Afleveringen
-
Í dag er óvenjulegur þáttur í Hljómboxinu. Hvers vegna? Jú vegna þess að það eru engir keppendur í stúdíóinu. ÞIÐ eruð þátttakendurnir. Myndið lið, finnið ykkur bjöllur eða aðra hljóðgjafa, búið til nafn á liðið ykkar, grípið blað og blýant og hlustið vel! Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir Leikarar og sturtusöngvarar: Rúnar Freyr Gíslason, Hera Ólafsdóttir og Karl Pálsson
-
Í kvöld eru seinni undanúrslit söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, eða júróvision, þar sem Daði og Gagnamagnið stíga á svið. Það er því aldrei að vita hvort þrautir dagsins verið með júró þema en það eru frændurnir Egill og Ingi sem mætast hér í dag með sitt hvort foreldrið sér við hlið, sem eru meira að segja systkini! Keppendur Egill Stefánsson (Spreybrúsarnir) Helga Snæbjörnsdóttir (Spreybrúsarnir) Ingi Gíslason (Blöðruískrið) Gísli Þórmar Snæbjörnsson (Blöðruískrið) Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir Leikarar, dinnerpíanistar og sturtusöngvarar: Ingvar Alfreðsson, Jóhannes Ólafsson, Rúnar Freyr Gíslason, og Karl Pálsson. Hljóðvinnsla: Jón Þór Helgason og Marteinn Marteinsson
-
Zijn er afleveringen die ontbreken?
-
Uppáhaldshljóð liða dagsins eru annarsvegar hljóðið í lestum og hins vegar hljóðin í kettinum Bröndu. Það var því úr að Lestarstjórarnir mæta Bröndunum en fyrirliðar þeirra eru vinkonurnar Sara Líf og Matthea Katrín. Æsispennandi keppni framundan með stórskemmtilegum hlustunarþrautum! Keppendur Sara Líf Ólafsdóttir (Lestarstjórarnir) Sandra Friðriksdóttir (Lestarstjórarnir) Matthea Katrín Matthíasdóttir (Bröndurnar) Berglind Ingadóttir (Bröndurnar) Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir Leikarar, dinnerpíanistar og sturtusöngvarar: Ingvar Alfreðsson, Rúnar Freyr Gíslason, Helga Margrét Höskuldsdóttir og Karl Pálsson Hljóðvinnsla: Jón Þór Helgason og Marteinn Marteinsson
-
Keppendur dagsins eru vinirnir Bragi Sumarliði og Guðmundur Brynjar en þeir eru bekkjabræður og góðir vinir úr Landakotsskóla. Þeir hafa báðir fengið pabba sína í lið með sér og nú verður forvitnilegt að heyra hvernig þessum feðgum gengur með þrautir dagsins sem verða óvæntar, fyndnar, skrítnar og skemmtilegar! Keppendur Bragi Sumarliði M. Eliassen (Regndroparnir) Magnús T. Eliassen (Regndroparnir) Guðmundur Brynjar Bergsson (Rennilásarnir) Bergur Ebbi Benediktsson (Rennilásarnir) Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir Leikarar, dinnerpíanistar og sturtusöngvarar: Ingvar Alfreðsson, Jóhannes Ólafsson, Rúnar Freyr Gíslason, Helga Margrét Höskuldsdóttir og Karl Pálsson Hljóðvinnsla: Jón Þór Helgason og Marteinn Marteinsson
-
Í dag fáum við hana Fríðu sem sér um Krakkakastið hér KrakkaRÚV og Rás 1 til að setjast hinum megin við hljóðnemann og taka þátt í Hljómboxinu. Hún hefur fengið bestu vinkonu sína, Leu Marín, til að keppa á móti sér og þeim til halds og trausts eru mæður þeirra. Einn, tveir og...hlusta! Keppendur Fríða María Ásbergsdóttir (Táturnar) Freyja Kristinsdóttir (Táturnar) Lea Marín Engilbertsdóttir (Öldurnar) Ingibjörg Agnes Jónsdóttir (Öldurnar) Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir Leikarar, dinnerpíanistar og sturtusöngvarar: Ingvar Alfreðsson, Rúnar Freyr Gíslason, Helga Margrét Höskuldsdóttir og Karl Pálsson Hljóðvinnsla: Jón Þór Helgason og Marteinn Marteinsson
