Afleveringen
-
Í þessum lokaþætti Rautt&Hvítt season 2 fékk ég tónlistahetjur mínar úr æsku (fyrir utan Liam og Noel) í spjall. Erfiðasta lífsreynslan tengdist þeirra eigin ungabörnum og við höfum ekki séð það síðasta með Botnleðju. Tónleikaferðalagið með Blur, heimsfrægðin sem aldrei varð, Pollapunk og barnauppeldi í dag. Vín þáttarins var Allegrini Palazzo della Torre, Terrunyo Block 27 og Trapiche Gran Medalla.
-
Þær mæðgur Birgitta Líf og Dísa í World Class spjölluð um hvernig er að reka hátt í 20 líkamsrætarstöðvar. Dísa fór í gegnum ekki gjaldþrot, þótt aðrir hafi reynt að kenna fólki trú um annað. Hvernig maður er Bjössi og hvernig kynntust hann og Dísa. Hvernig tæklar Birgitta neikvæð ummæli og lenti hún í lífsháska ? Vínin sem voru drukkin voru Tignanello, Musar Jeune og Gambino Fed´O. Góða skemmtun :)
-
Zijn er afleveringen die ontbreken?
-
Æði bitarnir Patti og Bassi Maraj fóru á kostum í þessum þætti. Bassi var með skilaboð til framtíðar kærasta síns. Hverjum sögðu þeir fyrst að þeir væru hommar. Hvað mundu þeir aldrei gera og er klám komið út í öfgar ? Þetta og mikið meira í 90mín áhugaverðu spjalli. Strákarnir drukku Tommasi Graticcio, EL Coto og Yeya
-
Þær vinkonur Berglind Guðmundsóttir (þessi sem giftist sjáfri sér á Sikiley) og Dagný Laxdal (fulltrúi venjulega fólksins, hún er samt langt frá því að vera venjuleg) ræddu það að vera miðaldra á lausu, þeirra helsti ótti, áskoranir, skilnaður við maka og hverju einu mundu þær breyta í fortíðinni. Þær drukku Gambino Tiefo 2017, Allegrini Corte Giara 2018 og Gambino Tiefo Rosato 2019
-
Virkilega áhugavert spjall við langlífasta tvíeyki Íslandssögunar. Gunni í lífshættu í veiðiferð, Felix um hvernig það var að koma útúr skápnum, og afhverju er barnaefni lægra skrifað en annað efni hjá elítunni ? Draumaverkefnið, ádeilan á Trump og lykillinn að löngu samstarfi. Strákarnir drukku Allegrini La Griola 2017, Vinyes Ocults 2016 og Gambino Feu d´O 2019
-
Í þessum síðasta þætti af Rautt&Hvítt í þessari seríu þurfti hvorki fleiri né færri en 3 gesti. Gömlu pistlarnir á DV, klippt kreditkort, Atlantic City ferðirnar gerðar upp, tenging á Hooters og versta leigubílaferð sögunar. Strákarnir drukku Gambino Tiefo 2017, Duckhorn 2016 og Big Game.
-
Þær tvær systur mættu fyrir hönd venjulegs fólks í Rautt & Hvítt þessa vikuna. Eðlilega var allskonar rætt. Gifting, skilnaður, leiklist. Hvað er fyndið, draumahlutverkið og hver mundi leika þær í bíómynd. Hvað munu þær gera ef þær ættu milljarð. Torres Gran Coronas, Fontanafredda Barolo Serralunga d´Alba og Van Gogh Riesling lágu í valnum í 2 tíma spjalli.
-
Við bræðrasynirnir settum niður og fórum yfir allskonar. Sony samninginn, hvaða lag vildu þeir hafa samið. Hvor er betri að semja lag, brúðkaup, Eurovision, Ítalíu ferðin sem aldrei var farin og pabbi gamli. Strákarnir drukku (Jón þefaði) Marques de Casa Concha, Tommasi Ripasso og Gérard Bertrand Chardonnay.
-
Þeir Beint í Bílinn bræður ræddu uppsagnir á Stöð 2, 70mínútur, hvernig það er að vinna hjá sjálfum sér. Hvað er fyndið og hverju má gera grín að. Sveppi sagði svo frá því þegar hann þurfti að fá lögfræðing til að útkljá sín mál við 365. Strákarnir drukku Trvento, Plazzo Del Torre og Dark Horse.
-
Benni & Fannar mættu í Rautt&Hvítt og fóru útum allt. Hraðfréttir, skítalaun á mbl.is og RUV, fyrirmyndir, staðan eftir 10 ár. Hvað fer í taugarnar á þeim og Benni sópaði íbuðina hans Ásgeirs Kolbeins óþarflega oft að mati Fannars. Strákarnir drukku Beronia Reserva, Chateau Cortes del Rol og Vill Maria (organic)