Afleveringen

  • Björgvin Víglundsson, margreyndur skákmeistari og byggingaverkfræðingur, heimsótti Kristján Örn í þáttinn að þessu sinni. Björgvin sagði að árið 1958, þegar hann var 12 ára gamall, hafi hann verið að fylgjast með og skrá niður skák Friðriks Ólafssonar og Inga R. Jóhannssonar í Landsliðsflokki. Þá hafi Bragi Kristjánsson komið að honum og hvatt hann til að taka þátt í Íslandsmótinu í 2. flokki í skák það árið sem hann og gerði. Það hafið verið upphafið að hans þátttöku í skákmótum.

    Björgvin talaði um hversu feykilega mikilvægur Friðrik Ólafsson hafi verið fyrir íslenskt skáklíf og nefnir nokkra samferðamenn hans og þá sérstaklega stórmeistarann Guðmund Sigurjónsson.

    Í þættinum kemur fram að Björgvin hefur tvisvar teflt fyrir Íslands hönd á Ólympíuskákmótum. Hann kemur inn á gríðarlega öflugt starf Jóhanns Þóris Jónssonar fyrir skákhreyfinguna, talar um ómannlega taflmennsku Magnúsar Carlsen, uppgang Hans Niemanns sem nú sé loks viðurkenndur á meðal þeirra bestu í heimi. Björgvin talar um árangur Vignis Vatnars á skákmótum að undanförnu og þeirri trú sinni að hann geti náð langt. Hann segir að næstu skref Vignis hljóti að vera að tefla á sterkum skákmótum og þá helst á mótum sem hann teflir vel upp fyrir sig. Björgvin lýsir hugmynd sinni um opna mótaröð með háu gólfi þar sem útreikningur stiga ræður því hver fær úthlutað hæstu peningastyrkina frá skákhreyfingunni en stórmeistaralaunin munu heyra sögunni til eftir næstu áramót. Hann telur jafnframt að val í landsliðið eigi að ráðast af getu og virkni á sérstökum mótum meðal þeirra bestu. Margt annað kom til tals í þættinum sem heyra má í spilaranum.

  • Zijn er afleveringen die ontbreken?

    Klik hier om de feed te vernieuwen.

  • Gestur Kristjáns Arnar í þættinum í dag er einn af okkar sterkustu og þekktustu skákmeisturum. Hann var á sínum tíma á meðal allra sterkustu skákmanna heims. Þetta er stórmeistarinn Jóhann Hjartarson en hann starfar í dag sem yfirlögfræðingur Íslenskrar Erfðagreiningar.

    Þeir Kristján og Jóhann gefa sér góðan tíma til að ræða þátttöku Íslendinga á Ólympíumótunum í skák í gegnum tíðina en fyrsta formlega Ólympíumótið fór fram í London árið 1927. Íslendingar tóku fyrst þátt þegar mótið var haldið í Hamborg í Þýskalandi árið 1930 og hafa ávallt verið á meðal þátttökuþjóða utan árin 1931, 1935 og 1950. Þeir ræddu Ólympíumótin í Buenos Aires 1939, Havana 1966, Möltu 1980, Dubai 1986, Manila 1992 og svo spáðu þeir og spekúleruðu í Ólympíumótinu í Ungverjalandi sem hefst í höfuðborginni Budapest í næstu viku en 1. umferð verður tefld 11. september. Margt annað kom til tals hjá þeim félögum, eins og skákfréttir líðandi stundar, sem hlusta má hér í spilaranum.

  • Dr. Oddgeir Ágúst Ottesen var gestur Kristjáns Arnar að þessu sinni. Þeir ræddu aðallega um barna- og unglingstarf hjá KR, Íslandsmót skákfélaga í október og vendingar í félagaskiptum en KR-ingar hafa styrkt sig verulega frá því í fyrra. Einnig ræddu þeir EM ungmenna sem nú fer fram í Prag í Tékklandi, komu inn á Ólympíumótið í skák sem fram í Búdapest í Ungverjalandi í næsta mánuði og ýmislegt fleira.

  • Það er stórmeistarinn Helgi Áss Grétarsson núverandi Íslandsmeistari í skák sem setst niður Við skákborðið að þessu sinn.

