Afleveringen
-
Laugardagur 13. júní
Helgi-spjall: Árni Pétur
Árni Pétur Guðjónsson leikari ársins kemur í helgi-spjall og segir frá hippanum í sér, leikaranum, hommanum, alkanum og ýmsum fleiri. -
Föstudagur 12. júní
Vikuskammtur: Vika 24
Ómar Örn Magnússon skólastjóri Hagaskóla, Björgvin G. Sigurðsson, fyrrum ráðherra, Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi og Björn Leví Gunnarsson, fyrrum þingmaður, ræða ólguna í Samfó, útlendingamál, menntamál, ESB, efnahagsmál og íslenska blíðviðrið. Björn Þorláks sér um þáttinn. -
Zijn er afleveringen die ontbreken?
-
Fimmtudagur 11. júní
Flokksórói, menntun öryrkja, lögblind börn, ESB og list
Þórarinn Snorri Sigurgeirsson stjórnmálafræðingur og skristofufstjóri hjá Þroskahjálp er einn hvatamanna yfirlýsingar fjölda fólks úr Samfylkingunni gegn stefnubreytingar forystu flokksins í málefnum flóttafólks. Hann segir Gunnari Smára hvers vegna. Anna Margrét Bjarnadóttir, Hrönn Stefánsdóttir og Þórdís Bjarnleifsdóttir ræða fötlun og fjárhag, aðgengi að tækifærum í samtali við Björn Þorláks. Ekki sitja allir við sama borð er kemur að menntamöguleikum við HÍ. Ragnheiður Davíðsdóttir ræðir við Sigurlaugu Gísladóttur móður þriggja lögblindra drengja um lífið og tilveruna og baráttu við kerfið. Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur telur einsýnt að Ísland eigi af menningarlegum orsökum ekki síður en efnahagslegum samleið með ESB. Einangrun landsins er stórvarasöm að mati Guðmundar Andra og válegir straumar í vestri. Björn Þorláks ræðir við hann. Á sunnudaginn opnar ný sýning í gluggagalleríinu STÉTT í Bolholti 6. Berglind Ágústsdóttir listakona segir Laufeyju Líndal frá list sinni. -
Miðvikudagur 10. júní
Ærumeiðingar, heimsmálin, ESB-skýrsla, námsleiðir og jóga
Margrét Friðriks á frettin.is ræðir spillta íslenska yfirstétt sem hún segir stöðugt vinna gegn sér. Hún ræðir nýfallinn ærumeiðingadóm, eigin áfallasögu og gönguna með Jesú Kristi í samtali við Björn Þorláks og Ásdísi Olsen. Gunnar Smári ræðir við Hilmar Þór Hilmarsson prófessor um heimsmálin, stríðin og ESB. Hallgrímur Oddsson hagfræðingur í Brussel ræðir glænýja skýrslu um ESB og rekstrarumhverfi fyrirtækja. Tollar, gjaldmiðlar og geópólitískar sviptingar koma til umræðu í spjalli hans við Björn Þorláks. Bjarni M. Bjarnason rithöfundur hefur varið tímanum á kaffihúsum undanfarið. Ekki til að slæpast heldur til að skrifa doktorsritgerð! Björn Þorláks ræðir við Bjarna. „Þjáningin varð fæðingarhríðir skilningsins”, segir Marta Eiríksdóttir, kennari og jógakona um erfiðustu ár ævi sinnar í samtali við Ásdísi Olsen. -
Þriðjudagur 9. júní
Persónulegt hrun, heilahreistingur, áfengi, stengjafræði og veitingahús
Einlægt samtal um persónulegt hrun og þá miklu auðmýktina sem þarf til að biðja um hjálp, í viðtali Ásdísar við Arnór Má Másson markþjálfa. Mjög alvarlegur heilahristingur leiddi til þess að Valgerður Árnadóttir missti getu til að sinna einföldustu verkefnum. Hún komst í gegnum erfiðleikana eins og hún segir Birni Þorláks frá. Björn Þorláks ræðir við forvarnafulltrúann Árna Guðmundsson um hvort hinir fullorðnu eiga sjálfir að hjálpa börnunum að komast yfir áfengi. Lárus Thorlacius prófessor í eðlisfræði útskýrir strengjafræði fyrir Gunnari Smára og Bjarni Óskarsson veitingamaður segir frá nokkrum veitingastöðum sem hann hefur stofnað og rekið í samtali við Gunnar Smára. -
