Afleveringen
-
Svisslendingar höfnuðu því í þjóðaratkvæðagreiðslu á sunnudaginn að setja takmörk á íbúafjölda landsins, þannig að ekki mættu fleiri búa þar en tíu milljónir. Rætt er við Ólaf Margeirsson, hagfræðing í Sviss, um atkvæðagreiðsluna og hugmyndina.
-
Barnaverndaryfirvöld fengu margar ábendingar um árabil fyrir 2019 að börn sem dvöldu á fósturheimilinu Gauksstöðum í Garði hefðu verið beitt harðræði og ótilhlýðilegum refsingum.
Starfsmenn Barnaverndar Reykjavíkur fóru meira að segja þangað árið 2015 og sóttu dreng sem talið að hefði verið refsað með óásættanlegum hætti. Starfsmaður hjá barnaverndarnefnd Hafnarfjarðar taldi meðal annars að hún yrði treg til að nota þetta fósturheimili aftur.
Þessar ábendingar leiddu samt ekki til þess að leyfi fósturheimilsins til að taka við börnum yrði afturkallað.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í umfangsmiklum gögnum um starfsemi fósturheimilsins Gauksstaða í Garði sem geymd eru á Þjóðskjalasafninu. Gögnin ná allt frá árinu 2009 til ársins 2019 þegar heimilinu var lokað eftir að tæplega 20 börn höfðu lýst reynslu sinni af heimilinu og Barnaverndarstofa kærði málið til lögreglunnar.
Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson -
Zijn er afleveringen die ontbreken?
-
Það styttist í þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið og reglulega birtast niðurstöður skoðanakannana sem gefa mögulega mynd af því sem koma skal. Það sem vakti einna helst athygli í niðurstöðum könnunar Maskínu fyrir DV um helgina var afstaða stuðningsfólks vinstriflokkanna sem vilja að Ísland standi utan Evrópusambandsins, VG og Sósíalista, en 83,3 prósent kjósenda VG ætla að segja já í ágúst og 71,6 prósent Sósíalistaflokksins. Er gjá að myndast á milli grasrótar og forystu annars vegar og stuðningsfólks hins vegar þegar kemur að Evrópusambandinu?
Rætt er við Rósu Björk Brynjólfsdóttur, formann VG, Jón Ferdínand Estherarson, formann Sósíalistaflokksins, og Eirík Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði.
Umsjón: Ingvar Þór Björnsson -
Stærsta mansalsrannsókn sem komið hefur upp á Íslandi hefur nú staðið yfir í meira en tvö ár. Þetta er rannsóknin á meintum brotum víetnamska viðskiptamannsins Quang Lé sem rak veitingastaðinn Wok On í Reykjavík og fleiri.
Hver er staðan á rannsókninni núna og um hvað snýst þetta sérstæða mál
Rætt er við lögreglumanninn Gunnar Axel Davíðsson sem stýrir rannsókninni á málinu hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og frétttakonu RÚV, Urði Örlygsdóttir, sem fjallaði um málið í fréttaskýringaþættinum Kveik árið 2024.
Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson -
Í dag hefst heimsmeistaramótið í knattspyrnu sem að þessu sinni er haldið í Mexíkó, Bandaríkjunum og Kanada. Í þætti dagsins er rýnt í eyríkið Curaçao og hvað skýri velgengni fámennari þjóða á stórmótum. Rætt er við Hólmfríði Garðarsdóttur, prófessor í málefnum Suður-Ameríku, Viðar Halldórsson, prófessor í félagsfræði sem hefur sérhæft sig í íþróttum, og Jóhann Má Helgason, sparkspeking.
Umsjón: Ingvar Þór Björnsson -
Laxeldisfyrirtækið Kaldvík á Austfjörðum á í verulegum fjárhagslegum erfiðleikum um þessar mundir. Ástæðan er fyrst og fremst tap vegna vetrarsára og laxadauða hjá fyrirtækinu. Fyrirtækið þurfti meðal annars að slátra löxum hjá sér sex mánuðum á undan áætlun vegna þessa.