    Þeir Kristján Örn ræða um nýlokið Borgarskákmót sem lauk með sigri Helga, Ólympíuskákmótið sem haldið verður í Búdapest í Ungverjalandi dagana 10.-23. september nk. Þeir töluðu við Björn Ívar Karlsson nýráðinn skólastjóra Skákskóla Íslands sem í morgun fór utan með stóran hóp barna og unglinga á EM ungmenna í Prag í Tékklandi. Um er að ræða 23 keppendur, 4 þjálfara og fjölda aðstandenda eða alls um 60 manns. Þetta mun vera langstærsti hópur sem Skáksamband Íslands hefur sent til keppni á erlenda grund. Helgi sagði frá undirbúningi stórmeistarans Vignis Vatnars Stefánssonar fyrir Ólympíumótið en hann hefur verið iðinn við að keppa á mótum erlendis í sumar, hækkað mikið á skákstigum og hefur Helgi mikla trú á okkar yngsta stórmeistara.

    Einnig ræddu þeir um flesta af sterkustu skákmönnum heims sem hafa verið að keppa sín á milli að undanförnu, s.s. á Saint Louis at- og hraðskákmótinu sem Alireza Firouzja vann, Sinquefield Cup mótinu sem er í fullum gangi, væntanlegt einvígi Magnúsar Carlsen og Hans Niemann í París í byrjun næsta mánaðar og heimsmeistaraeinvígi núverandi heimsmeistara kínverjans Ding Liren og indverjans Dommaraju Gukesh en það mun fara fram í Singapúr dagana 20. nóvember til 15. desember nk. Það er því hægt að fullyrða að heimsmeistaratitillinn verður áfram í Asíu.

  • Gestir þáttarins eru skákmeistararnir Þorvarður Fannar Ólafsson og Birkir Karl Sigurðsson. Þorvarður hefur margoft heimsótt Filippseyjar en eiginkona hans er ættuð frá borginni San Carlos sem er á eyju sem heitir Negros. Hann segir sögu af ferðalagi sínu á fjölmennt helgarskákmót sem haldið var í borginni Bacolod og kynnum sínum af grjóthörðum filippseyskum skákmönnum. Þorvarður segir það algengt að teflt sé upp á peninga í verslunarmiðstöðvum og því oft viðhöfð ýmis brögð í tafli eins og að hagræða úrslitum á efstu borðum í lokaumferðum skákmóta. Í síðari hluta þáttarins var slegið á línuna til Birkis Karls Sigurðssonar þáttastjórnanda hjá Chess After Dark en hann hefur komið að skipulagningu á Íslandsmótinu í netskák sem hefst 25. ágúst nk. Óánægju hefur orðið vart hjá einhverjum skákmönnum þar sem 13 keppendur af 16 fá boðsæti beint í útsláttarkeppnina og þurfa því ekki að tefla í sjálfri undankeppninni eins og aðrir skákmenn til að tryggja sér sæti í mótinu. Þrír af sterkustu netskákmönnum landsins fengu ekki boð en það eru alþjóðlegu meistararnir Arnar Gunnarsson, Jón Viktor Gunnarsson og Davíð Kjartansson en þeir hafa margoft orðið Íslandsmeistarar í netskák og staðið uppi sem sigurvegarar á sterkum netskákmótum undanfarin ár. Einnig hefur það vakið athygli að Rafíþróttasamband Íslands heldur mótið en ekki Skáksamband Íslands. Há peningaverðlaun eru í boði en verðlaunafé er ein milljón króna og verður sýnt beint frá mótinu í Sjónvarpi Símans. Heyra má svar Birkis Karls við ofangreindum athugasemdum í þættinum.

  • Gestur Kristjáns Arnar í skákþættinum í dag er Hörður Jónasson, forseti Vinaskákfélagsins en Vinaskákfélagið hlúir að skáklífinu í Vin jafnframt því að efna til viðburða í þágu fólks með geðraskanir í samvinnu við athvörf, búsetukjarna, geðdeildir, félagsamtök og einstaklinga. Í síðari hluta þáttarins spjalla þeir einnig símleiðis við Róbert Lagerman gjaldkera Vinaskákfélagsins og fyrrverandi forseta þess en hann er nýkominn heim úr enn einni skákferðinni til Grænlands. Í þættinum segir Hörður frá hvernig hann kynntist skákinni fyrst, hvernig hann hóf að vinna fyrir Vinaskákfélagið, var kosinn í stjórn þess og tók loks við embætti forseta félagsins árið 2022. Hörður fór yfir tilgang, stefnu og markmið Vinaskákfélagsins og segir það öðruvísi en flest önnur skákfélög. Hann talaði um alþjóðlega geðheilbrigðismótið, jólaskákmótið á Kleppi, heimsóknir í athvörf og búsetukjarna til að gefa skáksett og klukkur, Hrafn Jökulsson og fleira gott fólk sem kom að stofnun Vinaskákfélagsins árið 2003 og hefur starfaði og keppt fyrir félagið.

