Afleveringen

  • Björgvin Víglundsson, margreyndur skákmeistari og byggingaverkfræðingur, er gestur Kristjáns Arnar í þessum þætti. Umræðuefnið er að mestu gamlir erlendir skákmeistarar og heimsmeistaraeinvígið í skák 2024 sem fara mun fram í Singapúr dagana 25. nóvember til 13. desember nk. Það verða Kínverjinn Ding Liren (32 ára) ríkjandi heimsmeistari og áskorandinn Gukesh Dommaraju (18 ára) frá Indlandi sem takast munu á um heimsmeistaratignina. Heildarverðlaunafé verður tvær og hálf milljón dollara eða um 350 milljónir íslenskra króna.

  • Gestur Kristjáns Arnar í þættinum í dag er Björn Þorfinnsson ritstjóri DV.is. Hann var útnefndur alþjóðlegur meistari í skák árið 2009 og hefur náð tveimur áföngum að stórmeistaratitli. Það er því engu logið þegar fullyrt er að hann sé í hópi sterkustu skákmanna landsins. Þeir félagar, Björn og Kristján, fóru um víðan völl og ræddu meðal annars um atskákkeppni taflfélaga sem lauk í gær, liðsgöngu Björns í Taflfélag Vestmanneyja, Íslandsmótið í netskák sem er rúmlega hálfnað, EM félagsliða í haust, EM einstaklinga sem er framundan, Arsenal-mótið í London í byrjun desember, skemmtileg kráarmót á Bretlandseyjum, heimsmeistaraeinvígið í skák sem hefst í Singapúr 25. nóvember nk. á milli Kínverjans Ding Liren (32 ára) ríkjandi heimsmeistara og áskorandans Gukesh Dommaraju (18 ára) frá Indlandi og margt fleira sem hlusta má í spilaranum.

  • Zijn er afleveringen die ontbreken?

    Klik hier om de feed te vernieuwen.

  • Gestir þáttarins að þessu sinnu eru þeir Guðmundur G. Þórarinsson, verkfræðingur og fyrrverandi alþingismaður, Einar S. Einarsson fyrrverandi forstjóri VISA á Íslandi og Hilmar Viggósson fyrrverandi bankaútibússtjóri. Guðmundur og Einar eru báðir fyrrverandi forsetar Skáksambands Íslands og Hilmar er fyrrverandi gjaldkeri sambandsins en þeir Guðmundur og Hilmar voru við stjórnvölinn þegar „Einvígi aldarinnar“ fór fram í Laugardalshöll árið 1972 á milli þáverandi heimsmeistara í skák, Sovétsmannsins Boris Spasskys og Bandaríkjamannsins Roberts Fischers.

    Eins og flestir vita sem fylgjast með skák veitti Alþingi Fischer íslenskan ríkisborgararétt þann 21. mars árið 2005. Hann lést í Reykjavík 17. janúar 2008 eftir baráttu við alvarleg nýrnaveikindi. Hann var jarðsettur í kyrrþey að eigin ósk í kirkjugarði Laugardæla í Flóa.

    Í þættinum rifja þeir upp „gömlu góðu dagana“ en einnig segja þeir frá, að á 100 ára afmæli FIDE sem haldið var í Búdapest fyrir stuttu hafi heimsmeistaraeinvígið í skák 1972 verið valið "Minnisstæðasti skákviðburður allra tíma" í sögu FIDE. Auk þess var Friðriki Ólafssyni, fyrrverandi forseta FIDE veitt þakkarviðurkenning fyrir störf hans í þágu Alþjóðaskáksambandsins (FIDE).

