Afgespeeld
-
AB VARAHLUTIR - ASKJA - SONAX - DOMINOS
Kristján Einar og Bragi hita upp fyrir austurríska kappaksturinn um helgina. Ferrari mæta með vélaruppfærslu, heldur Hamilton áfram að vinna?
-
Víkingar virðast óstöðvandi í Bestu deild karla og KR-ingar þurfa að vinna Skagamenn í kvöld til að halda lífi í titilbaráttunni. FH, Þór, KA og Stjarnan eru hins vegar í ansi slæmum málum. Martin Hermannsson er Þýskalandsmeistari eftir ótrúlega endurkomu og Hollendingar fljúgandi á HM.
-
Innkastið eftir 11. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og með þeim er Runólfur Trausti íþróttafréttamaður og markvarðaþjálfari.
Víkingar sýndu mátt sinn og megin þegar þeir tóku Framara í kennslustund, KR vann markaleik gegn ÍA, Eyjamenn eru komnir á mjög gott ról, fimmtán ára markaskorari þegar Breiðablik vann KA, jafntefli í Krikanum og á Hlíðarenda. -
Harkið fór yfir stærstu atvik í áttundu umferð 2. og 3. deildar karla og val á leikmanni umferðarinnar í báðum deildum.
Guðbjörn Smári var vant við látinn hjá tannlækni því var kallað í Freysa.
- Uppgjör 2.deildar: 8:00
- Uppgjör 3.deildar: 51:00
- Spá: 01:24
Harkið er í boði Serrano.
Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson. -
Margt í mörgu í maganum á Ingibjörgu eins og þeir segja svo oft. HM í forgrunni en líka eitthvað um Bestu.
-
Valgeir Valgeirsson, leikmaður Breiðabliks, og Magnús Haukur Harðarson voru gestir í HM hringborðinu þennan föstudaginn.
Stóru þjóðirnar mættu til leiks og gerði Messi frábæra þrennu gegn Alsír, sömu sögu má ekki segja um Ronaldo og félaga hans í Portúgal sem gerðu 1-1 jafntefli við Kongó. -
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 20. júní. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór.
Farið er yfir komandi umferð í Bestu deildinni og Þorkell Gunnar ræðir um Fram og stemninguna í Dal draumanna.
Freyr Alexandersson nýr þjálfari Rosenborgar er á línunni beint frá Þrándheimi.
Þá er rætt um heimsmeistaramótið í fótbolta. -
- Hægt er að horfa á þáttinn í mynd á Youtube
Sævar Þór Sveinsson, umsjónarmaður Utan vallar, fór yfir ársreikninga liða úr Bestu- og Lengjudeildinni ásamt Kára Snorrasyni.
Farið var yfir helstu tölur, sýnd gröf og rýnt í stöðu liðanna út frá ársreikningunum. -
Stór dagur í íþróttasögu Íslendinga í dag. Gunnlaugur Árni Sveinsson hefur þátttöku á U.S. Open risamótinu í golfi í kvöld, fyrstur Íslendinga. Við förum yfir það sem og HM í fótbolta þar sem að England mætir af fídómskrafti til leiks. Stelpurnar okkar eru með gullið tækifæri á að tryggja sér sæti á HM í fótbolta í BRASILÍU á næsta ári og spennan er mikil í Mjólkurbikar kvenna. Átta liða úrslitunum lýkur í kvöld.
-
„Loksins, loksins“ hrópuðu margir íþróttaáhugamenn í dag og Besta sætið þar með talið.
Teikningar fyrir nýja Þjóðarhöll hafa verið opinberaðar en athygli vekur að hvergi eru verklok áætluð. Hvenær verður þessi nýja höll eiginlega tilbúin?
Margt fleira var rætt í þætti dagsins af Besta sætinu.
HM er í fullum gangi og fyrsti þjálfarinn til að verða rekinn kemur frá Túnis. Fyrsti þjálfarinn til að verða rekinn úr Bestu deildinni er Jökull Elísabetarson en mun Sigurður Höskuldsson fylgja honum fljótt eftir?
Svo er spurning hvort það sé snilld eða alveg glatað að sjá tvö Lengjudeildarlið í undanúrslitum Mjólkurbikarsins. Menn gátu ekki sammælst um það.
-
10. umferð Bestu deildar karla gerð upp í Innkastinu. Elvar Geir og Valur Gunnars eru í hljóðveri og fótboltalýsandinn Kristinn Kjærnested, fyrrum formaður KR, er gestur.
Víkingur vann toppslaginn gegn KR, Stjarnan gerði markajafntefli gegn Breiðabliki í fyrsta leik Jóns Þórs og ÍA vann Val. FH vann sinn fyrsta sigur í Keflavík, ÍBV fór illa með Þór og Fram vann KA í markaleik. -
Kári Snorrason, Elvar Geir Magnússon og Sölvi Haraldsson í HM hringborðinu á þriðjudegi.
Það var af nægu að taka í öðrum þætti hringborðsins þetta árið. Farið var yfir alla leiki, helstu atburði og sögulínur. -
AB VARAHLUTIR - ASKJA - SONAX - DOMINOS
Kristján Einar og Bragi gera upp sögulegan Barselóna kappakstur þar sem sigursælasti ökumaðurinn vann með sigursælasta liðinu!
-
Það er risakvöld í Bestu deildinni þar sem KR-ingar heimsækja Víkinga í einkar veglegri útsendingu þar sem Nablinn verður á svæðinu og drónamyndavél fangar stemninguna á uppseldum toppslag. HM í fótbolta, Gunnlaugur Árni á Opna bandaríska, og gleðifréttir Garðbæinga voru einnig til umræðu í Besta sætinu.
-
Doc, Gunnar Birgis og Albert Inga bjóða g´óðan daginn Epic Ameríka.
-
Stóri HM-dagurinn er í dag. Mótið hefst í kvöld. Stjarnan sleppti sínu eina haldreypi og New York Knicks unnu heimskasta körfuboltalið sögunnar.
-
Fengum Jóa Ásbjörns og fundum fyrir hann lið til að halda með á HM.
- Laat meer zien