Afleveringen
-
Helga Þórisdóttir forsetaframbjóðandi er gestur minn í þessum þætti. Hún er forstjóri Persónuverndar í leyfi og steig fram daginn fyrir páska og tilkynnti framboðið sitt. Í þessum þætti förum yfir erindi hennar til framboðs og stöðuna núna þegar seinni hálfleikur í framboðsvinnunni er að hefjast. -
Una Torfadóttir tónlistarkona er gestur minn í þessum þætti. Ég er vandræðalega mikill aðdáandi hennar og platan hennar nýja er alveg yndisleg á að hlusta. Ég fékk Unu í heimsókn og við ræddum tónlistina, sköpunina og lífið sem hefur hún búið til í kringum listina. -
Zijn er afleveringen die ontbreken?
-
Bergur Vilhjálmsson, slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður og kafari gekk á dögunum 100 km frá Akranesi til Reykjavíkur með rúmlega tvö hundruð kílóa byrði á eftir sér. Bergur gekk alla þessa leið til styrktar Píeta samtökunum og til að vekja athygli á starfsemi þeirra. Gangan reyndi gríðarlega á Berg en hann kláraði verkefnið. Í þættinum fer hann yfir aðdragandann og hvað gekk á í hausnum á honum á meðan á göngunni stóð og hvaða þýðingu verkefnið hefur fyrir hann. -
Halla Hrund Logadóttir er hástökkvarinn viku eftir viku í kapphlaupi frambjóðenda til forseta Íslands. Fyrir nokkrum vikum vissi afar fáir hver Halla er en nú keppist þjóðin við að kynna sér hana og ekki seinna vænna því það styttist í kosningar. Hver er þessi kona og hvaðan kemur hún og hvað ætlar hún sér að gera ef hún nær kjöri til embættis Forseta Íslands? -
Tómas J. Knútsson, maðurinn á bak við Bláa herinn, hefur starfað við hreinsun umhverfisins síðustu 29 ár. Hann hefur lengi verið mér og öðrum innblástur í umhverfissmálum. Hann fékk fálkaorðu forseta Íslands fyrir þau störf en er ennþá á fullu. Núna þegar styttist í Stóra plokkdaginn fannst mér tilvalið að fá hann til mín til að ræða þetta magnaða áhugamál okkar félaganna, rusl.
-
Sigurður Ásgeir Árnason framkvæmdastjóri OverTune sem setti allt á hliðina í byrjun árs eftir að hafa endurlífgað Hemma Gunn við í Áramótaskaupinu. Hann fullyrðir að Tik Tok ætli sér að taka yfir tónlistarheiminn en Tik Tok stendur núna í deilum við Universal, stærsta útgáfufyrirtæki í heiminum. Við Siggi ræðum tæknina og framtíðina í þessum magnaða þætti.
-
Hera Björk er á leiðinni til Malmö að syngja framlag okkar í Eurovison þetta árið. Valið fór ekki fram hjá neinum. Árið 2019 heimsótti hún SOS barnaþorp bæði í Ísrael og Palestínu en hún er velgjörðasendiherra Barnaþorpanna. Við tölum um hlutverk hennar sem hennar sem velgjörðar sendiherra, hrópin sem gerð hafa verið að henni síðustu vikur og mömmu hennar sem var sveitaballa drottning suðurlands
-
Júlí Heiðar Halldórsson tónlistarmaður og lagahöfundur var að gefa út nýja plötu. Eitt af lögunum á henni, Farfuglar, vakti athygli mína núna í vetur þegar það kom út. Þar er Júlí Heiðar að syngja um tilfinningarnar og flækjurnar sem fylgja sameiginlegu forræði og umgengnisrétt samið og sungið þannig að það lætur fá sem hlusta ósnerta. Við ræðum plötuna, ferlið að verða að manni og það sem skiptir Júlí Heiðar mestu máli.