-
Í dag er sumardagurinn fyrsti og við bjóðum sumarið velkomið með æsispennandi þrautum sem vinirnir Freyja og Árni Gauti ætla að spreyta sig á með sitthvort foreldrið sér við hlið. Uppáhalds hljóð liða dagsins eru annars vegar jarmið í lömbum og hins vegar malið í köttum. Því varð úr að Jarmið mætir Malköttunum. Virkjum eyrun, setjum okkur í viðbragðsstöðu og....hlusta! Keppendur Árni Gauti Gústafsson (Jarmið) Lovísa Árnadóttir (Jarmið) Freyja Sveinbjörnsdóttir (Malkettirnir) Sveinbjörn Bjarki Jónsson (Malkettirnir) Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir Leikarar, dinnerpíanistar og sturtusöngvarar: Ingvar Alfreðsson, Rúnar Freyr Gíslason, Hera Ólafsdóttir, Jóhannes Ólafsson og Karl Pálsson Hljóðvinnsla: Jón Þór Helgason og Marteinn Marteinsson
-
Í dag er óvenjulegur þáttur í Hljómboxinu. Hvers vegna? Jú vegna þess að það eru engir keppendur í stúdíóinu. ÞIÐ eruð þátttakendurnir og getið spilað leikinn heima, í bílnum eða bara hvar sem er! Myndið lið, finnið ykkur bjöllur eða aðra hljóðgjafa, búið til nafn á liðið ykkar, grípið blað og blýant og hlustið vel! Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir Leikarar: Hera Ólafsdóttir, Karl Pálsson, Jóhannes Ólafsson og Rúnar Freyr Gíslason.
-
Í dag er óvenjulegur þáttur í Hljómboxinu. Hvers vegna? Jú vegna þess að það eru engir keppendur í stúdíóinu. ÞIÐ eruð þátttakendurnir og getið spilað leikinn heima, í bílnum eða bara hvar sem er! Myndið lið, finnið ykkur bjöllur eða aðra hljóðgjafa, búið til nafn á liðið ykkar, grípið blað og blýant og hlustið vel! Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir Leikarar: Karl Pálsson, Jóhannes Ólafsson, Rúnar Freyr Gíslason og Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir.
-
Uppáhalds hljóð liðanna eru annars vegar kvakið í önd og hins vegar gormahljóð. Því varð úr að Andrés Önd mætir Spojojojng en í þeim liðum eru vinirnir Einar Valur og Þorsteinn Kári og mömmur þeirra. Virkjum eyrun, setjum okkur í viðbragðsstöðu og....hlusta! Keppendur Einar Valur Sigurðsson (Andrés Önd) Þórunn Ósk Marinósdóttir (Andrés Önd) Þorsteinn Kári Pálmarsson (Spojojojong) Emma Björg Eyjólfsdóttir (Spojojojong) Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir Leikarar og sturtusöngvarar: Rúnar Freyr Gíslason, Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir og Karl Pálsson Hljóðvinnsla: Georg Magnússon
-
Keppendur dagsins eru vinkonurnar Edda og Elfur en þær hafa fengið mæður sínar í lið með sér og nú verður forvitnilegt að vita hversu vel þessar mæðgur geta hlustað. Sturtusöngvarinn syngur af innlifun, við heyrum brot úr Hollywood mynd sem búið er að þýða á íslensku, reynum að átta okkur á hvar leynistaður dulmálskóðarans er og svo framvegis. Stórskemmtileg keppni framundan í Hljómboxi dagsins! Keppendur Edda Jóhannesdóttir (Fossarnir) Fanney Karlsdóttir (Fossarnir) Elfur Hersteinsdóttir (Býflugurnar) Elínborg Hákonardóttir (Býflugurnar) Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir Leikarar og sturtusöngvarar: Rúnar Freyr Gíslason, Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir og Karl Pálsson Hljóðvinnsla: Georg Magnússon
-
