Afleveringen
-
Uppbótartíminn snýr aftur eftir stutt sumarfrí.
Rætt er um umferðina sem var að klárast í Bestu deildinni en ótrúleg úrslit áttu sér stað á Hlíðarenda og í Kaplakrika í kvöld.
Valur og Víkingur eru í fallsæti og það er væntanlega mikið fundað hjá þessum félögum þessa dagana. Á hinum enda töflunnar eru FH og Breiðablik í góðum gír, og þá sérstaklega FH-ingar sem eru óstöðvandi fyrir framan markið um þessar mundir.
Guðmundur Aðalsteinn stýrir þættinum en með honum eru Arnar Páll Garðarsson og Magnús Haukur Harðarson. -
Zijn er afleveringen die ontbreken?
-
Ásgeir Orri Magnússon, markvörður Keflavíkur, mætti í annan þátt Kaffispjallsins. Farið var yfir hvað leiddi hann aftur í búrið á öðru ári í 2. flokki, skiptin frá Njarðvík til Keflavíkur og hvað virkilega gerðist þegar hann gisti hjá Stefáni Jóni Friðrikssyni.
-
Innkastið eftir 15. umferð Bestu deildarinnar. Valur Gunnars stýrir ferðinni þessa vikuna og með honum eru Sæbjörn Steinke og Jói Skúli.
Þórsarar voru fyrstir til að vinna Víkinga í deildinni, Evrópukeppnin er að trufla liðin, KA hélt ekki út manni fleiri og Skaginn í frjálsu falli. -
Síðasta HM hringborð mótsins. Spánverjar heimsmeistarar og Englendingar hirtu bronsið.
Magnús Haukur Harðarson og Kári Snorrason fóru yfir úrslitaleikinn, bronsleikinn og veittu viðurkenningar. -
Þátturinn er frumfluttur í hlaðvarpi í sérstakri sumarútgáfu. Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas fara yfir allt það helsta.
Félagaskiptaglugginn er opinn, íslensk lið að spila um alla Evrópu, heil umferð framundan í Bestu og úrslitaleikur HM er framundan. -
HM hringborðið á fimmtudegi. Ásgeir Frank Ásgeirsson var gestur í setti og fór yfir undanúrslitin ásamt Kára Snorrasyni. Thomas Tuchel fékk falleinkunn og Spánverjar sigldu þægilega í gegnum stjörnum prýtt lið Frakka.
Sömuleiðis var hitað upp fyrir úrslitaleik Argentínu og Spánar sem og bronsleik Frakka og Englendinga. -
Innkastið eftir 14. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Baldvin Borgars.
Dómaramistök léku Keflavík grátt, KA vann gríðarlega mikilvægan sigur en illa gengur hjá ÍA, staða Vals versnar eftir tap gegn FH, vonlaus frammistaða Þórs og KR lék sér að ÍBV. Fréttir, slúður og fabúleringar.
Lengjudeildin og Evrópuleikir koma líka við sögu. -
Halldór Snær Georgsson og Runólfur Trausti Þórhallsson voru gestir í HM hringborðinu að þessu sinni.
Farið var yfir 8-liða úrslitin og rýnt í spilin fyrir æsispennandi undanúrslit. -
Árni Vilhjálmsson er genginn í raðir Stjörnunnar á frjálsri sölu frá Al-Taraji í Sádi-Arabíu.
Kári Snorrason ræddi við Árna um skrefið heim ásamt því að fara yfir ferilinn úti í atvinnumennsku.
Hann ræðir einnig upplifun sína af því að búa og spila í Sádi-Arabíu og Úkraínu á miklum óvissutímum. -
Þátturinn er í hlaðvarpsútgáfu þessa vikuna. Elvar Geir, Tómas Þór og Kári Snorra eru í hljóðveri.
Farið er yfir Evrópuleiki Stjörnunnar og Vestra, fréttir vikunnar í íslenska boltanum og hitað upp fyrir komandi umferð í Bestu deildinni.
Þá er fjallað um HM þar sem 8-liða úrslitin eru farin af stað. -
Runólfur Trausti Þórhallsson settist niður með Cecilíu Rán, markverði Inter og íslenska landsliðsins. Farið var yfir víðan völl en þrátt fyrir ungan aldur hefur Cecilía Rán upplifað margt á sínum ferli.
Kaffispjallið er nýr hlaðvarpsþáttur hér á síðunni þar sem rætt verður við leikmenn um allt milli himins og jarðar. Í fyrstu seríu hlaðvarpsins verður rætt við markmenn og svo vinnum við okkur upp völlinn. -
Elvar Geir, Valur Gunnars og Tómas Þór í Innkasti vikunnar.
Víkingur vann nauman sigur á Györ en varð fyrir áfalli, Fram gerði jafntefli í Keflavík, Eyjamenn unnu Val og ungstirni Breiðabliks skína skært. Farið er yfir helstu fréttir og slúður. -
Það hefur mikið gengið á í HM heimum undanfarna daga.
Þeir Óskar Smári Haraldsson og Haraldur Örn Haraldsson voru gestir í hringborðinu að þessu sinni og fóru yfir helstu tíðindi og úrslit. -
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 4. júlí. Elvar Geir, Tómas Þór og Valur Gunnars.
Byrjað er á íslenska boltanum. Besta deildin, tíðindi tengd henni og Víkingur er á leið í erfitt Evrópueinvígi. Svo er það Lengjudeildin sem fær sviðsljósið og opinberað er val á úrvalsliði umferða 1-11.
Í seinasta hluta þáttarins er farið yfir 32-liða úrslit HM og spáð í spilin fyrir 16-liða úrslitin. -
HM hringborðið á föstudegi. Jóhann Páll Ástvaldsson íþróttafréttamaður á Rúv og Óskar Smári Haraldsson þjálfari kvennaliðs Stjörnunnar voru gestir að þessu sinni.
Þeir fóru yfir úrslit síðustu leikja og spáðu í spilin fyrir leikina þrjá sem eftir eru í 32-liða úrslitum. Þá fóru þeir jafnframt yfir sína uppáhalds HM leikmenn. -
Bræðurnir Birkir Már og Aron Elí Sævarssynir voru gestir HM hringborðsins að þessu sinni. Þeir fóru yfir liðna leiki í 32-liða úrslitum og spáðu í spilin fyrir komandi leiki.
Þá fór Birkir jafnframt yfir sigur Íslands á Englandi og heimsmeistaramótið í Rússlandi 2018. -
Það er landsleikjahlé í Bestu deild kvenna en við gefum út aukaþátt af Uppbótartímanum, hlaðvarpi um kvennaboltann, þessa vikuna.
Nik Chamberlain, þjálfari Kristianstad í Svíþjóð, er í heimsókn á Íslandi og hann mætti í þáttinn til að fara yfir tíma sinn hjá Kristianstad til þessa.
Guðmundur Aðalsteinn, Arnar Páll Garðarsson og Nik fóru einnig yfir tölfræði úr Bestu deildinni, leikstíla og aðrar pælingar. Þá var farið yfir slúður í lok þáttarins en það styttist í að leikmannaglugginn á Íslandi opni.
Þátturinn er í boði Vinnupalla, Atlantsolíu og Coke. - Laat meer zien