Afleveringen

  • Allir geta lent í því að koma að fólki sem hefur lent í áfalli, slysi, ofbeldi, náttúruhamförum eða einhverjum öðrum alvarlegum atburðum. Þá geta fyrstu viðbrögð verið mikilvæg og ýmislegt sem ber að varast. Auðvitað ætti fagfólk að veita slíka hjálp en alvarlegir atburðir gera oft ekki boð á undan sér, því getur verið gott að kunna einföld viðbrögð sem geta hjálpað þangað til fagfólk getur komið inn í aðstæðurnar. Belinda Karlsdóttir leiðbeinandi hefur kennt sálræna fyrstu hjálp hjá Rauða krossi Íslands og á næstunni ætlar Rauði krossinn að bjóða almenningi upp á netnámskeið í sálrænni fyrstu hjálp. Belinda ræddi um þetta.

    Barnabarn Helgu Steffensen, Hörður Bent Steffensen hefur tekið við Brúðubílnum af ömmu sinni eftir nokkurra ára hlé og býður upp á fjölda sýninga í sumar ásamt góðu teymi. Hann er leikari að mennt og var mikill aðdáandi Brúðubílsins alla sína æsku og fékk loks að taka þátt í sýningum á unglingsaldri. Hörður sagði frá sýningum sumarsins og hversu vel amma hans hélt upp á brúðurnar, handritin og leikmyndirnar sem fylgja Brúðubílnum sem á um hálfrar aldar sögu.


    Póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni. Magnús er nýkominn til Eyja eftir ferðalag erlendis og lentur í norðanbrælu og kulda. Hann rifjaði upp þegar hann kom fyrst til Eyja fyrir fjórum árum þá var honum sagt að það væri þrennt sem ekki mætti krítisera í Eyjum og hann fer yfir það í póstkortinu. Í seinni hlutanum sagði hann aðeins frá brosinu sem er nánast einstakt í dýraríkinu hér á jörð.

    Tónlist í þættinum í dag:

    Aftur heim til þín / Eyþór Ingi og Lay Low (Baldur Hjörleifsson og Jónína Guðrún Eysteinsdóttir)
    Sveitin mín / Haukur Morthens (Jóhann Helgason)
    Dýrin úti í Afríku / Brúðubíllinn (Helga Steffensen)
    Sveitastúlkan og sveitapilturinn / Marína og Mikael (Charlie Parker, texti Marína Ósk Þórólfsdóttir)
    Hafið / Egill Ólafsson (Matti Lauri Kallio, texti Egill Ólafsson)

    UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG HELGA ARNARDÓTTIR

  • Fasteignamat hækkar enn og samkvæmt nýju mati fyrir árið 2026 hefur það hækkað um 9,2% á milli ára. Þetta getur auðvitað haft áhrif á fasteignagjöld en þarf ekkert endilega
    að gera það. Tryggvi Már Ingvarsson framkvæmdastjóri Fasteigna hjá Húsnæðis-og mannvirkjastofnun ræddi þetta og fór einnig yfir hvernig staðið var að
    matinu og hvað hafði raunverulega áhrif á hækkun þess.

    Á mánudaginn snýr Menningargarðurinn aftur í Húsdýragarðinum, en þetta er annað sinn sem hann verður haldinn þar sem fjölbreytileika samfélagsins er fagnað með kynningu á menningu ólíkra þjóða, matreiðslu, handverksmiðju, dans, söng og sýningum. Þessi viðburður er haldinn á vegum menningarsendiherranna sem hittast í Suðurmiðstöð
    Reykjavíkurborgar einu sinni í mánuði. Sóley Thuy Doung, Lina Haidar Hatem og Jóhannes Guðlaugsson verkefnistjóri lýðheilsu og forvarna í Suðurmiðstöð komu í þáttinn og sögðu frá deginum.

    Við kynntumst svo nýjasta verðlaunahafa Verðlaunasjóðs í læknisfræði og skyldum greinum, Martin Inga Sigurðssyni, prófessor í svæfingum og gjörgæslulækningum og yfirlæknir við svæfinga-og gjörgæsludeild Landspítalans. Verðlaunin nema sjö milljónum króna en um er að ræða ein stærstu verðlaun sem veitt eru íslenskum vísindamönnum. Martin hlýtur verðlaunin fyrir rannsóknarferil sinn, meðal annars við að meta einstaklingsbundna áhættu við svæfingar til að koma í veg fyrir alvarlegar aukaverkanir. Martin sagði frá sínum störfum og með honum kom Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélags Íslands sem sagði frá verðlaunasjóðnum og hver rökstuðningurinn var við valið í ár.

    Tónlist í þættinum í dag:
    Lapis Lazuli / Helgi Björnsson (Helgi Björnsson og Guðmundur Óskar Guðmundsson)
    Lóan er komin / Tendra (James A. Bland, texti Páll Ólafsson)
    Stjörnur stara / Rebekka Blöndal (Ásgeir Jón Ásgeirsson, texti Rebekka Blöndal)
    Brúnaljósin brúnu / Páll Óskar Hjálmtýsson (Jenni Jóns)

    UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG HELGA ARNARDÓTTIR

  • Við heyrðum í dag í Sæunni Vigdísi Sigvaldadóttur, þroskaþjálfa á Egilsstöðum og býflugnabónda í Hallormsstaðaskógi. Sæunn er stödd í Seattle í Bandaríkjunum þar sem hún ætlar að læra tæknifrjóvgun býflugnadrottninga. Áætlunin er að gera Ísland sjálfbært í býflugnarækt til þess að draga úr innflutningi á býflugum, sem reynist sífellt erfiðara sökum býsjúkdóma. Við fengum Sæunni í dag til að segja okkur meðal annars frá því hvernig það kom til að hún fór út í býflugnarækt, hvað þarf til þess að fara út í ræktun og hvernig Ísland hentar fyrir býflugnarækt.

