Afleveringen
-
Þessi óhugnanlega og mögnuð frásagnasyrpa fjallar um reynslusögur fólks víðsvegar að úr heiminum—frá Jamaíku til Taílands, Zimbabwe og Texas—sem telja sig hafa mætt dularfullum verum sem minna á hafmeyjur.
Sumar eru heillandi, aðrar ógnandi, en allar vekja þær upp spurninguna: eru hafmeyjur til?
Og ef svo er—eru þær vinir eða óvinir?
Hafðu samband við okkur;
Heimasíðan okkar;
www.hulinofl.com
Lokaður spjallhópur;
www.facebook.com/groups/hulinofl
-
Í þessum þætti skoðum við tvífara – verur sem líta nákvæmlega út eins og við sjálf, en hafa enga sál.
Í gegnum sögur og þjóðtrú frá mismunandi löndum sjáum við hvernig þessi fyrirbæri eru tengd dulúð, yfirnáttúrulegum fyrirboðum og jafnvel dauða.
Við heyrum sögur af frægum einstaklingum eins og drottningu Elísabetu I, Katrínu miklu og Abraham Lincoln, sem sáu eigin tvífara – með óhugnanlegum afleiðingum.
Hvað tákna þessar sýnir? Og hvernig hafa þær haft áhrif á listir, trú og sálfræði?
Hafðu samband við okkur;
Heimasíðan okkar;
www.hulinofl.com
Lokaður spjallhópur;
www.facebook.com/groups/hulinofl
-
Zijn er afleveringen die ontbreken?
-
Á milli Englands og Írlands liggur dularfull eyja – Isle of Man. Hún er þekkt fyrir stórkostlegt landslag og keltneskar rætur, en enn meira fyrir líflega álfahefð og sögur af verum.
Í þessum þætti segjum við frá álfabrúnni sem fólk heilsar með virðingu.
Við heyrum sögur af dularfullum ljósum sem villa fólk af leið, hulduverum sem banka á dyr um miðja nótt, og um jakka sem hverfa.
Við heyrum líka um hljóð í jörðinni, drauglegum knöpum, reiðum arinanda – og fleiri skrítnum og töfrandi atvikum sem sýna að á Isle of Man er slæðan milli heima þunn.
Hafðu samband við okkur;
Heimasíðan okkar;
www.hulinofl.com
Lokaður spjallhópur;
www.facebook.com/groups/hulinofl
-
Tunglið og við – Orka, innsæi og náttúrulegur taktur
Tunglið hefur djúp áhrif – á jörðina, hafið og okkur sjálf. Við erum 70–80% vatn og því dansar líkaminn og tilfinningarnar við takt tunglsins. Þegar við fylgjum tunglinu, getum við betur skilið okkur sjálf, nýtt orkuna í kringum okkur og skapað meðvitaðra líf.
Hafðu samband við okkur;
Heimasíðan okkar;
www.hulinofl.com
Lokaður spjallhópur;
www.facebook.com/groups/hulinofl
-
Er dauðinn endirinn? Eða tekur eitthvað annað við? Í þessum þætti skoðum við sögur fólks sem hefur dáið – en komið aftur með ótrúlegar reynslur.
Við ræðum:
✨ Hvað fólk upplifir þegar það deyr – ljós, kærleika og ró.
🧠 Vísindarannsóknir sem sýna að þetta gerist hjá fólki um allan heim, óháð aldri eða trú.
👁️ Sumir sem eru blindir segja frá sjón – sem þeir hafa aldrei haft áður.
⚡ Sumir finna fyrir breytingum á líkama og orku eftir nærdauðar upplifun.
💬 Sögur frá fólki sem lenti í slysum eða aðgerðum og sá heiminn frá „hinni hliðinni“.Við lesum raunverulegar sögur frá fólki eins og Sarah, Balesky og Pam Reynolds – og veltum fyrir okkur: hvað er meðvitund? Hvað tekur við eftir lífið?
Hafðu samband við okkur;
Heimasíðan okkar;
www.hulinofl.com
Lokaður spjallhópur;
www.facebook.com/groups/hulinofl
-
Mörg málverk eiga sér furðulegar sögur, sum þeirra jafnvel talin andsetin eða hreinlega bölvuð!
Hafðu samband við okkur;
Heimasíðan okkar;
www.hulinofl.com
Lokaður spjallhópur;
www.facebook.com/groups/hulinofl
-
Fyrsti þátturinn í nýju glæpaseríunni fjallar um Greenbrier Drauginn,
Viljum vekja athygli á að sumar lýsingar í þættinum eru grófar ofbeldislýsingar tengdar heimilisofbeldi og eru ekki við hæfi barna.