  • Það var fjölmennt og góðmennt Við skákborðið í dag. Kristján Örn tók á móti feðginunum Katrínu Ósk Tómasdóttur 9 ára og Tómasi Tandra Jóhannssyni ásamt FIDE meistaranum Halldóri Grétari Einarssyni fv. formanni skákdeildar Breiðabliks og fv. varaforseta Skáksambands Íslands. Síðar í þættinum bættist svo við FIDE meistarinn og skákkennarinn Björn Ívar Karlsson símleiðis frá Vestmannaeyjum en hann var mættur þar snemma til að taka þátt í Þjóðhátíðinni í ár. Umræðuefnið í þættinum er stuttur en glæsilegur skákferill Katrínar Óskar en hún hefur aðeins æft og telft skák síðan í febrúar á þessu ári en hún æfir hjá Haukum í Hafnarfirði undir leiðsögn Jóhönnu Bjargar Jóhannsdóttur og Auðbergs Magnússonar. Áhugann fékk hún fyrst þegar hún tefldi drepskák við Sjöfn ömmu sína og þegar hún var í 3. bekk í Hvaleyrarskóla en þar var kennd skák undir handleiðslu Steinars Stephensen og Ægis Magnússonar. Hjörvar Steinn Grétarsson stórmeistari hefur tekið Katrínu Ósk í einkatíma, eftir að hafa heyrt margt gott um hana, og undirbýr hana m.a. undir þátttöku í EM ungmenna sem fer fram í Prag í Tékklandi síðar í sumar. Í þættinum er rætt var um skák hjá yngstu kynslóðinni, samskipti við foreldra, æfingar og styrkjamál og hvernig best væri hægt að koma til móts við þarfir ungra og efnilegra skákbarna og unglinga.

  • Kristján Örn tekur aftur á móti dr. Yngva Björnssyni prófessor í tölvunarfræði við Háskólann í Reykjavík aðra vikuna í röð. Í síðustu viku ræddu þeir um gervigreind og skák og heldur umræðan áfram nú þar sem Yngvi upplýsir frekar um hinar ýmsu hliðar gervigreindar. Yngvi segir frá þeim gervigreindarrannsóknum sem hann hefur fengist við í gegnum árin þar sem hann hefur notað skák og aðra svipaða borðleiki sem viðfangsefni. Hann nefnir m.a. tölvukerfi sem læra af reynslu, útskýranlega gervigreind (e. explainable AI) og alhliða leikjagreind. Yngvi varð ásamt Hilmari Finnssyni, meistaranema hans við Háskólann í Reykjavík, heimstmeistari í keppni alhliða leikjaforrita sem haldin var í Vancouver í Kanada árið 2007. Þeir vörðu heimsmeistaratitilinn í gervigreind ásamt öðrum meistaranema, Gylfa Þór Guðmundssyni, þegar þeir urðu heimsmeistarar í gervigreind á stærstu gervigreindarráðstefnu heims sem haldin var í Chicago árið 2010 en þá lögðu þeir öðru sinni að velli Háskólann í Kaliforníu (UCLA) í úrslitum. Þeir ræddu um nýja löggjöf Evrópusambandsins um gervigreind sem tekur gildi 1. ágúst næstkomandi, lagaleg og siðferðileg álitamál, persónuverndarlög og höfundarréttarmál, hvort gervigreind hefði tilfinningar og hvað kerfi eins og risamállíkön ChatGPT, Copilot og Gemini geta og geta ekki gert.

  • Gestur Kristjáns Arnar í þessum þætti er Dr. Yngvi Björnsson, prófessor í tölvunarfræði við Háskólann í Reykjavík. Hann var einn fyrsti doktorsmenntaði Íslendingurinn sem lagði áherslu á gervigreind en hann hefur lengi stundað kennslu og rannsóknir á því sviði. Hann er jafnframt áhugamaður um skák og hefur notað tölvuskák sem viðfangsefni í mörgum af sínum rannsóknarverkefnum.

