Afleveringen
-
Margboðaður þáttur um Stop Or My Mom Will Shoot. Og reyndar svo miklu meira, ferill Sylvester Stallone gerður upp í hátíðarþætti. Henry Birgir Gunnarsson og Benedikt Bóas Hinriksson vita allt sem hægt er að vita um málið. Minnum á afmælispöbbkviss Tveggja á toppnum á Stúdentakjallaranum miðvikudagskvöldið 28. maí klukkan 20:00. Veglegir vinningar!
-
Pöbbkviss Tveggja á toppnum til að fagna hundrað þáttum fer fram í Stúdentakjallaranum kl. 20:00 miðvikudagskvöldið 28. maí (frí daginn eftir!)
-----
Förum yfir víðan völl. Tóti rifjar upp sögur frá Cannes og segir okkur hvað er að frétta af kvikmyndahátíðinni sem fer þar nú fram. Ræðum líka nýjustu Final Destination myndina. -
Zijn er afleveringen die ontbreken?
-
Förum yfir víðan völl. Pöbbkviss á Stúdentakjallaranum kl. 20:00 þann 28. maí. Mobland. Sinners. En aðallega Andor sería tvö.
-
Biðst Arnar Tómas Valgeirsson loksins afsökunar á aðför sinni að Marvel? Hlustendur láta hann heyra það.
-
Baráttudagur verkalýðsins er hátíðisdagur hjá Tveimur á toppnum. Gestir fá því frí. Ræðum það sem við erum að horfa á, það sem er framundan og jú njósnamyndir og þætti. Og miklu fleira!
-
Sjöunda vertíð af Black Mirror rædd í þaula. Halldór Auðar Svansson og Arnar Tómas Valgeirsson mæta. Takið frá 28. maí þegar Tveir á toppnum fagna hundrað þáttum!
-
Sneisafullur páskaþáttur af allskonar blaðri, páskaeggjum og páskamyndum. Arnar Tómas gerir þriðju tilraun til þess að mæta með Marvel trogið.
-
Oddur og Tóti skila nýjum þætti allt of seint en bæta það upp með heilum 84 mínútum þar sem þeir rekja hversdagslegar raunir sínar, halda áfram að minnast Vals Kilmer. Oddur kveður einnig upp sinn Minecraft dóm og Tóti hágrætur yfir lokaþætti 1923 og nýjustu niðurlægingu Mickey Rourke.
-
Smá yfirferð yfir þáttinn sem glataðist. Allskonar: Severance, Reacher, Daredevil osfrv. Hvíl í friði Val Kilmer. Hver var maðurinn? Yfirferð og meira til.
-
Kolbrún Bergþórsdóttir guðmóðir þáttarins heiðrar Tvo á toppnum með nærveru sinni og fer yfir þáttinn sem allir eru að tala um.
-
Valur Gunnarsson og Birgir Olgeirsson ræða Mickey 17 eftir Bong Joon-ho í þaula. Alvöru umræður, á dýptinni. En fyrst: Á hvað eru menn að horfa á? Talið berst svo að Óskarnum, hinum víðfræga Óskarstjékka og fleiru.
-
Yfirferð yfir Óskarinn 2025. Hvað kom á óvart? Hvað ekki? Er blockbusterinn í útrýmingarhættu? Mickey 17 og Captain America: New Brave World, svo fátt eitt sé nefnt.
-
Endurkoman mikla eftir tveggja vikna havarí. Hjartastopp í eldhúsinu. Bandaríkjaferð. Andlát Gene Hackman og Michelle Trachtenberg. Hvað erum við að horfa á? Pólitísk áhrif Tveggja á toppnum og Óskarsspáin 2025 með óvæntu lokainnslagi.
-
Úr rauðri veðurviðvörun: Tveir á toppnum standa ávallt vaktina. Kristín Ólafsdóttir fréttakona Stöðvar 2 greinir Babygirl með þeim Nicole Kidman og Harris Dickinson í frumeindir. Margt annað: Kynlíf í bíómyndum, ungir menn í kirkjunni, kynsvelt og kassalaga Z kynslóð, vinna á tímum veiru, back 2 back bíóferð í Ástralíu og miklu fleira.
-
Þórður Pálsson leikstjóri hryllingsmyndarinnar The Damned mætir og ræðir myndina, hvernig hugmyndin kviknaði, leikaravalið, tökurnar á Vestfjörðum og margt fleira tengt kvikmyndum, kvikmyndagerð og leikstjórn, svo fátt eitt sé nefnt. Umræða án spilla.
-
David Lynch lést í liðinni viku. Hvíl í friði. Gerum upp ferilinn. Fyrst aðeins um Óskarstilnefningar 2025. Svo er það Lynch, Lynch og aftur David Lynch. Sérstakir gestir: Theodóra Björk Guðjónsdóttir og Magnús Jochum Pálsson.
-
Suður-kóreska undrið er mætt aftur á Netflix eftir þriggja ára bið. Ræðum allar kenningarnar, hvernig okkur fannst fyrri hluti seríunnar vs. seinni. Margt fleira. Sérstakur gestur: Vésteinn Örn Pétursson, sérfræðingur í málefnum Suður-Kóreu og fréttamaður á Stöð 2, Vísi og Bylgjunni.
-
Aðeins um Golden Globe og bruna í Hollywood. Nosferatu eftir Robert Eggers. Endurkoma vampírunnar? Hvers vegna eru vampírur svona sexí? Sérstakur gestur: Bríet Blær Jóhannsdóttir.
-
Jakob Bjarnar Grétarsson blaðamaður mætir og ræðir skoðanir sínar á Skaupinu 2024 á sinn eigin hispurslausa hátt. Alvöru umræður.
-
Aldís Amah Hamilton fer með risahlutverk í jólamynd Hallmark sem gerist á Íslandi, The Christmas Quest. Hún er sérstakur gestur í jólaþætti Tveggja á toppnum 2024. Ræðir myndina (án spilla!), jólahefðirnar, næstu hlutverk og miklu miklu fleira. Gleðileg jól! <3
- Laat meer zien