Í dag koma tvö lið úr Þorlákshöfn. Í gegnum Þrengslin og beint í stúdíó 12 þar sem bjöllurnar eru komnar í samband og hljóðdæmin bíða eftir að láta leysa sig. Vinkonurnar Þorgerður Kolbrá og Annalísa Ósk og tónlistarmennirnir Tómas og Daði mæta til leiks - þetta getur ekki annað en orðið stórskemmtilegt! Keppendur Þorgerður Kolbrá Hermundardóttir (Trommukjuðarnir) Tómas Jónsson (Trommukjuðarnir) Annalísa Ósk Rodriguez (Básúnurnar) Daði Þór Einarsson (Básúnurnar) Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir Leikarar og sturtusöngvarar: Rúnar Freyr Gíslason, Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir og Karl Pálsson Hljóðvinnsla: Georg Magnússon
-
Það er aftur systkina- og frændsystkinaslagur í Hljómboxinu í dag. Matthías og Telma Lind eiga foreldra sem eru systkini og eru búin að mynda tvö feykisterk lið. Setjið puttann á bjölluna...tilbúin..viðbúin..hlusta! Keppendur Matthías Kristjánsson (MattYo) Vigdís Sigríður Jóhannsdóttir (MattYo) Telma Lind Sumarliðadóttir (Boltarnir) Sumarliði Dagbjartur Gústafsson (Boltarnir) Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir Leikarar og sturtusöngvarar: Rúnar Freyr Gíslason, Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir og Karl Pálsson Hljóðvinnsla: Georg Magnússon
-
Í Hljómboxi dagsins mætast systkini og frændsystkini! Það eru þau Tómas Bjartur og Sigríður sem eru frændsystkini og foreldrar þeirra Davíð og Árdís eru systkini. Sigra feðgarnir...eða mæðgurnar..eða verður kannski hnífjafnt? Keppendur Tómas Bjartur Skúlínuson (Klakarnir) Davíð Hörgdal Stefánsson (Klakarnir) Sigríður Gígja Arnalds (Öldurnar) Árdís Hulda Stefánsdóttir (Öldurnar) Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir Leikarar og sturtusöngvarar: Rúnar Freyr Gíslason, Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir og Karl Pálsson Hljóðvinnsla: Georg Magnússon
-
Í dag mætast hljómsveitarfélagarnir Ragnheiður Helga og Elísabet. Þær spila saman í nokkrum hljómsveitum, meðal annars í Stundin Rokkar hljómsveitinni sem þið getið fylgst með þessar vikurnar í Stundinni okkar hér á KrakkaRÚV. Með þeim eru foreldrarnir og nú er spurningin, hvort sigrar lið bassaleikarans eða píanóleikarans? Keppendur Elísabet Hauksdóttir (Lamparnir) Haukur Bragason (Lamparnir) Ragnheiður Helga Víkingsdóttir (Lóurnar) Arnbjörg Ösp Matthíasdóttir (Lóurnar) Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir Leikarar og sturtusöngvarar: Rúnar Freyr Gíslason, Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir og Karl Pálsson Hljóðvinnsla: Georg Magnússon
-
Í dag er feðginaslagur í Hljómboxinu. Þær Saga og Þórhalla eru mættar til leiks með feðrum sínum en heima hjá þeim heyrist bæði í sturtusöngvurum og einn og einn pabbabrandari. Þá er spurning hvort það komi að góðum notum í hlustunarkeppni dagsins. Sperrið eyrun, tilbúin, viðbúin...hlusta! Keppendur Saga Garðarsdóttir (Pjakkarnir) Garðar Eyjólfsson (Pjakkarnir) Þórhalla Guðný Daníelsdóttir (Skrjáfið) Daníel Helgason (Skrjáfið) Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir Leikarar og sturtusöngvarar: Rúnar Freyr Gíslason, Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir og Karl Pálsson Hljóðvinnsla: Georg Magnússon
-