    Í þættinum ræða þeir félagar um áhuga Yngva á tölvunarfræði, gervigreind og tölvuskák en skákin hefur einmitt átt stóran þátt í þeim áhuga. Yngvi segir að skákin eigi sér langa og merkilega sögu sem mikilvægt umfangsefni í gervigreindarrannsóknum. Hann segir að í ár séu liðin 50 ár frá því að fyrsta heimsmeistaramótið í tölvuskák fór fram og framan af hafi verið mikill áhugi fyrir þessum mótum sem hafi þó farið dvínandi seinni ár. Seinasta opinbera heimsmeistaramótið í tölvuskák verður haldið síðar á þessu ári. Árið 2005 var mótið haldið á Íslandi og var Yngvi einn af skipuleggjendum mótsins. Árið 1996 tók Yngvi þátt í heimsmeistaramótinu ásamt samnemanda sínum, vísindamanninum Andreas Junghanns, en mótið fór fram í Jakarta höfuðborg Indónesíu. Skákforrit þeirra hét The Turk, í höfuðið á skákvél sem byggð var árið 1770. Tyrkinn (e. The Turk) var ekki raunveruleg vél, heldur vélræn blekking. Maður var inni í vélinni sem vann við stjórntækin. Með hæfileikaríkan skákmann falinn inni í vélinni vann Tyrkinn flestar skákirnar. Það lék og vann viðureignir gegn mörgum þar á meðal Napoleon Bonaparte og Benjamin Franklin.

    Yngvi og Kristján ræddu um Deep Blue ofurtölvuna, AlpahaZero ofurforritið, Stockfish sem er sterkasta skákforriti í heimi og talið vera með styrkleika upp á 3.634 skákstig - þó í raun sé erfitt að meta það nema gegn öðrum skákforritum. Margt annað fróðlegt og skemmtilegt bar á góma og var ákveðið að Yngvi kæmi aftur í heimsókn næsta miðvikudag þar sem þeir félagarnir munu halda áfram að ræða um skák og gervigreind.

  • Gestir þáttarins í dag eru þeir Sveinbjörn Jónsson, Súgfirðingur, áhugaskákmaður og fyrrverandi trillukarl og Gauti Páll Jónsson, fyrrverandi formaður Taflfélags Reykjavíkur, sagnfræðingur og ritstjóri tímaritsins Skákar.

    Sveinbjörn sagði frá skákstarfinu á Súgandafirði og á Vestfjörðum hér á árum áður en Sveinbjörn sá meðal annars um skólaskák á Vestfjörðum um árbil. Hann sagði frá sterkum skákmönnum á Vestfjörðum og minntist á að Jóhann Þórir hefið haldið eitt af sínu frægu helgarskákmótum á Suðureyri við Súgandafjörð. Sveinbjörn er hagyrðingur góður og hefur samið margar vísur, lög og texta og fór hann með tvær skáktengdar vísur í þættinum. Spiluð voru tvö lög eftir Sveinbjörn. Lagið Driftwood sem fjallar um eilífðina, hafið og rekavið en hann tileinkaði lagið Hrafni Jökulssyni skákfrömuði sem jarðsettur var í kistu úr Vestfirskum rekaviði og lagið Ættfræði óttans sem er andsvar Sveinbjörns við setningu Einars Ben: "Ótti er virðingar faðir og móðir" en Sveinbjörn hefur miklar mætur á skáldinu Einari Ben.

    Gauti Páll sagði frá starfinu í Taflfélagi Reykjavíkur og mótahaldi félagsins í sumar en félagið er eitt af fáum skákfélögum sem heldur starfinu gangandi yfir sumarmánuðina. Hann rifjaði upp að þeir Sveinbjörn hafi telft saman í Gallerý Skák fyrir u.þ.b. 10 árum og að síðasa skák þeirra, sem var kappskák, hafi endað með jafntefli. Að launum fékk hann breitt bros frá hógværum Sveinbirni.

    Þeir félagar ræddu svo um heimsmeistaramót 50 ára og eldri sem fram fer í Kraká í Póllandi en síðasta umferðin verður tefld á morgun. Íslenska sveitin, skipuð "fjórmenningaklíkunni" frægu ásamt stórmeistaranum Þresti Þórhallssyni, leiddi mótið fyrir 7. umferð sem tefld var í gær gegn feykisterkri sveit Bandaríkjamanna. Íslenska sveitin var ein í efsta sætinu fyrir umferðina en tapaði viðureigninni (1-3) og á því veika von á að hremma gullið nema bandaríska sveitin misstígi sig í síðustu tveimur umferðunum. Íslenska sveitin á þó enn góða möguleika á að enda á verðlaunapalli.

