Afleveringen
-
Þrítugasti og fyrsti þáttur Trivíaleikanna en í stúdíó 9A mættu að þessu sinni meistararnir Einar og Óli úr hlaðvarpinu vinsæla Tveir Fellar. Einar gekk til liðs við okkar allra besta Inga og Óli plús Kristján mynduðu saman ofurliðið "Króli." Í þessari viku opnuðum við einnig fyrir áskrift að hlaðvarpinu inni á Patreon.com/trivialeikarnir fyrir þá sem vilja fá fleiri þætti og meira efni frá Trivíaleikunum - endilega tékkið á því! Hvaða ógeðfellda hráefni er í Sardinska ostinum Casu Martzu? Hvaða spendýr má sjá í skjaldarmerki Hufflepuff heimavistar í sögunum um Harry Potter? Hvaða þjóð hefur unnið fleiri verðlaun á Vetrarólympíuleikum en nokkur önnur? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.
Keppendur: Ingi, Kristján, Einar og Óli Þorbjörn.
-
Stærsta tilkynning í sögu Trivíaleikanna.
Vertu með og komdu í áskrift: https://www.patreon.com/trivialeikarnir
-
Zijn er afleveringen die ontbreken?
-
Þrítugasti þáttur Trivíaleikanna! Í þennan stórmerkilega tímamóta þátt mættu þau Ástrós Hind, Magnús Hrafn, Ingi og Arnór Steinn í stúdíó 9A og létu til sín taka. Hver er fjölmennasta þjóðin sem hefur aldrei unnið til verðlauna á Ólympíuleikum? Hver er mest seldi PEZ karl allra tíma? Hvaða frumefni og gastegund er notuð til að vernda bandarísku stjórnarskrána? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.
Keppendur: Arnór Steinn, Ástrós Hind, Ingi og Magnús Hrafn.
-
Tuttugasti og níundi þáttur Trivíaleikanna. Að þessu sinni mætti atvinnu- og landsliðsmaðurinn í handbolta Donni Kristjáns ásamt góðvini sínum Tomma í stúdíó 9A. Á móti þeim tóku reynsluboltarnir Kristján og Ingi í hörkuslag þar sem reynt var á nýtt fyrirkomulag nokkurra spurningaliða. Hver er refsingin fyrir að gleyma að segja „ólsen” í spilinu Ólsen Ólsen? Bílamerki hvaða bílategundar er ekki bara fyrsti bókstafurinn í nafninu heldur er einnig talið tákna handaband kaupanda og seljanda bílsins? Hver var síðasti forsætisráðherra Íslands til að útskrifast úr Menntaskólanum við Sund? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.
Keppendur: Kristján, Ingi, Donni og Tommi.
-
Tuttugasti og áttundi þáttur Trivíaleikanna. Til leiks mættu Jón Hlífar, Marín Eydal, Kristján og Ástrós Hind í stúdíó 9A. Hver var Borgarstjóri Reykjavíkur áður en að Jón Gnarr tók við embættinu árið 2010? Hvert er algengasta fyrsta eiginnafn kvenna á Íslandi sem hefst á bókstafnum „E”? Af hvers konar dýri er kasmírull unnin? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.
Keppendur: Jón Hlífar, Marín Eydal, Kristján og Ástrós Hind.
-
Tuttugasti og sjöundi þáttur Trivíaleikanna og fyrsti bónusþáttur í sögu hlaðvarpsins! Í bónusþáttum leyfum við okkur að breyta út af venjulega formattinu og prófa nýja dagskrárliði, ný þemu og algjörlega ný formött. Að þessu sinni var Jólaþema tekið fyrir og mættu til leiks bræðurnir Valdi og Bjarki en þeir tóku á móti Kristjáni og Heiðdísi Maríu í Jólaslag vitsmuna og kímni þar sem miklu meira en Macintoshi og piparkökum var tortímt. Hver er mest selda Jólasmáskífa allra tíma? Hvaða skrápdýr vill Ómar Ragnarsson fá í skóinn í laginu Gefðu mér gott í Skóinn? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.
Keppendur: Valdi, Bjarki, Kristján og Heiðdís María.
-
Tuttugasti og sjötti þáttur Trivíaleikanna. Að þessu sinni mættu Marín Eydal og Arnór Steinn þeim Kristjáni og Hnikarri Bjarma í títanískum slag vitsmuna og kómedískrar fagurfræði. Hvaða tvö tónskáld sömdu The Sound of Music? Hvaða söngkona átti smellinn Milkshake sem kom út árið 2004? Sýklalyf eru stundum kölluð fúkkalyf en hvað þýðir orðið „fúkki"? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.
Keppendur: Marín Eydal, Arnór Steinn, Kristján og Hnikarr Bjarmi.