Kaldvík ætlaði sér að framleiða ríflega sextán þúsund tonn af eldislaxi á fyrsta ársfjórðungi þessa árs en endaði á því að framleiða aðeins 10.700 tonn. Fyrirtækið tapaði rúmlega 26 milljónum evra á ársfjórðungnum, eða 3, 7 milljörðum króna. Til samanburðar hagnaðist Kaldvík um tæplega 10 milljóna evra á fyrsta ársfjórðungi ársins 20025.
Þetta kemur fram í árshlutauppgjöri Kaldvíkur sem kynnt var í byrjun júní. Fjallað er um uppgjörið og stöðu Kaldvíkur í dag.
Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson -
Við höldum áfram að ræða þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið - og beinum nú sjónum okkar að áhrifum gervigreindar í upplýsingaöflun og umræðu. Fjölmargar spurningar hafa vaknað um ýmislegt sem tengist Evrópusambandinu og mögulegri aðild Íslands - og borið hefur á því að fjöldi fólks noti gervigreind - ólík spjallmenni - við upplýsingaöflun. Rætt er við Hafstein Einarsson, dósent í tölvunarfræði og sérfræðing í gervigreind, Brynjólf Gauta Guðrúnar Jónsson, tölfræðing, og Skúla Braga Geirdal, sérfræðing í miðlalæsi.
Umsjón: Ingvar Þór Björnsson -
Kvika banki tilkynnti um uppsagnir á ellefu starfsmönnum sama daginn í síðustu viku og hluthafafundur bankans ákvað að greiða rúmlega 10 milljarða króna sérstaka arðgreiðslu út úr bankanum. Fimm stærstu hluthafar bankans eru lífeyrissjóðir.
Hvað segja lífeyrissjóðirnir um þessa arðgreiðslu og þessar uppsagnir samhliða henni?
Fjallað er um þetta og samhengi þessara arðgreiðslu en hún var ákveðin skömmu eftir að hætt var við forviðræður Kviku og Arion banka um mögulegan samruna nú í haust.
Birt eru svör frá Ármanni Þorvaldssyni, forstjóra Kviku, um málið sem og frá tveimur lífeyrissjóðum sem eru meðal stærstu hluthafa Kviku, Gildi og Birtu. Þá er rætt við Ara Skúlason, formann félags starfsmanna fjármálafyrirtækja.
Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson -
Í yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Seðlabanka Íslands kemur fram að skuldir fyrirtækja í byggingastarfsemi hafi vaxið síðustu misseri og að merki séu um vaxandi vanskil, þótt þau séu enn tiltölulega lítil. Þá er það nefnt að lánveitendur þurfi að gæta að aukinni áhættu í geiranum. Húsnæðisverð hafi lækkað að raunvirði, íbúðum á sölu fjölgað og lengur taki að selja eignir, sérstaklega nýjar íbúðir.
Rætt er um þessa stöðu við Moniku Hjálmtýsdóttur, formann Félags fasteignasala, Jóhönnu Klöru Stefánsdóttur, sviðsstjóra hjá Samtökum iðnaðarins, og Jónas Atla Gunnarsson, hagfræðing hjá HMS. -
Fastráðnir læknar á Sjúkrahúsinu á Akureyri voru með verktakagreiðslur fyrir svokölluð ferliverk sem námu á bilinu 33 milljónum og niður í rúmlega hálfa milljón króna fyrir þau árið 2024. Þetta eru verktakagreiðslur ofan á önnur laun sem eru mishá eftir starfshlutfalli.
Níu læknar, eða eignarhaldsfélög þeirra og samlagsfélög í flestum tilfellum, fengu þessar verktakagreiðslur. Heildargreiðslur sjúkrahússins til þessara lækna fyrir þessi ferliverk námu rúmlega 124 milljónum króna árið 2024.
