Afgespeeld
-
667.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag komum við Þórhallur Dan víða við. FH og Eiður Smári og Leiknir og Siggi Höskulds. Kvennalandsliðið, Besta deildin um helgina, evrópuboltinn, enski boltinn, körfuboltinn, handboltinn og svo margt margt fleira. Góða helgi.
-
665.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í þætti dagsins förum við Þórhallur Dan yfir nokkur mál, svo sem, Bestu deild karla, markadrottningu Bestu deildar, Ísak Snær, meistaradeildin, ólæti á bikarúrslitaleiknum og margt margt fleira. Njótið.
-
664.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag komum við Þórhallur Dan víða við. Besta deild karla, efri og neðri hluti. Valur Íslandsmeistari og afhending verðlauna, HK meistari í 3.fl.karla, enski boltinn og Man.City-Man.Utd. og margt fleira. Njótið.
-
658.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag fjöllum við Þórhallur Dan um landsleikinn, Ísland-Venezúela sem var í gær og U21 árs leikinn sem er í dag gegn tékkum. Við tölum um Þjóðadeildina, Olísdeildina, fréttir og slúður og margt margt fleira. Njótið helgarinnar.
-
657.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag fjöllum við Þórhallur Dan um meistaradeild kvenna og þátttöku Vals. Íslenska karlalandsliðið í fótbolta mætir Venezúela í vináttulandsleik í dag. Við tölum um landsliðið og Albert Guðmundsson og fleira tengt landsliðinu. Olísdeild karla er á dagskrá í kvöld og svo tölum við aðeins um Antoine Griezman leikmann Atl.Madrid. Þetta og eitthvað fleira til. Njótið.
-
656.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag er Viðar Halldórsson, formaður aðalstjórnar FH, í löngu viðtali. Við förum yfir opið bréf Viðars til bæjarstjórnar Hafnarfjarðar, stöðu FH og hvernig Viðar vildi sjá uppbyggingu hjá Haukum er varðar knatthús. Við förum yfir eignir FH og ég spyr hvort FH ætli að leggja til við bæjarstjórn að bærinn kaupi eignir FH. Þetta er aðeins það helsta sem kemur fram í þessu góða spjalli okkar. Njótið.
-
654.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í þætti dagsins komum við Þórhallur Dan víða við. A-landslið karla sem mætir Venezuela og Albaníu var tilkynnt í dag sem og U21 árs hópurinn sem mætir tékkum í umspili fyrir EM. Lokaumferðin í Bestu deildinni verður leikin á morgun og síðan tekur úrslitakeppnin við. Olísdeildin og Roger Federer fá umfjöllun og síðan er ein Krummasaga. Þetta og margt fleira. Góða helgi.
-
653.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag ræðum við Þórhallur Dan um meistaradeildina í fótbolta og einnig um evrópudeildina og sambandsdeildina sem eru í kvöld. Við tölum um Heimi Hallgríms, handboltann hér heima, fréttir og slúður og margt fleira. Njótið.
-
652.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í þætti dagsins förum við Þórhallur Dan yfir gang mála í meistaradeildinni í fótbolta, bæði í gær og í dag. Aganefd úrskurðaði leikmenn í bann í gær fyrir lokaumferðina um næstu helgi. Það verða þjálfaraskipti hjá Vestra, fréttir og slúður eru á sínum stað og margt fleira. Njótið.
-
650.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag förum við Þórhallur Dan yfir næst síðustu umferð deildarkeppni Bestu deildarinnar. Það gekk svo sannarlega mikið á í gær. Við fjöllum einnig um Lengjudeildina þar sem Fylkir er sigurvegari og svo ótrúlegan leik Juventus og Salernitana í ítalska boltanum í gær. Þetta og margt fleira. Njótið.
-
649.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í þætti dagsins förum við Þórhallur Dan um víðan völl. Besta deildin og leikir sunnudagsins, Graham Potter er nýr stjóri Chelsea og svo er það enski boltinn. Við spjöllum um heitar umræður sem eiga sér stað í Hafnarfirði um nýtt knatthús Hauka þar sem formaður FH er ekki sáttur með verðmiðann á húsinu. Þetta og margt fleira. Njótið helgarinnar.
