Afleveringen
-
Gerðum forsetakappræðunum góð skil og fórum yfir hvernig Ásdís Rán er að fjármagna sína baráttu. Laufey Lín var á Met Gala mögulega fyrst Íslendinga. Dóttir söngkonunnar úr Mamas & the Papas stígur fram og leiðréttir dánarorsök móður sinnar. Whoopie Goldberg er að gefa út ævisögu sína og Starfsmenn kvikmyndahátíðarinnar Cannes eru á leiðinni í verkfall. Þátta og kvikmyndameðmæli að ógleymdum afmælisbörnum.
-
Þriðjudagurinn 7. maí
Ráðherra, ópera, góðverk, kynslóðir og forseti
Guðmundur Ingi Guðbrandsson formaður Vg og félagsmálaráðherra kemur að Rauða borðinu og ræðir um breytingar á almannatryggingum og eilítið um pólitík. Þórunn Gréta Sigurðardóttir tónskáld, Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir leikstjóri og Herdís Anna Jónasdóttir sópran ræða við okkur um Óperuna hundrað þúsund og Jóhanna Engilráð Hrafnsdóttir, Salvör Árnadóttir og Vésteinn Gunnarsson nemendur í Hagaskóla um samfélagslega ábyrgð. Einar Lövdahl Gunnlaugsson skrifaði bókina Gegnumtrekkur sem Hallgrímur Helgason las. Þeir koma til okkar og ræða bókina, kynslóðir, karlmennsku og margt annað. Í lokin segir Viktor Traustason okkur frá forsetaframboði sínu. -
Zijn er afleveringen die ontbreken?
-
Mánudagurinn 6. maí
Átök í þinginu, auðlindir, Gaza og maður í framboði
Björn Þorláks fær fjóra þingmenn og einn varaþingmann til að ræða málin í Þinginu, þar sem einn þingmaður ásakar annan um að vera eitrið sem hafi átt að uppræta. Þingmennirnir Jódís Skúladóttir frá Vg, Andrés Ingi Jónsson frá Pírötum, Dagbjört Hákonardóttir úr Samfylkingunni og Ingibjörg Isaksen frá Framsókn og Brynjar Níelsson varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins takast á. Þorvaldur Gylfason prófessor gagnrýnir frumvarp um lagareldi af ákefð og ekki síður tilraunir Katrínar Jakobsdóttur til að breyta stjórnarskránni. Fida Abu Libdeh orkuumhverfistæknifræðingur og frumkvöðull er íslenskur Palestínumaður og ræðir við okkur um ástandið á Gaza og afstöðu íslenskra stjórnvalda. Í lokin fáum við forsetaframbjóðanda að Rauða borðinu. Eiríkur Ingi Jóhannsson rafvirki segir okkur hvers vegna hann vill verða forseti. -
Að þessu sinni ræðir Grétar Mar við þær Gerði Maríu og Kristínu Arnberg um reynslu þeirra af því að vera konur sjómanna.