  • Kristján Örn tekur á móti Kjartani Briem formanni skákdeildar Breiðabliks og framkvæmdarstjóra Isavia ANS en félagið er dótturfélag Isavia sem annast flugumferðarstjórn í íslenska flugstjórnarsvæðinu. Í upphafi þáttar segir Kjartan aðeins frá starfi eða hlutverki Isavia ANS en svo snúa þeir sér að starfinu hjá Skákdeild Breiðabliks. U-25 hópur Breiðabliks tekur nú í fyrsta skipti þátt í Evrópumóti félagsliða sem fer fram í Serbíu dagana 20. til 26. október. Þrjár umferðir hafa verið tefldar og hefur liðið staðið sig ágætlega og er í 38 sæti af 84 liðum sem taka þátt í keppninni. Í síðustu umferð gerði Vignir Vatnar jafntefli við Boris Gelfand sem á sínum tíma var einn allra sterkasti skákmaður heims (2.777 elo-skákstig árið 2013) og keppti m.a. einvígi við Vishy Anand um heimsmeistaratitilinn í skák árið 2012. Einvígið endaði með jafntefli 6-6 en Anand hélt titlinum á oddastigum, þ.e. þeir tefldu fjórar atskákir sem enduðu með sigri Anand 2,5 - 1,5. Kjartan talar um ungu og efnilegu krakkana í skákdeildinn og vill hann sjá átak í að fjölga stúlkum í skák og að skákhreyfingin setji sér mælanlega markmið. Hann segir fákeppni á milli þeirra helst há framförum hjá þeim. Sé horft fram um nokkur ár sér hann jafnvel fyrir sér sérstaka kvennadeild í skák sem yrði þá háð á öðrum tíma en hið hefðbundna Íslandsmót skákfélaga. Margt annað kom fram í spjalli þeirra Kristjáns og Kjartans en hlusta má á þáttinn í heild sinni í spilaranum.

  • Gestur Kristjáns Arnar Elíassonar í þættinum að þessu sinni er skákmeistarinn, heimspekingurinn og félagsfræðingurinn Þorvaldur Logason en hann er höfundur hinnar umdeildu bókar Eimreiðarelítan - Spillingarsaga sem kom út í lok síðasta árs. Megin þema eða inntak þáttarins er spilling og svindl í skák, þ.e. misnotkun valds. Í þættinum skilgreinir Þorvaldur þessi hugtök, hann kemur inn á elítur og valdaelítur, beitingu valdsins, s.s. úthlutun embætta, segir skemmtilegar sögur af fyrrum heimsmeisturum og forsetum FIDE. Margt annað athyglisvert barst í tal sem hlusta má á í spilara þáttarins.

  • Gestur þáttarins er Vignir Vatnar Stefánsson stórmeistari og langstigahæsti skákmaður landsins. Vignir er 21 árs gamall, hann er atvinnumaður í skák og er stofnandi og eigandi vefsíðunar http://www.vignirvatnar.is en þar er að finna mikið og gott kennsluefni í skák fyrir byrjendur jafnt sem lengra komna. Kjartan Briem formaður skákdeildar Breiðabliks kíkti einnig í heimsókn í byrjun þáttarins en hann kemur svo aftur sem gestur þann 23. október nk. Vignir Vatnar fór yfir skákárið hjá sér en hann hefur teflt yfir 100 kappskákir í sumar, nefndi mótin, sagði frá sterkum mótherjum sem hann mætti, markmiðunum sem hann hefur sett sér og sagði frá vefsíðu sinni og mörgu fleira.

  • Gestur Kristjáns Arnar er Þorsteinn Þorsteinsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri markaðs- og þróunarsviðs hjá RÚV og núverandi ritstjóri Hagstofu Íslands. Þorsteinn er liðsstjóri Taflfélags Vestmannaeyja; hann er FIDE meistari og einn af betri skákmönnum landsins.

    Í þættinum fer Þorsteinn yfir Ólympíumótið í skák og einstaka árangur hvers liðsmanns íslensku liðanna. Mótinu lauk fyrir nokkrum dögum en teflt var í Búdapest, höfuðborg Ungverjalands. Þorsteinn segir að bjóða þurfi upp á sterk lokuð alþjóðleg skákmót hér á Íslandi fyrir okkar bestu skákmenn, að þeir þurfi að fá tækifæri til að tefla vel upp fyrir sig. Hann segir að fyrirkomulagið á opna Reykjavíkurskákmótinu henti þeim ekki og vill gera breytingar á mótinu á þann hátt að einnig sé keppt í lokuðum sterkum flokkum samhliða mótinu. Síðar í þættinum er fjallað um Íslandsmót skákfélaga sem hefst á morgun, fimmtudag. Það verða um 400 manns sem sitja munu að tafli í 5 deildum yfir helgina en keppt verður í Rimaskóla í Grafarvogi. Í lok þáttar minnist Þorsteinn vinar síns, FIDE meistarans Elvars Guðmundssonar sem lést 14. september sl. og tileinkar honum lagið The Rain Song með Led Zeppelin en þeir félagarnir héldu mikið upp á hljómsveitina Led Zeppelin.

