Heimurinn er á iði og allt í kringum okkur gerist á ákveðnum hraða. Það er svo bara spurning hver hann er og hvað hann er. Í þessum þáttum skoða Tómas Ævar Ólafsson og Snorri Rafn Hallsson hraðann í kringum okkur út frá sjónarhóli vísindanna, samfélagsins og hversdagsins. Hversu hratt er hægt að fara? Hversu hratt ættum við að fara? Flækist hraðinn fyrir okkur eða greiðir hann úr flækjum? Er hratt alltaf hratt? Þeir kumpánar fá til sin eðlisfræðing, alþingismann, sálfræðing, skáld og flugmann til að gaumgæfa hraðann, eðli hans og merkingu. Einnig flakka þeir um bæinn og gera tilraunir með hraðann á eigin skinni. Umsjón: Tómas Ævar Ólafsson og Snorri Rafn Hallsson.