Afleveringen
-
Konstantinos "Kostas" Tsartsaris grikkinn úr Grindavík í viðtali, lyfjamál í körfuboltanum, útlendingar koma og fara eins og venjulega nema núna voru óvenju margir. Tómas Tómasson fór yfir þau mál með okkur.
Falur Harðarsson fór yfir ferilinn sinn, hann sagði okkur frá því hvernig það kom til að spila körfubolta fyrir kirkjuna sína í USA. Friðrik Ingi Rúnarsson mætti einnig í viðtal til okkar og fór yfir sinn feril bæði sem leikmaður og þjálfari. Grindvíkingar reka sinn dáðasta son og fullt af allskonar í þessum síðasta þætti fyrir sumarfrí í 10. Þætti af Tvígrip - Karfan kortlögð.
Podcast Körfunnar er í boði Lykils, Subway, Kristalls, Lengjunnar og Tactica. -
Í þessum síðasta þætti af Fyrstu fimm fer þjálfarinn Arnar Guðjónsson yfir sitt byrjunarlið leikmanna sem hann hefur þjálfað á ferlinum. Eftir margra ára starf sem þjálfari verður Arnar í fyrsta skipti ekki með lið á næstu leiktíð, en hann yfirgaf Stjörnuna nú í lok þessa tímabils og er farinn að vinna fyrir KKÍ.
Þrátt fyrir að vera aðeins 37 ára gamall má segja að Arnar hafi þjálfað ansi lengi. Fyrsta starf hans var hjá Sindra 2005, þaðan fór hann svo til FSu 2007, en 2009 lagðist hann í víking til Danmerkur þar sem hann var á mála hjá bæði Aabyhøj og Svendborg þangað til hann kom aftur heim 2018 og tók við Stjörnunni. Þá var hann lengi í þjálfarateymi íslenska landsliðsins og nú síðast 2022-2023 í þjálfarateymi danska landsliðsins.
Fyrstu fimm er í boði Kristalls, Tactica, Lykils, Subway og Lengjunnar. -
Zijn er afleveringen die ontbreken?
-
Helgi, David and Jeanne finally meet up a few days after the last game of the season. We begin by skimming over all games in the men and women's Subway league semifinals and go into the winners of the first division playoffs for who gets promoted. We finally discuss the finals and wrap everything up by going over the gossip and news. Enjoy!
Hosts: Helgi Hrafn Ólafsson, David Patchell and Jeanne Sicat
The Uncoachables is brought to you by Lykill, Subway, Kristall and Lengjan. -
Í þessum síðasta þætti af Fyrstu fimm fer KR-ingurinn Páll Kolbeinsson yfir sitt byrjunarlið leikmanna sem hann spilaði með á ferlinum.
Páll var á sínum tíma einn besti bakvörður Íslands, en á feril sínum 1981 til 1998 lék hann fyrir tvö lið, KR, Tindastól og University of Wisconsin–Oshkosh Titans í bandaríska háskólaboltanum. Þá lék hann frá 1986 til 1992 43 leiki fyrir íslenska landsliðið. Besta tímabil Páls var líklega 1989-90, en þá var hann valinn leikmaður ársins eftir að hafa leitt sína menn í KR til Íslandsmeistaratitil. Samhliða feril sínum sem leikmaður fór hann einnig að þjálfa, en hjá Tindastóli og KR var hann í nokkur ár þjálfari meistaraflokks.
Fyrstu fimm er í boði Kristalls, Tactica, Lykils, Subway og Lengjunnar.
-
Aukasendingin fékk Mumma Jones þjálfara og Siggeir Ævarsson blaðamann til þess að fara yfir fréttir vikunnar, orðið á götunni, lokaúrslitin í Subway deild karla og margt fleira. Þá er undir lokin farið í verðlaunaafhendingu fyrir nýafstaðið tímabil, þar sem veitt eru verðlaun í hefðbundnum og óhefðbundnum flokkum.
Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils, Tactica, Subway og Lengjunnar.
-
Aukasendingin fékk Árna Jóhannsson og Siggeir Ævarsson blaðamenn til þess að fara yfir úrslitin í Subway deildunum, leikmenn erlendis, fréttir vikunnar og heitasta slúðrið. Þá er einnig farið yfir nokkrar skemmtilegar línur sem þjálfarar og leikmenn hafa látið útúr sér á síðustu árum, sem og hvar Siggeir væri helst til í að búa.
Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils, Tactica, Subway og Lengjunnar.