Laugardagur 6. júní
Helgi-spjall: Sigfinnur
Sigfinnur Þorleifsson sjúkrahúsprestur segir okkur frá kvíða æskunnar, veikindum foreldra sinna, trúrrleit sinni, reynslu af dauðanum og hvernig fólk tekur honum, voninni og öðru sem hjálpar. -
Mánudagur 8. júní
Sprungnir meirihlutar, röddin, Hildur, túrismi og HM
Ofurlaun nokkurra sveitarstjóra hafa verið til umræðu að loknum kosningum. Þá gekk meirihluti í Hafnarfirði úr skaftinu vegna trúnaðarbrests. Þorsteinn Gunnarsson hefur skrifað ritgerð sem kann að varpa ljósi á álitamál í íslenskri sveitarstjórnarpólitík. Björn Þorláks ræðir við hann. Að finna sína eiginlegu rödd fæst með því að tengja við sálina sína segir Þórey Sigþórsdóttir leikkona og raddþjálfi sem kennir fólki að nota röddina, finna sinn eigin styrk í tjáningunni og ná athygli fólks í viðtali við Ásdís Olsen. Guðni Tómasson framkvæmdastjóri Sinfó, Freyja Gunnlaugsdóttir, skólastjóri Menntaskóla í tónlist og Ingveldur G. Ólafsdóttir, móðir Hildar Guðnadóttur, ræða skilyrði árangurs í tónlist og hvort þeim er sinnt sem stendur. Hinrik Ólafsson leikari, leiðsögumaður, framleiðandi og leikstjóri ræðir við Gunnar Smára um túrisma á Íslandi. HM með Víði Sigurðssyni. Gestur þáttarins að þessu sinni er einn reyndasti íþróttafréttamaður landsins. Heimsmeistarakeppnin er við það að hefjast. Svo er mikið gaman að fylgjast með íslenska boltanum. -
Föstudagur 5. júní
Vikuskammtur: Vika 23
Kverkatak Írans á Vesturlöndum, bein Jónasar, græðgi og brottfararbúðir koma við sögu í Vikuskammti að þessu sinni. Sara Oskarsson læknanemi, Magnea Marínósdóttir ráðgjafi, Margrét Tryggvadóttir rithöfundur og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir fyrrum þingmaður eru gestir Björns Þorlákssonar. Þau ræða fréttir og helstu þjóðmál líðandi stundar. -
Fimmtudagur 04. júní
Vitsmunakreppa, þurfamenn, bókmenntir, listir og neytendamál
Sverrir Norland rithöfundur ræðir þverrandi áherslu á vitsmuni en aukinn þunga á öryggi í samtali við Björn Þorláks. Ragnheiður Kristjánsdóttir prófessor segir Gunnari Smára frá breytingum á fátæktarlögum 1927 þar sem þurfamenn fengu meðal annars kosningarétt, en fram að því missti fólk þann rétt ef það þáðu stuðning frá sveitarfélögunum. Ásdís Olsen ræðir við Vilhjálm Pétursson verðlaunahafa hjá Forlaginu. Emilía Bergsdóttir trúður og Álfheiður Karlsdóttir dansari ræða við Ásdísi Olsen un glænýjan menningarþátt sem hleypt verður af stokkunum á morgun. Breki Karlsson hjá Neytendasamtökunum fer yfir helstu áskorarnir íslenskra neytenda um þessar mundir. Vextirnir, olían, maturinn og húsnæðið verða til umræðu. Björn Þorláks ræðir við Breka. -
Miðvikudagur 3. júní
Ofbeldi, öryrkjar, fánar, íbúðamarkaður og sundlaugar