    Hvað tekur við að loknu kvikmyndanámi hérlendis og hvaða tækifæri bíða ungs kvikmyndagerðarfólks? Vigdís Howser Harðardóttir og Alvin Hugi Ragnarsson voru í fyrsta árgangi nýrrar kvikmyndadeildar við Listaháskóla Íslands og útskrifast um miðjan júní, en þau sögðu okkur frá lokaverkefnum sínum ásamt því að ræða kvikmyndasenuna hér á landi og hvernig þau ætla að setja mark sitt á hana.

    Í framhaldi af því ræddum við stöðu sviðslista á Íslandi og hverjar áskoranir og hlutverk þeirra eru við Friðrik Friðriksson, framkvæmdastjóra Sviðslistamiðstöðvar Íslands, en á föstudaginn fór fram Bransadagur Sviðslistanna í Borgarleikhúsinu þar sem staðan var rædd og þátttakendur deildu hugmyndum og sýn sinni á framtíð sviðslista.

    Tónlist í þættinum í dag:
    Býflugan / Geirfuglarnir (Þorkell Heiðarsson)
    The Birds And The Bees / Jewel Akens (Herbert Newman)
    Sumarvísa / Þorgerður Ása Aðalsteinsdóttir og Vigdís Hafliðadóttir (Mats Paulson, texti Iðunn Steinsdóttir)
    Heitt toddý / Ellen Kristjánsdóttir (H. Hendler & R. Flanagan, texti Friðrik Erlingsson)

    UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG HELGA ARNARDÓTTIR

  • Sex skúltpurverk eftir Arnar Ásgeirsson myndlistarmann voru valin úr fjölda hugmynda í samkeppni um listaverk í nýbyggingu Grensáss- endurhæfingardeildar LSH fyrir skömmu. Skúlptúrarnir mynda form sem gætu líkst framfaraferli. Þeir sýna örvar sem liðast út og suður, taka dýfur, kollsteypast en vísa upp á endanum. Örvarnar sýna að bataleiðin er ekki endilega stöðug eða bein. Arnar þekkir þetta af eigin raun eftir að hafa slasast í fyrra og eru verk hans innblásin af þeim langa tíma sem tók að ná bata og fullri líkamlegri færni. Arnar var gestur þáttarins í dag.

    Lesandi vikunnar í þetta sinn var Kristín Hulda Gísladóttir sálfræðingur hjá Ljósinu, stuðnings- og endurhæfingarmiðstöð fyrir krabbameinsgreinda. Hún sagði frá því hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Kristín talaði um eftirafarandi bækur og höfunda:
    With the end in mind: dying, death, and wisdom in the age of denial e. Katheryn Mannix
    Just kids e. Patti Smith
    Cosmos e. Carl Sagan
    The Bell Jar e. Sylvia Plath

    Tónlist í þættinum í dag:
    Og þess vegna erum við hér í kvöld / Fjallabræður (Magnús Þór Sigmundsson)
    Sama sól / Sigurður Halldór Guðmundsson (Sigurður Halldór Guðmundsson)
    Veldu stjörnu / Ellen Kristjánsdóttir og John Grant (Ellen Kristjánsdóttir, texti Bragi Valdimar Skúlason)

    UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG HELGA ARNARDÓTTIR

  • Saga Garðarsdóttir leikkona var föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn. Hún leikur eitt aðahlutverkið í nýrri kvikmynd Hlyns Pálmasonar, Ástin sem eftir er sem frumsýnd var í Cannes fyrr í mánuðinum og fékk ljómandi góðar viðtökur. Saga er tiltölulega nýlent eftir viðburðaríka daga í Cannes en hún hefur auðvitað verið á sviðum leikhússanna síðustu ár ásamt því að vera sjálfstætt starfandi gamanleikkona og grínisti um allar trissur. Hún er byrjuð að æfa leikritið ÍBÚÐ 10B eftir Ólaf Jóhann Ólafsson í leikstjórn Baltasars Kormáks sem frumsýnt verður í Þjóðleikhúsinu í haust. Við fórum í ferðalag í gegnum lífið með Sögu Garðarsdóttur í þættinum í dag.

    Svo var auðvitað matarspjallið með Sigurlaugu Margréti á sínum stað, en hún er stödd í þetta sinn á Krít hvaðan hún var í beinu sambandi. Lambakjöt, sósur, fetaostur, safaríkar melónur, hunang og olía úr fjöllunum er meðal þess sem hún sagði okkur frá í dag.

    Tónlist í þættinum í dag:

    Reyndu aftur / Mannakorn (Magnús Eiríksson)
    Í draumalandinu / Space Station (Björgúlfur Jes Einarsson)
    Það sem enginn veit / Eysteinn Pétursson (Þórbergur Þórðarson)

    UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG HELGA ARNARDÓTTIR

  • Ísland skipar 17.sætið á heimsvísu þegar kemur að frelsi fjölmiðla á meðan Noregur trónir á toppnum níunda árið í röð samkvæmt nýlegri úttekt samtakanna Blaðamenn án landamæra. Er fækkun og hnignun fjölmiðla undanfarin ár um að kenna eða er versnandi samband milli stjórnmálafólks og fjölmiðla ástæða þessarar niðurstöðu, í samanburði við hin Norðurlöndin? Formaður Blaðamannafélags Íslands, Sigríður Dögg Auðunsdóttir og Freyja Steingrímsdóttir, framkvæmdastjóri félagsins, komu í þáttinn í dag og ræddu þetta ásamt því að greina frá niðurstöðum svokallaðs Lausnamóts sem haldið var á vegum félagsins með fólki úr blaðamannastétt og öðrum stéttum samfélagsins til að leita lausna við þeim vanda sem nú steðjar að íslenskum fjölmiðlum.