-
Aukasendingin fékk fyrrum þjálfara Stjörnunnar Arnar Guðjónsson í spjall um tímann sinn hjá Stjörnunni, þar sem hann hafði verið frá árinu 2018 áður en hann ákvað að halda á önnur mið eftir yfirstandandi tímabil. Nú í sumar mun hann taka við sem afreksstjóri hjá KKÍ og því vera yfir landsliðsverkefnum Íslands. Ásamt því að ræða tíma sinn í Garðabænum fer Arnar vel yfir stöðu deildanna á Íslandi, úrslit Subway deildanna, meintan hrepparíg í Borgarfirðinum, ár sín með landsliðinu, framtíð Íslands og margt fleira.
Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils, Subway, Tactica og Lengjunnar.
-
Aukasendingin fékk Mumma Jones til þess að ræða úrslitakeppni Subway deilda karla og kvenna, fyrstu deilda karla og kvenna, leikmenn erlendis, fréttir vikunnar og margt fleira.
Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils, Subway, Lengjunnar og Tactica. -
Helgi, David and Jeanne welcome summer and the playoffs have begun! We begin by going over the end of the regular season and then move on to all playoffs rounds being played in all senior divisions (Subway leagues, 1st and 2nd division on both sides). Towards the end we discuss the beginning of the silly season and what this summer holds. Enjoy!
Hosts: Helgi Hrafn Ólafsson, David Patchell and Jeanne Sicat
The Uncoachables is brought to you by Lykill, Subway, Kristall and Lengjan. -
Tvígrip - karfan kortlögð 1997-1998
17 ára Grikki mætir í Grindavík, KR-ingar í brasi, dómarar vildu fá meira borgað. Skagamenn koma á óvart í úrslitakeppninni, Hrannar Hólm á línunni frá Köben ásamt Hermanni Hauks sem hélt í atvinnumennskuna. Grindvíkingar ráku sinn besta mann og við heyrum í Örvari varðandi Örlyg Sturluson. Þetta og fullt af öðru í Tvígrip karfan kortlögð.
Podcast Körfunnar er kostað af Lengjunni, Subway, Lykil, Kristal og Tactica. -
Aukasendingin fékk Sæbjörn Steinke og Guðmund Auðunn í heimsókn til þess að ræða fréttir vikunnar, úrslitakeppni Subway deilda karla og kvenna, úrslitakeppni fyrstu deilda karla og kvenna, sigur KV í annarri deildinni og og margt, margt, margt fleira. Þá fer Guðmundur undir lokin yfir fimm uppáhalds Keflvíkingana sína frá upphafi.
Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils, Subway, Lengjunnar og Tactica.
-
Aukasendingin kom saman með þeim Máté Dalmay þjálfara Hauka í Subway deild karla og Herði Unnsteinssyni þjálfara KR í fyrstu deild kvenna til þess að ræða fréttir vikunnar, 8 liða úrslit Subway deildar karla, hvaða leikmenn eru þeir efnilegustu í deildinni og margt fleira.
Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils, Subway, Lengjunnar og Tactica. -
Í þessum síðasta þætti af Fyrstu fimm fer Hafnfirðingurinn Helena Sverrisdóttir yfir sitt byrjunarlið leikmanna sem hún spilaði með á feril sínum.
Helena lagði skóna á hilluna sem leikmaður Hauka í nívember síðastliðnum. Haukar eru hennar uppeldisfélag, en þar hóf hún að leika með meistaraflokki félagsins 12 ára gömul árið 2000. Frá Haukum fór hún 2007 til TCU í bandaríska háskólaboltanum þar sem hún lék til 2011. Eftir það tóku við nokkur góð ár í atvinnumennsku á meginlandi Evrópu, þar sem hún lék fyrir sterk lið í Ungverjalandi, Slóvakíu og Póllandi. Eftir að hún kom til baka til Íslands lék hún fyrir Hauka, Val og síðan Hauka aftur, þar sem hún var í nokkur tímabil aðstoðarþjálfari þeirra liða.Helena var í 12 skipti valin körfuknattleikskona Ísland og í 7 skipti besti leikmaður efstu deildar. Á feril sínum á Íslandi vann hún 5 Íslandsmeistaratitla og í 5 skipti bikarkeppnina. Þá varð hún tvisvar slóvaskur meistari og vann bikarkeppnina þar í þrjú skipti.
Helena hóf einnig ung að leika fyrir íslenska landsliðið, aðeins 14 ára gömul árið 2002, en í heild lék hún 81 leik fyrir Ísland. Þann síðasta lék hún í nóvember gegn Tyrklandi heima í Ólafssal, en í leiknum á undan hafði hún sett nýtt landsleikjamet með sínum 80. leik.