-
Gestur minn í þessum þætti er Sigurður Hólmar Jóhannesson eða pabbi hennar Sunnu Valdísar. Sunna greindist með afar sjaldgæfan taugasjúkdóm aðeins 14 mánaða gömul og þá gáfu læknar henni ekki mikið meira en sex ár til viðbótar. Siggi, Ragnheiður Hjaltadóttir kona hans, læknar Sunnu og velunnarar fjölskyldunnar hafa sýnt mikla þrautseigju og eljusemi í því að leita að lækningu og bættum lífsgæðum fyrir Sunnu sem nú er orðin 18 ára gömul. Þetta er áhugaverður þáttur og upplýsandi. -
Herbert Guðmundsson er gesturinn minn í þessum þætti. Ég hef alla tíð verið aðdáandi Hebba, allt frá því ég heyrði Can’t Walk Away í fyrsta sinn árið 1985. Stórkostlegt lag í alla staði sem hefur fylgt honum sem sól í gegnum allt sem að á hann hefur dunið. Seinna eftir að ég kynntist honum sjálfum þá held ég áfram að vera aðdáandi hans fyrir þrautseigjuna. Hann stendur upp og heldur áfram, sama hvað gengur á með jákvæðni, einlægni og ástríðu að vopni. -
Gestur minn í þessum þætti er Magga Jónasar förðunarfræðingur og heilsumarkþjálfi. Við ræðum um heilsuna, orkuna og hvernig við höldum réttum kúrs í ólgusjó samfélagsmiðla, auglýsinga, rétttrúnaðar, öfga og hvernig við nálgumst fáum í sinni einföldustu mynd. Hvernig skríður kona upp úr margföldu burn-outi og stendur á haus á hverjum morgni af því að það er gott fyrir hvatberana. Já minna má það nú vera en þetta er frábært spjall. -
Logi Pedro er gestur minn í nýjasta þættinum af Einmitt. Hann er frábær tónlistarmaður og sýndi það með hljómsveitinni sinni Retro Stefson, svo undir eigin nafni og á bak við tjöldin sem upptökustjóri margra flottustu listamanna sinnar kynslóðar. Við Logi tölum um tónlistina í öllu því samhengi sem okkur dettur í hug en við ræðum líka hvernig er að vera svartur strákur, erum við Íslendingar rasistar og hvernig eigum við að fóta okkur í umræðunni um kynþætti og hvaðan við komum öll. Frábært og upplýsandi samtal.
-
Friðrik Dór Jónsson einn afkastamesti tónlistarmaður landsins er gestur minn í þessum þætti. Hann var að gefa út plötuna Mæður sem er sjálfstætt framhald af Dætur sem kom út fyrir tveimur árum. Við ræðum hvernig hann semur tónlistina og hvaðan hann sælir innblástur í textana. Heiðarlegt og skemmtilegt samtal við Friðrik Dór um tónlistina.
-
Snædís Xyza Mae Jónsdóttir matreiðslumaður er gestur Einars í þessum þætti. Hún er fædd á Filippseyjum en mamma hennar flutti til Íslands skömmu eftir að hún fæddist. Þegar Snædís var fjögurra ára kom móðir hennar og sótti hana og þær hófu nýtt líf á Íslandi. Það gekk aldrei sem skildi og Snædís var inn og út af fósturheimilum sem unglingur. Það var ekki fyrr en fulltrúi barnaverndar á Dalvík gekk henni í móður stað að Snædís fór að ná að fóta sig í lífinu.
Í dag er hún þjálfari Íslenska Kokkalandsliðsins sem er komið til Þýskalands en ólympíuleikarnir í matreiðslu hófust þar á föstudaginn. Landsliðið keppir í tveimur af stærstu greinunum og leikunum lýkur á miðvikudag. Snædís var fyrirliði landsliðsins á heimsmeistaramótinu 2018, hún var fyrirliði á Ólympíuleikunum í Stuttgart 2020 þegar Ísland náði 3. sæti. Nú er Snædís þjálfari og hún ætlar sér stóra hluti með liðið þessa helgi og viku og á með henni er vel þjálfað lið vönu keppnisfólki.
