Afleveringen
-
Rithöfundurinn Ragnar Jónasson hefur skrifað frá unga aldri. Hann bjóst þá aldrei við því að geta lifað af skrifunum - hvað þá að bækur hans væru seldar í 35 löndum og þýddar á 27 tungumálum. Í dag ferðast hann um heim allan að kynna bækur sínar en finnst þó mikilvægast að gefa sér tíma til að sinna skriftum.
-
Guðni Már Harðarsson var harðákveðinn frá unglingsaldri að verða prestur. Hann segir að starfið sé gefandi og hans köllun en það geti líka verið erfitt. Hann segir það hafa reynt mikið á að koma að hrikalegu máli þegar ung stúlka í blóma lífsins var myrt, Bryndís Klara Birgisdóttir. En af þessu hörmulega máli hafi þó sprottið upp kærleikshreyfing í minningu hennar. Hann ákvað á dögunum að breyta til og stefnir nú til Danmerkur þar sem hann verður prestur Íslendinga í Kaupmannahöfn.
-
Zijn er afleveringen die ontbreken?
-
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir fyrrverandi ráðherra og þingmaður hætti á þingi fyrir nokkrum mánuðum og gerist eftir nokkra daga sendiherra Íslands í London. Hún fer yfir ferilinn og ákvörðunina um að bjóða sig ekki fram til formanns, ákvörðun sem var henni erfið. Hún ræðir líka æskuárin á Akranesi, hvað mótaði hana mest og hvað framundan er.
-
Rósa Ólöf Ólafíudóttir ólst upp í mikilli fátækt og bjó á mörgum vistheimilum þar sem hún hlaut misgott atlæti. Hún þráði ekkert heitar en að fá að búa hjá móður sinni sem þráði að hafa börn sín hjá sér en fékk ekki. Rósa vinnur nú að því að skrifa sögu bróður síns heitins, Lalla Johns.
-
Valdimar Guðmundsson.
-
Sema Erla Serdaroglu hefur verið áberandi undanfarið ár í baráttu fyrir réttindum flóttafólks. Hún hefur fengið hótanir í ýmsu formi síðan hún hóf að vinna fyrir þennan hóp og hefur ekki tölu á öllum þeim hótunum sem henni hafa borist. Gjarnan er vísað í uppruna hennar en Sema er hálf tyrknesk en hefur alltaf búið á Íslandi, gekk hér í skóla og er fermd til kristinnar trúar þó hún aðhyllist engin sérstök trúarbrögð í dag. Hún ræðir ofsóknirnar, baráttuna og unglingsárin þar sem örlagarík ferð á Neyðarvistun Stuðla breytti miklu í hennar lífi.
-
Auður Guðjónsdóttir hefur í yfir þrjá áratugi barist fyrir rannsóknum á mænuskaða eftir að Hrafnhildur dóttir hennar lamaðist í alvarlegu bílslysi. Við heyrum sögu Auðar og Hrafnhildar heitinnar í þættinum í dag.
-
Þegar Patrik Atlason var lítill ætlaði hann að verða betri en pabbi sinn í fótbolta. Þegar það gekk ekki eftir sneri hann sér alfarið að tónlistinni og það hefur heldur betur skilað sér enda er hann einn vinsælasti tónlistarmaður landsins í dag. Hann reynir ekki að fela hvaðan hann kemur og segist hafa fengið meira en margir aðrir. Hann ræðir lífið, ferilinn og áfallið sem mótaði fjölskylduna þegar frændi hans var myrtur.
-
Íþróttafræðingurinn Gerða Jónsdóttir hefur slegið í gegn með líkamsræktarnámskeið sín undir nafninu Inshape. Hún ræðir æskuna í Mosfellsdalnum, íþróttirnar, sáran systurmissi, áföll og hvernig getur hjálpað manni á öllum aldursskeiðum.
-
Söngkonan Bríet hefur verið lengi í sviðsljósinu þrátt fyrir ungan aldur. Hún var 16 mánaða þegar hún byrjaði að fara í svett indjánaathafnir með móður sinni sem hún segir hafa mótað sig mikið. Hún ræðir bernskuna, ferilinn og það sem framundan er.
-
Hjónin Júlía Margrét og Freyr Gígja ræða à einlægan og opinskáan hátt um geðhvörf sem Júlía veiktist fyrst af fyrir 15 árum. Þau veita dýrmæta innsýn inn í það hvernig er að veikjast af þessum sjúkdóm og vera aðstandandi í þeim aðstæðum.