    Tal barst að unga og efnilega skákfólkinu okkar og hinum argentíska Faustino Oro sem í síðasta mánuði varð yngsti alþjóðlegi skákmeistari skáksögunnar og sló þar með met hins bandaríska Abhimanyu Mishra um einn mánuð og fjóra daga. Faustiono er aðeins 10 ára gamall, fæddur 14. október 2013 en nýverið vann hann bestu skákmenn heims, heimsmeistarana Magnús Carlsen og Hikaru Nakamura, í hraðskák (1. og 3. mínútna skákir) á skákþjóni vefsíðunnar Chess.com.

  • Grænlandsfararnir Róbert Lagerman FIDE meistari og alþjóðlegur skákdómari og Veronika Steinunn Magnúsdóttir blaðamaður og laganemi eru gestir Kristjáns Arnar í þessum þætti. Þau ræða um útbreiðslu skákíþróttarinnar á Grænlandi sem skákfélagið Hrókurinn undir forystu Hrafns Jökulssonar heitins kom á í byrjun aldarinnar. Róbert fer til Grænlands núna í júlí og verður það 74 ferðin hans til Grænlands til að "breiða út fagnaðarerindið" eins og skákmenn svara gjarnan þegar þeir eru spurðir út í tilganginn með þessu öllu saman.

    Skákfélagið Hrókurinn hefur síðan árið 2003 unnið markvisst að útbreiðslu skákíþróttarinnar á Grænlandi. Áður var skák þar nánast óþekkt. Hrókurinn hefur farið í fjölmargar ferðir til Grænlands, heimsótt mörg þorp og haldið námskeið, fjöltefli og skákmót. Útbreiðsla skákíþróttarinnar hefur verið mikil og hefur félaginu alls staðar verið vel tekið. Má fullyrða að fjölmörg börn og fullorðnir tefli nú á Grænlandi fyrir tilstuðlan Hróksins.

    Róbert segir að Hrafn hafi sagt sér að markmiðið með öllum þessum ferðum væri að skapa gleðistundir fyrir börnin en ekki kílówattsstundir eins og Landsvirkjun. Hann segir að Hrókur­inn og Kalak, sem er vinafélag Grænlands og Íslands, hafi fyrst og fremst að leiðarljósi að auka sam­vinnu Íslend­inga og Græn­lend­inga á sem flest­um sviðum, sér­stak­lega þeim sem lúta að hags­mun­um barna. Grannþjóðirn­ar í norðri geti margt hvor af ann­arri lært, þegar vinátta og virðing séu í fyr­ir­rúmi.

    Róbert talar um störf Hrafns og Stefáns Her­berts­sonar á Grænlandi. Hrafn hafi leitt skák­land­nám Hróks­ins á Græn­landi frá upp­hafi auk þess að hafa verið virk­ur í starfi Kalak. Stefán sé fv. formaður Kalak og upp­hafsmaður hins ár­lega sund­krakka­verk­efn­is, en þá er 11 ára börn­um frá aust­ur­strönd­inni boðið til Íslands til að læra sund og kynn­ast ís­lensku sam­fé­lagi.

    Margt annað athyglisvert ber á góma hjá þeim Róberti og Veroniku í þættinum, m.a. grænlenskur matur, ísbirnir, sleðahundar, sauðnaut, menning, samgöngur, margvísleg félagsleg vandamál á Austur-Grænlandi og það, að Grænlenska skáksambandið hafi sótt um inngöngu í FIDE en umsóknin verður tekin fyrir á þingi Alþjóðaskáksambandsins sem haldið verður samhliða Ólympíuskákmótinu í Búdapest í Ungverjalandi dagana 10.- 23. september nk.

