Afleveringen
-
Helgi, David and Jeanne meet up just when the regular seasons are done and the playoffs are approaching! We begin by going over the national teams that the Iceland men's NT will be in a group with in Eurobasket next August. Everyone get tickets!
We then discuss the newly finished Icelandic Basketball Federation biannual basketball summit and the rule changes. Regular season awards are reviewed and we finally go over the playoffs seeding and how we think each matchup will go. Enjoy!
Hosts: Helgi Hrafn Ólafsson, David Patchell and Jeanne SicatThe Uncoachables is brought to you by Lykill, Bónus, Kristall and Lengjan.
-
Sjötti maðurinn tók upp uppgjörsþátt Bónus deildar karla og fékk til sín góðan gest hann Árna Gunnar fyrirliða Stjörnunar b. Allskonar verðlaun og skemmtilegt ívaf í mörgum flokkum, einnig úrvalslið íslendinga og erlendra leikmanna.
Þá var spáð í spilin varðandi úrslitakeppnina í efstu deildum karla- og kvenna sem og í fyrstu deild karla.Stjórnendur: Mikael Máni Hrafnsson, Eyþór Orri Árnason og Ögmundur Árni Sveinsson.
Sjötti maðurinn er í boði Bónus deildarinnar, Tactica, Lengjunnar, Kristalls og Lykils
-
Zijn er afleveringen die ontbreken?
-
Aukasendingin fékk góðkunningja þáttarins Máté Dalmay og Mumma Jones í heimsókn til að fara yfir sviðið.
Ræddar eru fréttir vikunnar, lokaumferðin í Bónus deild karla, VÍS bikarvikan, hræðilegt ástand Keflavíkur og Þorlákshafnar, brotthvarf Evans úr Njarðvík, styrk Vals og margt fleira. Þá fer Mummi yfir hvaða fimm íslensku leikmenn eiga eftir að græða mest á hertum reglum um erlenda leikmenn í deildinni
Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils, Bónus, Lengjunnar og Tactica.
-
Sjötti maðurinn var á sínum stað þessa vikuna en í þetta skiptið með tvo rándýra gesti innanborðs í Máté Dalmay og Frikka Beast.
Að vanda var farið yfir Bónus Karla en einnig snert mikið á allskonar málefnum úr liðinni viku. Þingið rætt, bikarinn ræddur og dramatíkin í 1. deildinni rædd. Maté með lið og að sjálfsögðu þekktir liðir á sínum stað.
Stjórnendur: Mikael Máni Hrafnsson, Eyþór Orri Árnason og Ögmundur Árni Sveinsson.
Sjötti maðurinn er í boði Bónus deildarinnar, Tactica, Lengjunnar, Kristalls og Lykils
-
Aukasendingin fékk formann KR Egil Ástráðsson í heimsókn til þess að kryfja flest þeirra mála sem kosið verður um á körfuknattleiksþingi helgarinnar.
Stærst mála eru kannski breytingar á reglum um erlenda leikmenn og fjölgun leikja í efstu deild, en einnig er um fjölda annarra mála að ræða svosem hvaða búningum heimalið geta verið í, hversu margir leikmenn geti farið á venslasamning og hvort taka þurfi tillit til leikdaga liða af landsbyggðinni.
Hérna er hægt að lesa þau þingskjöl sem verða til umræðu og kosið verður um á körfuknattleiksþingi helgarinnar
Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils, Bónus deildarinnar, Lengjunnar og Tactica.
-
Sjötti maðurinn var ekki fullskipaður að þessu sinni en fékk til sín góðan gest en það var enginn annar en Snorri Vignisson.
Rætt var um Bónus deild karla, 1. deild karla og fréttir vikunnar. Allskonar liðir fengu að láta ljós sitt skína og það var meðal annars snert á tillögum sem eru á borði KKÍ varðandi reglubreytingar í einum liðnum. Snorri ræddi 3x3 á Íslandi og margt, margt fleira.
Stjórnendur: Mikael Máni Hrafnsson, Eyþór Orri Árnason og Ögmundur Árni Sveinsson.
Sjötti maðurinn er í boði Bónus deildarinnar, Tactica, Lengjunnar, Kristalls og Lykils
-
Aukasendingin spjallaði í dag við Hannes Jónsson framkvæmdastjóra KKÍ. Til umræðu voru mörg ólík málefni, aðallega þó sá samningur sem sambandið gerði við pólska sambandið um að Ísland myndi leika í Katowice á EuroBasket í haust.
Þá er í seinni hluta spjallsins farið yfir stórar tillögur sem fara fyrir þing KKÍ sem er á dagskrá 15. mars og þær breytingar sem verða á stjórn og hjá formanni sambandsins.
Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils, Bónus, Lengjunnar og Tactica.
-
Sjötti maðurinn mættur með þátt vikunnar, en hann er með hefðbundnu sniði.