Hrundið hefur verið af stað landsátaki gegn kynbundnu ofbeldi næstu fimm árin. Linda Dröfn Gunnarsdóttir ræðir í samtali við Björn Þorláks átakið, flutning athvarfsins, samstöðu og stuðning en einnig ökklabönd og kyrkingartök. Unnur Hrefna Jóhannsdóttir blaðakona og öryrki ræðir við Gunnar Smára um stöðu öryrkja í samfélaginu, hvernig fordómar og vanvirðing dregur niður lífskjör þeirra ekki síður en sjúkdómar, fötlun og fátækt. Ingólfur Gíslason lektor við Háskóla Íslands ræðir þá ákvörðun borgaryfirvalda að hætta að flagga fánum erlendra ríkja. Nýr meirihluti fer illa af stað, að mati Ingólfs. Sigurður Sigurðsson byggingarverkfræðingur segir Gunnari Smára frá pólitísk svik stjórnmálafólksins við ungu kynslóðina, einkum varðandi húsnæðismarkaðinn sem þjónar síst af öllu ungu fólki. Rán Flygenring, myndlistarmaður og rithöfundur, er mikil sundmanneskja og upp á síðkastið hafa gestir í sundlaugum rekið augun í myndlist hennar á sundlaugarbökkum Reykjavíkur. Rán ræðir við Björn Þorláks um þjóðareinkenni Íslendinga, útisundlaugina. -
Þriðjudagur 2. júní
Bitbein, mygluveiki, villistrákar, ferðaþjónustufúsk og hringvegurinn
Páll Valsson rithöfundur og ævisagnaritari Jónasar Hallgrímssonar skýrir fyrir Birni Þorláks hvers vegna hann telur það góða hugmynd að grafa upp bein Jónasar Hallgrímssonar. Hugmyndin hefur vakið deilur meðal fræðimanna. Aðalheiður Sigursveinsdóttir stjórnunarráðgjafi og listakona varð fyrir alvarlegum áhrifum af svartmyglu á heimili sínu og missti allt sem hún átti og næstum vonina líka. Í viðtali við Ásdísi lýsir hún hvernig var að vera heimilislaus, heilsulaus, atvinnulaus og koma alls staðar að lokuðum dyrum. Ólafur Páll Sigurðsson segir Gunnari Smára frá skáldsögunni Villistrákum og höfundi hennar William S. Burroughs, því alræmda skáldi. Páll Ásgeir Ásgeirsson, blaðamaður og leiðsögumaður, vill að tekin verði upp löggilding meðal leiðsögumanna hér á landi. Í samtali Björns Þorláks við Pál Ásgeir ber samanburð færeyskrar og íslenskrar ferðaþjónustu á góma en í Færeyjum hafa leyfislausir leiðsögumenn verið handteknir undanfarið. Arnþór Gunnarsson sagnfræðingur segir Gunnari Smára frá hringveginum, undirbúningi hans, lagningu, vígslu og áhrifum. -
Mánudagur 1. Júní
Lyfjahagsmunir, pólitík, fasteignasala og menntun
Hagsmunir sem stýra lyfjarannsóknum og heilbrigðiskerfinu eru miklir og spurningar vakna hvort árangursrík og ódýr meðferð gegn krabbameini sé ekki í boði vegna hagsmuna lyfjafyrirtækja? Ásdís Olsen ræðir við Karl Snæbjörnsson lækni og Jón Ármann Steinsson sem segist hafa náð bata af fjórða stigs krabbameini með lyfi sem læknar eru tregir til að tilvísa. Augljóst er að staða Hildar Björnsdóttur, sem tekur við stöðu borgarstjóra á morgun, er sterk. Miðað við söguna gæti hún orðið formaður Sjálfstæðisflokksins. Þetta segir Ólafur G, Harðarson stjórnmálafræðingur í samtali við Björn Þorláks. Baldur Jezorski fasteignasali segir Gunnar Smára frá þeim breytingum sem hafa orðið á íbúðamarkaði þar sem fjársterkir aðilar kaupa upp eignir á meðan almenningur hefur ekki efni á íbúðunum. Maðurinn í órofa tengslum við félagslegt og menningarlegt umhverfi sitt og markast vitsmunalega af slíkum tengslum, segir í bókinni Menntun í félagsmenningarlegu ljósi sem Hafþór Guðjónsson kennari hefur skrifað. Hann útskýrir þetta fyrir Gunnari Smára. -