  • Gauti Páll Jónsson er gestur Kristjáns í þessum þætti. Tímaritið Skák kemur út í næstu viku eða á sama tíma og fyrri hluti Íslandsmóts skákfélaga hefst í Rimaskóla. Þeir félagar fara inn á efnistök nýjasta blaðsins og annað skáktengt efni en ritstjórinn vildi þó ekki greina frá öllu efni tímaritsins og segir að það sé fyrir kaupendur blaðsins að lesa og skoða. Blaðið verður til sölu í Rimaskóla um næstu helgi eða á meðan Íslandsmótið fer þar fram.

  • Björgvin Víglundsson, margreyndur skákmeistari og byggingaverkfræðingur, heimsótti Kristján Örn í þáttinn að þessu sinni. Björgvin sagði að árið 1958, þegar hann var 12 ára gamall, hafi hann verið að fylgjast með og skrá niður skák Friðriks Ólafssonar og Inga R. Jóhannssonar í Landsliðsflokki. Þá hafi Bragi Kristjánsson komið að honum og hvatt hann til að taka þátt í Íslandsmótinu í 2. flokki í skák það árið sem hann og gerði. Það hafið verið upphafið að hans þátttöku í skákmótum.

    Björgvin talaði um hversu feykilega mikilvægur Friðrik Ólafsson hafi verið fyrir íslenskt skáklíf og nefnir nokkra samferðamenn hans og þá sérstaklega stórmeistarann Guðmund Sigurjónsson.

    Í þættinum kemur fram að Björgvin hefur tvisvar teflt fyrir Íslands hönd á Ólympíuskákmótum. Hann kemur inn á gríðarlega öflugt starf Jóhanns Þóris Jónssonar fyrir skákhreyfinguna, talar um ómannlega taflmennsku Magnúsar Carlsen, uppgang Hans Niemanns sem nú sé loks viðurkenndur á meðal þeirra bestu í heimi. Björgvin talar um árangur Vignis Vatnars á skákmótum að undanförnu og þeirri trú sinni að hann geti náð langt. Hann segir að næstu skref Vignis hljóti að vera að tefla á sterkum skákmótum og þá helst á mótum sem hann teflir vel upp fyrir sig. Björgvin lýsir hugmynd sinni um opna mótaröð með háu gólfi þar sem útreikningur stiga ræður því hver fær úthlutað hæstu peningastyrkina frá skákhreyfingunni en stórmeistaralaunin munu heyra sögunni til eftir næstu áramót. Hann telur jafnframt að val í landsliðið eigi að ráðast af getu og virkni á sérstökum mótum meðal þeirra bestu. Margt annað kom til tals í þættinum sem heyra má í spilaranum.

  • Gestur Kristjáns Arnar í þættinum í dag er einn af okkar sterkustu og þekktustu skákmeisturum. Hann var á sínum tíma á meðal allra sterkustu skákmanna heims. Þetta er stórmeistarinn Jóhann Hjartarson en hann starfar í dag sem yfirlögfræðingur Íslenskrar Erfðagreiningar.

    Þeir Kristján og Jóhann gefa sér góðan tíma til að ræða þátttöku Íslendinga á Ólympíumótunum í skák í gegnum tíðina en fyrsta formlega Ólympíumótið fór fram í London árið 1927. Íslendingar tóku fyrst þátt þegar mótið var haldið í Hamborg í Þýskalandi árið 1930 og hafa ávallt verið á meðal þátttökuþjóða utan árin 1931, 1935 og 1950. Þeir ræddu Ólympíumótin í Buenos Aires 1939, Havana 1966, Möltu 1980, Dubai 1986, Manila 1992 og svo spáðu þeir og spekúleruðu í Ólympíumótinu í Ungverjalandi sem hefst í höfuðborginni Budapest í næstu viku en 1. umferð verður tefld 11. september. Margt annað kom til tals hjá þeim félögum, eins og skákfréttir líðandi stundar, sem hlusta má hér í spilaranum.

  • Dr. Oddgeir Ágúst Ottesen var gestur Kristjáns Arnar að þessu sinni. Þeir ræddu aðallega um barna- og unglingstarf hjá KR, Íslandsmót skákfélaga í október og vendingar í félagaskiptum en KR-ingar hafa styrkt sig verulega frá því í fyrra. Einnig ræddu þeir EM ungmenna sem nú fer fram í Prag í Tékklandi, komu inn á Ólympíumótið í skák sem fram í Búdapest í Ungverjalandi í næsta mánuði og ýmislegt fleira.