Sjúkrahúsið á Akureyri veitti þessar upplýsingar eftir að fréttastofa RÚV kærði málið til úrskurðarnefndar um upplýsingamál en áður en úrskurður í málinu féll.
Samningar Sjúkrahússins á Akureyri við þessa fastráðnu lækna hafa verið talsvert í umræðunni frá því síðasta haust eftir að þeim var sagt upp á þeim grundvelli að þeir væru ólöglegir.
Fjallað er um þessar verktakagreiðslur og samhengi málsins í þættinum.
Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson -
Í dag beinum við sjónum okkar að skýrslu um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum - sem nokkuð hefur verið deilt um í vikunni. Rætt er við Arnald Sölva Kristjánsson, formann fjármálaráðs og lektor í vinnumarkaðshagfræði.
-
Börn voru vistuð á fósturheimilinu Bakkakoti í Landeyjum árið 2005 án þess að eigendur Bakkakots hefðu haft leyfi til þess frá sveitarfélaginu að taka að sér fósturbörn. Þetta var brot á nýjum barnaverndarlögum sem samþykkt voru árið 2004.
Þegar þetta komst upp bannaði félagsþjónustan í Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu eiganda Bakkakots, Þóru Bernódussdóttur, að taka að sér fleiri fósturbörn.
Þessar upplýsingar koma fram í gögnum um starfsemi Bakkakots frá Þjóðskjalasafninu sem fréttastofa fékk frá safninu. Í gögnunum er að finna síðustu fyrirliggjandi samskipti sveitarfélagsins við Þóru í Bakkakoti um fósturheimilið.
Rætt er við lögmann Bakkakotsmannanna, Bjarka Heiðar Bjarnason um þessi gögn og stöðuna á Bakkakotsmálinu í dag eftir umfjöllun fréttaskýringaþáttarins Kveiks um ofbeldið á heimilinu í febrúar.
Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson -
Í þætti dagsins beinum við sjónum okkar að vítaspyrnum - sögu og sálfræði vítaspyrnunnar - bæði í ljósi helgarinnar og heimsmeistarakeppninnar í knattspyrnu sem hefst í næstu viku. Rætt er við Stefán Pálsson, sagnfræðing og sparkspeking, og Daða Rafnsson, íþróttasálfræðing.
Umsjón: Ingvar Þór Björnsson -
Í byrjun mánaðarins var sagt frá því að Kjörbúðin í Bolungarvík, sem er í eigu smásölufyrirtækisins Dranga, myndi loka.
Degi áður en þessi frétt var sögð sendu Drangar frá sér tilkynningu um að fyrirtækið ætlaði sér að kaupa 25 fasteignir af dótturfélag Kaupfélags Suðurnesja víða um allt. Ein af þessum eignum er fasteignin á Bolungarvík sem hefur hýst starfsemi Kjörbúðarinnar.
En hvað liggur á bak við þessi viðskipti hjá Dröngum og Kaupfélagi Suðurnesja? Rætt er við Auði Daníelsdóttur, forstjóra Dranga, og Sigurbjörn Gunnarsson, stjórnarformann Kaupfélagsins á Suðurnesjum, um það.
Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson -
Við höldum áfram umræðu um sveitarstjórnarmál í þætti dagsins - og beinum nú sjónum að mögulegum breytingum á framkvæmdum sem tengjast samgöngum á höfuðborgarsvæðinu - en þau mál voru mikið rædd í aðdraganda kosninga og breytingum lofað. Rætt er við Þorstein R. Hermannsson, framkvæmdastjóra Betri samgangna.
Umsjón: Ingvar Þór Björnsson -
Einn af uppljóstrurunum í plastbarkamálinu svokallaða í Svíþjóð, Oscar Simonson brjóstholsskurðlæknirinn og blaðamaðurinn Bosse Lindqvist furða sig á því að sænska ríkið hafi ekki haft frumkvæði að því að greiða skaðabætur í málinu.