  • Gunnar Björnsson forseti Skáksambands Íslands er viðmælandi Kristjáns Arnar í þessum þætti og ræddu þeir að mestu um eftirfarandi: Alþingi Íslendinga samþykkti ný lög um skák síðastliðinn laugardag eða á síðasta starfsdegi þingsins fyrir sumarfrí. Lögin fela í sér þá breytingu að núverandi lög um launasjóð stórmeistara í skák, nr. 58/1990 og lög um Skákskóla Íslands, nr. 76/1990 falla úr gildi frá og með 1. febrúar 2025 þegar nýju heildarlögin um skák taka gildi. Ákvæði til bráðabirgða öðlast þó þegar gildi. Þar kemur fram að störf stórmeistara í skák séu lögð niður frá 31. janúar 2025 og að um réttindi og skyldur starfsmanna [stórmeistara], þ.m.t. biðlaunaréttur, fari samkvæmt lögum um réttindin og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996. Gert er ráð fyrir að líklegt sé að hópur sem nú fær laun stórmeistara muni uppfylla öll skilyrði til að fá úthlutun úr nýjum afrekssjóði í skák. Til að tryggja meðalhóf er lagt til að þessi hópur, nú sjö manns, njóti forgangs til styrkja úr sjóðnum í fyrstu úthlutun árið 2025 en eftir þann tíma verða umsóknir þeirra metnar á sama grundvelli og annarra úr sjóðnum. Með nýju lögunum er skilgreint að framlög ríkisins til skákmála renni annars vegar til afrekssjóðs í skák og hins vegar til skákhreyfingarinnar í gegnum æðsta aðila hennar, Skáksamband Íslands, meðal annars til fræðslu um skák. Jafnframt er horft til þess möguleika að styrkja efnilegt skákfólk, sem stefnir að alþjóðlegum árangri, en hingað til hafi eingöngu þeir sem hlotið hafa nafnbótina stórmeistari uppfyllt skilyrði til að fá greiðslur úr ríkissjóði. Styrkjum verður að jafnaði úthlutað einu sinni á ári og verða veittir í þrjá til tólf mánuði í senn og þá til skilgreindra verkefna sem taki mið af væntum árangri umsækjanda það árið. Til að bæta stöðu og auka möguleika kvenna í skák er heimilt að setja mismunandi skilyrði styrkveitinga fyrir kynin.

  • Sigurbjörn J. Björnsson og Björn Ívar Karlsson eru mættir Við skákborðið til Kristjáns Arnar að þessu sinni. Meginefni þáttarins er umfjöllun um nýja bók eftir Sigurbjörn sem er að koma út í komandi viku. Hve þung er þín krúna er söguleg skáldsaga sem segir frá heimsmeistaraeinvíginu í skák á Íslandi á nýstárlegan hátt. Hún greinir frá því hvernig íslensku skipuleggjendurnir tókust á við margvísleg vandamál sem komu upp við skipulagningu einvígisins og það hvernig þeir Spasskí og Fischer tókust á við álagið og sundrungina sem kom upp i herbúðum beggja aðila, sumarið 1972 þegar skák varð miðdepill heimsfréttanna.

    Höfundur bókarinnar Sigurbjörn J. Björnsson er margreyndur skákmaður, fyrrverandi skákmeistari Reykjavíkur og núverandi Íslandsmeistari skákfélaga með skákdeild Fjölnis.

    Í þættinum koma þeir félagar inn á ákvörðun aðalfundar Skáksambands Íslands um að halda áfram útgáfu tímaritsins Skákar á prentformi en stjórn sambandsins hafði fyrr á árinu ákveðið að hætta útgáfunni , Fjórmenningaklíkuna sem heldur á heimsmeistaramót 50 ára og eldri í Kraká í Póllandi í byrjun júlí, Hans Moke Niemann sem aftur hefur rofið 2700 alþjóðlega skákstigamúrinn, Madrid Chess Festival þar sem ýmis leiðindi voru fyrirferðamikil, ásakanir um svindl o.fl. Einng kom fram að Jeanne Cairns Sinquefield, meðstofnandi Saint Louis Chess Club, tilkynnti við upphaf Cairns Cup mótsins í síðustu viku að fimm fyrstu bandarísku konurnar sem næðu stórmeistaratitli fyrir 4. júlí 2029 yrðu verðlaunaðar sérstökum "Cairns Chess Queens" verðlaunum að upphæð 100.000 dollurum eða um 14. milljónum íslenskra króna. Alþjóðaskáksambandið hefur ákveðið að heimsmeistaramótið í at- og hraðskák skuli fara fram í New York í Bandaríkjunum á milli jóla og nýárs og