  • Það er stórmeistarinn Helgi Áss Grétarsson núverandi Íslandsmeistari í skák sem setst niður Við skákborðið að þessu sinn.

    Þeir Kristján Örn ræða um nýlokið Borgarskákmót sem lauk með sigri Helga, Ólympíuskákmótið sem haldið verður í Búdapest í Ungverjalandi dagana 10.-23. september nk. Þeir töluðu við Björn Ívar Karlsson nýráðinn skólastjóra Skákskóla Íslands sem í morgun fór utan með stóran hóp barna og unglinga á EM ungmenna í Prag í Tékklandi. Um er að ræða 23 keppendur, 4 þjálfara og fjölda aðstandenda eða alls um 60 manns. Þetta mun vera langstærsti hópur sem Skáksamband Íslands hefur sent til keppni á erlenda grund. Helgi sagði frá undirbúningi stórmeistarans Vignis Vatnars Stefánssonar fyrir Ólympíumótið en hann hefur verið iðinn við að keppa á mótum erlendis í sumar, hækkað mikið á skákstigum og hefur Helgi mikla trú á okkar yngsta stórmeistara.

    Einnig ræddu þeir um flesta af sterkustu skákmönnum heims sem hafa verið að keppa sín á milli að undanförnu, s.s. á Saint Louis at- og hraðskákmótinu sem Alireza Firouzja vann, Sinquefield Cup mótinu sem er í fullum gangi, væntanlegt einvígi Magnúsar Carlsen og Hans Niemann í París í byrjun næsta mánaðar og heimsmeistaraeinvígi núverandi heimsmeistara kínverjans Ding Liren og indverjans Dommaraju Gukesh en það mun fara fram í Singapúr dagana 20. nóvember til 15. desember nk. Það er því hægt að fullyrða að heimsmeistaratitillinn verður áfram í Asíu.

  • Gestir þáttarins eru skákmeistararnir Þorvarður Fannar Ólafsson og Birkir Karl Sigurðsson. Þorvarður hefur margoft heimsótt Filippseyjar en eiginkona hans er ættuð frá borginni San Carlos sem er á eyju sem heitir Negros. Hann segir sögu af ferðalagi sínu á fjölmennt helgarskákmót sem haldið var í borginni Bacolod og kynnum sínum af grjóthörðum filippseyskum skákmönnum. Þorvarður segir það algengt að teflt sé upp á peninga í verslunarmiðstöðvum og því oft viðhöfð ýmis brögð í tafli eins og að hagræða úrslitum á efstu borðum í lokaumferðum skákmóta. Í síðari hluta þáttarins var slegið á línuna til Birkis Karls Sigurðssonar þáttastjórnanda hjá Chess After Dark en hann hefur komið að skipulagningu á Íslandsmótinu í netskák sem hefst 25. ágúst nk. Óánægju hefur orðið vart hjá einhverjum skákmönnum þar sem 13 keppendur af 16 fá boðsæti beint í útsláttarkeppnina og þurfa því ekki að tefla í sjálfri undankeppninni eins og aðrir skákmenn til að tryggja sér sæti í mótinu. Þrír af sterkustu netskákmönnum landsins fengu ekki boð en það eru alþjóðlegu meistararnir Arnar Gunnarsson, Jón Viktor Gunnarsson og Davíð Kjartansson en þeir hafa margoft orðið Íslandsmeistarar í netskák og staðið uppi sem sigurvegarar á sterkum netskákmótum undanfarin ár. Einnig hefur það vakið athygli að Rafíþróttasamband Íslands heldur mótið en ekki Skáksamband Íslands. Há peningaverðlaun eru í boði en verðlaunafé er ein milljón króna og verður sýnt beint frá mótinu í Sjónvarpi Símans. Heyra má svar Birkis Karls við ofangreindum athugasemdum í þættinum.

