Afleveringen
-
Gunnlaugur og Ármann fagna 70. þætti og ræða söngleikinn Koppafeiti (Grease), meðal annars Grís-æði vorsins 1979 og Grease Horror sýningu Fjölbrautarskóla Suðurlands sem þó er ekki djarfasta sýning söngleiksins á Íslandi. Talið berst að samskiptum í foreldrahópum, hugmyndum Schopenhauers um þjáningu og leiðindi, bók Ármanns um smápersónur, of fullkomnu fólki, hugarfari listaskólanema, method-leik Dustin Hoffman, himnaflugi og stjörnuhrapi Travolta, eldri konum í stjórnunarstöðum, áhrifum Maríu Gripe, fallistum í fegrunarskólum og ein niðurstaða spjallsins er að þessi söngleikur snúist um grímur og gervi. En er nokkuð betra í heiminum en góð bókmenntafræði? Var Sandy pólsk eða áströlsk? Ætti Frenchy að vera í bæjarstjórn? Er bomm gott orð? Þurfum við fleiri brjálæðinga? Er betra að hafa lunkinn boðskap en skýran? Hvaða hlutverki gegnir Gústi Lill í sögu söngleiksins? Og hvert verður framhald menningarlegasta hlaðvarps Íslands?
-
Gunnlaugur og Ármann fá góðan gest, Kristínu Lilju Thorlacius til að ræða frægasta glymskrattasöngleik sögunnar, Mamma Mia sem Judy Craymer, Catherine Johnson og Phyllida Lloyd spunnu upp úr lögum Björns og Benny úr ABBA og er hugsanlega lægsti mögulegi tónlistarsamnefnarinn. Tvö af þremur eru afar hrifin af lögum ABBA en Gunnlaugur furðu ósnortinn. Talið berst að miklu viðskiptaviti Svíanna, hvernig ABBA fundu upp tónlistarmyndböndin, tregðu þeirra til endurfunda, flughræðslu Agnethu, aðdáun Ástrala á fjórmenningunum og lögum sem söngvarar ráða ekki fullkomlega við að syngja til samanburðar við lög sem eru beinlínis samin fyrir leikara með lítið raddsvið. En er 55 ára fólk kannski allt í lagi? Er Super Trouper djúpur texti? Er gott að Meryl Streep sé ekki fullkomin? Er Stellan heitastur allra? Voru ABBA gamansöm? Er Björn skeggjaðra nafn en Benny?
-
Zijn er afleveringen die ontbreken?
-
Gunnlaugur og Ármann (oft kallaðir Statler og Waldorf óperuheimsins) ræða stórvirki Mozarts, Don Giovanni, og eru aldrei þessu vant frekar hrifnir þó að Mozart fari illa með tenórinn. Sönn iðrun, flókin sögusamúð, hefndarþyrstar aukapersónur og hinn nýlátni José van Dam koma við sögu en talið berst líka að auðginntum sveitapiltum, líkindum Leporello og Fígaró, allsnöktum púkum og RÚV-börnum sem þrá efni frá Stöð 2. En hvor er betri, Anthony Hopkins eða Brian Cox? Er Don Giovanni heitari en Heated Rivalry? Er fólk sem er kúl iðulega vitlaust? Og hvað á að gera ef talandi stytta kemur í heimsókn og biður mann að breyta um hegðun?
-
Gunnlaugur og Ármann ræða nú óperu John Adams, Nixon in China (1987) og um leið kínverk stjórnmál 1960–1980 og hvernig kaldrifjað útspil á kosningaári tryggði framhaldslíf mannkynsins. Talið berst einnig að hinum erótíska sjónvarpsþætti Heated Rivalry, hipp og kúl rithöfundum, mönnum sem svitna mikið, stórleikaranum Paul Giamatti, kvikmyndinni Tillsammans, Maófötum 8. áratugarins, svarthvítum kvikmyndum um atómvísindamenn, ódýrum vinsældum listrænna markaðsafurða, fólki sem tekur hvatningu mjög illa, framhaldslífi Mao Tse-tung og hinnar dularfullu eiginkonu hans. En er John Adams skyldur 2. og 6. forseta Bandaríkjanna? Hversu marga syni átti hinn upphaflegi Adam? Hvað sagði Gore Vidal um Nixon? Eru góðir eiginmenn góðir forsetar? Var kona Maós nærsýn eða fjarsýn? Var Maó andfúll? Hver eru tengsl Deng Xiaoping við bridsíþróttina? Er einhver munur á Martin Sheen og David Spade? Og hvernig gengur Gunnlaugi og Ármanni að minnast ekki á manninn sem drottnar yfir heiminum núna?