Hlekkir
Kvennaathvarf:https://kvennaathvarf.is/
Stígamót: https://stigamot.is/
Hjálparsími Rauðakrossins er 1717: https://www.raudikrossinn.is
Vörður tryggingar: https://vordur.is/vernd
Hafðu samband við okkur;
Heimasíðan okkar;
www.hulinofl.com
Lokaður spjallhópur;
www.facebook.com/groups/hulinofl
-
Fjórði þátturinn í Míní seríunni um spátæki fjallar um Kristalskúlur!
Hafðu samband við okkur;
Heimasíðan okkar;
www.hulinofl.com
Lokaður spjallhópur;
www.facebook.com/groups/hulinofl
Síðan hennar Katrínar;
www.fyrrilif.com
-
Flest höfum við heyrt um dáleiðslu, en hvað felst í henni í raun og veru?
Í þessum þætti sviptum við hulunni af dáleiðslu, skoðum mismunandi tegundir og hvernig hún er notuð til að vinna úr áföllum, losna við hræðslu, venja sig af ósiðum eins og reykingum og skoða fyrri líf og aðrar víddir!
Er dáleiðsla einfaldlega leidd hugleiðsla?
Við deilum eigin reynslu, ræðum heilsubætandi eiginleika hennar og veltum fyrir okkur áhrifunum sem hún getur haft á líf okkar.
Hafðu samband við okkur;
Heimasíðan okkar;
www.hulinofl.com
Lokaður spjallhópur;
www.facebook.com/groups/hulinofl
Síðan hennar Katrínar;
www.fyrrilif.com
-
Hvernig getur stór hópur fólks verið viss um atburði, staðreyndir og fræg verk sem í raun hafa aldrei verið til?
Í þessum þætti köfum við ofan í dularfulla fyrirbærið Mandela áhrifin og ræðum þekktar rangminningar eins og „Luke, I am your father,“ skottið á Pikachu og kvikmyndina Shazaam sem aldrei var gerð.
Við skoðum mögulegar skýringar á þessu fyrirbæri, allt frá minnisvillum til kenninga um fjölvíddar veröld.
Er mögulegt að við séum að hoppa milli veruleika?
Kannast þú við eitthvað af þeim Mandela Áhrifum sem við nefndum í þættinum?
Hafðu samband við okkur;
Heimasíðan okkar;
www.hulinofl.com
Lokaður spjallhópur;
www.facebook.com/groups/hulinofl
-
Hvað vitum við í raun um álfa og huldufólk?
Í þessum þætti förum við í ferðalag inn í heim þeirra goðsagna og sagna sem við höfum um þessar dularfullu verur.
Við kynnumst mismunandi tegundum álfa, allt frá garðálfum til búálfa, og skoðum hvernig íslensk þjóðtrú lýsir þeim sem náttúruverum í klettum og steinum, oft með spíss eyru og ótrúlega þrautseigju þegar kemur að því að verja heimili sín.
Við förum líka inn í sögu huldufólksins, sem er oft lýst sem líkara mannfólki en býr fjarri okkur í hólum og hæðum. Huldufólkið er sagt geta lagt álög á mannfólkið, á meðan álfarnir eru gjarnan hrekkjóttir og vilja vernda sitt.
En á sama tíma virðist þetta stundum vera eitt og hið sama.
Í þættinum munum við deila ýmsum frásögnum af álfum og huldufólki, uppgötva tengslin við norræna goðafræði og líta til annarra menninga eins og á Írlandi og Skotlandi, þar sem þessar verur eru kallaðar „the fairies“ og tengdar gömlum gyðjum og þjóðsagnaverum.
Hver er raunverulega sagan á bak við álfa og huldufólk?
Skoðið nýju heimasíðuna okkar!
www.hulinofl.com
Verið með í lokaða Facebook hópnum!
www.facebook.com/groups/hulinofl
Sendu okkur póst!
-
Í þessum þætti skoðum við Nahanni dalinn í norðvestur Kanada, einnig kallaður "dalur hinna hauslausu" og "dalur dauðans."
Dalurinn geymir myrka leyndardóma: óútskýrð mannshvörf og dularfull dauðsföll, þar sem höfuðlausar líkamsleifar hafa fundist og fólk hreinlega horfið sporlaust. Við skoðum líka þjóðsögur um loðna risa, illar verur og ógnvekjandi anda sem eru taldir vernda dalinn.