  • Gestur Kristjáns Arnar í skákþættinum í dag er Hörður Jónasson, forseti Vinaskákfélagsins en Vinaskákfélagið hlúir að skáklífinu í Vin jafnframt því að efna til viðburða í þágu fólks með geðraskanir í samvinnu við athvörf, búsetukjarna, geðdeildir, félagsamtök og einstaklinga. Í síðari hluta þáttarins spjalla þeir einnig símleiðis við Róbert Lagerman gjaldkera Vinaskákfélagsins og fyrrverandi forseta þess en hann er nýkominn heim úr enn einni skákferðinni til Grænlands. Í þættinum segir Hörður frá hvernig hann kynntist skákinni fyrst, hvernig hann hóf að vinna fyrir Vinaskákfélagið, var kosinn í stjórn þess og tók loks við embætti forseta félagsins árið 2022. Hörður fór yfir tilgang, stefnu og markmið Vinaskákfélagsins og segir það öðruvísi en flest önnur skákfélög. Hann talaði um alþjóðlega geðheilbrigðismótið, jólaskákmótið á Kleppi, heimsóknir í athvörf og búsetukjarna til að gefa skáksett og klukkur, Hrafn Jökulsson og fleira gott fólk sem kom að stofnun Vinaskákfélagsins árið 2003 og hefur starfaði og keppt fyrir félagið.

  • Það var fjölmennt og góðmennt Við skákborðið í dag. Kristján Örn tók á móti feðginunum Katrínu Ósk Tómasdóttur 9 ára og Tómasi Tandra Jóhannssyni ásamt FIDE meistaranum Halldóri Grétari Einarssyni fv. formanni skákdeildar Breiðabliks og fv. varaforseta Skáksambands Íslands. Síðar í þættinum bættist svo við FIDE meistarinn og skákkennarinn Björn Ívar Karlsson símleiðis frá Vestmannaeyjum en hann var mættur þar snemma til að taka þátt í Þjóðhátíðinni í ár. Umræðuefnið í þættinum er stuttur en glæsilegur skákferill Katrínar Óskar en hún hefur aðeins æft og telft skák síðan í febrúar á þessu ári en hún æfir hjá Haukum í Hafnarfirði undir leiðsögn Jóhönnu Bjargar Jóhannsdóttur og Auðbergs Magnússonar. Áhugann fékk hún fyrst þegar hún tefldi drepskák við Sjöfn ömmu sína og þegar hún var í 3. bekk í Hvaleyrarskóla en þar var kennd skák undir handleiðslu Steinars Stephensen og Ægis Magnússonar. Hjörvar Steinn Grétarsson stórmeistari hefur tekið Katrínu Ósk í einkatíma, eftir að hafa heyrt margt gott um hana, og undirbýr hana m.a. undir þátttöku í EM ungmenna sem fer fram í Prag í Tékklandi síðar í sumar. Í þættinum er rætt var um skák hjá yngstu kynslóðinni, samskipti við foreldra, æfingar og styrkjamál og hvernig best væri hægt að koma til móts við þarfir ungra og efnilegra skákbarna og unglinga.

  • Kristján Örn tekur aftur á móti dr. Yngva Björnssyni prófessor í tölvunarfræði við Háskólann í Reykjavík aðra vikuna í röð. Í síðustu viku ræddu þeir um gervigreind og skák og heldur umræðan áfram nú þar sem Yngvi upplýsir frekar um hinar ýmsu hliðar gervigreindar. Yngvi segir frá þeim gervigreindarrannsóknum sem hann hefur fengist við í gegnum árin þar sem hann hefur notað skák og aðra svipaða borðleiki sem viðfangsefni. Hann nefnir m.a. tölvukerfi sem læra af reynslu, útskýranlega gervigreind (e. explainable AI) og alhliða leikjagreind. Yngvi varð ásamt Hilmari Finnssyni, meistaranema hans við Háskólann í Reykjavík, heimstmeistari í keppni alhliða leikjaforrita sem haldin var í Vancouver í Kanada árið 2007. Þeir vörðu heimsmeistaratitilinn í gervigreind ásamt öðrum meistaranema, Gylfa Þór Guðmundssyni, þegar þeir urðu heimsmeistarar í gervigreind á stærstu gervigreindarráðstefnu heims sem haldin var í Chicago árið 2010 en þá lögðu þeir öðru sinni að velli Háskólann í Kaliforníu (UCLA) í úrslitum. Þeir ræddu um nýja löggjöf Evrópusambandsins um gervigreind sem tekur gildi 1. ágúst næstkomandi, lagaleg og siðferðileg álitamál, persónuverndarlög og höfundarréttarmál, hvort gervigreind hefði tilfinningar og hvað kerfi eins og risamállíkön ChatGPT, Copilot og Gemini geta og geta ekki gert.