-
646.Þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í þætti dagsins förum ég og Þórhallur Dan yfir það helsta í sportinu. Kvennalandsliðið okkar tapaði í gær fyrir Hollandi í undakeppni HM og umspil bíður okkar liðs. Meistaradeildin fór á fullt í gær og Chelsea tapaði óvænt í Zagreb og nú í morgun var Thomas Tuchel stjóri Chelsea rekinn. Besta deildin, Nökkvi Þeyr og fleira til í þætti dagsins. Njótið.
-
644.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í þætti dagsins förum við Þórhallur Dan yfir leikina í Bestu deildinni um helgina þar sem var mikið fjör. Kvennalandsliðið vann Hvíta-Rússland og fer í úrslitaleik á morgun gegn Hollandi. Enski boltinn og VAR er ekki gott samband. Það var hreinlega allt vitlaust um helgina. Milan vann Inter og Valur er meistari meistaranna í handboltanum. Njótið.
-
642.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í þætti dagsins förum við Þórhallur Dan yfir undanúrslitin í Mjólkurbikarnum en Víkingur vann Breiðablik í gær og FH og KA mætast í dag. Erling Haaland er að slá í gegn í enska boltanum og valskonur fá tékknesku meistarana í næstu umferð meistaradeildarinnar. Geir Þorsteinson vandar KSÍ ekki kveðjurnar í pistli um 2.deild kvenna. Þetta og margt fleira. Njótið.
-
641.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í þætti dagsins förum ég og Þórhallur Dan yfir mörg mál. Enski boltinn er á sínum stað og við tölum aðeins um Erling Haaland. Breiðablik og Víkingur mætast í kvöld í undanrúslitum Mjólkurbikarsins. Hvar stendur KSÍ ári eftir að formaður sambandsins sagði af sér? Afhverju er UEFA Pro gráða nausðynleg til að geta sótt um stöðu yfirmanns fótboltamála hjá KSÍ? Þetta og og fleira til er í þætti dagsins. Njótið.
-
640.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag tölum við Þórhallur Dan um nýja varabúninginn hjá landsliðunum í fótbolta? Besta deild karla er til umfjöllunar, enski boltinn þar fyrsti þjálfarinn var rekinn í dag og margt fleira. Njótið.
-
639.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag er nóg um að tala hjá mér og Þórhalli Dan. Besta deild karla, Lengjudeildin, Valur bikarmeistari og Ísland vann Úkraínu í undankeppni HM í körfubolta. Er VAR ekkert á leiðinni til Íslands í fótboltanum? Rory McIlroy vann Fedex golfmótið og um leið 18 milljónir dollara. Enski boltinn er á sínum stað og margt margt fleira. Njótið.
-
638.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag komum við Þórhallur Dan víða við. Mál Arons Einars og Eggerts Gunnþórs er til umfjöllunar. Körfuboltalandsliðið, meistaradeildin, Besta deildin og Lengjudeildin eru tekin fyrir sem og úrslitaleikur Breiðabliks og Vals í Mjólkurbikar kvenna. Þetta og margt fleira. Njótið helgarinnar.
-
637.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag fjöllum við Þórhallur Dan um mál stúlku í Skautafélagi Akureyrar sem varð fyrir áreitni þjálfara síns og hvernig ÍSÍ tók á málinu eða réttara sagt tók ekki á málinu. Við tölum um körfuboltalandslið karla, evrópuboltinn er á sínum stað, slúður og margt fleira. Njótið.
-
636.þáttur. Mín skoðun. Velkomin til leiks. Í dag ræðum við Þórhallur Dan um starf yfirmanns knattspyrnumála hjá KSÍ sem er laust til umsóknar. Besta deild kvenna er til umfjöllunar sem og Lengjudeild karla en Fylkir er nánast öruggt í Bestu deildina á næstu leiktíð. Við svörum vangaveltum sem komu í gegn Facebook síðu þáttarins(Mín skoðun á Facebook) og margt fleira. Njótið.
- Laat meer zien