Föstudagur 29. maí
Vikuskammtur: Vika 22
Í Vikuskammt að þessu sinni mæta þær Nanna Hlín Halldórsdóttir, Elín Oddný Sigurðardóttir og Valgerður Árnadóttir til að ræða fréttir vikunnar með Laufeyju Líndal. Nýir borgar- og sveitarstjórnarmeirihlutar, samstarfssáttmálar, þjóðaratkvæðagreiðsla, vafasamar fyrirmyndir, hvalveiðar, netárásir og fordómar verða til umræðu. -
Fimmtudagur 28. maí
Olíuborpallur, reynsluboltar, heimsmálin, innflytjendur og plastbarkamálið
Steingrímur Ólafsson er einn fárra Íslendinga sem starfar á olíupalli. Hann lýsir þeirri reynslu í samtali við Björn Þorláks og spáir fyrir um framtíð jarðefnaeldsneytis. Aðalsteinn Tryggvason blaðamaður á Heimildinni, Steingerður Steinarsdóttir, blaðamaður, Lifðu núna og Margrét Valdimarsdóttir afbrotafræðingur ræða fréttir líðandi stundar. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor við Háskólann á Akureyri ræðir við Gunnar Smára Egilsson um heimsmálin, Íransstríðið og fleira. Ragnheiður Davíðsdóttir ræðir við Nuru A. Rashid leikskólakennara frá Singapúr um 30 ár á Íslandi. Gísli Tryggvason lögmaður ræðir við Björn Þorláksson um lagaleg álitamál, tengd fréttum líðandi stundar. -
Miðvikudagur 27. maí
Kennsla, geðheilsa, golf, heilsulæsi, tónlistarósómi
Gunnar Smári Egilsson ræðir við Ingvar Sigurgeirsson og Lilju M. Jónsdóttur, fyrrverandi háskólakennara um nýja skýrslu um starfsaðstæðiur kennara. Forsvarsmenn Geðhjálpar geta ekki opnað skjólshús á jafningjagrunni í Breiðholti vegna andstöðu íbúa. Björn Þorláks ræðir við Sigrúnu Ólafsdóttur prófessor í félagsfræði. Lukka Pálsdóttir vill auka heilsulæsi og fjölga heilbrigðum æviárum. Í viðtali við Ásdísi Olsen veltir hún fyrir sér hvers vegna heilsubyltingin mæti þöggun og andstöðu frá kerfinu. Sigurjón Magnús ræðir við Huldu Bjarnadóttur, forseta Golfsambandsins, um uppgang í golfíþróttinni. Hátt í 400 nemendur í Árbænum hafa fengið fría leiðsögn á hljóðfæri síðustu ár en stuðningur við verkefnið hefur nú verið blásinn af. Björn Þorláks ræðir við Stefán S. Stefansson tónlistarmann um öfugþróun í listum og menningu. -
Þriðjudagur 26. maí
Náttúruhamfarir, dýrtíð, einhverfa og hamingja
Margt bendir til að eldgosahrinunni sé lokið á Reykjanesi og að besta sviðsmynd allra möguleika verði ofan á. Öryggi og nægur jarðvarmi. Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur ræðir við Björn Þorláksson. Dýrtíð innanlands er í hæstu hæðum. Framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar, Þórður Snær Júlíusson, ræðir í samtali við Björn Þorláks hvaða breyting yrði á samkeppni með aðild að ESB. Gunnar Smári ræðir við Vigdísi M. Jónsdóttur sálfræðing á Sálfræðistöðinni Höfðabakka um einhverfar konur og hvers vegna þær fela svo vel einhverfu sína. Og svo ræða þau svokallaða fúla karla, eldri menn sem lifa einangruðu lífi og verða einmana. Hrefna Guðmundsdóttir vinnu-og félagssálfræðingur ræðir hamingjuna á þriðja æviskeiði við Ásdísi Olsen. -