Fyrstu fimm er í boði Kristalls, Tactica, Lykils, Subway og Lengjunnar. -
Aukasendingin fékk Ólaf Þór í heimsókn til þess að ræða fréttir vikunnar, síðustu umferð í Subway deild karla, lokaumferðina sem fer fram seinna í vikunni, lokastöðu og úrslitakeppni fyrstu deildar karla og lokaumferðina í fyrstu deild kvenna. Þá velur Aukasendingin fimm mikilvægustu leikmenn Subway og fyrstu deildar karla farandi inn í úrslitakeppnir beggja deilda.
Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils, Subway, Lengjunnar og Tactica. -
Aukasendingin fékk Mumma Jones í heimsókn til þess að ræða fréttir vikunnar, bikarvikuna, úrslitakeppni fyrstu deildar karla, Subway deild karla og margt, margt, margt fleira. Þá er einnig farið yfir hvaða fimm íslensku leikmenn hafa skarað framúr í fyrstu deild karla á tímabilinu.
Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils, Subway, Lengjunnar og Tactica.
-
Helgi, David and Jeanne are back after only a month to discuss all things Icelandic basketball. We begin by talking about the great start of the men's Icelandic national team of the Eurobasket qualifiers, we then discuss some big news stories and in particular some coaches leaving their teams.
The recently finished Cup Week is covered, both senior and youth, and the tables and prospects of teams in all divisions considered. Towards the end we pick our MVPs, biggest surprises in the regular season and biggest disappointments up until now. Enjoy!Hosts: Helgi Hrafn Ólafsson, David Patchell and Jeanne Sicat
The Uncoachables is brought to you by Lykill, Subway, Kristall and Lengjan. -
Tvígrip karfan kortlögð 8. þáttur 1996-1997
Starfsmenn Tvígrips gerðust heimsborgarar og hringdu til USA og töluðu við Damon Johnson um tímann sinn á Íslandi. Breytt fyrirkomulag á Íslandsmótinu, ný keppni og nýr formaður KKÍ. Gaui þorsteins fór yfir körfuboltann fyrir Vestan og tenginguna við KR. Körfuboltamenn í eldri kantinum fara í atvinnumennskuna, Grindvíkingar kærðu og voru kærðir. Örvars-hornið á sínum stað. Opið bréf enn og aftur frá Grindvíking. Siggi Ingimundar kíkti í spjall sem og Kristinn Óskarsson dómari og fór yfir störf dómara þá og nú. Einnig kom Kiddi með skemmtilegar sögur af sérkennilegum leikjum. Þjálfarar og leikmenn reknir eins og venjulega svo voru leikmenn settir í agabönn, sumir fyrir það að djamma með fótboltaliði bæjarins. KR-ingar í hremmingum með liðið sitt.
Podcast Körfunnar er kostað af Lengjunni, Subway, Lykil, Kristal og Tactica. -
Aukasendingin fékk Ólaf Þór Jónsson í heimsókn til þess að ræða fréttir vikunnar, leikmenn erlendis, Subway deild karla, bikarkeppnina, fyrstu deildir karla og kvenna, bestu leikmenn Subway deildar karla og margt, margt, margt fleira.
Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils, Subway, Lengjunnar og Tactica.
-
Aukasendingin fékk Ólöfu Helgu og Árna Jóhanns í heimsókn til þess að ræða fréttir vikunnar, Subway deild karla, Subway deild kvenna, bikarkeppnina, fyrstu deildir karla og kvenna og margt, margt, margt fleira. Þá er farið yfir minnistæðustu erlendu leikmenn síðustu tíu ára í úrvalsdeild karla og kvenna.
Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils, Subway, Lengjunnar og Tactica.
-
Tvígrip: Karfan körtlögð
Tímabilið 1995 til 1996 / Fyrri hluti
Pétur Guðmundsson í Tindastól, Ingólfur Hannesson lætur KKÍ heyra það en Pétur Hrafn svaraði fullum hálsi. Var þáttastjórnandi Tvígrips svikinn um miða á NBA leik í London eða var það bara misskilningur? Ef leikmaður er í banni má hann ekki sitja á bekknum? Héldu KR-ingar að þeir yrðu Íslandsmeistarar eftir 9 umferðir? Herbert Arnars á línunni, en þar fer hann yfir víðan völl. Við hringjum einnig í Paxel sem fer vel yfir úrslitakeppnina ásamt Örvars-horninu þar sem Örvar segir frá miður skemmtilegu atviki á Valsmótinu. Kristinn rekinn, Axel rekinn, Hreinn rekinn og Burns rekinn ásamt fleirum.
Podcast Körfunnar er kostað af Lengjunni, Subway, Lykil, Kristal og Tactica. - Laat meer zien