. Í þættinum lítum við um öxl og gerum upp árin 2 í Japan - hvað lærðist, hvað afrekaðist, hvers mun sakna og hvers ekki.
-
Hlustaðu á þáttinn í heild sinni á patreon.com/heimsendir
Stórborgir eða smábæir? Sumar eða vetur? Reiðufé eða kort? Tattú eða bað? Í þessum þætti svara ég ykkar spurningum varðandi ferðalög til Japans. Ég minni á að það má senda mér spurningar beint ef fólk vill kafa dýpra. Njótið vel!
-
Ég ætla að verða 120 ára og ég hef fundið formúluna! Í þessum þætti fjalla ég um hreyfingu, mataræði, föstur, stress, tilgang og fleira tengt langlífi, sem og punkta um lífið í Japan og nýtilkomna japönskukennslu.
Kæri hlustandi, þessi þáttur er opinn en ég minni á Patreon fyrir heldra fólk.
-
Hvernig kemst maður í gegnum ósigra? Hvernig lifum við með samfélagsmiðlum? Af hverju í ósköpunum þurfum við að vinna 40 tíma vinnuviku? Í þessum þætti fjöllum við um kosti og galla nútímans ásamt stuttri japönskukennslu og punktum um lífið í Sapporo.
Kæri hlustandi, þátturinn er opinn í boði Bíó Paradís og Heimsendafjölskyldunnar á Patreon. Ef þú ert enn að lesa þá segi ég vel gert, og hvet þig síðan til að prófa Patreon frítt í 7 daga og sjá hvað setur. Takk fyrir að hlusta!
-
Hlustaðu á þáttinn í heild sinni á:
patreon.com/heimsendirSturluð staðreynd: Það eru aðeins 6km á milli Japans og Rússlands. Í þessum þætti fjöllum við um rússneska landnema í Síberíu og þenslu rússaveldis í austur, alla leið að Kyrrahafi. Á vegi þeirra urðu frumbyggjaþjóðir Norður Asíu, nýjar dýra- og plöntutegundir og stórbrotin náttúra.
-
Ég var við dauðans dyr en nú rís ég eins og fönix upp úr ösku hreinsunareldsins. Í þessum þætti fjalla ég um baráttu við skæða sótt, ástæður fyrir veikindum og mögulegan lærdóm. Síðan má finna nokkra punkta um lífið í Japan og auglýsingar vikunnar.
Þátturinn er opinn í boði Bíó Paradís og þeirra sem styðja Heimsendi á Patreon. Takk fyrir að hlusta!
-
Hlustaðu á þáttinn í heild sinni á
https://www.patreon.com/heimsendirÍ þessum þætti skoðum við sálfræðimeðferðir barna og þyrluforeldra. Af hverju eru börnin óhamingjusamari en áður? Af hverju skrifa Bandaríkin upp á 41 milljón skammt af amfetamíni ár hvert? Auk þess eru punktar um lífið í Sapporo og smá umræða um geópólitík.
Kæri hlustandi, ef þú ert enn að lesa þá minni ég á að þú getur prófað Patreon ókeypis í 7 daga, svo geturðu ákveðið hvort efnið sé fyrir þig eða ekki. Takk fyrir að hlusta!
-
Hlustið á þáttinn í heild sinni á:
https://www.patreon.com/heimsendirNýr sjálfshjálparþáttur frá Heimsendi. Þessi fjallar um aðferðafræði þess að verða ríkur, milljón á mánuði eða mánuð á milljón, jafnvægi milli vinnu og persónulegs lífs og margt fleira.
-
Navalný og Pútín, Trump og Biden, vangaveltur um réttstöðulyftu, kaldar sturtur og svefnvenjur ungabarna. Í þessum þætti fjalla ég um síðustu vikur hér í Sapporo ásamt því að birta viðtöl við 4 unga japani.
Allt efni Heimsendis er aðgengilegt á https://www.patreon.com/heimsendir
-
Þátturinn er aðgengilegur í fullri lengd á patreon.com/heimsendir
Árið 1981 gerðist ungur japani sekur um mannát í París. Nokkrum árum síðar var hann kominn heim til Japan, þá frjáls maður. Í þessum þætti fjöllum við um þetta voðaverk, aðdragandan og eftirmál.
-
Súmóglíma, Jiujutsu, Aikido, Kendo, Karate og Júdó keppa hér um titilinn: Besta japanska bardagalistin! Vissulega er þetta huglægt mat en Heimsendir stendur við það. Sömuleiðis hvetjum við alla til að stunda eða allavega prófa japanskar bardagalistir.
Þátturinn er í boði Bíó Paradís en ég minni á Patreon fyrir fólk sem vill kaupa sér gott karma í lífinu.
-
Hlustið á þáttinn í heild sinni á
https://www.patreon.com/heimsendirShabbat kvöldverður, mannanafnanefnd, 1000 kall á tímann, týpískur dagur í mínu lífi, makríll og loðna, vinna og borða.
Þetta og margt fleira í þætti vikunnar! -
Nýjir vinir mínir í Yakuza-glæpasamtökunum, þráðormar í fiski, plastbarkamálið ógurlega og heimsfréttir vikunnar. Í þessum þætti fjalla ég um lífið í Sapporo og það sem ég hef á heilanum þessa dagana.
Þátturinn er í boði Bíó Paradís en ég minni á áskrift á Patreon fyrir fullan aðgang að öllu efni Heimsendis:
https://www.patreon.com/heimsendir -
Hlustaðu í fullri lengd á https://patreon.com/heimsendir
Hvaða þjóðarleiðtogi er háður svissneskum osti? Hvaða land refsar þremur kynslóðum fyrir einn glæp? Hvaða hljómsveit heldur tónleika með orrustuþotu á sviðinu? Í þessum þætti fjöllum við um Norður Kóreu - fortíð landsins og framtíð.
-
Mun Evrópa einhvern tímann sameinast í ríkjabandalagið USE? Sameinuð Evrópa eða Nýja Evrópa, með 450 milljónir íbúa, annað stærsta hagkerfi heims, herafla upp á 1,3 milljónir hermanna. Gæti þetta gerst? Í þessum þætti skoðum við Evrópu og ástæður þess að möguleg sameining gæti átt sér stað.
Þátturinn er opinn í boði Bíó Paradís en ég minni á Patreon ef þú, kæri hlustandi, vilt styðja fjárhagslega við litla fjölskyldu í Japan.
-
Canon, Nikon, Fujifilm, Olympus, Sony, Panasonic, Ricoh, svona mætti lengi telja. Japan er geitin í myndavélaframleiðslu og verður líklega um ókomin ár. En af hverju? Í þessum þætti munum við skoða sögu japanskra myndavélaframleiðanda og leið þeirra á toppinn.
Þátturinn er opinn í boði Bíó Paradís en ég minni heldra fólk á Patreon þar sem það getur stutt beint við barnafjölskyldu í Japan. Góðar stundir!
-
Hlustaðu í fullri lengd á https://patreon.com/heimsendir
Síðasti þáttur fyrir jól fjallar um nýbakaða foreldra, lækkandi hitastig og snjó, brjóstamjólk, drykkjuhátíð þar sem innganga krefst ölvunar og auðvitað loftslagsmál í Japan.
- Laat meer zien