-
Sunnudagurinn 5 . maí
Synir Egils: Forseti, mútur, spilling og almannatryggingar
Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Helgi Seljan rannsóknarritstjóri á Heimildinni, Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar og ræða fréttir vikunnar, stöðu stjórnmála og samfélags. Síðan taka þeir bræður stöðuna á pólitíkinni. Alma Ýr Ingólfsson formaður ÖBÍ, Svava Arnardóttir formaður Geðhjálpar og Unnur Helga Óttarsdóttir formaður Þroskahjálpar koma síðan að borðinu og fjalla um frumvarp til breytinga á almannatryggingum -
Laugardagurinn 4. maí
Helgi-spjall: Friðrik Þór
Friðrik Þór Friðriksson kvikmyndaleikstjóri og sagnamaður kemur í Helgi-spjall og segir frá foreldrum sínum, hverfinu og kynslóðinni sem hann spratt af. -
Föstudagur, 3. mai
Vikuskammtur - Vika 18
Í Vikuskammt við Rauða borðið í dag koma þau Hrönn Sveinsdóttir bíóstjóri, Freyr Eyjólfsson tónlistarmaður, Ellen Kristjánsdóttir söngkona og Jón Ferdínand Estherarson blaðamaður og ræða fréttir vikunnar sem voru litaðar af mikilli umfjöllun um forsetakosningar og lítilli um Júróvision, af deilum um hver ætti að eiga firðina, af landrisi á Reykjanesi og pólitísku sigi Vg. -
Fimmtudagurinn 2. maí
Kennarastofan á Bifröst, Atli Örvars, strandeldi og vinstrið
Við byrjum á því að heyra hvernig kennarastofan á Bifröst ræðir um landsins gagn og nauðsynjar. Dr Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, prófessor og forseti félagsvísindadeildar; dr. Njörður Sigurjónsson, prófessor og fagstjóri i menningarstjórnun; dr. Magnús Árni Skjöld, dósent og fagstjóri stjórnvísinda; og Anna Hildur Hildibrandsdóttir, lektor og fagstjóri skapandi greina komaað Rauða borðinu. Við sláum á þráðinn til Atla Örvars sem nýverið vann til Bafta-verðlauna og ræðum við Jóhannes Sturlaugsson líffræðing um strandeldi. Í lokin ræðum við um pólitík og vinstrið sérstaklega við Rósu Björk Brynjólfsdóttur sem bæði hefur setið á þingi fyrir Vg og Samfylkingu. -
Með á nótunum 30. apríl
Britney Spears er komin í vandræði og stefnir í gjald og andlegt þrot. Spáð í spilin með forsetakosningarnar. Kanye West er að byrja í klámbransanum og eltihrellirinn úr Baby Reindeer þáttunum er allt annað en sátt. Bíó meðmæli og afmælisbörn vikunnar. -
Þriðjudagurinn 30. apríl
Kristrún og Samfylkingin, dánaraðstoð, strandeldi og Fúsi
Við byrjum á viðtali við Kristrúnu Frostadóttur formann Samfylkingarinnar um einmitt þettta, Kristrúnu og Samfylkinguna. Steinunn Þórðardóttir formaður Læknafélagsins kemur síðan að Rauða borðinu og ræðir um dánaraðstoð, sem hún er alfarið á móti. Alfreð Sturla Böðvarsson ljósamaður tók sig til og skrifaði gegn strandeldi vegna þess að honum ofbauð. Hvað fær svokallaðan venjulegan mann til að láta í sér heyra? Þeir frændur Agnar Jón Egilsson og Sigfús Sveinbjörn Svanbergsson, kallaður Fúsi, hafa sett um heimildarleikrit um Fúsa. Við ræðum við þá um verkið, erindi þess og forsögu. -
Í dag ætlum við að ræða um kvennaverkföll, feminisma og stéttarbaráttu með Sonju Þorbergsdóttir, formanni BSRB, Söru Stef Hildardóttur, verkefnastjóra hjá Landsbókasafni Íslands, Sönnu Magdalenu Mörtudóttir, borgarfulltrúa Sósíalistaflokksins og Valgerði Þ. Pálmadóttir, nýdoktor í hugmyndasögu.
Við byrjum á því að horfa á stutt brot frá kvennaverkfallinu 1975 og ræðum um árangur baráttunnar, um stöðuna í dag, um hugmyndasögu femínisma og um leiðina fram á við í baráttunni fyrir jöfnuði, réttlæti og mannsæmandi lífi fyrir öll! -
Frelsið er yndislegt - #7 Karlar og fangelsi
Menn sem setið hafa í fangelsi ræða fangavistina. Í þessum þætti koma saman nokkrir menn sem allir hafa setið í fangelsi, og ræða fangavistina frá upphafi til enda. Upphaf afplánunar, þrepaskipting afplánunar, svört menning í fangelsum, meðferðarstarf, nýtt öryggisfangelsi, áhyggjur af ungu fólki á fangelsum, hvaða vímugjafar eru mest notaðir og hvað tekur við eftir afplánun. Viðmælendur þáttarins eru: Ingólfur Snær, Ásgeir Þór og Andri Ástráðs. Stjórnendur þáttarins eru: Guðmundur Ingi Þóroddsson og Ásdís Birna Magnúsdóttir -
Reykjavíkurfréttir, 30. apríl
Húsnæði, hótel, leikskólar og einhverfa.