-
Gunnlaugur og Ármann eru komnir til New York og búnir að kynna sér Sögu úr Vesturbænum (West Side Story) sem upphaflega hét East Side Story og hefur tvisvar verið kvikmynduð og auk heldur verið flutt á Íslandi. Þeir ræða líka tegundaflokkun sviðsverka með miklum söng, stöðu Puerto Rico í Bandaríkjunum, hið mikla nef Bernsteins, muninn á grínmyndum og Green-myndum, þjóðerni Morgan Kane, dularfullan dauða Natalie Wood, Two Set Violin grínistana og nýja fjórtán binda skáldsögu Ármanns. En hvað með glæpagengin á Íslandi? Hvað eru fráfærur? Hvað er EGOT? Hverjir eru búnir að gúgla „Ansel Elgort covid picture“? Hvernig tekst Ármanni að koma frasanum „korter í Miðflokk“ að? Og hvers vegna drap Gunnlaugur konu sína?
-
Gunnlaugur og Ármann geta ekki haldið sig frá Verdi og nú er það óperan sem mörgum finnst sú besta í heiminum, Rigoletto, sem var fyrsta íslenska óperusýningin hjá Þjóðleikhúsinu árið 1951. Talið berst meðal annars að sjálfum Stefanó Íslandi, líkindum Rigoletto við Ölkofraþátt, tyrkneskum teppasölumönnum, hörðum kennurum, dauðarómantík 19. aldar og Íslandsmeti Guðmundar Jónssonar í löngum tón. En er Rigoletto aðeins Figaro fátæka mannsins? Er Pavarotti sannfærandi í dulargervi? Hvað er líkt með háskólamönnum og konunum á Istedgade? Voru konungarnir á Sikiley óvenju harðir? Er Ármann Kate Bush Íslands?
-
Ármann og Gunnlaugur ræða frægustu leðurblöku menningarsögunnar, þ.e. Die Fledermaus eftir sjálfan valsakónginn Johann Strauss yngri sem hugsanlega fann upp söngleikinn. Eins hvernig snobb og lágkúra fara saman eða hvernig góð gagnrýni eigi að vera. Þá berst talið að íslensku uppfærslunni 1999 sem látin var gerast í Grafarvoginum, rússablæti tveggja metra Íslandsvinarins Rolf Rippert, hundinum Snoopy og brennuvarginum Eduard Strauss. En hvað gerist þegar dívurnar Lucia Popp og Gruberova eru saman á sviðinu? Er Downton Abbey miðjumoð? Er í alvörunni til söngvari sem heitir Wolfgang Windgassen? Líkist Ármann áttræðum mönnum? Hver drap höfund Litla prinsins? Er Ísland leðurblökuland? Og kann hvorugur stjórnandinn að telja?
-
Gunnlaugur og Ármann halda alla leið til Egyptalands að ræða frumsýningu Aidu sem Ismail khediv pantaði af Giuseppe Verdi þegar Súezskurðurinn var opnaður. Talið berst einnig að brottför Roberto Alana úr sýningu Zeffirellis, Sam Wanamaker og dóttur hans, Oddi lögmanni og Gyldenløve stiftamtmanni, hinum austur-evrópska framburði á þ og eina núlifandi konung heimsins sem ekki man eftir ríkisári sínu. Að sjálfsögðu er líka rætt um Íslandsvininn Pavarotti, besta vin Kryddpíanna, og þeir reyna eftir megni að forðast „bodyshaming“. En hvað finnst Gunnlaugi og Ármanni um Leó páfa? Eru ostrur og lambakjöt hættulegur matur? Er hægt að syngja Aidu í gallabuxum? Hvað er líkt með Verdi og Limahl? Hefði Callas sungið Ragnheiði biskupsdóttur vel? Getur páfi heitið Kenny?