    Við fræddumst svo um það hvað þarf að leggja á sig til að verða lama, eða andlegur kennari í Tibet búddisma, en Ringu Tulku er einmitt hátt settur tíbetskur lama og er á leiðinni til Íslands. Gunnar L. Friðriksson kom til okkar í dag en hann er í Félagi tíbetbúddista á Íslandi og sagði frá Ringu Tulku og Hugleiðslu- og friðarmiðstöðinni í þættinum.

    Tónlist í þættinum í dag:

    Tætum og tryllum / Stuðmenn (Jakob Frímann Magnússon)
    Þorparinn / Pálmi Gunnarsson (Magnús Eiríksson)
    Þúsund sinnum segðu já / Grafík (Helgi Björnsson)

    UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG HELGA ARNARDÓTTIR

  • Við fræddumst í dag um nýja uppgötvun vísindafólks Íslenskrar erfðagreiningar og samstarfsfólks þeirra í Danmörku þar sem þau raðgreindu tæplega fimm hundruð sýni úr fósturlátum meðal danskra fjölskyldna og komust að því að ein af hverjum 136 þungunum endar með fósturláti vegna nýrra stökkbreytinga í fóstrinu. Þetta samsvarar því að slíkar stökkbreytingar valdi um milljón fósturlátum árlega á heimsvísu. Hákon Jónsson og Guðný A. Árnadóttir, vísindafólk hjá Íslenskri erfðagreiningu, komu í þáttinn í dag og útskýrðu fyrir okkur hvernig þessar rannsóknir komu til, hvernig þær voru framkvæmdar, niðurstöðurnar og hvað þær þýða.

    Þrátt fyrir jarðskjálfta, eldgos og viðvarandi óvissu í Grindavík hefur fyrrverandi kennari, og fyrrverandi upplýsinga- og markaðsfulltrúi bæjarins til 17 ára, Kristín María Birgisdóttir, fundið ný tækifæri til að halda sögu Grindavíkur á lofti. Hún hefur stofnað ferðaþjónustufyrirtækið DISCOVER GRINDAVÍK fyrir erlenda og innlenda ferðamenn þar sem hún ætlar að rekja sögu bæjarins og náttúruhamfaranna undanfarin ár. Kristín María sagði okkur frá þessu í þættinum.

    Einar Sveinbjörnsson var svo hjá okkur í dag með veðurspjallið, reyndar í beinni sambandi frá Lettlandi. Í þetta sinn talaði hann við okkur um hvaða áhrif loftslagsbreytingar hafa í Eystrasaltsríkjunum. Svo talaði hann um moskítóflugur og vangavelturnar sem koma upp aftur og aftur, þ.e. af hverju þær berast ekki til Íslands? Á meðan þær til dæmis grassera á Grænlandi. Tengist það veðurfarinu? Og að lokum endaði Einar á hugleiðingum um sjávarhitann, sem er nú óvenjulega hár fyrir norðan land, hvað veldur því?

    Tónlist í þættinum í dag:
    Heim í Búðardal / Ðe lónlí blú bojs (Gunnar Þórðarson, texti Þorsteinn Eggertsson)
    Ég veit þú kemur / Ellý Vilhjálms (Oddgeir Kristjánsson, texti Ási í Bæ)
    Gvendur á Eyrinni / Dátar (Rúnar Gunnarsson, texti Þorsteinn Eggertsson)
    Hæ Mambó / Haukur Morthens og Kvintett Jörn Grauengaard (Merril, texti Loftur Guðmundsson)

    UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG HELGA ARNARDÓTTIR

  • Sjónvarpsþáttaröðin Veislan með Michelin matreiðslumanninum Gunnari Karli Gíslasyni og Sverri Þór Sverrissyni er að hefja göngu sína á ný á RÚV um miðjan júní. Þetta er þriðja þáttaröðin sem unnin er og að þessu sinni heimsækja þeir eyjar í kringum landið. Þetta eru eyjarnar Flatey í Breiðafirði og á Skjálfanda, Hrísey, Vigur og Heimaey. Þar hitta þeir fyrir heimamenn og elda með þeim kræsingar úr hráefni frá hverjum stað. Þau Lilja Jónsdóttir, leikstjóri og ein meðframleiðenda þáttanna, og Gunnar Karl sögðu okkur í þættinum frá Veislu sumarsins ásamt því að ræða hvað verður um uppskriftirnar allar sem eru spunnar upp á þessum fallegu stöðum og sögurnar sem þau hafa fengið að heyra á ferðalögunum.

