Afleveringen
-
Lokaþáttur Aftureldingar var sannarlega hádramtískur. Það er hlaðvarp dagsins sömuleiðis, bara á annan hátt. Gestir dagsins eru annars vegar nýbakaðir Íslandsmeistarar Vals í handbolta kvenna og hins vegar tveir af aðalleikurum þáttaraðarinnar.
-
Zijn er afleveringen die ontbreken?
-
Það hallar hressilega undan fæti hjá söguhetjum Aftureldingar í sjötta þætti. Það á aldeilis ekki við um gesti dagsins. Sverrir Þór Sverrisson ræðir hlutverk sitt sem Björgvin, aðstoðarþjálfari Skarpa. Svo heyrum við í Rúnari Kárasyni fara yfir líf ungs atvinnumanns í handbolta.
-
Það þarf engan spámann til að sjá fyrir einkar vandræðalegar samræður þeirra mæðgna Heklu og Rúnar í náinni framtíð en enn nær okkur stendur samtal Helgu Margrétar Höskuldsdóttur við leikkonuna Sögu Garðarsdóttur. En fyrst tökum við púlsinn á Mosfellingum.
-
Afturelding er hálfnuð og svo sannarlega komin á gott flug sem við ætlum að gera góð skil. Í seinni hluta þáttarins tökum við Jakob Ingimundarson, tökumann þáttanna, tali - en fyrst ræða Gunnar Birgisson og Edda Sif Pálsdóttir við Daða Laxdal Gautason, veðmálasérfræðing.
-
Nú þegar við höfum séð þrjá þætti Aftureldingar, af átta í heildina, er ljóst að átökin eiga sér ekki aðeins stað innan vallarins. Innri átök ýmissa persóna eru þvert á móti gerð mjög sýnileg og í þessum þætti átti það ekki síst við um Brynju, sem leikin er af Svandísi Dóru Einarsdóttur.
Svandís verður gestur okkar seinna í þættinum en við hefjum leik á spjalli við íþróttasálfræðing.
Edda Sif Pálsdóttir ræðir við Hafrúnu Kristjánsdóttur. -
Til okkar koma Hrafnhildur Skúladóttir, leikja- og markahæsta landsliðskona Íslands í handbolta, og Óskar Bjarni Óskarsson, fyrrum aðstoðarlandsliðsþjálfari, sem kannast við ýmislegt tengt kvennaboltanum í þættinum en við byrjum á einum leikstjóra þáttanna, Göggu Jónsdóttur og Ásgeiri Jónssyni, þjálfara, sem lagði leikurum þáttanna handboltalínurnar.
-
Það var eitthvað kunnuglegt við medalíumálið hans Skarphéðins. Við fáum fyrrum landsliðsmanninn Sigfús Sigurðsson til að ræða málið í fyrri hálfleik.
Í seinni hálfleik tökum við stöðuna á Hafsteini Gunnari Siguðrssyni leikstjóra og Dóra DNA handritshöfundi og mögulega getur borgað sig að doka við að leik loknum.