Afleveringen
-
Þessi síðasti þáttur fyrir sumarfrí er sannkölluð bókahátíð!
Við byrjum á að heyra í Eyrúnu og Grétu frá bókasafni Kópavogs. Þær segja okkur frá viðburðum bókasafnsins á næstunni og spá hvaða bækur verða vinsælar í sumar.
Svo mæli ég með nokkrum bókum og við heyrum hljóðbrot frá athöfn til heiðurs Sigrúnu Eldjárn.
Sævar Helgi og Elías Rúni segja frá bókinni sinni um sólmyrkvann sem mun einmitt eiga sér stað í ágúst.
Við ljúkum svo þættinum á bókaormum í Hlíðaskóla og kveðjustund. Bless í bili!
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
Í dag fræðumst við um ferlið á bak við þýddar bækur. Allt frá því að finna spennandi bækur á bókamessum, yfir í að þýða þær á íslensku og svo að sjálfsögðu að lesa þær!
Við heyrum í hjónunum Ása og Elínu sem eru útgefendur og þýðendur hjá útgáfunni Drápu. Þau segja frá bókum eins og Fótboltistunum, Ísadóru Nótt og Handbók fyrir ofurhetjur. Auk þess uppljóstra þau hvaða bækur eru væntanlegar síðar á árinu.
Svo spyrjum við Jón Stefán Kristjánsson út í þýðingar hans á Undrarútunni og fleiri barnabókum og teiknimyndum.
Að lokum lýsir bókaormurinn Ylfa Dögg bókaflokknum Vinkonur og tekur þátt í leiknum Botnaðu bókatitilinn.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
Zijn er afleveringen die ontbreken?
-
Vissir þú að rottur búa á víð og dreif um Reykjavík og þekkja borgina jafnvel betur en mannfólkið?
Auður Þórhallsdóttir segir frá bókaflokknum Miðbæjarrottan þar sem Rannveig miðbæjarrotta skoðar ýmsa króka og kima Reykjavíkur. Hún kynnir sér styttur, byggingar, bókmenntir og lagnir.
Bókaormurinn Amalía Eik segir frá bókum úr bókaflokknum og tekur þátt í leiknum Hitt eða þetta þar sem hún velur hvaða sögupersónur hún myndi vilja hitta.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
Hvernig taka skrímslin í það þegar mannabarn kemur í Skólann í Skrímslabæ?
Bergrún Íris segir frá því hvernig hugmyndin að bókinni kviknaði og af hverju hún kom ekki út fyrr en nokkrum árum seinna. Hún lýsir ferlinu við gerð bókarinnar og talar fallega um myndlýsingar Tinds Lilju.
Systkinin Jökla Katrín og Stefán Andri rýna í bókina og púsla saman sinni eigin stundarskrá ef þau fengju tækifæri til að gerast nýir nemendur Skólans í Skrímslabæ.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
Af hverju snjóar stundum á vorin og sólin gleymir að láta sjá sig á sumrin?
Diljá Hvannberg Gagu og Linn Janssen segja frá bókinni Árstíðarverur. Þær segja frá sínum uppáhalds barnabókum, hvernig hugmyndin að bókinni kviknaði á kaffihúsi í Hafnarfirði og um hvað næsta bók þeirra fjallar.
Bókaormurinn Ásberg Rafn rýnir í Árstíðarverur og tekur þátt í glænýjum leik sem kallast Fylltu í eyðurnar.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
Hundurinn Lóa fær að gera öll sín uppáhalds prakkarastrik áður en hún deyr. Hvaða prakkarastrik ætli það séu?
Mæðgurnar Kristín og Lilja Cardew segja frá bókinni Hjartslátturinn hennar Lóu sem fjallar um hund sem fær að gera sín uppáhalds prakkarastrik áður en hann deyr. Þær segja að heimilið þeirra hafi stundum verið eins og örkin hans Nóa því fjölskyldan átti svo mörg gæludýr og velta fyrir sér hvernig prakkarastrik önnur dýr framkvæma.
Bókaormurinn Hrefna Rós rýnir í bókina og keppir í Tímaröðinni.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
Kötturinn Emil var týndur í sjö ár en rataði svo aftur til eiganda síns!
Í bókinni Kötturinn Emil sem allir vildu eiga segir Helga Ólafs sögu kattarins og Gerður Steinars teiknar fallegar og skemmtilegar myndir sem prýða blaðsíðurnar. Þær segja frá ferlinu við gerð bókarinnar og segja okkur frá Emil.
Bókaormurinn Davíð segir hvað honum finnst um bókina og tekur þátt í leiknum Hitt eða þetta þar sem hann velur besta kattanafnið að hans mati.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
Hvað þýðir að vera VIÐ og hvernig getum VIÐ orðið betri?
Helen og Fanny segja frá bókinni VIÐ. Þær lýsa því hvernig er að flytja til Íslands frá öðru landi og hvernig við getum tekið vel á móti nýju fólki.
Bókaormurinn Tara segir frá bókinni og raðar atriðum í rétta tímaröð.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
Hvað gerist þegar Sirrýlei fer að grafa upp sögur um fjölskylduna sína? Hver er uppruni silfurnælunnar og af hverju heita svona margar sögupersónur Sigríður?
Brynhildur Þórarinsdóttir uppljóstrar alls kyns leyndarmálum um gerð unglingabókarinnar Silfurgengið og bókaormurinn Kristín gefur bókinni góða dóma. Auk þess spreytir hún sig í leiknum Hver sagði hvað?