Þeir eru til viðtals vegna dómsins sem féll í málinu í Héraðsdómi Reykjavíkur í síðustu viku. Þar fékk eftirlifandi eiginkona fyrsta plastbarkaþegans, Andemariams Beyene, Mehrawit Tesfaslase, viðurkennda skaðabótaskyldu íslenska ríkisins gegn henni og sonum þeirra þremur. Mehrawit segist vera þakklát fyrir dóminn og viðurkenningu á skaðabótaskyldunni en að hingað til hafi hún hvorki engið afsökunarbeiðni né bætur frá sænska ríkinu.
Rætt er við Mehrawit og þá Oscar og Bosse um dóminn í Reykjavík og sænskt og alþjóðlegt samhengi plastbarkamálsins sem talið er eitt stærsta hneykslismál í læknavísindum samtímans.
Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson -
Í þætti dagsins er sjónum beint að samningi milli Írana og Bandaríkjamanna. Rætt er við Gísla Jónsson, sérfræðing hjá Geislavörnum ríkisins, Jón Bjarka Bentsson, aðalhagfræðing Íslandsbanka, og Kjartan Orra Þórsson, sérfræðing í málefnum Írans.
-
Hvaða áhrif hefur það á lítið samfélag eins og Vopnafjörð á Austfjörðum þegar einn ríkasti maður heims hefur stundað fjárfestingar þar í áratug?
Þarna er rætt um Jim Ratcliffe, milljarðamæringinn enska, sem er sennilega bæði ríkasti og þekktasti athafnamaður sem hefur stundað fjárfestingar á Íslandi. Samkvæmt lista tímaritsins Forbes er hann í 153 sæti yfir ríkustu menn í heimi. Hann á eignir upp á rúmlega 2200 milljarða króna. Ratcliffe er leigutaki Hofsár og Selár í Vopnafirði og eins landeigandi fjölda jarða við árnar og víðar á norðausturhorni landsins.
Rætt er við Bjart Aðalbjörnsson, rúmlega þrítugan Vopnfirðing og sveitastjórnarmann til átta ára, og Rögnvald Þorgrímsson, formann Ungmennafélagsins Einherja á Vopnafirði, um um samfélagsleg áhrif Ratcliffes í sveitinni.
Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson -
Við höldum áfram að ræða vexti og verðbólgu í þætti dagsins - en það kom líklega fáum á óvart að peningustefnunefnd Seðlabanka Íslands hækkaði stýrivexti út 7,5 í 7,75 prósent í gær - enda í takt við spár greiningardeilda - og meiri þungi hefur færst í umræðuna um nýja þjóðarsátt. Við ræðum þjóðarsáttina 1990 og stöðuna núna við Guðmund Hálfdanarson, prófessor í sagnfræði, og Vilhjálm Birgisson, formann Starfsgreinasambandsins.
Umsjón: Ingvar Þór Björnsson -
Þýska stórfyrirtækið Altano keypti þrjá dýraspítala á Íslandi í fyrra. Þetta eru dýraspítalarnir Í Glæsibæ í Skagafirði, Lögmannshlíð á Akureyri og Drösull í Kópavogi.
Altano hefur á keypt fjölmarga dýraspítala víðs vegar um heiminn á liðnum árum. Altano á í dag meira en 100 dýraspítala víða um heiminn og er með um 2600 starfsmenn. Fyrirtækið er í eigu svissnesks fjárfestingarsjóðs.
Af hverju hefur Altano áhuga á Íslandi og dýraspítölum á Íslandi? Einhverjir bændur á Norðurlandi hafa spurt sig að þessu. Rætt er við dýralækninn Gest Pál Júlíusson um Altano en hann er einn af þeim dýralæknum sem hefur selt hlut sinn í dýraspítala til þýska fyrirtækisins.
Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson - Laat meer zien