Bónus deild karla er í aðalhlutverki ásamt föstum liðum inná milli. Kraftröðun, byrja/ bekkja, senda á Leifstöðina og fyrstu deildar hornið heldur áfram göngu sinni eftir góðar móttökur.
Stjórnendur: Mikael Máni Hrafnsson, Eyþór Orri Árnason og Ögmundur Árni Sveinsson.
Sjötti maðurinn er í boði Bónus, Tactica, Lengjunnar, Kristalls og Lykils
-
Sjötti maðurinn kom saman beint eftir leik Íslands gegn Ungverjalandi í undankeppni EuroBasket 2025 og ræddi leikinn.
Ísland mátti þola níu stiga tap í leiknum og þurfa því að treysta á að geta annaðhvort sigrað Tyrkland komandi sunnudag í Laugardalshöll eða að Unhverjalandi mistakist að vinna Ítalíu á sama tíma til að tryggja sig áfram á lokamótið.
Stjórnendur: Mikael Máni Hrafnsson, Eyþór Orri Árnason og Ögmundur Árni Sveinsson.
Sjötti maðurinn er í boði Bónus, Tactica, Lengjunnar, Kristalls og Lykils
-
Aukasendingin spjallaði við aðstoðarþjálfara íslenska landsliðsins og þjálfara Stjörnunnar í Bónus deildinni Baldur Þór Ragnarsson á leikdegi íslenska liðsins fyrir leik gegn Ungverjalandi í Szombathely í undankeppni EuroBasket 2025.
Baldur Þór hefur verið aðstoðarþjálfari íslenska liðsins á síðustu árum ásamt því að hafa verið með yngri landsliðum Íslands, en á báðum vígstöðum hefur hann gert ansi vel. Þá hefur hann einnig verið nokkuð sigursæll með félagsliðum uppeldisfélags síns í Þór, með Tindastóli, á síðasta ári úti í Þýskalandi með Ulm og nú síðast Stjörnunni.
Í spjallinu fer Baldur meðal annars yfir muninn á Íslandi og Þýskalandi, hvernig leikdagur sé hjá íslenska liðinu og hvernig hann eigi við utanaðkomandi áreiti.
Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils, Bónus, Lengjunnar og Tactica.
-
Aukasendingin hitti fyrir leikmann íslenska landsliðsins Hauk Helga Briem Pálsson á hóteli liðsins í Berlín í gærkvöldi, en þar æfir liðið þessa dagana fyrir lokaleiki undankeppni EuroBasket 2025.
Fyrri leikurinn er í Ungverjalandi gegn heimamönnum komandi fimmtudag og svo lýkur undankeppninni með leik heima í Laugardalshöll komandi sunnudag.
Haukur Helgi var aðeins 19 ára gamall árið 2011 þegar hann var fyrst valinn í íslenska landsliðið og því spannar ferill hans með liðinu að verða 14 ár. Á þessum tíma hefur Haukur að sjálfsögðu verið einn af burðarásum liðsins sem meðal annars tryggði sig inn á lokamót EuroBasket 2015 og aftur tveimur árum seinna 2017.Þá hefur Haukur að sjálfsögðu verið gífurlega farsæll sem leikmaður, fyrst með stórum skólum í Bandaríkjunum, en eftir það sem atvinnumaður á meginlandi Evrópu.
Í nokkuð óhefðbundnu spjalli við Aukasendinguna fer Haukur yfir hin ýmsu málefni, meðal annars upphaf ferilsins í Bandaríkjunum, hverja hann tæki með sér í The Purge, hvernig hafi verið með íslenska liðinu á þessum fyrstu tveimur stórmótum 2015 og 2017 og hvernig liðið hafi svo breyst til dagsins í dag.
Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils, Bónus, Lengjunnar og Tactica.
-
Aukasendingin hitti fyrir fyrirliða íslenska landsliðsins Ægir Þór Steinarsson á hóteli liðsins í Berlín í dag, en þar æfir liðið þessa dagana fyrir lokaleiki undankeppni EuroBasket 2025. Fyrri leikurinn er í Ungverjalandi gegn heimamönnum komandi fimmtudag og svo lýkur undankeppninni með leik heima í Laugardalshöll komandi sunnudag.
Ægir Þór hefur marga fjöruna sopið með íslenska liðinu. Var í báðum liðunum sem fóru á lokamót, fyrst í Berlín 2015 og svo tveimur árum seinna í Helsinki 2017. Í stuttu spjalli við Aukasendinguna fer Ægir um nokkuð víðan völl, þar sem hann meðal annars ræðir breytingu á menningu liðsins, hver hún sé og hvernig hann sjái fyrir sér þessa lokaleiki, þar sem óhætt er að segja að liðið sé í dauðafæri að tryggja sig á þriðja lokamótið á aðeins tíu árum.
Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils, Bónus, Lengjunnar og Tactica.