    Lesandi vikunnar í þetta sinn var Ásta Sigrún Magnúsdóttir, samskiptastjóri Garðabæjar. Við fengum hana til að segja okkur hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Ásta talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
    Julie Chan is dead e. Liann Zhang
    Kúnstpása e. Sæunni Gísladóttur
    Bréf úr sjálfskipaðri útlegð e. Gunnlaug Magnússon.
    Kvika e. Þóru Hjörleifsdóttur
    Baldintáta e. Enid Blyton,
    Sitjið Guðs Englar serían e. Guðrúnu Helgadóttur
    Elías e. Auði Haralds
    Peð á páhnetunni Jörð e. Olgu Guðrúnu Árnadóttur

    Tónlist í þættinum í dag:
    Ég er á leiðinni / Brunaliðið (Magnús Eiríksson)
    Horfðu til himins / Nýdönsk (Jón Ólafsson, Daníel Ágúst Haraldsson, texti Daníel Ágúst Haraldsson)
    Heimförin / Ásgeir Trausti (Ásgeir Trausti Einarsson, texti Einar Georg Einarsson)

    UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG HELGA ARNARDÓTTIR

  • Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Karl Olgeirsson tónlistarmaður. Hann hóf nýlega störf sem organisti í Ástjarnarkirkju og þar stofnaði hann kirkjukór. Hann hefur samið tónlist nánast frá því hann fékk hljóðfæri fyrst í hendurnar. Við fórum með honum aftur í tímann á æskuslóðirnar í Hlíðunum, til Svíþjóðar og aftur heim og fórum svo á handahlaupum í gegnum lífið til dagins í dag. En hann er í nýju hlutverki á morgun þegar hann er aðalsöngvarinn í dagskrá þar sem flutt verða bestu lög Steely Dan og Donald Fagen í Hörpu.

    Í matarspjalli dagsins með Sigurlaugu Margréti héldum við svo áfram að skoða skrýtnar og óvenjulegar samsetningar á mat og fórum í gegnum nokkra tölvupósta frá hlustendum þess efnis. Og svo skoðuðum við hvort þessar breytingar í veðrinu hafi áhrif á matarval okkar.

    Tónlist í þættinum í dag:
    Smells Like Teen Spirit / Raggi Bjarna og Milljónamæringarnir (Kurt Cobain, Dave Grohl og Krist Novoselic)
    Gríptu draum / Sigríður Eyrún Friðriksdóttir og Karl Olgeirsson (Karl Olgeirsson)
    I.G.Y. / Karl Olgeirsson og Reykjvik Tribute Orchestra (Donald Fagen)

    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

  • Í gærkvöldi var á dagskrá sjónvarpsins norska heimildarmyndin Drengir á jaðrinum, sem fjallar um reynslu 36 drengja í 10.bekk sem höfðu fundið sig illa í skólakerfinu og lífinu og voru flestir búnir að taka þá ákvörðun að fara ekki í framhaldsskóla. Þeir fengu tilboð um að fara í tveggja vikna skólabúðir, þétt skipulagðar. Símarnir voru teknir af þeim og þeir voru saman allan sólarhringinn í námi, leikjum, samtölum og fleiru. Kennararnir voru með þeim allan tímann líka. Það gekk á ýmsu, upp og niður en til að gera langa sögu stutta gjörbreyttu þessar tvær vikur þeirra viðhorfi til skólans og ekki síst til þeirra sjálfra og þeir allir enduðu með að fara í framhaldsskóla. Margrét Kristín Sigurðardóttir, tónlistarkona og kennari, hefur unnið talsvert með nemendum sem finna sig ekki í skólakerfinu sá myndina áður en hún var sýnd hér í sjónvarpi og hreifst svo mikið af henni að hún fór beint á fund í Menntamálaráðuneytinu og hjá Reykjavíkurborg til þess að kynna þetta úrræði fyrir þeim sem málið varða. Margrét kom í þáttinn í dag.

    Við heyrðum svo í Birni Pálssyni, en hann rekur ferðaskrifstofu sem sérhæfir sig í ferðum til landa sem eru ekki kannski þessi hefðbundnu sumarleyfisstaðir, en vissulega gríðarlega áhugaverð. Sýrland, Afghanistan, Yemen, Túrkmenistan, Máritanía, Írak, Alsír og fleiri staðir. Björn býr sjálfur á Sri Lanka, en er staddur á Akureyri, hvaðan hann spjallaði við okkur í dag.

    Ólína Guðbjörg Viðarsdóttir sérfræðingur í klínískri sálfræði og eigandi Heilaheilsu, sem er þjónusta fyrir fólk með hugrænan vanda og heilaáverka. Ólína lenti í því sjálf sem fótboltakona að fá ítrekaðan heilahristing og fann ekki miklar upplýsingar um hvernig hún gæti náð bata eftir að hafa fundið fyrir sjóntruflunum, heilaþoku, langvarandi úthaldsleysi og þreytu. Hún segir mikilvægasta skrefið að gera allt til að róa taugakerfið og hvíla heilann vel gagnvart öllu áreiti en byrja þó fljótlega að hreyfa sig skynsamlega aftur til að fá blóðið af stað og mælir með stuttum göngutúrum til að byrja með. Huga þurfi að mataræði og forðast þekkta bólguvalda á borð við sykur, unnar matvörur, stýra streituvöldum og passa upp á svefn. Helga Arnardóttir ræddi við Ólínu Guðbjörgu á Heilsuvaktinni í dag.