Laugardagur 23. maí
Helgi-spjall: Ragnar Freyr Ingvars
Ragnari var nýlega sagt upp störfum á Landspítalanum sem hefur vakið sterk viðbrögð. Hann er vinsæll og vel metinn lyf- og gigtarlæknir og formaður Læknafélags Reykjavíkur. Hann segir yfirstjórn spítalans vanhæfa og segir óhræddur skoðun sína á Landspítalanum og hvað mætti bæta í heilbrigðiskerfinu okkar. Ragnar er í Helgi-spjalli vikunnar með Ásdísi Olsen. -
Föstudagur 22. maí
Vikuskammtur: Vika 21
Í Vikuskammt til Björns Þorlákssonar mæta þau Steinunn Ólína leikkona, Bragi Páll rithöfundur, Halldór Ólafsson kvikmyndagerðarmaður og Þorsteinn Siglaugsson hagfræðingur. Þau ræða m.a. pólitík, löggur sem skjóta fólk, dýrtíð, menningu og menningarleysi. -
Fimmtudagur 21. maí
Rasismi, hinsegin bakslag, reynsluboltar, Rauði krossinn og draumar
Brynjar Karl hjá körfuboltafélaginu Aþenu saknar ekki fráfarandi meirihluta Reykjavíkurborgar, enda hafa samskipti hans og borgarinnar verið stirð á umliðnum árum. Hann ræðir við Björn Þorláks og segist reiður, enda sé borgin beint eða óbeint að stuðla að rasisma. Alexandra Briem, Arna Magnea Danks og Svenný Kristins voru allar ofarlega á listum framboða til sveitarstjórna í nýafstöðnum kosningum. Þær lýsa bakslagi. Oddný Harðardóttir, fyrrum þingmaður, Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri og Ólafur Arnarson blaðamaður ræða fréttir vikunnar. Dýrtíð, vextir, ESB og sveitarstjórnarkosningarnar verða meðal umræðuefna. Björn Þorláks stýrir umræðunni. Þorsteinn Valdimarsson verkefnastjóri Rauða krossins og Kristín Hjörleifsdóttir kennari ræða um íslenskukennslu fyrir útlendinga. Ragnheiður Davíðs stýrir umræðunni. Þeir eru ekki margir sem fara í gegnum tónlistarnám í FÍH á 20 árum. Þorvaldur Sigurbjörn Helgason stígur á stokk í kvöld með útskriftartónleikum úr rytmískri deild. Hann hóf nám við skólann árið 2006. Björn Þorláks ræðir við Þorvald um drauma sem rætast. -
Þriðjudagur 19. maí
Vinstrið, Píratar, vísindi, hamingja og minningartónleikar
Stefán Pálsson sagnfræðingur ræðir við Björn Þorláks um úrkomu kosninganna og hvaða breytinga megi vænta með hægri meirihluta. Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns formaður Pírata segir Gunnari Smára hver framtíð Pírata er og metur hvers vegna svona fáir kusu þá í borgarstjórnarkosningum og til þings. Árni Kristjánsson, prófessor í sálfræði við Háskóla Íslands, sem Gunnari Smára frá rúm- og tímaháðum hugarvenjum sem hann hefur verið að rannsaka, en Samstöðin stefnir að því að fá fleiri vísindamenn á næstu vikum til að uppfræða okkur um rannsóknar sínar. Valgeir Skagfjörð leikari varð fyrir umbreytandi reynslu þegar hann tók þátt í raunveruleikaþættinum Hamingjan sanna fyrir um 15 árum síðan. Valgeir segir Ásdísi frá þessari reynslu en ræðir einnig misnotkun móður sinnar og skömmina sem hann burðaðist lengst af. Stórsöngvararnir og vinir Jónasar Ingimundarsonar heitins, Kristinn Sigmundsson og Gunnar Guðbjörnsson, ræða um Jónas og tónleika sem eru fram undan í samtali við Björn Þorláks. - Laat meer zien