-
Helgi, David and Jeanne have been away for a while, but it was because of a storm. We go over the tables and where teams might finish at the end of the season. The women's league is about to split into the A- and B-division and we discuss if Tindastóll will keep the fifth position, if Grindavík will survive after this season as well as some other storylines.
We talk about the best and worst transfers and if there are any players that haven't met expectations. We skim the lower divisions and finish up with the national teams. Enjoy!
Hosts: Helgi Hrafn Ólafsson, David Patchell and Jeanne Sicat
The Uncoachables is brought to you by Lykill, Bónus, Kristall and Lengjan.
-
Sjötti maðurinn mættur aftur eftir viku pásu. Að vanda rennt yfir Bónus deild karla og í þetta skiptið var valið amk. eitt lið sem hvert einasta lið vildi ekki mæta í úrslitakeppnisseríu. Fórum yfir 1. deildina og liðna umferð þar, fréttir vikunnar, fastir liðir og allskonar stuð.
Þá er sérstök umræða um landslið Íslands sem leikur í vikunni lokaleiki sína í undankeppni EuroBasket 2025.
Stjórnendur: Mikael Máni Hrafnsson, Eyþór Orri Árnason og Ögmundur Árni Sveinsson.
Sjötti maðurinn er í boði Bónus, Tactica, Lengjunnar, Kristalls og Lykils
-
Aukasendingin fékk góðkunningja þáttarins Sigurð Orra “Véfrétt” Kristjánsson í heimsókn til að fara yfir sviðið.
Ræddar eru fréttir vikunnar, síðasta umferð Bónus deildar karla, leikir kvennalandsliðs Íslands gegn Tyrklandi í gær og Slóvakíu komandi sunnudag, sigurvegarar og taparar vikunnar, topp fimm listi og margt, margt, margt fleira.
Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils, Bónus, Lengjunnar og Tactica.
-
Sjötti maðurinn var að vanda að taka upp á sunnudagskvöldi. Farið var yfir leiki sunnudagsins en sömuleiðis var farið yfir leikina á fimmtudags og föstudags.
Margir fastir liðir, margar pælingar og útlendingamál rædd í lok þáttarins. Fyrsta deildin fékk áframhaldandi sviðsljós, topp 5 listi og margt, margt fleira.
Stjórnendur: Mikael Máni Hrafnsson, Eyþór Orri Árnason og Ögmundur Árni Sveinsson.
Sjötti maðurinn er í boði Bónus, Tactica, Lengjunnar, Kristalls og Lykils
-
Sjötti maðurinn var fullskipaður í þetta skiptið. Farið var vel yfir Bónus deild karla og sömuleiðis fréttir vikunnar. Í fyrsta skipti í sögu þáttarins fékk 1. deild karla sviðsljósið og var það gert vegna fjölda áskorana. Power ranking og margt, margt fleira.
Stjórnendur: Mikael Máni Hrafnsson, Eyþór Orri Árnason og Ögmundur Árni Sveinsson.Sjötti maðurinn er í boði Bónus, Tactica, Lengjunnar, Kristalls og Lykils
-
Sjötti maðurinn er mættur þessa vikuna og fullmannaður í þetta skiptið. Farið var yfir liðna umferð í Bónus deild karla, fréttir vikunnar og fasta liði. Þá er í þættinum opinber afsökunarbeiðni frá dyggum hlustanda sem gæti komið einhverjum á óvart og margt, margt fleira.
Stjórnendur: Mikael Máni Hrafnsson, Eyþór Orri Árnason og Ögmundur Árni Sveinsson.
Sjötti maðurinn er í boði Bónus, Tactica, Lengjunnar, Kristalls og Lykils -
Sjötti maðurinn er mættur aftur eftir gott jólafrí.
Í þetta skiptið var Ögmundur erlendis en Eyþór og Mikael stóðu vaktina í þetta. Farið var yfir Bónus deild karla í bland við skemmtilega hefðbundna liði.
Stjórnendur: Mikael Máni Hrafnsson, Eyþór Orri Árnason og Ögmundur Árni Sveinsson.Sjötti maðurinn er í boði Bónus, Tactica, Lengjunnar, Kristalls og Lykils
-
Aukasendingin kom saman með góðkunningjum þáttarins þeim Sigurði Orra “Véfrétt” Kristjánssyni og Guðmundi Inga Skúlasyni. Farið var yfir allar viðureignir síðustu umferðar Bónus deildar karla, spáð í lagskiptingu deildarinnar og þá eru einnig ræddar Bónus deild kvenna og fyrstu deildir karla og kvenna.
Þá er einnig farið yfir hvaða fimm þjálfarar sem ekki eru í Bónus deild karla ættu að fá lið á næstunni og hvaða leikmenn hafa mögulega lækkað í verði á tímabilinu.
Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils, Bónus, Lengjunnar og Tactica. - Laat meer zien