    Tónlist í þættinum í dag:
    Sumarlag / Stjórnin ( Eyjólfur Kristjánsson, texti Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson)
    Söngur um lífið / Rúnar Júlíusson (Höfundur óþekktur, texti Þorsteinn Eggertsson)
    Ég fer á Land Rover frá Mývatni á Kópasker / Helgi Björnsson (Helgi Björnsson, Guðmundur Óskar Guðmundsson og Atli Bollason)

    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

  • Viljum við að færri fái krabbamein? Það ætti að vera auðvelt að svara þessari spurningu, en hún er einmitt yfirskriftin á málþingi sem Krabbameinsfélagið stendur fyrir næsta laugardag. Þar verður rætt um hvort það séu vannýtt tækifæri til þess að fækka þeim sem fá krabbamein í íslensku samfélagi og sóknarfæri í forvörnum. Sigrún Elva Einarsdóttir, sérfræðingur og teymisstjóri fræðslu og forvarna hjá Krabbameinsfélaginu, og Vigdís Eva Guðmundsdóttir, sérfræðingur í fræðslu og forvörnum hjá Krabbameinsfélaginu, komu í þáttinn í dag, en þær halda báðar erindi á málþinginu.

    Við heyrðum svo í Ívari Dagssyni, en hann rekur 20 osteopatastofur í Danmörku og 140 osteopatar starfa fyrir fyrirtækið. Hann stofnaði fyrirtækið fyrir 11 árum, eftir að hann lauk námi. Hann áformar nú að opna stofur í fleiri löndum og sína fyrstu osteopata stofu á Íslandi í júní. En það er ekki víst að allir viti hvað osteopatar gera, því fengum við Ívar til að segja okkur allt um það og frá velgengninni í Danmörku og víðar.

    Að lokum fengum við póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni. Í korti dagsins fjallar Magnús fyrst um fyrrum forseta Urugays, sem lést fyrir nokkrum dögum. Hann varð frægur um allan heim fyrir látlausan lífstíl og róttækar umbætur sem hann gerði í heimalandi sínu. Í seinni hlutanum segir frá vaxandi sniðgöngu á bandarískum vörum og framleiðslu vegna tollapólitíkur bandaríkjaforseta.

    Tónlist í þættinum í dag:

    Hinn elskulegi garðyrkjumaður / Kristjana Stefánsdóttir (Páll Torfi Önundarson)
    Í sól og sumaryl / Stebbi og Eyfi (Gylfi Ægisson)
    Sumarlandið / Jón Jónsson og KK (Jón Jónsson, texti Jóns Jónsson og Martina Vigdís Nardini)
    Sumargestur / Ásgeir Trausti (Ásgeir Trausti Einarsson, texti Einar Georg Einarsson)

    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

  • Bændasamtök Íslands standa að herferðinni - Við erum öll úr sömu sveit - þessa dagana. Beinir snertifletir almennings við bændur og matvælaframleiðslu eru færri en áður sem óhjákvæmilega bitnar á tengslum og innsýn. Samtökin vilja minnka bilið milli bænda og þjóðarinnar og opna faðminn og samtal við þjóðina. Trausti Hjálmarsson, formaður Bændasamtakanna var hjá okkur í dag og sagði betur frá þessu.

    Svo kynntum við okkur starfsemi Ungliðahreyfinar Amnesty International, sem er er félagsskapur fyrir ungt fólk á aldrinum 14 til 25 ára. Hlutverk hennar er að vekja athygli á mannréttindum og mannréttindabrotum um allan heim. Heiðrún Vala Hilmarsdóttir og Cynthia Anne Namugambe, úr Ungliðahreyfingunni og Árni Kristjánsson, ungliða- og aðgerðarstjóri Íslandsdeildar Amnesty International sögðu okkur allt um þetta í þættinum.

    Að lokum fræddumst við um Okkar heim og ókeypis sumarnámskeið fyrir börn foreldra sem glíma við geðrænan vanda. Okkar heimur er stuðningsúrræðið sem stendur að þessum námskeiðum auk annars fræðslu- og stuðningsstarfs fyrir þennan hóp barna, en eitt af hverjum fimm börnum í heiminum á foreldra með geðrænan vanda. Sigríður Gísladóttir, framkvæmdastjóri Okkar heims, og Þórunn Edda Sigurjónsdóttir, félagsráðgjafi, komu í þáttinn.


    Tónlist í þættinum í dag:
    Sólarsamba / Bræðrabandalagið (Magnús Kjartansson, texti Halldór Gunnarsson)
    Sólarlag / Bergþóra Árnadóttir (Bergþóra Árnadóttir, texti James G. Johnson)
    Sólin er komin / Mugison (Örn Elías Guðmundsson)
    Sól mín sól / Anna Pálína Árnadóttir (Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson)

    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

  • Gunnar Svanbergsson sjúkraþjálfari kom í þáttinn í dag, hann fékk Covid um jólin 2020, sem hann lýsti þá eins og bara ansi týpískri skítapest, en eftir hana var hann eiginlega alveg máttlaus og til að gera langa sögu stutta þá er hann ekki enn þann dag í dag búinn að jafna sig. Áður en hann veiktist var hann mikill útvistar- og ævintýramaður í toppformi. Nú, um það bil fjórum og hálfu ári eftir að hann veiktist líkir hann því við að hann þurfi að klífa Everest, eða yfirþyrmandi hindrun, bara til að komast fram úr rúminu og ná sér í kaffi. Við fengum Gunnar til að segja okkur þessa erfiðu reynslusögu, hvernig ferlið hefur verið og hvernig útlitið er framundan.