  • Gestir skákþáttarins að þessu sinni eru skákmeistararnir Magnús Pálmi Örnólfsson, hagfræðingur MBA og Rúnar Sigurpálsson, FIDE meistari og framkvæmdastjóri orkufyrirtækisins Fallorku á Akureyri. Magnús Pálmi var í stúdíóinu með Kristjáni Erni en Rúnar kom svo inn í síðari hluta þáttarins með símasambandi frá Akureyri. Í fyrri hlutanum sagði Magnús frá áætlun sinni um að setja á stofn skáksetur á Hóli í Bolungarvík, sem hann nýlega festi kaup á, þar sem skákmönnum gæfist kostur á að dveljast, nema og stúdera skáklistina í góðu næði við góðar aðstæður. Einnig ræddi hann áhuga sinn á að koma upp fyrsta flokks skákaðstöðu á höfuðborgarsvæðinu. Þar yrði hægt að halda vönduð skákmót þar sem öll bestu tæki og áhöld yrðu til staðar, bæði til taflmennsku og útsendinga. Rúnar Sigurpálsson sagði frá skáklífinu á Akureyri, rifjaði aðspurður af Magnúsi upp fjölda þeirra skákmeistaratitla sem hann hefur unnið til í gegnum árin og sögðu þeir félagarnir sögur frá menntaskólaárum sínum á Akureyri og þegar þeir tefldu í landsliðsflokki í Vestmannaeyjum árið 1994. Margt annað bar á góma sem hlusta má á í þættinum.

  • Skákkennarinn og FIDE meistarinn Björn Ívar Karlsson var gestur þáttarins að þessu sinni. Eins og oft áður var umræðuefnið fjölbreytilegt en þeir Björn Ívar og Kristján Örn veltu fyrir sér slökum árangri heimsmeistarans Ding Liren í Norway Chess skákmótinu sem lýkur í vikunni. Björn efaðist um að við fengjum að sjá einvígi á milli Ding og áskorandans Gukesh í lok árs eins og stefnt er að, Ding Liren væri einfaldlega ekki búinn að jafna sig eftir erfið veikindi undanfarið ár. Björn talaði um EM ungmenna 8-18 ára sem fer fram í Prag 21. ágúst til 1. september en þar væri um að ræða metþátttöku frá Íslandi. Komið var inn á keppnisferðir Breiðabliks til Deltalift Open í Halmstad, þjálfunaraðferðir og undirbúning fyrir skákir, þróun og breytingar á ungum skákmönnum, Wessman Cup sem CAD-bræður héldu fyrir stuttu og hversu öflugir "gömlu mennirnir" Jóhann Hjartarson og Helgi Ólafsson væru en Helgi stóð uppi sem sigurvegari. Þá var rætt um Áskorendaflokk sem nú stendur yfir í húsakynnum TR og væntanlega bók Sigurbjörns Björnssonar, Hve þung er þín krúna, um einvígið 1972. Í fundargerð Skáksambands Íslands frá 26. apríl sl. segir að Helgi Ólafsson hafi lýst því yfir að hann ætli að hætta sem skólastjóri Skákskólans í haus eftir 30 ára starf. Kristján spurði Björn Ívar hvort hann hygðist gefa kost á sér sem næsti skólastjóri og sagðist Björn hafa áhuga á að taka við því starfi. Í fundargerðinni kemur einng fram að stjórn SÍ hafi ákveðið á fundi sínum að óska við Dómstól SÍ að Héðinn Steingrímsson stórmeistari fengi þriggja ára bann frá Skákþingi Íslands auk eins árs banns frá öðrum mótum á vegum SÍ. Kristján Örn spilaði viðtal í lok þáttarins sem hann tók við Helga Árnason formann skákdeildar Fjölnis og fyrrverandi skólastjóra Rimaskóla vegna málsins en Héðinn er öflugur liðsmaður Íslandsmeistara Fjölnis í skák.

  • Nýr formaður Taflfélags Reykjavíkur, Ingvar Þór Jóhannesson og fráfarandi formaður félagsins, Gauti Páll Jónsson eru gestir Kristjáns Arnar Elíassonar í þættinum.

    Aðalfundur Taflfélags Reykjavíkur var haldinn í síðustu viku en þá voru m.a. gerðar þær breytingar á stjórn félagsins að Gauti Páll Jónsson, fráfarandi formaður, vék úr aðalstjórn í varastjórn og Ingvar Þór tók við formennsku. Gauti Páll hafði áður tekið við formennsku í desember 2023 þegar Ríkharður Sveinsson þáverandi formaður féll frá. Á fund­in­um var Her­mann Ragn­ars­son gerður að heiðurs­fé­laga Tafl­fé­lags Reykja­vík­ur fyr­ir störf sín í þágu fé­lags­ins. Þeir Ingvar Þór og Gauti Páll ræddu um starfsemi félagsins í vetur og mótahald sem er fram undan. Myndarlega verður staðið að Haustmót Taflfélags Reykjavíkur 2024 en það verður tileinkað minningu Ríkharðs. Eins og svo oft áður í þessum skákþáttum var farið um víðan völl í spjalli um íslenskt skáklíf, talað um skákviðburði og sagðar skákfréttir.