-
Gunnlaugur og Ármann eru uppfullir af heilögum anda þegar þeir ræða rokkóperuna Jesus Christ Superstar sem fyrst var konseptplata og hefur verið sýnd um heim allan og er líka afar „meta“. En þeir ræða líka eina nótt í Bangkok með öllu nema Yul Brynner, dansverkið Hringi Orfeusar, Amal og næturgestina, Getsemane-falsettuna, þrjá of fjórum meðlimum ABBA, sjakalagaul Sebastians Bach og byltingar sem fara út af sporinu, En hvernig voru helgileikir í Langholtsskóla haustið 1976? Hvor syngur betur, Jesús eða Júdas? Hlýtur maður sem heitir Jewison að vera gyðingur? Eru Farísear heitari en aðrir menn? Hvaða sérstöku hæfileika hefur Pétur úr bíómyndinni? Voru blaðamenn eins fyrir 2000 árum? Hefur Páll 6. páfi góðan tónlistarsmekk? Og munu þeir ræða „umbrella man“ áður en yfir lýkur?
-
Nú eru Gunnlaugur og Ármann komnir að hinum tilfinningasama stórreykingamanni Puccini og óperu hans Madame Butterfly sem Malcolm McLaren gerði fræga á ný árið 1984 og varð síðar að söngleiknum Miss Saigon. Talið berst einnig að leikriti David Hwang, tónleikaflutningi á aríum, menningarnámi Gwen Stefani, Susan Boyle og háa tóninum, Chuck og Bob í Löðri, „the willing suspension of disbelief“ og að fílnum í herberginu (sem er ekki endilega bleikur). En er sjónvarpsgerðin af Flimtani og fáryrðum væntanleg? Er klappið skemmtilegra en sjálf óperan? Er ævisagnabíómyndin letilegasta form listarinnar? Gerir framrás tímans hlutina betri? Er nokkur munur á 15 og 45? Er ópólitísku fólki hætt við að verða fasistar? Hver eru venslin milli Ladda og Butterfly? Og fjarlægja kúkableiurnar væmnina úr fólki?
-
Gunnlaugur og Ármann hafa afar misjafnar skoðanir á Töfraflautunni, hinstu óperu Mozarts, en eru sammála um ágæti kólóratúrsöngkonunnar Cristinu Deutekom. Talið berst að sjálfsögðu að frímúrurum, stolnum jólalögum, Hanswursthefðinni, þrítölunni, Rokklingunum, rassabókum, Herra Bean og „krípi stelpunni“. Um leið upplýsa þeir ungviðið um hvað ipod var, lýsa yfir aðdáun á ódýrum páskaeggjum, ræða eftirhermuleik og glæpastarfsemi á Jersey, og Ármann fær tækifæri til að viðra aðdáun sína á Valdimar Briem og Ingmar Bergman. En eru skartgripir fyrir bæði kyn? Stenst Papageno MeToo-kröfur? Er Guð Birkenstockklæddur félagráðgjafi? Skilja börn nokkuð sem þau sjá? Hefur skátaeiðnum verið breytt? Fer Tumi á fætur?
-
Fáir tengja Gilbert og Sullivan við hrollvekjur en Gunnlaugi og Ármanni tekst samt að gera það í þessum þætti þar sem rætt er um The Mikado, Savoy-óperuna, „patter song“, grínbarítóna, rímsnilld Gilberts og fleiri einkenni þessara ágætu bresku samstarfsmanna. Talið berst einnig að framlínustarfsfólki, samfélagsmiðlahegðun James Blunt, gaslýsingum Mary Poppins, sjálfsmorðshugleiðingum lítilla fugla og hættunni á að mannkynið þróist aftur í apa. En fann Egill Skalla-Grímsson upp endarímið? Eru menn sem eru fyndnir á sviði ófyndnir í einkalífinu? Eru gangaverðir gulls ígildi? Er erfitt starf að vera lögga? Les ljótt fólk bækur? Ætti að leggja niður sveitarfélög? Er fyndni skapbætandi?
-
Gunnlaugur og Ármann eru á leið í brúðkaup og fyrir því stendur sjálft undrabarnið Wolfgang (ásamt Lorenzo Da Ponte). Brúðkaup Fígarós er iðulega talin besta ópera allra tíma þó að aðalandstæðingarnir reynist óvænt vera foreldrar söguhetjunnar. Talið berst einnig að tegundaflokkun gamanópera, endurnýtingu óperustefja, fornu bakkelsi og eldri talsetningarhefðum, mistryggum aðlögunum og gagnrýni, prima noctis reglunni alræmdu, löngu týndum föðurbræðrum, gröðum unglingum, tólf ára hjákonum, fegurð ítölskunnar og hlaðvarpshlustendum frá Eyjaálfunni. En hvaða heimsfrægi bókmenntatexti hefst á orðinu fimm? Hvaða frægi hlaðvarpsprófessor var alinn upp rétt hjá Glæsibæ? Er Gunnlaugur sigma? Hvernig er hægt að koma strámönnum inn í þessa umræðu? Er Trump persóna úr opera buffa? Hvað eru sjónvarpssokkar? Og hefur einhver hlustað á allar 22 óperur Mozarts?