  • Gestur Kristjáns Arnar í þessum þætti er Dr. Yngvi Björnsson, prófessor í tölvunarfræði við Háskólann í Reykjavík. Hann var einn fyrsti doktorsmenntaði Íslendingurinn sem lagði áherslu á gervigreind en hann hefur lengi stundað kennslu og rannsóknir á því sviði. Hann er jafnframt áhugamaður um skák og hefur notað tölvuskák sem viðfangsefni í mörgum af sínum rannsóknarverkefnum.

    Í þættinum ræða þeir félagar um áhuga Yngva á tölvunarfræði, gervigreind og tölvuskák en skákin hefur einmitt átt stóran þátt í þeim áhuga. Yngvi segir að skákin eigi sér langa og merkilega sögu sem mikilvægt umfangsefni í gervigreindarrannsóknum. Hann segir að í ár séu liðin 50 ár frá því að fyrsta heimsmeistaramótið í tölvuskák fór fram og framan af hafi verið mikill áhugi fyrir þessum mótum sem hafi þó farið dvínandi seinni ár. Seinasta opinbera heimsmeistaramótið í tölvuskák verður haldið síðar á þessu ári. Árið 2005 var mótið haldið á Íslandi og var Yngvi einn af skipuleggjendum mótsins. Árið 1996 tók Yngvi þátt í heimsmeistaramótinu ásamt samnemanda sínum, vísindamanninum Andreas Junghanns, en mótið fór fram í Jakarta höfuðborg Indónesíu. Skákforrit þeirra hét The Turk, í höfuðið á skákvél sem byggð var árið 1770. Tyrkinn (e. The Turk) var ekki raunveruleg vél, heldur vélræn blekking. Maður var inni í vélinni sem vann við stjórntækin. Með hæfileikaríkan skákmann falinn inni í vélinni vann Tyrkinn flestar skákirnar. Það lék og vann viðureignir gegn mörgum þar á meðal Napoleon Bonaparte og Benjamin Franklin.

    Yngvi og Kristján ræddu um Deep Blue ofurtölvuna, AlpahaZero ofurforritið, Stockfish sem er sterkasta skákforriti í heimi og talið vera með styrkleika upp á 3.634 skákstig - þó í raun sé erfitt að meta það nema gegn öðrum skákforritum. Margt annað fróðlegt og skemmtilegt bar á góma og var ákveðið að Yngvi kæmi aftur í heimsókn næsta miðvikudag þar sem þeir félagarnir munu halda áfram að ræða um skák og gervigreind.

  • Gestir þáttarins í dag eru þeir Sveinbjörn Jónsson, Súgfirðingur, áhugaskákmaður og fyrrverandi trillukarl og Gauti Páll Jónsson, fyrrverandi formaður Taflfélags Reykjavíkur, sagnfræðingur og ritstjóri tímaritsins Skákar.

    Sveinbjörn sagði frá skákstarfinu á Súgandafirði og á Vestfjörðum hér á árum áður en Sveinbjörn sá meðal annars um skólaskák á Vestfjörðum um árbil. Hann sagði frá sterkum skákmönnum á Vestfjörðum og minntist á að Jóhann Þórir hefið haldið eitt af sínu frægu helgarskákmótum á Suðureyri við Súgandafjörð. Sveinbjörn er hagyrðingur góður og hefur samið margar vísur, lög og texta og fór hann með tvær skáktengdar vísur í þættinum. Spiluð voru tvö lög eftir Sveinbjörn. Lagið Driftwood sem fjallar um eilífðina, hafið og rekavið en hann tileinkaði lagið Hrafni Jökulssyni skákfrömuði sem jarðsettur var í kistu úr Vestfirskum rekaviði og lagið Ættfræði óttans sem er andsvar Sveinbjörns við setningu Einars Ben: "Ótti er virðingar faðir og móðir" en Sveinbjörn hefur miklar mætur á skáldinu Einari Ben.

    Gauti Páll sagði frá starfinu í Taflfélagi Reykjavíkur og mótahaldi félagsins í sumar en félagið er eitt af fáum skákfélögum sem heldur starfinu gangandi yfir sumarmánuðina. Hann rifjaði upp að þeir Sveinbjörn hafi telft saman í Gallerý Skák fyrir u.þ.b. 10 árum og að síðasa skák þeirra, sem var kappskák, hafi endað með jafntefli. Að launum fékk hann breitt bros frá hógværum Sveinbirni.