Sanna Magdalena Mörtudóttir og Halldóra Hafsteinsdóttir fjalla um það helsta sem hefur átt sér stað í borgarmálum upp á síðkastið. Við fjöllum um fyrirhugaða 16 hæða hóteluppbyggingu sem á að reisa á Skúlagötu, umræður um byggingarfélag Reykjavíkurborgar, laun á leikskólum og fræðslumyndband velferðarsviðs um einhverfu. -
Mánudagurinn 29. apríl
Strandeldi, auðlindir, Breiðholt og árshátíð Samstöðvarinnar
Þorgerður María Þorbjarnardóttir formaður Landverndar kemur til okkar og ræðir lagareldi og önnur auðlinda- og umhverfismál. Síðan kemur kemur Óskar Dýrmundur Ólafsson framkvæmdastjóri hverfismiðstöðvar Reykjavíkurborgar í Breiðholti og ræðir um stöðuna í hverfinu, áskoranir og aðgerðir. Síðan breytist Rauða borðið í eldhúspartí á árshátíð Samstöðvarinnar sem er í kvöld, við heyrum í fólkinu sem býr til þætti stöðvarinnar og ræðum fjölmiðla, samfélag og hlutverk Samstöðvarinnar. -
Sjávarútvegsspjallið, 29. apríl
Brottkast, framhjálöndun og vigtarsvindl
Grétar Mar Jónsson ræðir við þá Sigurð Ólafsson og Þórólf Júlían Dagsson um brottkast, framhjálöndun og vigtarsvindl. -
Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Hulda Þórisdóttir prófessor í stjórnmálafræði, Oddný Harðardóttir þingkona Samfylkingarinnar og Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR og ræða fréttir vikunnar. Þeir bræður taka síðan stöðuna og fá svo Eðvarð Hilmarsson kennara í heimsókn til að ræða um hvort Breiðholt brenni.
-
Laugardagurinn 27. apríl
Helgi-spjall: Brynjar Karl
Brynjar Karl Sigurðsson körfuboltaþjálfari kemur í Helgi-spjall og leyfir okkur að kynnast sér og sínum skoðunum, átökum og stríðum. Hvers vegna er hann alltaf í stríði? Hann segir okkur frá fjölmenningunni í Efra Breiðholti í dag og barnaveröld þess Breiðholts sem ól hann upp, segir hvað borgaryfirvöld eru getulaus til að mæta henni og frá goðsögunni um Aþenu, körfuboltafélagi. -
Heimsmyndir, 26. apríl
Sveinn Guðmundsson
Gestur þáttarins er Sveinn Guðmundsson, mannfræðingur við HÍ. Þeir Kristinn reyndu að rýna í heimspeki vinsæls vísindaskáldskapar: Dune, Star Trek og Star Wars. Þessir heimar eru um margt ólíkir. En hugsanlega tengjast þeir engu að síðar þegar betur er að gáð. Sveinn var afar viðræðugóður og skemmtilegur viðmælandi. -
Heima er bezt, 24. apríl
Jakob Frímann Magnússon
Jakob Frímann Magnússon er gestur Sigurjóns M. Egilssonar í þættinum Heima er bezt, sem er á dagskrá klukkan tíu í kvöld. Þeir ræða stjórnmálin og tónlistin kemur einnig við sögu. Stórtónleikar eru fram undan og ýmislegt fleira er í farvatninu. Jakob Frímann hefur frá mörgu að segja og margt fólk ber á góma. - Laat meer zien