-
Gunnlaugur og Ármann gæða sér á tournedos og ræða þriðja frægasta Jóakim nútímans, tónskáldið Rossini og hina vinsælu óperu hans, Rakarann í Sevilla. Rossini sló snemma í gegn en þróaðist frá opera buffa yfir í ellisyndir á langri ævi og var jafnan spaugsamur lífsnautnamaður. Talið berst einnig að 18. aldar ævintýramanninum Beaumarchais, mikilvægi dulargerva fyrir gamansögur, samskiptum Rossini og Beethoven, þekktum ólífuolíum, fornu barnabókunum um Kim, Greifanum af Montecristo, tönnum og hárkollum, Tinnabókunum, svissneskum menningarhetjum og hinum afbrýðisama Giovanni Paisiello. En var 19. öldin öld unga fólksins? Var Figaro Jeeves síns tíma? Hvað er með seku móðurina? Er Ármann óvissuferðartýpan? Hvenær er fólk gamalt? Eru enn haldnar grettukeppnir? Og þarf alltaf að vera gant?
-
Ármann og Gunnlaugur snúa aftur í fimmta jólaþátt þessa langlífa, sívinsæla og sumir myndu segja sígilda hlaðvarps en sérstakur gestur þessa sögulega þáttar er Kristín Lilja Thorlacius Björnsdóttir kvikmyndafræðingur og eiginkona Gunnlaugs. Í tilefni jólanna er ekki rætt um óperur heldur söngleikinn The Rocky Horror (Picture) Show og næstum samnefnda kvikmynd. Auk þess er rætt aðeins um konfekt og kjötsvita, bandaríska neytendavernd, framburð Englandsdrottningar, þátttökusýningar og hvernig alvörufólkið horfir alltaf á löngu gerðina. En er enn til fólk sem man þegar Meatloaf var stór? Þýðist „Dammit, Janet“ vel á önnur mál? Hvað hefur Sean Bean dáið í mörgum bíómyndum? Hverjar eru bestu jólamyndirnar og hvað eiga andfætlingar skylt með geimverum? Hvernig tekst Gunnlaugi að koma Star Trek að? Er George Lazenby látinn? (Þátturinn er ekki góð heimild um það) Og hvað er líkt með sérlega ljótum aukaleikurum og ráðstefnugestum í Eddu?
-
Gunnlaugur og Ármann ræða Carmen eftir franska tónskáldið Bizet og í leiðinni óhjákvæmilega 19. aldar rithöfundinn Prosper Mérimée og söngkonuna Mariu Callas. Gunnlaugur segir hræðilegan brandara um Bach og Offenbach og eftir það getur þátturinn ekki annað en batnað. Sögunni víkur að tækniblæti Frakka, hollenska sjálfræðinu, barnabókum með smyglurum og sígaunum, covidtímanum sællar minningar og muninum á matador og picador. En getur verið að þeir séu sammála um ágæti Carmen? Eru 17 àra vopnaðir hermenn traustvekjandi? Er Don José incel, „rannsaka“ listamenn eitthvað og muna hlustendur eftir Bláskjá?
-
Gunnlaugur og Ármann ræða óperettu sem Ármann hefur raunar séð á sviði, Kátu ekkjuna eftir Franz Lehar sem var meistari léttleikans og gleðinnar fyrir utan að hefja þrítugu konuna til vegs og virðingar í óperettuheiminum og semja mörg „Tauberlied“. Árið 1905, staðurinn er keisaraveldið Austurríki-Ungverjaland og meðal þess sem ber á góma eru latir tenórar, Parísarbragurinn, fullorðinsaldur hobbita, íhaldssemi 16 ára unglinga, samúðarleysi Ármanns með barnastjörnum, smáríkjakomplexinn, Framsóknarkassinn, Romy Schneider, áramótaskaupið 1986, söngrödd Trumps og tónlistarsmekkur Hitlers. En var Lehar of frjálslyndur þegar kom að framhjáhaldi og vændi? Eru pabbabrandarar bestir? Var Geddan geitin? Eru þýskar gamanmyndir og gamanmyndir Ingmars Bergman þær bestu? Var Björn M. Ólsen virkilega spaugari og sprellari? Er Gunnlaugur ekki snobb? Drakk Jussi Björling jafn mikið og Richard Burton eða bílstjóri Díönu prinsessu? Hvað á Káta ekkjan sameiginlegt með Litlu hryllingsbúðinni? Hvernig kemur ABBA inn í málin? Mun Flimtan og fáryrði taka upp símatíma? Og lærir Gunnlaugur loksins að kveðja hlustendur í lok þáttarins?