-
Tuttugasti og fimmti þáttur Trivíaleikanna. Við opnum þáttinn með glænýju og geggjuðu þemalagi en að þessu sinni mættu reynsluboltarnir Ingi og Kristján til leiks á móti Leifi úr 20. þætti og bróður hans Bjarka. Hvaða rómantíska gamanmynd átti upprunalega að heita 3000? Um hve margar gráður hallar skakki turninn í Pisa? Hvaða spænski listamaður hannaði vörumerki Chupa Chups sleikjóa? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.
Keppendur: Bjarki, Ingi, Kristján og Leifur.
-
Tuttugasti og fjórði þáttur Trivíaleikanna. Jón Hlífar og Marín Eydal tóku á móti Ástrós Hind og Kristjáni í rosalegum þætti af hlaðvarpinu skemmtilega. Hvaða hljómsveit ber skammstöfun sem stendur fyrir Bangtan Sonyeondan? Hver var fyrsta þjóðin til að senda kött út í geim? Hvers konar baunir eru notaðar í hefðbundið mexíkóst Chili con carne? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.
Keppendur: Ástrós Hind, Jón Hlífar, Kristján og Marín Eydal.
-
Tuttugasti og þriðji þáttur Trivíaleikanna sem útvarpað var í beinni á Útvarp Mosfellsbæ sem partur af bæjarhátíðinni Í túninu heima. Arnór Steinn og Ástrós Hind tóku á móti Inga og Kristjáni í hörkuþætti þar sem snert var á einu og öðru úr heimabæ hlaðvarpsins. Hvert er lengsta fljót Bandaríkjanna? Hvaða tæki skapaði Alexander Graham Bell til að bjarga lífi James A. Garfield forseta Bandaríkjanna? Í upphafsatriði hvaða sjónvarpsþátta grípa aðalpersónurnar epli sem dettur af skilningstrénu? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.
Keppendur: Arnór Steinn, Ástrós Hind, Ingi og Kristján.
-
Tuttugasti og annar þáttur Trivíaleikanna sem og annar þemaþátturinn í sögu hlaðvarpsins. Að þessu sinni var þemað tölvuleikir sem þýðir að allar spurningar þáttarins snúast um tölvuleikjasenuna en í þáttinn mættu tveir fyrrum keppendur Arnór Steinn og Marín Eydal en einnig Óli Jóels og Daníel Rósinkrans frá Gametíví. Hvort er Dartrix pokémon eða stinningarlyf? Hvaða svindlkóða notuðu spilarar til að fá pening í upprunalega Sims leiknum? Hve mörg rauð ljós blikkuðu í hinu hrikalega Red Ring of Death sem Xbox eigendur óttuðust meira en allt? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.
Keppendur: Marín Eydal, Arnór Steinn, Óli Jóels og Daníel Rósinkrans.
-
Tuttugasti og fyrsti þáttur Trivíaleikanna en í þessum þætti mættu gömlu reynsluboltarnir til leiks í stúdíó 9A þegar Jón Hlífar og Magnús Hrafn tókust á við Kristján og Inga í einhverjum rosalegasta þætti hlaðvarpsins hingað til. Frá hvaða landi kemur rétturinn Massaman Karrí upprunalega, í hvaða blóðflokki eru fæstir íslendingar, hvaða ár komu leikjatölvurnar Playstation 3 og Nintendo Wii fyrst út? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.
Keppendur: Jón Hlífar, Magnús Hrafn, Kristján og Ingi.
-
Tuttugusti þáttur Trivíaleikanna en í þennan tímamótaþátt mættu tveir nýjir keppendur til leiks Valdi og Leifur frá borðspilahlaðvarpinu Pant vera Blár! Kristján og Ástrós mættu til leiks á ný eftir svekkjandi endi á síðasti þætti og freista þess hér að sækja sigur í hinu goðsagnakennda stúdíó 9A. Hvað heitir mennski strákurinn í sögunni um Bangsímon? Hvað kallast túnfífill eftir að hann hefur afblómgast? Hvaða kvikmynd frá tíunda áratugnum gerði línuna „Hasta la vista, baby" ódauðlega í poppkúltúr? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.Keppendur: Kristján, Ástrós Hind, Valdi og Leifur.
-
Nítjándi og einn allra besti þáttur Trivíaleikanna. Að þessu sinni mættu tveir nýjir keppendur til leiks, Marín Eydal frá Gametíví og Ástrós Hind frá hlaðvarpinu Listin og Lífið. Með Marínu í liði var okkar allra besti Arnór Steinn og með Ástrós í liði var okkar einnig allra besti Kristján. Er Bambi Elínmundur löglegt nafn samkvæmt Mannanafnanefnd? Hvað heitir erkióvinur pabba Ronju Ræningjadóttur? Safi hvaða ávaxtar er notaður í kokteilinn „Screwdriver?" Hvaða frægi leikari talar fyrir persónuna Sideshow Bob í sjónvarpsþáttunum vinsælu The Simpsons? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.
Keppendur: Arnór Steinn, Marín Eydal, Kristján og Ástrós Hind.