    Þeir félagar ræddu svo um heimsmeistaramót 50 ára og eldri sem fram fer í Kraká í Póllandi en síðasta umferðin verður tefld á morgun. Íslenska sveitin, skipuð "fjórmenningaklíkunni" frægu ásamt stórmeistaranum Þresti Þórhallssyni, leiddi mótið fyrir 7. umferð sem tefld var í gær gegn feykisterkri sveit Bandaríkjamanna. Íslenska sveitin var ein í efsta sætinu fyrir umferðina en tapaði viðureigninni (1-3) og á því veika von á að hremma gullið nema bandaríska sveitin misstígi sig í síðustu tveimur umferðunum. Íslenska sveitin á þó enn góða möguleika á að enda á verðlaunapalli.

    Tal barst að unga og efnilega skákfólkinu okkar og hinum argentíska Faustino Oro sem í síðasta mánuði varð yngsti alþjóðlegi skákmeistari skáksögunnar og sló þar með met hins bandaríska Abhimanyu Mishra um einn mánuð og fjóra daga. Faustiono er aðeins 10 ára gamall, fæddur 14. október 2013 en nýverið vann hann bestu skákmenn heims, heimsmeistarana Magnús Carlsen og Hikaru Nakamura, í hraðskák (1. og 3. mínútna skákir) á skákþjóni vefsíðunnar Chess.com.

  • Grænlandsfararnir Róbert Lagerman FIDE meistari og alþjóðlegur skákdómari og Veronika Steinunn Magnúsdóttir blaðamaður og laganemi eru gestir Kristjáns Arnar í þessum þætti. Þau ræða um útbreiðslu skákíþróttarinnar á Grænlandi sem skákfélagið Hrókurinn undir forystu Hrafns Jökulssonar heitins kom á í byrjun aldarinnar. Róbert fer til Grænlands núna í júlí og verður það 74 ferðin hans til Grænlands til að "breiða út fagnaðarerindið" eins og skákmenn svara gjarnan þegar þeir eru spurðir út í tilganginn með þessu öllu saman.

    Skákfélagið Hrókurinn hefur síðan árið 2003 unnið markvisst að útbreiðslu skákíþróttarinnar á Grænlandi. Áður var skák þar nánast óþekkt. Hrókurinn hefur farið í fjölmargar ferðir til Grænlands, heimsótt mörg þorp og haldið námskeið, fjöltefli og skákmót. Útbreiðsla skákíþróttarinnar hefur verið mikil og hefur félaginu alls staðar verið vel tekið. Má fullyrða að fjölmörg börn og fullorðnir tefli nú á Grænlandi fyrir tilstuðlan Hróksins.

    Róbert segir að Hrafn hafi sagt sér að markmiðið með öllum þessum ferðum væri að skapa gleðistundir fyrir börnin en ekki kílówattsstundir eins og Landsvirkjun. Hann segir að Hrókur­inn og Kalak, sem er vinafélag Grænlands og Íslands, hafi fyrst og fremst að leiðarljósi að auka sam­vinnu Íslend­inga og Græn­lend­inga á sem flest­um sviðum, sér­stak­lega þeim sem lúta að hags­mun­um barna. Grannþjóðirn­ar í norðri geti margt hvor af ann­arri lært, þegar vinátta og virðing séu í fyr­ir­rúmi.

    Róbert talar um störf Hrafns og Stefáns Her­berts­sonar á Grænlandi. Hrafn hafi leitt skák­land­nám Hróks­ins á Græn­landi frá upp­hafi auk þess að hafa verið virk­ur í starfi Kalak. Stefán sé fv. formaður Kalak og upp­hafsmaður hins ár­lega sund­krakka­verk­efn­is, en þá er 11 ára börn­um frá aust­ur­strönd­inni boðið til Íslands til að læra sund og kynn­ast ís­lensku sam­fé­lagi.

    Margt annað athyglisvert ber á góma hjá þeim Róberti og Veroniku í þættinum, m.a. grænlenskur matur, ísbirnir, sleðahundar, sauðnaut, menning, samgöngur, margvísleg félagsleg vandamál á Austur-Grænlandi og það, að Grænlenska skáksambandið hafi sótt um inngöngu í FIDE en umsóknin verður tekin fyrir á þingi Alþjóðaskáksambandsins sem haldið verður samhliða Ólympíuskákmótinu í Búdapest í Ungverjalandi dagana 10.- 23. september nk.