Ferðasagan hennar frá Filippseyjum alla leið á Ólympíuleikana í matreiðslu hér í þessum þætti. -
Gestur minn í þessum þætti er Bryndís Gunnlaugsdóttir lögfræðingur og Grindvíkingur. Hún er fyrrum forseti bæjarstjórnar í Grindavík og starfaði lengi sem lögfræðingur hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Í dag starfar hún sem lögfræðingur hjá KPMG með áherslu á opinbera stjórnsýslu. Hún tók til máls á íbúafundi með ráðamönnum á þriðjudag eftir gos og vakti þar mikla athygli. -
Guðjón “Gaupi” Guðmundsson er einn reyndasti íþróttafréttamaðurinn þjóðarinnar. Áður var hann einnig þekktur sem liðsstjóri og aðstoðarmaður Bogdans Kowalczyk hjá Víkingi og landsliði Íslands í handknattleik. Núna er sonur Gaupa, Snorri Steinn þjálfari karlalandsliðs okkar í handbolta og kominn til Þýskalands á EM í handbolta. Þar situr Snorri með væntingar þjóðarinnar í fanginu og spennan er í hámarki. Í þessum þætti greinir Gaupi stöðuna eina og birtist honum í upphafi móts. -
Sverrir Þór Sverrisson hefur á síðustu árum breyst úr hreinræktuðum sprelligosa sem þjóðin elskaði að horfa á blanda ógeðsdrykki og hlaupa allsber niður niður Laugaveginn í einn ástsælasta leikarann okkar. Hann er jafnvígur á útvarp, sjónvarp, kvikmyndir og leiksviðið og í þessum þætti ræðum við Sveppi um þetta ferðalag og nýjustu verkefnin hans Veisluna, Kennarastofuna, Áramótaskaupi og And Björk of Course sem Leikfélag Akureyrar frumsýnir í febrúar. -
Manúela Ósk Harðardóttir athafnakona er gestur minn í þessum þætti. Í desember 2023 hné hún niður í heimsókn frá frænku sinni og var keyrð með hraði á Bráðamóttökuna með heilablóðfall. Manúela hefur ekki talað mikið um þetta áfall en í þessum þætti lýsir hún hvernig endurhæfingin hefur gengið bæði andlega og líkamlega og hvað það er mikilvægt að þekka einkenni fyrirboða heilablóðsfalls. -
Vilhjálmur Árnason er gestur minn í þessum þætti. Hann er þingmaður en fyrst og síðast er hann Grindvíkingur og er í sömu sporum og þeir allir um þessar mundir en Grindvíkingar lifa við mikla óvissu vegna jarðhræringana á Reykjanesskaga. Ég ræði við Villa um hvernig þetta kemur við hann sem íbúa, pabba, eiginmann og þingmann. Þá ræðum við einnig orku- og öryggismál út frá þessari stöðu en Villi er lögreglumaður og öryggismál í hafa verið Villa hugleikin alveg frá fyrsta degi á Alþingi. -
Hrefna er ævintýrakona í víðasta samhengi. Hún og maðurinn hennar Ólafur Vilhjálmsson hafa búið og starfað í fleiri löndum en flestir landsmenn hafa heimsótt og ekki bara það heldur eru heimsálfurnar sem þau hafa unnið í að minnsta kosti fimm; Evrópa, Norður-Ameríka, Suður-Ameríka, Asía og Afríka. Þau sóttu nám til Bandaríkjanna bæði í Florída og seinna í Arizona. Magnaðasta verkefni þeirra er þó án efa uppbygging innviða í litlum 5000 manna bæ í Uganda. Þar hafa þau tekið þátt í að byggja upp heilsugæslu, skóla og fæðingaheimili ásamt fjölskyldu og vinum. Hrefna segir mér magnaða sögu þessa magnaða starfs þeirra á þessu svæði síðasta áratug. - Laat meer zien