Í dag eru það frændurnir Matthías og Þórður sem berjast um sigurinn í Hljómboxinu. Hver er bestur í að hlusta afturábak? Hver er kvikmyndasérfræðingur? Hver er fljótastur að raða saman stafasúpunni og mynda lausnarorðið, sem að þessu sinni er farartæki? Keppendur: Þórður Skúlason (Kalimburnar) Una Sveinbjarnardóttir (Kalimburnar) Matthías Orri Ingvason (Slökkviliðið) Halla Helgadóttir (Slökkviliðið) Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir Leikarar og sturtusöngvarar: Rúnar Freyr Gíslason, Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir og Karl Pálsson Hljóðvinnsla: Georg Magnússon
-
Í dag mætast vinirnir Arnlaugur og Úlfur í hlustunarkeppninni Hljómboxið. Með þeim eru foreldrar sem eru heldur betur tilbúin að hlusta með strákunum og berjast um bjölluna. Hvert sekúndubrot skiptir máli! Keppendur: Arnlaugur Guðmundsson (Búbblurnar) Anna Tryggvadóttir (Búbblurnar) Úlfur Oddsson (Mjálmdrengir) Oddur Ástráðsson (Mjálmdrengir) Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir Leikarar og sturtusöngvarar: Rúnar Freyr Gíslason, Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir og Karl Pálsson Hljóðvinnsla: Georg Magnússon
-
Bæði lið dagsins koma úr Úlfarsárdalnum, réttara sagt úr Dalskóla. Það eru vinkonurnar Ingdís Una og Ísabella sem báðar eru í Dalskóla og eiga mömmur sem vinna þar. Já, þetta er sannkallaður nágrannaslagur og verður forvitnilegt að vita hver fer með sigurinn aftur heim í dalinn góða. Stórskemmtileg viðureign í Hljómboxinu, eins og alltaf! Keppendur: Ingdís Una Baldursdóttir (Tístarar) Lárey Valbjörnsdóttir (Tístarar) Ísabella Arna Brynjarsdóttir (Hafið) Auður Valdimarsdóttir (Hafið) Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir Leikarar og sturtusöngvarar: Rúnar Freyr Gíslason, Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir og Karl Pálsson Hljóðvinnsla: Georg Magnússon
-
Í dag er fyrsti þáttur ársins 2021. Vinkonurnar Sóldís Lilja og Rakel Rós mætast í þessari fyrstu viðureign ársins með feður sína sér við hlið. Hver er bestur í að hlusta afturábak? En að þekkja vinsæl lög í sturtusöng? Er einhver hræðilega tapsár? Eða sérstaklega mikil kappsmanneskja? Við komumst að því í þessum stórskemmtilega þætti af Hljómboxinu. Keppendur: Sóldís Lilja Jónsdóttir (Lækirnir) Jón Hjörtur Hjartarson (Lækirnir) Rakel Rós Jónasdóttir (Voffarnir) Jónas R. Viðarsson (Voffarnir) Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir Leikarar og sturtusöngvarar: Rúnar Freyr Gíslason, Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir og Karl Pálsson Hljóðvinnsla: Georg Magnússon
-
Í dag er síðasti þátturinn fyrir jól og síðasti þáttur ársins. Það er því sannkallaður hátíðarbragur yfir þrautum Hljómboxins í dag. Jólin eru fjölskylduhátíð og því er viðeigandi að fá eina slíka til að keppa. Mæðginin Adam Ernir og Gréta Rún mæta feðginunum Andra Má og Þórdísi Björt. Hver er með mesta keppnisskapið í fjölskyldunni? Hver hlustar best? Hver hlustar mest á jólalög? Keppendur: Þórdís Björt Andradóttir (Bálið) Andri Már Helgason (Bálið) Adam Ernir Níelsson (Jólaklukkur) Gréta Rún Árnadóttir (Jólaklukkur) Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir Leikarar og sturtusöngvarar: Rúnar Freyr Gíslason, Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir og Karl Pálsson Hljóðvinnsla: Georg Magnússon
- Laat meer zien