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
Þáttur dagsins er stútfullur af snillingum!
Fyrst segir bókaormurinn Allan Magnús frá Sokkalöbbunum. Svo heimsækjum við Seljaskóla. Þar heyrum við í bókasafnsfræðingnum Dröfn segja frá dularfullri rannsókn á öskudaginn og lestrarátaki fyrir páskana. Að lokum keppa sex bókaormar úr skólanum í spurningaleikjum um barnabækur.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
Hverjir eru þessir risar? Hvað er Risaland? Af hverju eru hlutir svona hátt uppi eða langt í burtu?
Birna Daníelsdóttir segir frá bókinni Ég bý í Risalandi sem byrjaði sem lokaverkefni í Myndlistarskólanum. Hún lærði líffræði en tók u-beygju og starfar sem listakona í dag.
Bókaormurinn Gabríela Rós rýnir í bókina, boðskapinn og rúllar upp Tímaröðinni.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
Hvað gerist þegar stelpa kemur með kött heim til sín? Geta manneskja og köttur orðið bestu vinir? Hvernig á að kveðja besta vin sinn?
Brynhildur Jenný segir frá myndasögunni Kötturinn og ég. Hún uppljóstrar hvernig hún skipalagði söguna,. hvað henni fannst erfiðast að teikna og hvaða verkefni eru framundan.
Bókaormurinn Sindri rýnir í söguna og spreytir sig í leiknum Hitt eða þetta þar sem hann velur sitt drauma gæludýr.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
Hvað eru móðuharðindin? Af hverju þurfti fólk á Íslandi að flýja? Hvernig bregst 12 ára stelpa við í þessum aðstæðum?
Nanna Rögnvaldardóttir segir frá bókinni sinni, Flóttinn á norðurhjarann. Hún lýsir móðuharðindunum, köldum vetrum og erfiðri lífsbaráttu fullorðins fólks og krakka.
Bókaormurinn Hildur Sif segir hvað henni fannst um bókina og hvort hún haldi að hún hefði hagað sér eins og aðalpersónan í þessum aðstæðum en þær eru einmitt jafn gamlar. Í lok þáttar reynir hún að raða atburðum úr sögunni í rétta röð í Tímaröðinni.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
Af hverju heitir bærinn Voðagerði? Hvað er Lilja með inn í sér? Kemur önnur bók um bæinn?
Höfundarnir Hilmar Örn og Blær svara þessum spurningum og fleirum ásamt því að segja frá því hvert þau sóttu innblástur og hvernig samstarfinu var háttað.
Bókaormurinn Aría Valdís greinir bókina og spreytir sig í leiknum Hitt eða þetta þar sem hún endar á að velja voðalegasta hlutinn í bókinni.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
Er hægt að lifa af án rafmagns?
Sólgos er ungmennabók sem segir frá því þegar rafmagnið fer af. Aðalpersóna bókarinnar er unglingsstelpan Unnur sem þarf að takast á við breyttar aðstæður og vona að mamma sín komist heim frá útlöndum einn daginn.
Arndís Þórarinsdóttir segir okkur hvernig hún fékk hugmyndina að bókinni og hvað kom henni á óvart við rannsóknarvinnuna. Bókaormarnir Edda Björk og Bjartur rýna í bókina.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
Af hverju ákvað Marta Magnúsdóttir að skrifa um fellihýsageymslu? Af hverju koma eðlur við sögu og hvernig gekk henni að skrifa bréf frá Guðna Th. til aðalpersónanna í bókinni?
Í þessum þætti fáum við svör við öllum þessum spurningum og fleirum. Bókaormurinn Friðmey Ósk rýnir í bókinni og spreytir sig í Tímaröðinni.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
Felix Bergsson segir frá ævintýrunum um Freyju og Frikka og þá aðallega bókinni Drottningin af Galapagos, sem kom út á prenti fyrir jól. Auk þess sviptir hann hulunni af næstu bók um tvíburana.
Bókaormurinn Kristín María rýnir í Drottninguna af Galapagos og spreytir sig í leiknum Hver sagði hvað?
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
Hvað gerist þegar Matti prófar bíl sem keyrir af stað þegar einhver segir brandara? Nær hann að stoppa með því að lesa fréttir um efnahagsmál?
Sváfnir segir okkur frá bókinni sinni, Brandarabíllinn. Hann segir hvernig hugmyndin kviknaði út frá bílnum Chitty Chitty Bang Bang og hvernig honum gekk að myndlýsa bók í fyrsta skipti.
Bókaormurinn Markús segir okkur frá bókinni og spreytir sig í leik sem gengur út á að raða atburðum úr bókinni í tímaröð.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
Fyrsta bókin um Skjóðu segir frá því þegar hún reynir að undirbúa komu jólanna á einni nóttu. Höfundar bókarinnar, Anna Bergljót og Andrea Ösp, segja okkur hvernig bókin varð til og hverju við eigum von á frá Skjóðu á næstunni. Bókaormurinn Högni segir frá bókinni og reynir að raða atburðum í rétta tímaröð.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
Í þessum þætti gerum við upp bókaárið með hjálp Hugrúnar, frá bókasafni Hafnarfjarðar, og bókaormanna Hrannars og Róberts Mána.
Hvaða bækur voru vinsælar á árinu? En viðburðir? Hverju má búast við í bókaútgáfu á næsta ári?
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
- Laat meer zien