Hvað er eiginlega á seyði?
Skoðið nýju heimasíðuna okkar!
www.hulinofl.com
Verið með í lokaða Facebook hópnum!
www.facebook.com/groups/hulinofl
Sendu okkur póst!
-
Í þessum þætti skoða Anna og Katrín dularfullar, andsetnar dúkkur.
Þær ræða hvernig dúkkur hafa lengi verið tengdar krípí tilfinningum, sérstaklega þegar þær verða of raunverulegar.
Katrín útskýrir hugtakið "uncanny valley" og tengir það við hvers vegna okkur finnst dúkkur, trúðar og tölvuleikjapersónur stundum óþægilegar. Svo kemur umræðan um dularfullar dúkkur sem hreyfa sig, tala eða gera enn furðulegri hluti.
Spurningin er: hvað er í gangi með þessar dúkkur?
Skoðaðu brot úr þættinum um "Suzy Doll" hér;
https://youtu.be/e88nJUiQkSs?si=d7FPmIDqiM3n2HAy
Skoðið nýju heimasíðuna okkar!
www.hulinofl.com
Verið með í lokaða Facebook hópnum!
www.facebook.com/groups/hulinofl
Sendu okkur póst!
-
Í þessum þætti fjöllum við um kenningar sem tengjast mismunandi uppruna og tilgangi sálna á jörðinni.
Við skoðum kenningar þriggja sérfræðinga, Dolores Cannon, Michael Newton og Lindu Backman, sem hafa rannsakað þróun sálna í gegnum dáleiðslu.
Þau tala um mismunandi hópa sálna, allt frá jarðbundnum sálum til þeirra sem koma frá öðrum víddum eða plánetum, og hvernig þær sálir koma til að hjálpa mannkyninu.
Við skoðum þessar kenningar og hvort sálir séu í raun jafn mismunandi og þær virðast vera, eða hvort þær séu allar hluti af stærra samhengi.
Vertu með okkur í lokaða Facebook hópnum!
www.facebook.com/groups/hulinofl
Sendu okkur póst!
-
Við förum yfir helstu hugtök og skilgreiningar á þessum áhugaverðu aðferðum.
Spátæki - Spil & Pendúll:
https://open.spotify.com/episode/5fmLMp9cRV9guDdlTxqyv7?si=95cec7e6e2da44fa
Spátæki - Bollaspá & Ósjálfráð Skrift:
https://open.spotify.com/episode/5wOBhf7YsPekr0GHwe8gO3?si=b17005d1c5d34d0a
Vertu með okkur í lokaða Facebook hópnum!
www.facebook/groups/hulinofl
Sendu okkur skilaboð!
-
Þessi þáttur fjallar um það merkilega fyrirbæri: Ódauðleikavillu eða Quantum Immortality.
Er fólk að sveiflast á milli vídda, færast í aðra vídd ef það deyr fyrir aldur fram hér í okkar vídd?
Vertu með okkur í lokaða Facebook hópnum;
www.facebook.com/groups/hulinofl
Sendu okkur póst;
-
Fyrsti þátturinn í seríu 2 fjallar um sálarflakk!
Hvað er sálarflakk og hver er ávinningurinn af því?
Monroe Institute;
https://www.monroeinstitute.org
Kennslumyndband;
https://youtu.be/hxJEnwvbl8w?si=nmnqr3qBQCkXmoCg
Lokaði hópurinn okkar á Facebook;
www.facebook.com/groups/hulinofl
Sendu okkur póst!
-
Árur og spegla skoðun eða "mirror scrying" eru umræðuefni dagsins.
Vertu með í lokaða spjallhópnum okkar á Facebook!
www.facebook.com/groups/hulinofl
Sendu okkur skilaboð!
-
Annar þátturinn af míní seríunni um spátæki fjallar um bollaspá og ósjálfráða skrift.
Vertu með okkur í lokaða spjallhópnum á Facebook!
www.facebook.com/groups/hulinofl
Sendu okkur póst!
-
Hvað eru skuggaverur og hvað vilja þær?
Við skoðum allskonar skuggabaldra í þessum þætti og tengingar þeirra við okkur og umheiminn.
Rosemary Ellen Guileyhttps://www.psychologytoday.com/us/blog/shadow-boxing/201307/shadow-people
Vertu með okkur í lokaða spjallhópnum á Facebook!
www.facebook.com/groups/hulinofl
Sendu okkur póst!
- Laat meer zien