IJsland – Populaire podcasts
-
Fyrrum fréttakonurnar Þórhildur Þorkels og Nadine Yaghi rifja upp áhugaverð fréttamál og fjalla um þau á mannlegum nótum.
-
Í þættinum eru atburðir og málefni líðandi stundar skoðaðir í ljósi sögunnar. Umsjón: Vera Illugadóttir.
-
Jón Kristinn ræðir við sérfræðinga og leiðir hlustendur í gegnum sögu Íslands og umheimsins.
Hlaðvarpið er styrkt af menningarsjóði tengdum nafni Jóhannesar Nordals.
Patreon.com/Islandssagan -
Orlofið er létt og einlægt hlaðvarp um foreldralífið. Uppeldi, fjölskylda, sambönd og allt sem fylgir því.
-
Þáttur á ferðinni sem upplýsir, fræðir og gleður, en við lofum engu!
-
Birkir Karl Sigurðsson & Leifur Þorsteinsson ásamt gestum.
Fyrirspurnir: [email protected] -
Þrjár goðsagnir, þrjú sjónarhorn, engin sía. Dóri DNA, Kjartan Atli Kjartansson og Danni Deluxe leiða saman hesta sína í hlaðvarpi þar sem allt er undir.
-
Podcast by FM957
-
Birta Líf og Sunneva Einarsdóttir fara yfir allskonar skemmtileg málefni sem tengjast hinum vestræna heimi.
-
Spjöllum saman um morð, mannshvörf, raðmorðingja og dularfull dauðsföll sem eru bæði leyst eða óleyst mál! Nýr þáttur kemur út alla miðvikudaga. Þú finnur okkur á facebook og instagram: Morðskúrinn.
www.pardus.is/mordskurinn -
Spursmál er nýr og beinskeyttur umræðuþáttur á mbl.is
Þar eru stóru mál samfélagsins krufin með afdráttarlausum hætti undir stjórn Stefáns Einars Stefánssonar sem fær til sín valinkunna gesti í settið alla föstudaga kl. 14.
Fylgstu með lifandi, fjölbreyttri og kraftmikilli umræðu í Spursmálum
á mbl.is. -
Hlaðvarp
-
Í safnvarpinu Sögur úr raunveruleikanum leita dagskrárgerðarmenn uppi sannar sögur úr íslenskum samtíma.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
Hér er rætt hispurslaust um stjórnmál, efnahagsmál, menningu og annað tengt þjóðmálum.
-
Hlaðvarp um sakamál samtímans sem byggir á opinberum heimildum og ítarlegri rannsóknarvinnu.
-
Í Skuggavaldinu ræða prófessorarnir Eiríkur Bergmann og Hulda Þórisdóttir saman um hvaðeina er viðkemur samsæriskenningum. Samfara örum samfélagsbreytingum hefur samsæriskenningum hratt vaxið fiskur um hrygg, svo sem í kjölfar Brexit, stjórnartíðar Donalds Trump og COVID-faraldursins. Samsæriskenningar eru þó ekki nýjar af nálinni, heldur hafa þær fylgt manninum frá öndverðu og nærast á þörf til að greina hulið skipulag í óreiðu.
Framleitt af Tal. -
Gugga í gúmmí og Patrekur Jaime fara yfir víðan völl. Allt sem má ekki segja í útvarpinu kemur hér.
-
Varnarsamningurinn milli Íslands og Bandaríkjanna er 75 ára um þessar mundir. Ekki gera allir sér grein fyrir að hann er nátengdur NATO og veru okkar þar. Sum ákvæði viðauka hans voru leyniskjöl frá því að hann var gerður 1951 og þar til bandaríski herinn hætti að vera með varanlegt herlið 2006. Þar á meðal ákvæði um að Bandaríkin geti stöðvað flug og tekið yfir loftl-helgi Íslands. Þau eru að umtalsverðu leyti enn í gildi.
Flekaskil er hlaðvarp sem fjallar um Ísland og alþjóðamál. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir alþingismaður og fyrrverandi utanríkisráðherra og Dagur B. Eggertsson alþingismaður og fyrrverandi borgarstjóri eru af sinn hvorum væng stjórnmálanna. Þau ræða flekaskilin sem eru að verða í alþjóðamálum, breytta heimsmynd, árásir á alþjóðalög, bresti í bandalögum og nýjar átakalínur en síðast ekki síst hvernig þessar breytingar hafa áhrif á stöðu Íslands, — í öryggis- og varnarmálum, í samskiptum við helstu bandalagsríki okkar, í tengslum við Bandaríkin, NATO, Trömp og Evrópu.
-
Kaupa áskrift HÉR
True Crime Ísland - hlaðvarp þar sem fjallað er um nýleg íslensk sakamál og þau útskýrð út frá dóminum sjálfum. Við erum þrjár vinkonur, þar af tveir lögfræðingar, sem lesum dóma, útskýrum málsatvik og ræðum hvernig réttarkerfið virkar á Íslandi.
Fyrsta serían fjallar um karlmenn sem drepa karlmenn, þar sem við förum í gegnum íslensk morðmál, dómsniðurstöður og áhrif þeirra á samfélagið.
Ef þú hefur áhuga á íslenskum sakamálum og raunverulegum dómum þá er þetta podcastið fyrir þig.Fylgdu okkur á Facebook
Fylgdu okkur á Instagram
Fylgdu okkur á TikTok
Fylgdu okkur á YouTube
Fylgdu okkur á Spotify
Fylgdu okkur á Apple Podcast
Fylgdu okkur á Podbean
Fylgdu okkur á Linktree
-
Gestur úr öllum kimum þjóðfélagsins deila sögu sinni með hlustendum. Umsjón: Viktoría Hermannsdóttir
- Laat meer zien