    Lesandi vikunnar í þetta sinn var Eydís Blöndal, hugmynda- og textasmiður og ljóðskáld. Við fengum að vita hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Eydís talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
    The Vegetarian e. Han Kang
    When Things Fall Apart e. Pema Chödrön
    Límonaði frá Díafani e. Elísabetu Jökulsdóttur
    Piranesi e. Susanna Clarke
    I Who Have Never Known Men e. Jacqueline Harpman
    Hús andanna e. Isabel Allende
    Lovestar e. Andra Snæ Magnason

    Tónlist í þættinum í dag:
    Sól bros þín / Bubbi Morthens (Bubbi Morthens)
    Sólarsamban / Rebekka Blöndal (Ásgeir Jón Ásgeirsson, texti Rebekka Blöndal og Stefán Örn Gunnlaugsson)

    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

  • Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var leikarinn Jóhannes Haukur Jóhannesson. Hann hefur mikið látið að sér kveða eftir að hann útskrifaðist úr leiklistarskólanum, bæði í leikhúsi og fyrir framan myndavélina þar sem hann hefur leikið margvísleg hlutverk. En svo fyrir rúmum tíu árum fékk hann fyrsta hlutverk sitt í erlendu kvikmyndaverkefni og þá fór boltinn að rúlla. Í dag flýgur hann heimshornanna á milli og leikur í gríðarstórum kvikmyndum og sjónvarpsþáttaröðum, Game of Thrones, Succession, nýjustu ofurhetjumyndinni um Captain America og nú er hann að leika í kvikmynd um He-Man, eða Garp eins og hann kallaðist á íslensku. Við fórum með Jóhannesi aftur á æskuslóðirnar, en hann ólst að hluta til upp í Færeyjum og brunuðum svo með honum í gegnum lífið til dagsins í dag.

    Í matarspjalli dagsins með Sigurlaugu Margréti tókum við framhaldsumræðu um af makkarónur með hangikjöti og kokteilsósa og pítusósa með pizzum og aðrar skrýtnar, eða að minnsta kosti óvenjulegar samsetningar á mat. Ef þið lumið á sögum af slíku, samsetningu á mat sem er kannski þekkt í einhverjum fjölskyldum, eða í einhverjum landshlutum, en gætu þótt sérkennilegar annars staðar, þá endilega sendið okkur á [email protected].

    Tónlist í þættinum í dag:

    Pabbi vill mambó / Páll Óskar og Milljónamæringarnir (Al Hoffman, Bix Reichner, Dick Manning, textahöfundur ókunnur)
    Hvað er ástin? / GDRN (Friðrik Dór Jónsson og Jón Jónsson)
    Rólegur kúreki / Bríet (Bríet Ísis Elfar og Pálmi Ragnar Ásgeirsson)

    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

  • Mýrdalshlaupið hefur tryggt sér sess meðal bestu og stærstu utanvegahlaupaviðburða á Íslandi síðustu ár og fer nú fram í 12. skipti þann 31. maí að Vík í Mýrdal. Allt skipulag og utanumhald hlaupsins er í höndum einnar fjölskyldu frá Vík og hlaupið er ræst í fjörunni í Vík og hlaupa allir keppendur upp á Reynisfjall vestan við þorpið þar sem leiðir skilja. Hlaupið er eitt mest krefjandi utanvegahlaup á Íslandi vegna mikillar hækkunar og lækkunar, mikils bratta og fjölbreytts undirlags. Guðni Páll Pálsson, einn af skipuleggjendunum og meðlimur fjölskyldunnar sem stendur að hlaupinu, kom til okkar í dag og með honum var Þorsteinn Roy Jóhannesson sem er einn besti utanvegahlaupari landsins.

    Veðrið og margbreytileiki er auðvitað fyrirferðamikið í umræðunni, enda hefur það mikil áhrif á okkar daglega líf hér á eyjunni í Norður-Atlantshafi. Nú hefur opnað nýr veðurvefur á ruv.is og er hann síuppfærður með veðurupplýsingum frá Veðurstofu Íslands. Lögð er áhersla á að greina frá veðurspánni á myndrænan hátt þar sem hægt er að skoða allar veðurstöðvar landsins og nágrenni þeirra og fá langtímaspár og ýmislegt fleira. Við heyrðum í Birgi Þór Harðarsyni vefstjóra ruv.is fengum hann til að segja okkur betur frá þessum nýja vef sem hægt er að finna á www.ruv.is/vedur og á www.vedurspa.is.

    Í Landnámu er sagt frá landnámsmanninum Bjólfi, sem fyrstur nam Seyðisfjörð. Ekki er mikið meira fjallað um ferðir Bjólfs, en sagan segir að hann sé heygður hátt uppi í fjallinu. Baugur Bjólfs er hringlaga útsýnispallur sem mun sitja á Bæjarbrún, fyrir neðan Baugstind, þar sem er einstakt útsýni yfir Seyðisfjörð og í raun til allra átta. Við slógum á þráðinn austur og töluðum við Aðalheiði Borgþórsdóttur, atvinnu- og menningarmálastjóri hjá Múlaþingi og fyrrum sveitarstjóri Seyðisfjarðar, og fengum hana til að segja okkur betur frá þessu verkefni í dag.

    Tónlist í þættinum í dag:

    Dúddi rádd'okkur heilt / Stuðmenn og Eggert Þorleifsson (Sigurður Bjóla Garðarsson, Valgeir Guðjónsson og Egill Ólafsson)
    Stingum af / Mugison (Örn Elías Guðmundsson)
    Perlur og svín / Emilíana Torrini (Ólafur Gaukur Þórhallsson, texti Hallgrímur Helgason)
    Simple pleasures / Blood harmony (Ösp Eldjárn)

    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

  • Samskipti, streita, fjarvistir og félagsleg sjálfbærni á vinnustöðum er nokkuð sem fyrirtækið Auðnast vinnur með og leggur áherslu á gott umhverfi fyrir starfsfólk og vinnustaði. Ragnhildur Bjarkadóttir sálfræðingur og sérfræðingur í vinnuvernd kom í þáttinn í dag og við til dæmis veltum fyrir okkur hvað felst í orðinu vinnuvernd, en hér á árum áður þýddi það aðallega gulur hjálmur en í dag svo miklu meira.