  • Gunnar Kristinn Gunnarsson er gestur þáttarins að þessu sinni. Gunnar er fyrrverandi útibússtjóri Útvegsbankans í Hafnarfirði og var hann liðsmaður í sigursælli sveit bankans í hinni vinsælu skákkeppni stofnanna. Hann var forseti Skáksambands Íslands á árunum 1974-1975 og 1982-1984. Gunnar hefur þá sérstöðu meðal íslenskra skákmanna að vera eini Íslandsmeistarinn í skák (1966) sem einnig hefur unnið Íslandsmeistaratitil í annarri grein en hann varð Íslandsmeistari í knattspyrnu með meistaraflokki Vals (1956). Gunnar lék nokkra landsleiki með landsliði Íslands í knattspyrnu. Með sigri á Skákþingi Íslands 1966 tryggði hann sér sæti í sterku ólympíuliði Íslands sem tefldi á Ólympíumótinu í Havana á Kúbu sama ár. Gunnar verður 91 árs gamall þann 14. júní 2024 og heldur hann sér enn við á skáksviðinu með áskrift á tímaritinu New In Chess, stúderingum og með því að tefla vikulega með ÆSI, skákklúbbi eldri borgara í Stangarhyl.

  • Helgi Áss Grétarsson, stórmeistari og nýkrýndur Íslandsmeistari í skák er gestur Kristjáns Arnar í þessum þætti. Íslandsmótinu í skák lauk á laugardaginn þegar lokaumferðin fór fram í Mosfellsbæ. Fyrir lokaumferðina hafði Helgi Áss Grétarsson þegar tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn en þá var hann einum og hálfum vinningi á undan næsta manni, Vigni Vatnari Stefánssyni, fráfarandi Íslandsmeistara. Helgi endaði mótið á stuttu jafntefli við Vigni og fór einn keppenda taplaus í gegnum mótið.

    Í þættinum ræða þeir Íslandsmótið, andstæðinga Helga í mótinu, stöður sem upp komu eða öllu heldur hvernig Helgi undirbjó sig og nálgaðist einstaka skákir sínar allt eftir hver var andstæðingur hans hverju sinni. Helgi ræddi 5 ára planið sem hann setti sér árið 2018, sagði frá Íslandsmeti sínu í blindskák en árið 1997 tefldi hann blindskákafjöltefli við 11 manns og stendur það met enn. Í lokin talaði Helgi um og lýsti aðdáðun sinni á Indverjanum unga Gukesh Dommaraju sem fyrr í mánuðinum sigraði á áskorendamóti FIDE og vann sér þar með réttinn til að tefla við núverandi heimsmeistara í skák, Kínverjann Ding Liren síðar á árinu.

  • Björn Þorfinnsson alþjóðlegur skákmeistari og ritstjóri DV.is er gestur Kristjáns Arnar að þessu sinni. Þeir ræddu aðallega um Skákþing Íslands sem nú stendur yfir, nýafstaðið áskorendamót FIDE sem fram fór í Toronto í Kanada þar sem átta af sterkustu skákmönnum heims kepptu tvöfalda umferð allir við alla um réttinn til að skora á Ding Liren núverandi heimsmeistara í skák síðar á árinu. Einnig ræddu þeir fráfall fyrrverandi stórmeistara Isa Kasimi (Igors Rausis) frá Lettlandi, sem lést fyrr á árinu (f. 1961 - d.2024), en hann var gripinn glóðvolgur við svindl í miðju skákmóti á salerni þar sem hann notaði símatölvu sér til aðstoðar. Igor Rausis náði mest 2.686 elo-stigum árið 2019 eða sama ár og hann var staðinn að verki í opna skákmótinu í Strassborg en þá var hann elsti maðurinn á lista FIDE yfir 100 stigahæstu skákmenn heims. Rausis var sviptur stórmeistaratitli sínum og fékk sex ára keppnisbann af siðanefnd/dómstóli FIDE í desember sama ár. Þáttastjórnandi, Kristján Örn Elíasson, sat í rannsóknar- og ákærunefnd FIDE á þessum tíma og var einn þriggja meðlima Fair Play nefndar FIDE sem rannsakaði málið og gaf út ákæru á hendur Igor Rausis.