-
Átjándi þáttur Trivíaleikanna og sá fyrsti á árinu 2023. Í þessum frábæra þætti mættu tvö lið til leiks í Mekka Trivíaleikanna í stúdíó 9a. Kristján og Hnikarr Bjarmi tókust á við Inga og Heiðdísi Maríu eða Heiðingja eins og liðið er orðið þekkt nú til dags. Í hvaða ríki Bandaríkjanna er að finna Miklagljúfur? Hvaða leikkona talaði fyrir gervigreindina í kvikmyndinni Her frá árinu 2013? Hvort eru fleiri umferðarljós á höfuðborgarsvæðinu eða bílastæði í bílastæðahúsi Hörpu? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.
Keppendur: Kristján, Hnikarr Bjarmi, Ingi og Heiðdís María.
-
Sautjándi þáttur Trivíaleikanna og sá síðasti á þessu ári. Við bombuðum í þennan aukaþátt sem jólagjöf til ykkar kæru hlustendur, gleðilega hátíð og takk fyrir að hafa fylgt okkur í gegnum þetta fyrsta ár okkar sem kornungt hlaðvarp. Þið eruð einfaldlega best. Að þessu sinni tók lið Stefáns Más og Stefáns Geirs eða Stefán í öðru veldi á móti reynslumiklu liði Kristjáns og Jóns Hlífars í glænýju stúdíói eða Stúdíó 2. Hver er næst fjölmennasta borg Grikklands? Hvaða ávöxtur er þurrkaður til þess að búa til sveskjur? Hver var fyrsta leikjatölvan sem var gefin út með innbyggðum hörðum disk? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.
Keppendur: Stefán Geir, Stefán Már, Jón Hlífar og Kristján.
-
Sextándi þáttur Trivíaleikanna en að þessu sinni mættu liðin tvö til leiks í stúdíó 22 í annað skiptið. Kristján og Heiðdís María tóku á móti Inga og nýja keppandanum Fanneyju Ósk í stórskák vitsmuna og vitneskju afar seint um kvöld. Hver er stærsta eyja Breiðafjarðar? Hvaða lið hefur fallið næst oftast úr ensku úrvalsdeildinni? Hvað heitir kaffihúsið í sjónvarpsþáttunum Seinfeld? Í hvaða mánuði fæðast flest börn í Bandaríkjunum? þetta og margt annað er tæklað í þættinum.
Keppendur: Kristján, Heiðdís María, Ingi og Fanney Ósk.
-
Fimmtándi þáttur Trivíaleikanna en í þessum magnaða þætti tókust á tvö lið reynslubolta þegar Arnór Steinn og Ingi mættu Kristjáni og Jóni Hlífari yfir glasi af öli. Ekkert var til sparað og útkoman varð ein af betri þáttum hlaðvarpsins hingað til. Hver er besti árangur Afríkuríkis á HM karla í knattspyrnu? Hvað hefur gamla útgáfan af kettinum Klóa margar tær á hvorum fæti? Eftir hvaða leikriti Williams Shakespeare var unglingakvikmyndin 10 Things I Hate About You skrifuð? Hver slapp einn úr Njálsbrennu og hefndi þeirra sem brunnu inni á Bergþórshvoli? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.
Keppendur: Arnór Steinn, Ingi, Kristján og Jón Hlífar.
-
Fjórtándi þáttur Trivíaleikanna en í þessum yndislega þætti mættu Magnús og nýliðinn Stefán Már til leiks gegn Inga og Hnikarri Bjarma. Engu var haldið aftur og stoðir íslensks trivíasamfélags titruðu undan stúdíói 9A. Að þessu sinni bættist A4 og Kubbabúðin í hóp styrktaraðila hlaðvarpsins ásamt ELKO. Hvor hefur gengið í gegnum fleiri skilnaði Kevin Bacon eða Ted Bundy? Hvenær lokaði McDonalds skyndibitakeðjan á Íslandi? Úr hvaða ávöxt er meðlætið „Asíur" framleitt? Hvert er íbúaheiti einstaklinga frá Kyrgyzstan? Í formum hvaða fyrirbæra eru sykurpúðarnir í morgunkorninu Lucky Charms? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.
Keppendur: Magnús Hrafn, Stefán Már, Ingi og Hnikarr Bjarmi.
-
Þrettándi þáttur Trivíaleikanna. Í þessum frábæra þætti mættu í stúdíó 9A tvö lið reynslubolta en Jón Hlífar og Kristján tókust á við Inga og Hnikarr Bjarma. Að þessu sinni var ekkert til sparað og þá er þetta einnig fyrsti þátturinn í nýju samstarfi ELKO og Trivíaleikanna þar sem ELKO er orðinn styrktaraðili hlaðvarpsins. Í hvaða landi eru flestir pýramídar heims? Hvort hefur Jackie Chan gefið út fleiri stúdíóplötur eða unnið fleiri óskarsverðlaun? Hvort eru fleiri tröppur fyrir framan Akureyrarkirkju eða einbreiðar brýr á hringveginum? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum.
Keppendur: Jón Hlífar, Kristján, Ingi og Hnikarr Bjarmi.
- Laat meer zien