    Svo skoðuðum við menntamálin, nánar tiltekið nýja þáttaröð sem heitir Kaflaskil. Í þeim er farið djúpt ofan í stöðuna í menntamálum, þar sem talað er við kennara, skólastjóra og nemendur. Er A í einum skóla það sama og A í öðrum? Hvernig ná skólarnir að sinna nemendum með fötlun eða nemendum með erlendan bakgrunn? Guðrún Hálfdánardóttir, kollegi okkar hér á Rás 1 og umsjónarmanneskja þáttaraðarinnar, var hjá okkur í dag og fór betur með okkur yfir menntamálin og efni þáttaraðarinnar og við fengum að heyra tvö brot úr þáttunum, úr viðtali Guðrúnar við Sigrúnu Blöndal deildarstjóra í 6.- 10. bekkjar í Egilsstaðaskóla. Hægt er að hlusta á þættina á sunnudögum á Rás 1 og í spilara RÚV á ruv.is

    Tónlist í þættinum í dag:

    Nú liggur vel á mér / Lummurnar, útsetning Gunnar Þórðarson (Óðinn G. Þórarinsson, texti Númi Þorbergsson)
    Nútíminn / Þursaflokkurinn (Egill Ólafsson, texti Sigurður Bjóla Garðarsson)
    Gaggó Vest / Eiríkur Hauksson (Gunnar Þórðarson, texti Ólafur Haukur Símonarson)

    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

  • VÆB bræðurnir tveir, Hálfdán og Mattías Mattíassynir stíga á Eurovisionsviðið í kvöld ásamt dönsurum og syngja lagið Róa. Þeir voru sérstaklega valdir til að vera fyrstir af því stjórnendur keppninnar vildu að kvöldið myndi byrja með miklu stuði. Fararstjóri íslenska hópsins er sem fyrr Felix Bergsson og við vorum með hann á línunni í dag og fengum nýjustu fréttir frá Basel.

    Miðvikudagsbíó hefur verið vinsælt í vetur í Bíó Paradís, þessar sýningar voru hugsaðar fyrir eldra fólk, fólk sem vinnur á kvöldin og bara hvern sem vildi koma um miðjan dag í bíó. 28.maí verður lokaviðburður miðvikudagsbíósins með frumsýningu á gamanmynd og boðið verður upp á diskóball fyrir eldri borgara strax eftir sýninguna. Hrönn Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri Bíó Paradísar, og Katrín Þorsteinsdóttir, dyggur aðdáandi miðvikudagsbíósins og kvikmynda yfir höfuð, komu til okkar og sögðu betur frá þessu í þættinum.

    Svo kom Einar Sveinbjörnsson til okkar í veðurspjallið í dag. Í þetta sinn talaði hann um lýsingar á veðri, orðfæri og tungutak. Þ.e.a.s. hann bar saman hvernig veðrinu var lýst á 19.öld af Erlendi Björnssyni og hvernig það yrði orðað í dag og hvernig mun þetta mögulega þróast áfram inn í framtíðina. Svo rýndi Einar í langtímaútlitið út maí og jafnvel aðeins inn í júní.

    Tónlist í þættinum í dag:
    Never Ever Let You Go / Rollo and King (Sören Poppe, Stefan Nielsen og Thomas Brekling)
    Róa (Jazz útgáfa) / VÆB (Hálfdán Helgi Matthíasson, Matthías Davíð Matthíasson, Gunnar Björn Gunnarsson og Ingi Þór Garðarsson)
    Bara Bada Bastu / Kaj (Anderz Wrethov, Axel Åhman, Jakob Norrgård, Kevin Holmström, Kristoffer Strandberg, Robert Skowronski)
    Calm After the Storm / The Common Linnets (Ilse Delange, JB Meijers, Rob Crosby, Matthew Crosby og Jake Etheridge)

    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

  • Garðyrkjubændur geta fengið allt að 15 milljóna króna styrk úr loftslags- og orkusjóði vegna fjárfestinga í orkusparandi tækni, LED-ljósum, tölvu- og stýribúnaði og gardínukerfum. Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur undirritað reglugerð um styrkina sem geta numið allt að 40% af heildarkostnaði við fjárfestingu, en þó að hámarki 15 milljónir. Axel Sæland er formaður deildar garðyrkjubænda hjá Bændasamtökum Íslands og hann kom í þáttinn í dag og sagði okkur betur frá stöðunni.

    Margir hafa horft á þáttaröðina um söngvaskáldið Leonard Cohen sem sýnd var nýlega í sjónvarpinu og er enn aðgengileg í spilaranum á ruv.is. Þar er rifjað upp tímabil í lífi söngvarans þegar hann var við það að slá í gegn og sambúð hans með hinni norsku Marianne. Söngvarinn og lagasmiðurinn Daníel Hjálmtýsson hefur sungið lög Leonard Cohen og vakið athygli fyrir góða túlkun. Daniel og hljómsveit hans voru til dæmis þau fyrstu til að flytja síðustu plötu Leonard Cohen, You Want it Darker, í heild sinni í IÐNÓ árið 2019. Nú ætlar Daníel að syngja lög Leonard Cohen í Hvalsneskirkju, Akraneskirkju og í Djúpinu í Reykjavík í lok maímánaðar og hann kom í þáttinn og fræddi okkur um Cohen.