-
Nú beina Gunnlaugur og Ármann sjónum að sjálfum Richard Wagner og tveimur af þekktustu óperum hans, Rínargullinu og Valkyrjunni. Gunnlaugur rekur raunir sínar úr alþjóðlegum Wagner-hópum og síðan berst talið að jafnvel enn verri aðdáendum hans sem höfðu listamannsmetnað sjálfir. Eins ræða þeir Gesamtkunstwerk og „willing suspension of disbelief“, framburðarslekju, „verkamannaklassík“ og hið mikla dúettatímabil, ofstuðlun Wagners, áhrif hans á John Williams og JRR Tolkien, ægishjálma og grimmdarónæmi, lepp Óðins og Moshe Dayan, hundingja og brjóstumkennanlega dverga, háa f-ið og drengi í mútum, breytta endurtekningu og frjálslegar goðsagnatúlkanir. En er helsta einkenni sérfræðinga að ekkert skilst sem þeir segja? Var Mahler „Gloomy Gus“ og Freddy Mercury „grænseoverskridende“? Er klæmið að draga augað í pung? Ættu allir fundir Miðflokksins að hefjast á aríu Sigmundar? Þýðir hojotoho eitthvað? Líkar fasistabullum illa við nútímalist? Var pappadrekinn Katla ógnvekjandi á sínum tíma? Er skynsamlegt að taka af sér ósýnileikahring fyrir framan mannætukóngulær? Hversu lengi getur maður verið að draga sverð úr tré? Og hvernig tókst Lady Mondegreen að troða sér inn í þennan þátt?
-
Ármann og Gunnlaugur eru ekki sérfróðir um óperur eins og þeir hamra á en hafa báðir horft á Ævintýri Hoffmanns (1881) eftir Frakkann Jacques Offenbach, samtíðarmann Verdi og Wagners. Þar með hafa þeir hætt sér inn í fúafenjasvæði gamanóperunnar og umræðuna um hvort grín þýðist yfirleitt. Fram kemur að Ármann þekkir tónlistina mjög vel en hafði ekki hugmynd um efni óperunnar eða að hún sé um E.T.A. Hoffmann (1776-1822). Eins ræða þeir vélmenni, hugtakið „impresario“, karaktertenóra, buxnahlutverk, nálægð dauðans, orðið „bölmóð“, þjóðsagnasannleik, tvífaraminnið, fótboltalagið frá HM 1982 og smásögu Þórarins Eldjárns „Síðasta rannsóknaræfingin“ þar sem áhrif Hoffmanns á Galdraveiði Jónasar. En hvort er Offenbach líkari bandarískum melludólg frá 8. áratugum eða íslenskum stjörnulögfræðingi? Hver er fremstur af tenórunum þremur? Er það ævistarf að vera stúdent? Er gott að vera höfuðstór? Er Ögmundur Eyþjófsbani með í þessari óperu? En hvað kemur Charli XCX málinu við? Eða orðið „dagskrárvald“? Og getur Ármann troðið Freud inn í umfjöllun um þessa frönsku gamanóperu?
-
Nú fer hlaðvarpið rækilega út fyrir þægindarammann, yfirgefur Íslendingasögur í bili og beinir sjónum að óperum í staðinn. Í fyrsta þætti er rætt um Ótello (1887) eftir græningjann Giuseppe Verdi og vin hans Boito. Enginn man eftir Busseto en Gunnlaugur og Ármann ræða sameiningu Ítalíu, nýlendustefnuna, Odd lögmann, hugtakið FOMO, Ivan heitinn Rebroff, eldri skilgreiningar á offitu, Nietzsche og sjálfsvorkunn, Karate Kid endi, hinn stórkostlega Paul Robeson og fyrstu óskarstilnefningu Maggie Smith. En hvert er hið félagslega samhengi sögunnar um márann frá Feneyjum? Skiptir sakleysi Desdemónu máli? Var Iago níhilisti? Eru ástríðuglæpir réttlætanlegir? Verða óperusöngvarar fyrir miklum fitufordómum? Og hvað með hljómburðinn?
- Laat meer zien