-
Gulla Bjarnadóttir átti óvenjulega æsku. Fyrsta árið var hún vistuð á barnaheimili þar sem foreldar hennar deildu um forræði yfir henni. Móðir hennar var andlega veik og faðir hennar glímdi við alkhólisma en hann fékk á endanum forræðið yfir henni. Hann hvarf oft í nokkra daga þegar hann datt í það en móðir hennar brýndi fyrir henni að láta engan vita af því svo kerfið myndi ekki skipta sér af. Hún var oft með móður sinni á geðdeild sem barn og segir hafa verið hálfgerður heimalningur þar. Þrátt fyrir óvenjuleg og erfið bernskuár segist hún engu vilja breyta þar sem reynslan geri hana að því sem hún er í dag.
-
Fjölmiðlakonan Nadine Guðrún Yaghi er hálf íslensk og hálf líbönsk. Foreldrar hennar skildu þegar hún var fimm ára og móðir hennar þorði ekki að senda hana og systur hennar einar til pabba þeirra í frí vegna aðvarana annarra um að kannski kæmu þær ekki aftur til baka. Hún heldur sambandi við föður sinn og vann meðal annars á sumrin í menntaskóla á hótelkeðjum í Miðausturlöndum sem faðir hennar var hótelstjóri hjá. Nadine ræðir æskuna, fjölmiðlabakteríuna, Eftirmál og hjónabandið sem var ekki jafn löglegt og hún stóð í trú um.
-
Ingi Hans Ágústsson hefur alltaf búið á Íslandi en er af þýskum uppruna en foreldrar hans fluttu bæði til Íslands eftir stríð. Hann bjó við mikinn harðræði í æsku; ofbeldi og mikinn aga. Hann segist í raun aldrei hafa elskað foreldra sína en hafi þó ákveðið sem ungur maður að láta af reiðinni í garð þeirra fyrir sig. Hann á albróður í Þýskalandi sem hann hefur aldrei hitt og átti systir sem var greindarskert og honum fannst hann þurfa að vernda. Ingi Hans hefur starfað í Vin Batasetur í 27 ár og segir það muni breyta lífi margra til hins verra ef úrræðinu verði lokað.
-
Árið 2019 greindist Óskar Finnsson matreiðslumeistari með banvænt krabbamein og lífslíkurnar voru sagðar vera innan við tvö ár. Hann gjörbreytti öllu sínu lífi. Hann segist fyrst og fremst þakklátur fyrir að vera enn hér og fá að hafa tilgang. Hann ræðir matreiðsluna, baráttuna við krabbameinið, æðruleysið og ævintýrin.
-
Páll Matthíasson fyrrverandi forstjóri Landspítalans segir margt hafa breyst í geðlækningum. Hann lærði geðlækningar í Bretlandi eftir að hafa ferðast um Suður-Ameríku í nokkra mánuði með vinum sínum. Í Bretlandi kynntist hann öðrum aðferðum en þekktust hér heima og hefur unnið að því að breyta kerfinu hér heima frá því hann kom frá námi. Hann segir margt gott hafa breyst þó vissulega megi margt bæta.
-
Bergþóra Snæbjörnsdóttir rithöfundur og baráttukona segist skrifa útaf þráhyggjum sínum. Hún hætti að drekka fyrir tólf árum eftir að hafa reynt að hætta alla sunnudaga eftir djamm. Hún hefur undanfarið hjálpað flóttafólki frá Palestínu og fór til Egyptalands til að ná í fjölskyldu vinar síns og segir það hafa verið ótrúlega upplifun að hjálpa til við að sameina fjölskyldu sem hafði ekki verið saman í nokkur ár.
-
Fjölmiðlamaðurinn Jóhannes Kr Kristjánsson missti föður sinn þegar hann var 11 ára gamall og segist stundum hugsa um að líf sitt hefði orðið öðruvísi ef það hefði ekki gerst. Hann varð reiður í kjölfarið og var sendur sem unglingur á heimavistarskóla. Hann lifir og hrærist í blaðamennskunni og hefur undanfarið unnið að þáttum þar sem hann hefur verið fluga á vegg hjá kynferðisbrotadeild lögreglunnar.
-
Sandra Gísladóttir eða Sandra Barilli eins og hún er gjarnan kölluð vissi ekkert hvað hún var að fara út í þegar hún tók að sér hlutverk umboðsmannins Mollý í þáttunum Iceguys ásamt því að framleiða þættina. Hún lærði leiklist en segist þó eiginlega alls ekkert vilja leika þó hún hafi reynt fyrir sér hér og þar. Sandra ræðir Ítalíu, leiklistarnámið, leiklistina, framleiðslu og karíóki svo eitthvað sé nefnt.
-
Agnar Bragason forstöðumaður í Batahúsi missti móður sína, stjúpföður og tvö systkini í bruna þegar hann var sjö ára gamall. Líf hans varð ekki samt eftir það. Hann ólst upp við alkhólisma og ofbeldi og leiddist út í afbrot og neyslu á unglingsárum. Hann sat margoft inn í fangelsum þar til honum tókst að komast á breinu brautina fyrir tólf árum síðan og er í dag að hjálpa fólki í sömu sporum og hann var sjálfur í.
- Laat meer zien