Afleveringen
-
Í þessum fyrsta þætti ætlum við að fara langt aftur í tímann sem og rýna aðeins inn á við. Við skoðum hina mennsku rödd og áhrifin sem söngurinn hefur á tilfinningar okkar en einnig hvers vegna söngur er svona stór hluti af lífinu á Filippseyjum. Við heyrum af því hvernig ást Filippseyinga á söng hefur þróast frá landnámi til dagsins í dag og hvaða áhrif Spánverjar og Bandaríkjamenn hafa haft á sjálfsmynd þjóðarinnar og hvernig þetta allt saman endurspeglast í ást Filippseyinga á karókí.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
Í miðjukaflanum ætlum við að setja karókíið í fyrsta sæti og heyra ýmsar reynslusögur frá viðmælendum okkar sem eru sérfræðingar að syngja í, keppa í og að stjórna karókískemmtunum. Við skoðum karókídrauminn, þessa þrá að vera uppgötvuð sem stórstjörnur á karókíbar og hvað það getur gert fyrir okkur að fá listaverk annara að láni í 3 mínútur. Af hverju er karókíið svona gríðarlega vinsælt á Filippseyjum, en þar er það ekki bara partý á föstudagskvöldi heldur lífstíll og karókísöngurinn hluti af daglegu lífi.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
Zijn er afleveringen die ontbreken?
-
Í lokaþættinum kynnum við okkur hugtakið karaoke-rage eða karókí-ofsa sem er svo sannarlega ekki einskorðaður við Filippseyjar. Við rýnum í lagið sjálft og textann og reynum að átta okkur á því hvort og þá hvað það er við þetta lag og þennan texta sem gæti leyst úr læðingi ofsafengin viðbrögð áhorfenda þegar lagið er sungið á karókíbar á Filippseyjum. Liggur bölvun á laginu? Hefði texti David Bowie við lagið haft einhver áhrif á þessa þróun mála? Hefði þetta lag kallað fram þessi viðbrögð annars staðar en á Filippseyjum?
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.