    Lesandi vikunnar í þetta sinn var Védís Eva Guðmundsdóttir, hún er menntaður lögfræðingur og hefur starfað sem slíkur erlendis og hér á landi, en í dag rekur hún frönsku sælkeraverslunina Hyalin á Skólavörðustíg, ásamt eiginmanni sínum og er sest aftur á skólabekk, í þetta sinn í ritlist við Háskóla Íslands. En hún var auðvitað komin í þáttinn til að segja okkur frá því hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Védís Eva talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
    Orbital e. Samantha Harvey
    Matrenescence e. Lucy Jones
    Heyrnalaut lýðveldi e. Ilya Kaminski
    Kafka á ströndinni, 1Q84 og fleiri bækur eftir Haruki Murakami
    Himnaríki og helvíti og Fiskarnir hafa enga fætur e. Jón Kalmann

    Tónlist í þættinum í dag:
    Það er svo ótal margt / Ellý Vilhjálms (Smith & Lindsey, texti Jóhanna G. Erlingsson) All kinds of everything
    Ég vil bara beat músík / Ríó tríó (Dixon & Mason, texti Ómar Ragnarsson)
    So Long Marianne / Leonard Cohen (Leonard Cohen)

    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

  • Föstudagsgesturinn okkar að þessu sinni kemur að norðan, söngkonan og hjúkrunarfræðingurinn Inga Eydal. Inga hefur verið að syngja frá blautu barnsbeini, dóttir Ingimars Eydal tónlistarmanns og Ástu Sigurðardóttir, en Ásta samdi fjölmarga dægurlagatexta við lög sem hljómsveit Ingimars flutti hér á árum áður. Inga söng með hljómsveit föður síns, rak sína eigin hljómsveit um tíma auk þess að starfa sem hjúkrunarfræðingur. Árið 2020 gaf hún út bók sem vakti mikla athygli, Konan sem datt upp stigann, saga af kulnun. Inga hefur í kjölfar útgáfu bókarinnar haldið fjölmarga fyrirlestra um þessa reynslu sína af kulnun og hefur einnig veitt ráðgjöf og stuðning við einstaklinga meðal annars vegna kulnunar, langvarandi veikinda og streitu. Við fórum með Ingu aftur í tímann á æskuheimilið og fetuðum okkur í gegnum lífið til dagsins í dag.

    Matarspjallið var svo sent út frá þremur stöðum í dag, Reykjavík, Akureyri, þar sem Guðrún var, og Laxárdal hvar Sigurlaug Margrét var. Við ræddum um ítalskan mat, þ.e. þegar hann kom fyrst til landsins, pasta og pizzur.

    Tónlist í þættinum í dag:
    Hvítur Stormsveipur / Hljómsveit Ingimars Eydal (Finnur Eydal)
    Gömul saga / Atlantic kvartettinn og Helena Eyjólfs (Livingstone, texti Jón Sigurðsson)
    Í fyrsta sinn ég sá þig / Inga Eydal (Birger Sjöberg, Magnús Ásgeirsson)

    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

  • María Pálsdóttir leikkona hefur svo sannarlega látið að sér kveða hér á Akureyri síðan hún flutti aftur þangað fyrir nokkrum árum. Hún opnaði Hælið, setur um sögu berklanna á Íslandi sem hefur hlotið mikla athygli enda fróðleg og áhrifarík sýning. Hún kom á fót Fiðringi, hæfileikakeppni grunnskólanna á Akureyri í ætt við Skrekk fyrir sunnan og í gærkvöldi kepptu níu grunnskólar til úrslita í Hofi. Nú síðast hefur hún sett á stofn fargufu á Akureyri sem hún kalla Sánuvagn Mæju. María sagði okkur frá þessu öllu í þættinum í dag.

    Garðeigendur eru byrjaðir að huga að garðinum og víða er fólk að hreinsa til eftir veturinn. Guðríður Helgadóttir garðyrkjufræðingur kom til okkar í dag og fór yfir vorverkin og sagði okkur líka frá 140 ára afmæli Garðyrkjufélags Íslands, en hún er einmitt formaður félagsins.

    Fyrir aldarfjórðungi, í júnímánuði árið 2000, riðu yfir Suðurland öflugir jarðfskjálftar sem skildu eftir sig djúp spor í minni þeirra sem upplifðu þá. Sveitarfélagið Rangárþing ytra stendur að verkefninu „Skjálftasögur“ með það að markmiði að safna saman persónulegum sögum af þessum stóra atburði og hvetja fólk sem upplifði skjálftana til að deila reynslu sinni, en sveitarfélagið vill nú tryggja að þessar mikilvægu frásagnir verði skrásettar. Ösp Viðarsdóttir, markaðs- og kynningafulltrúi Rangárþings ytra sagði okkur betur frá þessu verkefni, en hægt er að senda inn sögur á heimasíðu sveitarfélagsins: www.ry.is

    Tónlist í þættinum í dag:
    Ævilagið / Hljómsveitin Eva (Jóhanna Vala Höskuldsdóttir og Sigríður Eir Zophoníasardóttir)
    Hvað um mig og þig? / Ragnhildur Gísladóttir (Magnús Eiríkisson)
    Tíu dropar / Moses Hightower (Moses Hightower, texti Steingrímur Karl Teague og Andri Ólafsson)
    Tíu dropar af sól / Baggalútur (Bragi Valdimar Skúlasons)

    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON